Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Qupperneq 26
26
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBÉR 1987.
Iþróttir
Frétta-
stúfar
Leikbann
Brady stytt
UEFA, knattspyrnusamband
Evrópu, tók í gær fyrir áfrýjun
írska knattspyrnusambandsins
vegna fjögurra leikja banns í
Evrópukeppni sem Liam Brady
var dæmdur í eftir aö
hafði verið rekinn af velli í leik
írlands og Búlgaríu í Dublin í
haust. Dómur aganefndar
UEFA var mildaöur- í tvo leiki.
Áírýjunarnefnd UEFA kynnti
sér feril Bradys en brottvikn-
ingin í Dublin var hans fyrsta
í 67 landsleikjum. Hann hefur
tvívegis verið bókaður í land-
sleikjum. Þá var hann hreins-
aður af þeirri ákæru að hafa
sýnt ofbeldi í leiknum í Dublin.
„Fyrstu tveir leikir okkar í
Evrópukeppninni skipta öllu
máli. Ef Liam Brady getur ekki
tekið þátt í þeim er lítil ástæða
til að velja hann í iandsliðs-
hópinn,“ sagði þjálfari írska
landsliðsins, Jackie Charlton,
)egar aganefnd UEFA dæmdi
Brady og bætti við: „Ég mun
ekki velja Brady nema leik-
bannið verði alveg fellt niður“.
Hvort hann stendur við þessi
orö sín á eftir að koma í Ijós.
Liam Brady hefur um langt ára-
bil veriö besti og þekktasti
leikmaður irska
Manuel, sem leikið hefur með
Benfica, var í gær seldur til
svissneska lið9ins Sion. Kaup-
verðið var 375 þúsund dollarar.
Sion var eitt þeirra átta
sem tryggöi sér
úrslitakeppnir-
deildinni
Eigendaskiptin á Watford
„Líklegt að ég hætti
öllum afskiptum
af knattspyrnu“
- segir Elton John og Robert Maxwell er mjög reiður
„Stjórn deildafélaganna er ekki
treystandi. Hún hefur sannað að orð
hennar er ekki virði pappírsins sem
forsetinn skrifaði nafn sitt á,“ er
haft eftir Robert Maxwell stórútgef-
anda í blaði hans Daily Mirror í gær
og þess getið að svo kunni að fara
að Maxwell og Elton John popp-
stjarna hætti öllum afskiptum af
knattspymunni. Selji þrjú knatt-
spymufélög.
Stjórn deildafélaganna tilkynnti
Maxwell á þriðjudag að hann geti
ekki keypt hlutabréf Elton John í
Watford nema hann selji hlutabréf
sín í Derby, þar sem hann er stjórn-
arformaður, Oxford og Reading. Að
sögn Daily Mirror eru þeir Maxwell
og John reiðir mjög. Fyrir 10 dögum
hafði forseti deildafélaganna, Philip
Carter (Everton), lofað á einkafundi
með þeim að Maxwell þyrfti aðeins
að selja hlutabréf sín í Oxford til að
geta keypt Watford.
„Stjórnin er að skaða Watford. Ég
veit ekki hvar ég stend og skil ekki
hvað hún ætlast fyrir. Eins og staðan
er í dag er eins líklegt að ég hætti
öllum afskiptum af knattspymu, ég
held mig langi ekki framar til að
horfa á knattspyrnuleik,“ sagði Elt-
onJohn.
Á fundi sínum á þriðjudag ákvað
stjórn deildafélaganna einnig að
halda aðalfund allra hinna 92. deilda-
félaga 19. janúar nk. og láta þar
greiða atkvæði um hvort einn og
sami maður geti haft afgerandi áhrif
í meira en einu félagi.
Watford, Oxford og Derby voru í
lægri deildum, þegar John og Max-
well tóku við stjórninni hjá þeim.
John varð stjómarformaður Watford
og kom liði félagsins úr 4. deild í þá
fyrstu. Maxwell kom Oxford úr 3.
deild í þá fyrstu og báðir hafa lagt
mikla peninga í félögin. Ef þeir selja
þurfa nýir eigendur aö standa í mikl-
um fjárfestingum til að halda þeim í
1. deild. -hsím
Það eru skiptar skoðanir á kaupum Roberts Maxwell á knattspyrnufélögum.
