Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1988, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1988.
23
Ekkert áramótaskrall var í Sjailanum.
Ekki áhugi á
nýársfagnaði
A sama tíma og víðast hvar
var uppselt á hina svokölluðu
nýársfagnaði að kvöldi 1. jan-
úar i Reykjavík reyndist ekki
áhugi meðal Akureyringa á
að sækja shka samkomu.
Undanfarin ár hefur verið
haldinn nýársfagnaður í
Sjallanum á Akureyri en að-
sókn hefur ekki verið mikil,
hvað sem veldur. Þvi var beð-
ið átekta núna þar sem lítið
sem ekkert var um fyrir-
spumir. Þegar langt var liðið
á desember var ákveðið að
halda ekki slíkan fagnað að
þessu sinni. Þess í stað voru
hinir eldhressu Skriðjöklar
settir upp á svið í stað Ingi-
mars Eydals og hljómsveitar
hans sem var að skemmta á
nýársfagnaði í Broadway
sunnan Qalla og haldið ósköp
venjulegt bail í Sjallanum.
Það hefúr hins vegar vakið
athygli víða á landsbyggðinni
að þótt framboð á nýársfogn-
uðum aukist sífellt í höfuð-
borginm þá virðast færri
komast að en vilja og virðist
ekki skipta máli þótt slíkt
kvöld kosti 25-30 þúsund
krónurfyrirhjón.
Seilst í budd-
una
Davíð konungur í Reykja-
vík er nú sagður hafa komist
að niðurstöðu um hvemig
skuli refsa þeim bifreiðaeig-
endum sem leggja bflum
sínum ólöglega í borginni eða
borga ekki í stöðumæla. í stað
gamálla manna, sem röltu
um og útdeildu sektarmiðum
sem oftar en ekki var einung-
ishentafþeimseku, ernú
komin af stað sveit stöðu-
mælavarða sem fara um á
bflum og mótorhjólum og
hlífa engum sem af sér hefur
brotið. Lögveð verður komið
íviðkomandibifreiðástaðn- •
um og síðan verður hart
gengið eftir því að sektin
verði borguð. Mörgum finnst
hins vegar að Davíð og co
hefðu fyrst átt að gera átak í
því að bæta úr bflastæða-
vandamálum í borginni áður
en til slikra aðgerða var grip-
ið.
„Kóngur"
meðferða-
tösku
Þá hafa Akureyringar eign-
ast sinn Pan-kóng og segist
sá ferðast um með ferðatösku
milli staða og selja hjálpar-
tæki kynlifsins þeim sem
þurfandi eru fyrir slíkt. Þessi
nýi norðan-kóngur heitir
Stefán Þengilsson og hefur
m.a. REKIÐ myndbandaleigu
á Akureyri undanfarin miss-
eri. Hann segir að það sé
Sandkom
langbest fyrir sig að hafa vör-
umar í ferðatösku í bflnum
sínum og leyfa fólki að skoða
vaminginn þar.
Stefán hefur upplýst að það
séu margir einstæðingar sem
hafi þörf fyrir slflc tæki og
einnig fatlaðir. Að hans mati
er þörftn þ ví greinflega fyrir
hendi á Akureyri því þar eru
einstæðingar eins og annars
staðar og fatlaðir einnig.
Náttföt úr
lakkrís
Frá því var sagt hér á dög-
unum að fólki á Akureyri
hefði verið boðinn lakkrís til
kaups á tröppunum hjá sér
fyrir jólin. Þeir sem að þessu
stóðu munu hafa selt vel. En
nú er nýr aðili farinn að bjóða
lakkrís til sölu í bænum.
Hjálpartækjakóngurinn með
ferðatöskuna hefur nefhilega
upplýst að meðal þess sem
hann hefur upp á að bjóða
úr töskunni góðu séu undir-
fót úr lakkrís sem elskendur
geti nagað h ver utan af öðr-
um í hita leiksins. Ekki er að
efa aö þetta á eför að njóta
vinsælda þegar fram liða
stundir.
Vaktir í morg-
unsárið
Það þarf varla að fiölyrða
um það að alþingismenn okk-
ar hafa verið önnum kafnir
menn um hátíðamar og
fengu ekki sitt hefðbundna
mánaðaijólafri. Þeir máttu
mæta til fundar mánudaginn
mflli jóla og nýárs og sitja þá
fram til morguns daginn eft-
ir. Þá var komið að atkvæða-
greiðslu um kvótamáhð
svokallaða, en þá brá svo við
að ekki var hægt að greiða
atkvæði. Nokkrirþingmenn
höfðu nefnflega gefist upp og
skriðið heim í skjóh nætur.
Vom þeir vaktir og skipað að
mæta á ný til atkvæða-
greiðslu sem þeir og gerðu.
