Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1988, Side 29
MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 1988.
29
Sviðsljós
Jólasveinarnir Jólanes og Jólaráð stigu dans við góðar undirtektir yngstu kynslóðarlnnar á jólaballlnu I Tónabæ.
Nú þessa dagana eru haldin jóla-
böll víða um borg og bæi fyrir yngri
kynslóðina. Börnum starfsfólks DV
gafst kostur á að mæta í Tónabæ fyr-
ir stuttu, og mættu alls um 350 manns
og skemmtu sér hið besta. Hljóm-
sveit Andra Backman sá um jólalög-
in og er hún skipuð auk hans
harmóníkuleikaranum Gretti
Bjömssyni og Herði Friðþjófssyni
sem leikur á gítar.
Að sjálfsögðu mættu svo tveir jóla-
sveinar á svæðið og hétu þeir allund-
arlegum nöfnum. Þeir voru kallaðir
Jólanes og Jólaráð. Mikið fjör var á
ballinu og virtust krakkamir ekkert
vera hræddir við jólasveinana, enda
vom þeir hinir viökunnanlegustu.
Hinn 412 kílóa þungi blökkumaður, Walter Hudson, svarar hér spurning-
um blaðamanná eftir að hafa lést um taep 200 kíló á þremur mánuðum.
Símamynd Reuter
Sér varla högg a vatni
Mikið hefur verið rætt og ritað
um megrun 1 gegn um tiðina og
menn staöið sig misvel í henni eins
og gengur. Sumir einsetja sér aö
léttast um 5 kíló, aörir tíu eða jafn-
vel nokkra tugi.
Hitt mun þó öllu sjaldgæfara aö
menn einsetji sér að léttast um
svona 450 kíló. Þá ákvörðim tók þó
Walter Hudson, 42 ára blökkumaö-
ur, fyrir þremur mánuöum og
hefur á þeim tíma tekist að léttast
um tæp 200 kíló. Þó sér varla högg
á vatni því aö hann var um 600 kíló.
1 tilefni þess að hann var 200 kíló-
um léttari efndi haim til blaða-
mannafundar nu fyrir stuttu þar
sem hann sýndi árangurinn. Hann
gekk sjálfur frá svefhherbergi sínu
í tilefni dagsins inn í stofu heima
hjá sér og kom þar inn í fyrsta sinn
í 16 ár. Hann hafði ekki yfirgefið
svefhherhgrgi sitt í 16 ár samfleytt
og enn fleiri ár eru síðan haim kom
út undir bert loft. Gaman verður
að fylgjast með því hvort-honum
tekst að létta sig um 250 kíló í við-
bót.
Einar Kvaran, tölvustjóri á DV, og einkona hans, Kristin Kvaran, fréttamað-
ur á Stöð 2, virða fyrir sér jólasveininn, en dóttir þeirra, Thelma Kristín,
sem Einar heldur á, virðist hata meiri áhuga á Ijósmyndaranum.
DV-myndir GVA
Fjárlagaræðan
geinút
Fjármálaráöherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, flutti fjárlagaræöu
sína fyrir tæpum tveimur mánuðum.
Nú fyrir stuttu var hún gefin út af
fjárlagadeild fjármálaráðuneytisins
og er hún til sölu í nokkrum bóka-
verslunum og fjármálaráöuneytinu
fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna
sérhana.
Ekki hefur verið vaninn að gefa
hana út til sölu en að þessu sinni
hefur almenningur greiðan aðgang
að henni. Fjármál ríkisins væru í
sjálfu sér efni í heila bók en í fjárlaga-
ræðu Jóns Baldvins er drepið á það
helstaífjárlögum.
Jón Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra áritar hér sérútgáfu af
fjárlagaræðu sinni sem menn geta
nú orðið sér úti um af þeir vilja
kynna sér hana. DV-mynd GVA
Lengst til vinstri er Eyþór Gunnarsson, sem sá um flestar útsendingar á
plötunni, Jón Múli Árnason og Kristján Jóhannsson, forstjóri AB. Á milli
þeirra grillir í útgáfustjóra AB, Sigurð Valgeirsson. DV-mynd GVA
AfhencLing gullplötu
Plötur sem seljast í yfir 3 þúsund
eintökum fá viðurkenningu sem
gullplötur. Platan með lögum Jóns
Múla Árnasonar við texta Jónasar
Árnasonar náði þessu marki fyrir
jólin og tóku aðstandendur hennar
viö viðurkenningunni í Kringlunni á
Þorláksmessu í beinni útsendingu
Bylgjunnar.
Að sögn Sigurðar Valgeirssonar
hjá AB, sem gefur plötuna út, hefur
platan selst í hartnær 4 þúsund ein-
tökum til þessa. í Kringluna mættu,
til þess að taka á móti gullplötu, Jón
Múli Ámason, Eyþór GunncU'sson,
sem sá um tónlistarstjórn og flestar
útsendingar á plötunni, og Kristján
Jóhannsson, forstjóri AB.
Ölyginn
sagði...
hefur löngum verið hrifinn af
blökkustúlkum umfram aðrar.
Nú hefur kólumbísk kona, sem
heitir Mauricia, lögsótt hann
og kennir honum barn sitt.
Robert De Niro varð að mæta
fyrir rétt í Kólumbíu og þar
neitaði hann öllum ásökunum.
Hún heldur því fram að verkn-
aðurinn hafi verið framinn á
meðan tökur fóru fram á kvik-
myndinni Mission. Niro hefur
neitað að fara í blóðprufu til
að sanna mál sitt.
Mick Jagger
sem lengi hefur verið kvæntur
fyrirsætunni Jerry Hall, lenti í
miklu rifrildi við hana um dag-
inn. Hann vildi endilega að
hún eyddi með honum jólun-
um á Barbadoseyjum þar sem
hann á hús. Hún vildi ekki fyr-
ir nokkum mun eyða leyfinu á
sama stað og hún var dæmd
fyrir að vera með eiturlyf. Þau
eyddu því jólunum sitt I hvoru
lagi en hafa náð sáttum á ný
að sögn kunnugra.
Jack Nicholson
lofaði góðvini sínum, John
Houston leikstjóra, á dána/-
beði hans að hann myndi
kvænast Anjelicu Houston,
dóttur hans. Nicholson hefur
nú svikið það loforð og yfirgef-
ið Anjelicu. Hann er nú farinn
að halda við gullfallega breska
leikkonu sem heitir Karen
Mayo-Carpenter. Jack er
fimmtugur að aldri en Karen
er 28 ára gömul. Hún lék með-
al annars í myndinni Beverly
Hills Cop.
■r