Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Page 28
40
íslandsmótið í blakinu:
Stúdentar og Blikar
í efstu sætunum
Fram sigraði HSK í oddahrinunni
af fimm í mjög tvísýnum leik í 1.
deild karla á íslandsmótinu í blaki
sl. fimmtudag. Leikurinn var háður
í íþróttahúsinu á Laugarvatni.
Fram vann fyrstu hrinuna 15-7 en
HSK-ingar næstu tvær, 15-12 og
15-13. Þá unnu Framarar aftur 15-8
og því þurfti úrslitahrinu. í henni
sigrúðu Framarar 15-12 og unnu þar
með leikinn.
Á laugardaginn voru tveir leikir á
íslandsmótinu og fóru þeir fram á
Neskaupstað. í 1. deild kvenna sigr-
aði topplið deildarinnar, UBK, Þrótt,
Neskaupstað, auðveldlega í þremur
hrinum, 15-2, 15-5 og 15-2. í 1. deild
karla sigruðu Víkingar Þrótt, Nes-
kaupstað, 3-0,15-11,15-5 og 15-8.
Körfiiknattleikiir NBA
San Antonio
tapaði
San Antonio Spurs, lið Péturs Guðmundssohar í bandarísku körfunni,
tapaði í gær fyrir Philadelphia 76ers með 102 stigum gegn 114.
Af öðrum leikjum er það að segja að Boston Celtics vann Utah Jazz,
121-111, Dallas Mavericks vann New Jersey Nets, 109-105, eftir framleng-
ingu og loks lagði Denver Nuggets lið Houston Rockets með 132 stigum
gegn 113.
Kvennaliðið í blaki
Tap gegn S-Kóreu
Kvennalið íslands í blaki tapaði í gær fyrir S-Kóreu, 3-0 eða 15-9,15-1 og
15-10. Leikurinn fór fram í Lúxemborg. „Ég er á margan hátt sáttur við þenn-
an leik enda spiluðu stelpurnar vel,“ sagði Leifur Harðarson landshðsþjálfari
í spjalh við DV í gærkvöldi.
„Þær náðu að verjast mjög vel og svara smössum Kóreubúanna hvað eftir
annað,“ sagði Leifur ennfremur. Hann kvað þetta jafnframt betri úrslit en
menn þorðu að vona fyrirfram. -JÖG
Jólamót hjá
GR í golfi
- í Grafarholti á sunnudag
„Völlurinn er nánast eins og um gerst hjá GR í rúm 50 ár. Veðurblíðan
hásumar, iðgrænn og við vorum að undanfariðhefurgertþaðaðverkum
slá hann um daginn," sagði Björgúlf- að kylfmgar hafa getað stundað
ur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri íþrótt sína sem að sumri væri og
Golfklúbbs Reykjavíkur, í samtali margir þeirra sem munu taka þátt í
við DV í gær. mótinu á sunnudaginn í Grafarholti
Á sunnudaginn fer fram golfmót í ættu því að koma óvenjuvel undir-
Grafarholti, jólamót GR. Ótrúleg búnir til leiks.
veðurblíða undanfarnar vikur hefur • Á jólamótinu verður leikin 12
gert það að verkum að gras hefur holu punktakeppni með fullri for-
tekið að spretta á nýjan leik og gras- gjöf. Þar sem aðeins er bjart í um það
ið á golfvöllunum er þar engin bil þrjár klukkustundir verður ræst
undantekning. Það er nær einsdæmi út frá öllum teigum samtímis klukk-
að hér á landi skuli fara fram golf- an hálftólf. Takmarka verður fjölda
mót um jólaleytið og slíkt hefur ekki þátttakenda við liðlega 50 manns.
! Atlantis
ims
■ Á myndinni hér að ofan tekur Mi
(aekinu fyigist með.
s Harðarsson, formaður ÍK, við I
,v.). Sigurjón Einarsson frá fyrir- |
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
íþróttir
I
I
I
I
ViJL xx xxx i NBA-deildinni i ■
I Bandarikjunum og jafnvel í öllum heimlnum, Manuet Bol frá Súdan, gekk nýlega í hjónaband. Bol þessi, sem I
| ér 2,32 metrar á hæð og leikur með Washington Bullets, náði sér ekki i konu f Bandarikjunum og fór þvi til I
■ Súdan og þar keypti hann konu þá er sést á myndlnni. Rétt er að vekja sérstaka athygli á handleggjum •
I kappans sem vart gerast mikiö lengri. Einnig má vekja athygli á vinstri hönd risans sem sést hægra megin I
myndinni, undir brúðarkjólnum.
Knattspyma
Félag
stofnað
á SeKossi
Áhugamenn á Selfossi hafa ákveðið
að stofna knattspyrnufélag. Félagið
hefur hlotið nafnið Knattspyrnufé-
lagið Ernir. Þessir áhugamenn ætla
að senda fyrirspurn til HSK og KSÍ
um stofnun félagsins og ef félagið fær
samþykki mun liðið leika í 4. deild á
næsta keppnistímabih. Bráðabirgða-
stjóm hefur verið sett á laggimar og
geta þeir sem áhuga hafa á aö leika
með hinu nýja félagi haft samband
við Sigþór Haraldsson formann í
síma 99-1588, Guðmund Jónsson
gjaldkera, 12169, Þorvald Sigurðsson
þjálfara, 99-1681, og Haraldur Magn-
ússon meðstjórnanda, 99-2271.
JKS
Þessi mynd er af eldhressum kylfingum sem unnu til verðlauna á
einu siðasta golfmóti þessa árs á meðal íslendinga. Mótið fór fram á Poni-
ente golfvellinum á Mallorca á Spáni en hópur kylfinga á vegum Sam-
vinnuferða/Landsýnar dvaldi á Spáni og fór mótið fram í lok ferðarinnar.
Ferð þessi vakti mikla lukku og hefur verið ákveðið að fara aðra slika um
páskana. Á myndinni eru, frá vinstri: Sigurður E. Sigfriðarson, G. Kili, lék á
85 höggum, Geir Þórðarson, GR, á 86 höggum, sigurvegarinn Þorsteinn
Magnússon, NK, á 74, Kári Elíasson, GR, á 75 höggum, Ómar Jóhanns-
son, GS, á 90 höggum og fararstjórinn gamalkunni, Kjartan L. Pálsson, sem
sá um að skipuleggja mótið.