Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Side 17
17 MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988. Ríkisútvarpið er baggi á almenningi „Útþensla ríkisútvarpsins er hroðaleg tímaskekkja. Það er óeðlilegt að ríkis- fyrirtæki skuli standa í samkeppni við einkafyrirtæki með því að láta almenh- ing borga herkostnaðinn.“ Það er líklega einsdæmi í heimin- um að verð á þjónustu skuli hækka þegar samkeppni kemur í viðkom- andi grein. En svo er nú samt háttað um útvarp og sjónvarp hér á landi. Þessi verðhækkun á reyndar að- eins við um einn rekstraraðila, ríkisútvarpið. Á sama tíma og einkaaðilar bjóða neytendum ókeypis hlustun á útvarp þá hækka afnotagjöld ríkisútvarpsins um 85 prósent. Fyrst hækkuðu þau síð- astliðið sumar og svo aftur nú um áramótin. Þetta 'er hreint óskiljanlegt. Á sama tíma og einkareknar stöðvar auka fjölbreytnina fyrir neytendur þá steypir ríkisútvarpið sér út í meiri dagskrárgerö en nokkru sinni fyrr. Þetta, ásamt byggingu á kastala við Efstaleiti, kostar ríkis- útvarpið hátt í tvö hundruð milljón króna tap á árinu 1987. Afnotagjaldið er skaftur Afnotagjald ríkisútvarpsins er ekkert annað en skattur. Háttalag forráðamanna ríkisútvarpsins síð- asthðið ár er ekkert annað en bruðl með almannafé. Nú bjóða tvær öflugar útvarps- stöðvar í einkaeign upp á útvarps- efni sem nær til 70 til 80 af hundraði landsmanna. Þar sem þessar stöðv- ar nást hafa þær alls staðar meiri hlustun en rásir ríkisútvarpsins, nema í fréttatímum. Efni þessara stöðva er neytendum að kostnaðar- lausu. Nú nær Stöð 2 til 93 af hundraði landsmanna. Þessi sjónvarpsstöð er fyrir löngu búin að skáka ríkis- sjónvarpinu. Hún sendir út tvöfalt meira efni en sjónvarpið. Metnaður KjáUaiiim Ólafur Hauksson útvarpsstjóri Stjörnunnar og gleði skín út úr dagskrá Stöðvar 2. Þrátt fyrir stóraukið úrval út- varps- og sjónvarpsefnis frá einka- stöðvunum rembist ríkisútvarpið eins og ijúpan við staurinn að framleiða meira efnir Lítið bar á slíkri þjónustulund þegar ríkisút- varpið einokaði öldur ljósvakans. Niðurgreitt auglýsingaverð Útþensla ríkisútvarpsins er hroðaleg tímaskekkja. Það er óeðli- legt að ríkisfyrirtæki skuh standa í samkeppni við einkafyrirtæki með því að láta almenning borga herkostnaðinn. Ekki nóg með það. Afnotagjöldin, sem renna til ríkisútvarpsins, vinna beint á móti einkastöðvun- um. Afnotagjöldin standa undir helmingi af rekstri ríkisútvarpsins. Þar af leiðandi er auglýsingaverð hjá ríkisútvarpinu lægra en það mundi vera ef almenningur stæði ekki að hluta undir rekstrinum. Ríkisútvarpið heldur auglýsinga- verði annarra stöðva niðri með þessu móti. Það selur niðurgreidd- ar auglýsingar. Einkastöðvamar hafa ekki almannafé th að greiða hluta af rekstrinum. Einkarekstur er betri Á rétt rúmu ári hafa einkaaðilar sýnt með glæsibrag að þeir geta starfrækt útvarps- og sjónvarps- stöðvar sem bjóða ekki aðeins upp á betri dágskrá en ríkisútvarpiö heldur eru þær einnig ódýrari og hagkvæmari í rekstri en ríkisút- varpið. Viðbrögð ríkisins hefðu átt að vera aht önnur en raun varð á. í stað þess að verða baggi á almenn- ingi hefði ríkisútvarpið smátt og smátt átt að draga úr umsvifum sínum, sérstaklega á þeim sviðum þar sem einkastöðvumun hefur tekist best upp. Það hefði stuðlað að hraðari vexti einkastöðvanna. Það er í þágu almennings að einka- stöðvamar dafni því þær eru ekki sá baggi sem ríkisútvarpið er. Ólafur Hauksson „Afnotagjöld rikisútvarpsins er ekkert annað en skattur," segir greinarhöfundur. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp th laga um breytingu á lögum um hlutafélög og var það tekið th 1. umr. í efri deild 24. nóv- ember. Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra mælti fyrjr frv. og th máls tóku einnig Eyjólfur Konráð Jónsson og Guðmundur Ágústs- son. í frv. eru margar thlögur th breytinga á núghdandi lögum. Margar þeirra eru æskilegar end- urbætur á lögunum en aðrar orka tvímæhs. Ekki næg rök Samkvæmt frv. er lágmarksfjöldi stofnenda hlutafélags lækkaður úr. fimm í tvo og einnig er lagt th að stjómina megi skipa einn maður eða tveir, ef hluthafar em fjórir eða færri, en skv. núghdandi lögum skihu minnst þrír menn skipa stjóm í hlutafélagi. Rökin fyrir þessum breytingum eru þau að nauðsynlegt sé að sam- ræma lögin betur lögum nágranna- landanna en þetta em ekki næg rök. Lögin um hlutafélög veita hluthöfunum ákveðin réttindi eins og t.d. takmörkun fjárhagslegrar áhyrgðar við framlagt hlutafé og þess vegna er ekki rétt að draga úr skyldum stofnendanna að þessu leyti jafnvel þótt stundum megi nefna suma þeirra málamynda- hluthafa. Hlutafélög em venjulega stofnuð í þeim thgangi að sameina krafta margra aðha th að koma á fót fyrir- tæki og það er ástæðulaust að nefna einstaka hluthafa mála- myndahluthafa nema gefa um leið í skyn að frumkvöðull félagsins hafi ekki hreint mjöl í pokanum og thgangm- hans með stofnun þess sé annar en upp er gefinn. Um stjórnarkjör En það em önnur atriði í lögun- um sem þarfnast umbóta og samræmingar og ekki era tekin KjaUariim Guðmundur Jónsson, bóndi á Kópsvatni nógu fostum tökum í frv. Má þar t.d. nefna ákvæðin um stjómarkjör og samband atkvæðisréttar og hlutafjár. Ákvæðin um stjómarkjör eru nú of flókin en það er einfalt og auð- velt í framkvæmd að kjósa stjóm- ina meö hlutfallskosningu og það ætti að vera aðalreglan en sé fram- boð ekki lagt fram skal margfeldis- kosning þó vera heinhl. Heimild einstakra hluthafa til að nefna mann í stjórn ber að fella niður og sömiheiðis er órökrétt að heimila beina kosningu formanns en ábending um formann mætti þó koma fram á aðalfundi, t.d. með því að formannsefni skipi efsta sæti á . framboðslista. Setja þarf nákvæmari reglur um tilkynningar th hlutafélagaskrár og ekki er rétt að afnema skyldu félaganna th að skha ársreikning- um en hins vegar getur verið rétt að leyfa ekki almennan aðgang að þeim fy rr en að nokkrum tíma liön- um frá lokum reikningsárs. Ábyrgð stjórnar Þá er einnig nauðsynlegt að setja ákveðnari reglur um íjárhagslega ábyrgð stjómar og einstakra hlut- hafa, t.d. hvenær stjórn eða ein- stakir hluthafar taka á sig ótakmarkaða fjárhagslega ábyrgð á skuldbindingum félagsins vegna brota á lögum um hlutafélög. í þessu sambandi er rétt að vekja athygli á eftirfarandi orðum Guð- mundar Ágústssonar á Alþingi 24. nóv.: „í þriöja lagi hefði ég kosið aö ábyrgð stjómarmanna í hlutafélög- um yrði aukin, bæði skaðabóta- ábyrgð og refsiábyrgð, því að allt of oft hefur það komiö upp að menn skýla sér á hak við hlutafélagalögin og formið hlutafélag þegar eitthvað hefur komið upp á.“ Síðasthðið sumar ræddi ég undir- ritaður við háttsettan ríkisstarfs- mann um málefni eins hlutafélags og hann lét þá þessi orð falla: „Hlutafélög era lögvemduð leið th þjófnaðar". Ég mótmælti þessari skoðun hans því að lög um hlutafé- lög gefa ekkert thefni th slíkrar ályktunar. En á það má hins vegar leggja áherslu að lög um hlutafélög þurfa ýmissa endurbóta við og sama má segja um framkvæmd þeirra og eförlit með starfsemi fé- laganna. Guðmundur Jónsson „Ákvæðin um stjórnarkjör eru nú of flókin en það er einfalt og auðvelt í framkvæmd að kjósa stjórnina með hlutfallskosningu. ‘ ‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.