Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Page 25
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
25
Nýfrjálshyggjan
í framkvæmd
Ekki verður annað ráðið af við-
brögðum sjálfstæðismanna en að
þeir hafi samþykkt ætlanir fram-
sóknarmanna en það er að afhenda
nokkrum tugum íjölskyldna íjör-
egg og sameign þjóðarinnar. Og
hinn almenni borgari hefur verið
svæfður og hann horfir ráðþrota á
meðan mesta arðrán íslandssög-
unnar er framkvæmt í skjóh
kvótakerfisins og nauðsynjar þess
að takmarka þarf fiskveiðar.
I
Fáránlegt kvótakerfi
Og að sjálfsögðu hafa svokallaðir
„hagsmunaaðilar" samþykkt fyrir
sitt leyti arðránið, en þó margir
með hálfum huga því upp til hópa
eru þetta góðir drengir sem lifa á
erfiði sínu og áræði en ekki því sem
öðrum ber og margir þeirra sam-
þykktu því kerfið með hálfum
huga.
í þessari grein ætla ég ekki að
fara út í fyrri aflaskiptingu milli
landshluta enda hafa aðrir gert
það. Þess í stað að sýna fram á fár-
ánleika og fullyrðingar frammá-
manna Sjálfstæðis- og Framsókn-
arflokks um að ekki sé hægt að
breyta kvótakerfinu því það sé svo
margslungið. En sannleikurinn er
sá að ekkert er fiær sanni. Og því
til sönnunar tek ég dæmi.
Sameign allra og kvóti
Þegar fiskifræðingar hafa ákveð-
ið hversu mikið veiöa má úr
hveijum fiskstofni er hægt að
stjórna veiðunum með einni tölvu
sem tekur við upplýsingum vigtar-
manna um hversu miklu hafi verið
landað af hverri tegund á degi
hverjum þar til kvóta er náð. Þá
eru veiðar stöðvaðárá viðkomandi
fiskstofni.
í þessu kerfi hafa allir sama rétt
til að róa og fiska sem að sjálfsögðu
er hin eina og rétta fiskveiðistefna
KjaUarixm
Sigurður
Arngrímsson
f rámkvæmdastj óri
og hún mundi spara þjóðarbúinu
hundruð mihjóna króna árlega.
En vilji menn færa hluta sam-
eignarinnar yfir til landshluta, sem
ekki er óeðlÚegt því sama fiskteg-
und veiðist ekki allstaðar á sama
tíma við landið, þá er ekkert auð-
veldara en að skipta aflamagninu
niður á landshluta. Það er einnig
hægt að ákveða hversu mikið má
veiða með hverju veiðarfæri og
þetta er ekkert mál og gæti yerið í
höndum byggðarlaganna sjálfra.
Einnig hversu mikið af fiski þau
vildu taka á mánuði hverjum. En
í báðum dæmunum heíðu allir
sama rétt til að sækja sjó og draga
sinn fisk en það ætti enginn fiskinn
í sjónum eins og nú á sér stað og
stefnt er að áð lögfesta á Alþingi.
Frelsi til lífsins
Við megum aldrei binda okkur á
þessa klafa sem frammámenn
framsóknar- og sjálfstæðismanna
hyggjast gera með því að keyra
þetta stórgallaða kvótakerfi gegn-
um Alþingi. Allir ungir menn
innan sjómannastéttarinnar eiga
jafnan rétt á við gömlu kempurnar
að draga sinn fisk úr sjó og njóta
afraksturs erfiðis síns og áræöis og
það má aldrei verða að menn geti
fengið þennan rétt í arf eða gegnum
kvongun inn í útgerðarfjölskyldu.
Og enn síður - eins og nú á sér stað
- að fólk geti flatmagað á sólar-
strönd og fjármagnaö dvöl sína þar
með því að selja kvóta, sem þeim
hefur verið úthlutaö úr tjöreggi og
sameign þjóðarinnar. Og ég bið al-
góðan guð aö forða okkur frá þessu
oki sem þessir menn ætla nú að
leggja á þjóðina því tvö ár gætu
hæglega oröið tvö hundruð eða
jafnvel ok um aldur og ævi. Og það
er af þessum sökum, hvar í flokki
sem við stöndum, sem okkur ber
skylda til að snúa bökum saman
og fella burt þessa vitiausu fisk-
veiðistefnu með núverandi kvóta-
kerfi.
Sigurður Arngrímsson
„AUir ungir menn innan sjómanna-
stéttarinnar eiga jafnan rétt á við
gömlu kempurnar að draga sinn fisk
úr sjó..segir greinarhöfundur.
Odýri skómarkaðurinn
Hverfisgötu 89
Mölnlycke ‘S
Fyrr eða síðar kemstu að því að LIBERO
bleiurnar eru betri.
Þær innihalda engin kemísk bleikiefni.
Þykkastar í miðjunni þar sem þörfin er mest.
Þurrar við húðina. Tvöföid teygja.
Fjölnota límband.
KAUPSELSF.
VO
ÍStUÍ
ó\a^raU
úð 'tV
%
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
LAUGAVEGI 25
SÍMAR: 27770 OG 27740
VÉLMENNI OG TÆKI
4 GERÐIR
QUICK- \
SHOT
LASER BYSSA
FALLEGAR
DÚKKUR
VERÐ KR. 1.595,