Þetta vekur ýmsar spuming-
ar, eins og t.d. þá hvemig
vinnuveitandi myndi taka á
því máh að starfsmaður
hans, sem vera ætti í vinnu,
væri kominn heim og sofnað-
ur þegar hans væri virkilega
þörfávinnustað.
Sumir þeirra laumuðust heim i
skjóli nætur.
Umsjón:
Gyifi Kristjánsson
Kvikmyndir
Estevez og Dreyfuss mynda stórgott par í enn betri mynd, Stakeout.
Bíóborgin/Á vaktínni
Pottþétt vakt
Stakeout
Bandarísk mynd frá Touchstone.
Handrit: Jim Kouf.
Leikstjóri: John Badham.
Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss, Emilio
Estevez, Madeleine Stowe.
Þegar margir góðir leggjast á eitt
getur útkomansjaldnast orðið önn-
ur en góð. Slík er líka raunin „á
vaktinni". Þar fer aUt saman sem
prýtt getur góða mynd. Spennandi
söguþráður með léttum brossmell-
um inni á milli, sérlega góður
leikur aðalleikarans Richard
Dreyfúss, skemmtilegur samleikur
hans og Emilio Estevez og stór-
skemmtileg atriði.
Söguþráðurinn segir frá tveimur
rannsóknarlögreglumönnum í Se-
attle. Þeir iifa hasarlífi og fmnst þvi
lítiö til koma þegar þeir eiga að
vera hækjur og hjálpargögn fyrir
alríkislögregluna, FBI.
Stórhættulegur refsifangi hefur
flúið út úr rammgerðu fangelsi og
þeim félögunum (leiknum af Dreyf-
uss og Estevez) er falið að fylgjast
með húsi fyrrverandi vinkonu
strokufangans. Þó að þeir séu ekki
hressir í fyrstu breytíst viðhorfið
þegar vinkonan kemur heim enda
hin huggulegasta stúlka.
Málin taka óvænta stefnu og fljót-
lega er annar þeirra, Kris Leece
(Dreyfuss), kominn í hið nánasta
samband við konuna sem hann á
að fylgjast með, félaga sínum tíl li-
tillar ánægju enda brot á öllum
starfsreglum.
Spennan ágerist síðan þegar líður
á myndina, bæði vegna sambands-
ins, sem veröur auðvitað að fara
leynt, svo og vegna strokufangans.
Meira verður ekki rakið hér enda
ættí fólk að bregða undir sig betri
fætinum og valhoppa á honum í
Bíóborgina. Hér er um kvikmynd
að ræða sem hrein synd væri að
missa af.
-JFJ
VISTUNARHEIMILI Á
REYKJAVÍKURSVÆÐINU
Okkur vantar heimili fyrir unga stúlku utan af landi
vegna skólagöngu hennar í Reykjavík. Upplýsingar
hjá félagsráðgjafa Öskjuhlíðarskóla, simi 689740.
REYKJKIIKURBORG
Acuctoin, Sfödun
DAGVIST BARNA
SKÓLADAGHEIMIUÐ SKÁLI VIÐ
KAPLASKJÓLSVEG
óskar eftir að ráða fóstru eða kennara
til starfa frá 15. janúar.
Á heimilinu er starfandi fóstra.
Upplýsingar í síma 17665.
Lóðaúthlutun
I Grafarvogi III, svokölluðu Brekkuhverfi, verða til
úthlutunar á þessu ári lóðir fyrir um 500 íbúðir í ein-
býlis-, fjölbýlis- og rað- eða parhúsum. Gert er ráð
fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar á þessu ári.
Úthlutun 140 einbýlis- og parhúsalóða verður hafin
nú í janúar. Nánari upplýsingar verða veittar á skrif-
stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími
18000. Þar fást einnig afhent umsóknareyðublöð og
skipulagsskilmálar.
Borgarstjórinn í Reykjavík
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Leiðbeinandi f. sambýli.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir eftir
leiðbeinanda í sambýli fólks með geðræn vandamál.
Starfið felst í félagslegum stuðningi við íbúa og að-
stoð við heimilishald og er unnið í samvinnu við
Félagsmálastofnun og félagsráðgjafa og iðjuþjálfa á
geðdeild Landspítalans. Um hlutastarf er að ræða
(ca 40-50 st. á mán.). Starfið er laust f.o.m. jan. 88.
Nánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðildum:
Rannveig Guðmundsdóttir félagsráðgjafi, geðdeild
Landspítalans, stmi 29000/503, 271, 619.
Sylvian Pétursson iðjuþjálfi, geðdeild Landspítalans,
sími 29000/651.
Ingibjörg Flygenring félagsráðgjafi, Félagsmála-
stofnun Reykjavíkur, sími 74544.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar í Pósthússtræti 9 og skal umsókn-
um skilað þangað fyrir 10. jan. 88.