Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1987, Síða 48
60
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Shelley Long
sem lék bardömuna í gaman-
þættinum Staupasteini, er
sæmilega efnuð. Hún á
tveggja ára gamla dóttur og
gefur henni náttúrlega jóla-
gjöf. Hún brá sér í búð um
daginn í því skyni og keypti
handsmíðað brúðuhús með
öllum fylgihlutum, sem hægt
var að fá, af fínustu gerð.
Brúðuhúsið var svona heldur
í dýrari kantinum en Shelley
setti verðið ekki fyrir sig. Það
hljóðaði upp á 540 þúsund
krónur.
Sarah Ferguson
fær margar óskir sínar upp-
fylltar, en þó ekki allar. Hana
langaði alit í einu í pels um
daginn og skellti sér í eina
af fínni pelsabúðunum. Hún
gekk út úr henni í pels fyrir
1,8 milljónir króna. Þegar hún
sýndi Andrew herlegheitin
gekk hann af göflunum og
spurði hana hvort hún héldi
að hún væri Díana. Fergie
mátti gjöra svo vel að fara
aftur til baka og skila pelsin-
um því þau hefðu ekki ráð á
svona fjárfestingu.
Brigitte Nielsen
er nú öllum stundum á Ítalíu
aar sem hún er með sjón-
varpsþátt. Einnig gaf hún út
plötu um daginn sem selst
víst bara nokkuð vel í Ítalíu
og Vestur-Þýskalandi. Gitte
var búin að ná nokrum vin-
sældum vestanhafs þegar
hún var gift Sylvester Stall-
one, en hún reynir lítið fyrir
sér þar lengur. Ástæðan kvað
vera sú að flestir Bandaríkja-
menn telja að hún hafi farið
illa méð súperhetjuna þeirra
og vilja því hvorki heyra í
henni né sjá.
Einar Júlíusson og Anna Vilhjálms sýndu og sönnuðu að þau höfðu engu
gleymt. DV-myndir GVA
Jóhann G. Jóhannsson tók að sjálfsögðu lagið „Don’t try to fool me“ við
góðar undirtektir.
Gullöldin riíjuð upp
Þeir í Súlnasal Hótel Sögu eru bún-
ir að skipuleggja skemmtidagskrána
sem gestum verður boðið upp á eftir
áramótin. Til þess að kynna hana
buðu Sögumenn fulltrúum úr
skemmtana- og blaðaiðnaðinum í
veislu þar sem boðið var upp á sýnis-
hom af skemmtidagskránni. Samtals
mættu tæplega 300 manns sem nutu
matarogdrykkjarjafnframtþvísem arson, Rúnar Júlíusson, Jóhann
þeir kynntu sér innihald skemmti- Helgason, Hljómar og fleiri. Einnig
dagskrárinnar. var sýnt úr söngleiknum Næturgal-
í skemmtidagskránni kennir anum eftir Magnús Eiríksson sem
ýmissa grasa. Á nýárskvöld verður frumfluttur verður í febrúar. Þar
sérstök sýning sem ber heitiö „Tekið komu fram meðal'annarra Jóhanna
á loft í Súlnasal og eru flugstjórar Linnet, Pálmi Gunnarsson og hljóm-
þeirrar sýningar meðal annars sveit Magnúsar Kjartanssonar. Af
Magnús Kjartansson, Gunnar Þórð- öðrum skemmtikröftumn, sem fram
komu, má nefna Einar Júlíusson,
Önnu Vilhjálms, Jóhann G. Jó-
hannsson og fleiri.
Gestirnir á þessari kynningu
skemmtu sér konunglega og tóku
jafnvel undir með söngvurum í göml-
um slögurum.
Magnús þór Sigmundsson söngvari hampar hér barnaplötunni „Ég
ætla að syngja’* sem kom út fyrir stuttu. DV-mynd HS
Ég ætla
að syngja
Fyrir þessi jól vill svo undarlega til að aðeins kemur út ein plata sem
er sérstaklega ætluð börnum. Vanalega hafa komið út þrjár til fimm, sex
plötur á ári en nú bregður öðruvísi við.
Þessi eina plata, „Ég ætla að syngja", er gefin út af bókaforlaginu Erni
og Örlygi. Aðalsöngvari plötunnar er Magnús Þór Sigmundsson, en Pálmi
Gunnarsson og Jón Ólafsson syngja einnig lög á plötunni.
í samtali við Magnús Þór kom fram að hann hafði lengi gengið með það
í maganum að vinna bamaplötu í samvinnu við böm, og lagði hann sér-
staka áherslu á að lögin á plötunni væm í þeim tónhæðum sem yngri
börn réðu við í hlustun. Lögin voru valin í samvinnu við Jenný Borge-
dóttir fóstru og börn á dagheimilinu Marbakka.
Auk þess að gefa út plötu er einnig hægt að fá hana á kassettu eöa
geisladiski. Textablað fylgir plötunni með einfóldum leiðbeiningum um
gítargrip fyrir unga gítarleikara ef þeir vilja reyna sig við lögin, og er
það til fyrirmyndar.
Mála-
skólií
40 ár
Kristín Guðmundsdóttir er ritari við skólann en Snorri Jóelsson og Ármann
Höskuldsson kennarar. DV-myndir KAE
Hér eru þrjár kynslóðir skólastjóra samankomnar, Rúnar Björgvinsson,
Einar Pálsson sem átti og rak Málaskólann Mimi um árabil og Valtýr Valtýs-
son sem er núverandi skólastjóri.
Málaskólinn Mímir hefur á þessu ári verið starfræktur í fjörutíu ár og var
afmælisins minnst í veislu um síðustu helgi að núverandi húsnæði skólans
aö Ánanesi.
Skólinn var stofnaður árið 1947 af Halldóri Dungal en Einar Pálsson keypti
hann fimm ámm síðar. Einar rak skólann í 32 ár en áriö 1984 keypti Stjórnun-
arfélag íslands hann af Einari. Ári síðar var starfsemin flutt úr Brautarholti
yfir í núverandi húsnæði að Ánanesi 15. Ritaraskóh hefur verið starfræktur
jafnframt málakennslunni frá árinu 1974.
í afmælisveisluna mættu margir fyrrverandi og núverandi kennarar og
nemendur skólans og fulltrúar frá Stjórnunarfélagi íslands til þess að halda
daginn hátíðlegan.