Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
21
Menning
Búálfur
á bænum er
Jólagrauturinn.
Höfundur: Sven Nordquist.
Þýðgndi: Þorsteinn frá Hamri.
Útgefandi: Forlagið 1987.
Hinn þekkti sænski myndabóka-
höfundur, Sven Nordquist, sendi í
fyrra frá sér bók sem Þorsteinn frá
Hamri hefur þýtt undir nafninu
Jólagrauturinn.
Þetta er litrík og falleg mynda-
saga sem gerist á aðfangadagskvöld
og er byggð á gömlu skandinavísku
þjóðtrúnni um búálfmn sem var
nokkurs konar verndari bæjarins.
Ef búálfmum var gott gert var
hamingja heimihsins tryggð en ef
gleymdist að hugsa um hann var
vísast að óhöpp gætu hent. Einkum
var jólagrauturinn mikilvægur. í
sögunni segir frá búálfatelpunni
Höllu, systkinum hennar og for-
eldrum og undibúningi undir
jólaverð búálfafjölskyldunnar á
aðfangadagskvöld og spurningunni
um það hvort fólkið muni nú eftir
að gefa búálfmum jólagrautinn.
„ ... þegar fólkið fer út með graut-
arskál handa búálfinum þá er það
að votta honum virðingu sína. í því
felst þakklæti fyrir allt sem hann
gerir og ótti við að verða fyrir reiði
hans,“ segir búálfapabbi við Höllu
og hann segist verða reiður ef fólk-
ið auðsýni honum ekki virðingu
eftir allt púlið árið um kring. Búálf-
ar eru nefnilega á þönum við að
afstýra óhöppum alla daga. Búálfa
Bókmeimtir
Hildur Hermóðsdóttir
kerlingar eru hins vegar þeirri gáfu
gæddar að sjá þessi óhöpp fyrir og
þær senda karla sína til að koma í
veg fyrir þau. Búálfamamma veit
að nú muni fólkið gleyma grautn-
um sem karli hennar fmnst svo
mikilvægur. „Einu sinni, fyrir óra-
löngu hafði grauturinn gleymst. Þá
hafði búálfapabbi orðið svo reiður
að stöðug óhamingja ríkti á bænum
í heilt ár.“
Þessu verður hún að afstýra og
með kænsku sinni og aðstoð barn-
anna tekst henni þaö.
Sagan er sögð í gamansömum dúr
og myndirnar sýna inn á myndar-
legt sænskt heimili þar sem jóla-
sveinn kemur i heimsókn og
hefðbundnir siðir ríkja. Það má
raunar varla á milli sjá hvort heim-
ilið er ríkulegra: heimih bónda eða
búálfsins á heyloftinu. En það ríkir
sannkölluð jólastemning á báðum
stöðum. Textinn, sem segir þessa
litlu sögu, er kannski fulllangur en
hann er skemmtilegur og vel upp
settur með fallegum myndum. Þær
sýna svo að segja alla hugsanlega
hluti sem tengjast heimili og jólum
og einkennast af hlýrri birtu kerta-
ljósa og fjörlegum svipbrigðum
persónanna.
HH
Ný bók Halldórs Laxness
„Dagar hjá múnkum"
í dag kom út hjá bókaforlagi Vöku-
Helgafells ný bók eftir nóbelsskáldið
Halldór Laxness. Hún heitir Dagar
hjá múnkum og lýsir veru hans í
klaustrum og kynnum af munkum
og prelátum snemma á öldinni á
meginlandi Evrópu og á Bretlands-
eyjum.
Skáldið segir bókina vera eins kon-
ar essayróman en stór hluti hennar
er efni dagbókar sem nýlega kom í
leitirnar og Halldór hélt í klaustrinu
í Saint Maurice í Clervaux í Lúxem-
borg er hann „réðist á vist hjá
múnkum af reglu heilags Bened-
ikts“, svo notuö séu hans eigin orð,
árin 1922 til 1925 og aftur veturinn
1925 til 1926.
Bókin Dagar hjá múnkum er tæp-
lega tvö hundruð síður að stærð. Hún
skiptist í ellefu stutta kafla, átta
þeirra eru á undan klausturdag-
bókinni en þrír eftir að henni lýkur.
í umsögn á bókarkápu segir að bókin
eigi sér enga hliðstæðu meðal ís-
lenskra bóka enda kynni Halldórs
af klausturmönnum ólík því sem á
daga annarra landsmanna hafi drif-
ið. Prentvinnsla bókarinnar fór fram
hjá Prentstofu Guðmundar Bene-
diktssonar en hún er bundin hjá
Nýjar bækur
Bókfelli hf. Bæði fyrirtækin starfa í
Kópavogi. Nýja Laxnessbókin kostar
1988 krónur með söluskatti.
Alþýðubandalagið
- átakasaga
Bókaforlagið Svart á hvítu hefur
nú sent frá sér bókina Alþýðubanda-
lagið - átakasaga- eftir Óskar
Guðmundsson ritstjóra.
Bókin veitir lesandanum greinar-
gott yfirlit yfir sögu vinstrihreyfing-
arinnar á íslandi, allt frá stofnun
Kommúnistaflokksins til sam-
tímans, auk þess sem í henni er að
finna uppgjör höfundar við ýmsa
mikilvæga þætti, í fortíð og nútíð,
sem hvað áhrifamestir hafa orðið í
mótun þessarar sögu.
Líkt og nafn bókarinnar bendir til
eru dregin fram í dagsljósið margvís-
leg átök sem einkennt hafa sögu
þessarar hreyfmgar - átök sem orðið
hafa undirstaðan í þeirri kenningu
sem höfundur varpar fram um Al-
þýðubandalagið. Verð kr. 2450.
Á NÁTTBORÐIÐ
ÚTVARPSVEKJARI,
Verð kr. 3.490,-
FM, langbylgja
og segulband
<>
TiEKNILAND
Laugavegi 168 - sími18055
landsleiknum og láttu
drauminn rætast