Teikning úr Shoot
S-Kóreumenn eru komnir til landsins og æfa grimmt fyrir átökin
„sirkuspiltarnir" á fjölum Laugardalshallar en þar tóku þeir meðal annars fram leikf
á milli sín.
Landsleikur í handknattle
Sirkuslið S-l
komið til lan
- landslið S-Kóreu spilar tvo landsleiki við
S-Kóreumenn eru komnir til landsins
en þeir munu mæta íslendingum tvíveg-
is eftir helgina. Fer fyrri leikur þjóðanna
fram á mánudag klukkan 20.30 en sá síð-
ari á sama tíma á þriðjudag. Báðar
þessar viöureignir fara fram í Laugar-
dalshöll.
Áhorfendur ættu ekki að láta sig vanta
á þessa leiki. Kóreumenn spila nefnilega
ævintýralegan handknattleik þar sem
allt er byggt á hraða, snerpu og knatt-
tækni sem aðrar þjóðir ráða lítt eða ekki
yfir. Flest það sem Kóreumenn taka sér
fyrir hendur er veisla fyrir augað.
íslendingar hafa tvívegis mætt S-
Kóreumönnum í handknattleik - og í
hvorugt skiptið haft betur. Fyrst stein-
lágu íslendingar á HM í Sviss, 21-30, en
réttu nokkuð sinn hlut er þjóðirnar
mættust í S-Kóreu í sumar. Þá skyldu
liðin jöfn, 24-24, í æsispennandi leik.
Liðið sem ísland teflir nú fram er skipað
þessum mönnum:
Markverðir:
Einar Þorvarðarson, Val, Kristján Sig-
mundsson, Víkingi, Guðmundur Hrafn-
kelsson, Breiðabliki, og Gísli Felix
Bjarnason, KR.
Aðrir leikmenn:
Þorgils Óttar Mathiesen, FH, Jakob Sig-
Laugavegi 168, sími 18055.
HÖFUÐÚTVARP, FM STERE0.
Frábær hljómgæði.
VASADISKÓ,
rauð og blá.
Verð kr. 1.690
Félagaskipti í Englandi
„Bruceerofdýr"
- sagði stjórinn en Man. Utd keypti samt
„Steve Bruce er of dýr, Norwich
fer fram á 900 þúsund sterlingspund
sem er miklu meira en við metum
leikmanninn á. Þá hefur þetta mál
þvælst fyrir þeim hjá Norwich og við
munum nú leita á ný mið,“sagði Alex
Ferguson, sfjóri Man. Utd, í gær-
morgun. Um miðjan dag var hins
vegar boðað til skyndifundar form-
anna félaganna og klukkustund síðar
hafði Edwards hjá United keypt leik-
manninn á 825. þús. sterlingspund.
„Mikill léttir,“sagði Ferguson þá.
Talið var víst að Bruce, miðvörður
Norwich, yrði leikmaður hjá United
í vikunni en Norwich hafði nær tvö-
faldað verðið á leikmanninum
síðustu daga auk þess sem samnings-
umræðum milli félaganna var frest-
að nokkrum sinnum. Norwich vildi
ekki láta Bruce frá sér fyrr en félag-
ið hefði tryggt sér tvo nýja leikmenn.
Það hefur það nú gert. Fyrst var
norður-írski landsliðsmaðurinn
John ONeill keyptur frá QPR á 100
þúsund sterlingspund og á miðviku-
dag var Robert Fleck' keyptur frá
Glasgow Ragngers á 580 þúsund
sterlingspund. Það er mesta upphæð
sem Norwich hefur greitt fyrir leik-
mann. Fleck er 21 árs miðherji en
ONeill er miðvörður og hefur lengst-
um leikið með Leicester. Norwich er
ekki sterkt félag fjárshagslega og tal-
ið öruggt að það verði að selja Bruce
til að geta staðið við samningana við
Queens Park Rangers og Glasgow
Rangers. Setningarnar hér að ofan
voru skrifaðar eftir yfirlýsingu stjóra
United í gærmorgun. Auðvitað varð
Norwich að selja en þurfti þó ekki
að lækka boð sitt nema um 75 þúsund
sterlingspund.
-hsím
„Bruce er of dýr,“ sagði Alex Fergusson.