Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1988, Síða 33
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1988.
33
Afmæli
Pálína Þorstesnsdóttir
Pálína Þorsteinsdóttir húsmóöir,
Jaðarsbraut 9, Akranesi, er áttræð
í dag. Hún fæddist á Oseyri við
Stöðvarfjörö og ólst þar upp. Hún
var við nám í unglingaskólanum á
Fáskrúðsfirði og fór síðan í Hvítár-
bakkaskóla í Borgarfirði veturinn
1927-28. Pálína stundaði barna-
kennslu á Stöðvarfirði, í Breiðdal
og Torfustaðahreppi.
Pálína giftist 1934 Guðmundi
Björnssyni, f. 24. mars 1902, kenn-
ara. Foreldrar Guðmundar voru
Björn, b. í Núpsdalstungu í Mið-
firði, Jónsson og kona hans,
Ásgerðúr Bjarnadóttir. Meðal
systkina Guðmundar voru Bjarni,
faðir Sigfúsar í Heklu, og Björn,
hagfræðingur Reykjavíkurborgar.
Pálína og Guðmundur fluttust á
Akranes 1934 og hafa búið þar síð-
an.
Pálína og Guðmundur eignuðust
fimm börn: Ormar Þór, f. 2. febrúar
1935, arkitekt, kvæntur Kristínu
(fædd Gillert); Geröur Birna, f. 2.
apríl 1938, snyrtisérfræðingur, gift
Daníel Guðnasyni lækni; Björn
Þorsteinn, f. 13. júlí 1939, lagapró-
fessor, kvæntur Þórunni Braga-
dóttur, fulltrúa í menntamálaráðu-
neytinu; Ásgeir Rafn, f. 18. maí
1942, framkvæmdastjóri, kvæntur
Fríðu Ragnarsdóttur, starfsmanni
Landsbankans á Akranesi; og Atli
Freyr, f. 3. apríl 1948, deildarstjóri
í viðskiptaráðuneytinu.
Systkini Pálínu: Skúh, f. 24. des-
ember 1906, námsstjóri og fyrrv.
skólastjóri á Eskifirði, er látinn,
var giftur Önnu Sigurðardóttur,
forstöðukonu Kvennasögusafns-
ins; Friðgeir, f. 15. febrúar 1910,
fyrrv. útibússtjóri Samvinnubank-
ans á Stöövarfirði, giftur Elsu
Sveinsdóttur sem nú er látin;
Halldór, f. 23. júh 1912, er látinn,
vélvirki á Akranesi, kvæntur Rut
Guðmundsdóttir. Anna, f. 15. apríl
1915, gift Kristni Hóseassyni, fyrrv.
prófasti í Heydölum; Björn, f. 20.
maí 1916, lést 1939; Pétur, f. 4. jan-
úar 1921, sýslumaöur í Búðardal,
kvæntur Björgu Ríkarösdóttir.
Foreldrar Pálínu voru Þorsteinn
Þorsteinsson Mýrmann, b. á Óseyri
við Stöðvarfjörð, og kona hans,
Guðríður Guttormsdóttir. Faðir
Þorsteins var Þorsteinn, b. í Slind-
urholti á Mýrum í Austur-Skafta-
fellssýslu, Þorsteinsson. Móðir'
Þorsteins var Sigríður Jónsdóttir,
prests á Kálfafellsstað, Þorsteins-
sonar. Móðir Þorsteins Mýrmanns
var Valgerður Sigurðardóttir, Ei-
ríkssonar, Einarssonar. Móðir
Eiríks var Þórdís, systir Jóns Ei-
ríkssonar konferensráðs. Móðir
Valgerðar var Valgerður Þórðar-
dóttir, systir Sveins, afa Þórbergs
Þórðarsonar.
Guðríður var dóttir Guttorms
prófasts á Stöð, Vigfússonar, prests
í Ási, Guttormssonar, prófasts í
Vallanesi, Pálssonar. Móðir Gutt-
orms var Björg Stefánsdóttir,
prófasts á Valþjófsstöðum, Áma-
sonar, prests í Kirkjubæ í Tungu,
Þorsteinssonar. Móðir Stefáns var
Björg Pétursdóttir, sýslumanns á
Ketilsstöðum á Völlum, Þorsteins-
sonar. Móðir Guðríðar var Þór
hildur Sigurðardóttir, b. á Harðbak
á Sléttu, Steinssonar, b. á Harðbak,
Hákonarsonar. Móðir Steins var
Þórunn Stefánsdóttir, prests á
Presthólum, Scheving. Móðir Þór-
hildar var Friðný Friðriksdóttir,
b. í Klifshaga, Árnasonar og konu
hans, Guðnýjar Björnsdóttur, b. í
Haga í Reykjadal. Móðir Guðnýjar
var Sigurlaug Arngrímsdóttir, b. á
Hrafnabjörgum í Hlíð, Runólfsson-
ar, b. í Hafrafellstungu, Einarsson-
ar„galdrameistara”, prests á
Skinnastað, Nikulássonar. Móðir
Arngríms var Björg Arngrímsdótt-
ir, sýslumanns á Stóru-Laugum í
Reykjadal, Hrólfssonar.
Pálína tekur á móti gestum á
heimili sonar síns og tengdadóttur
að Grenigrund 39, Akranesi, frá kl.
17 laugardaginn 30. janúar.
Sveinn Guðbjartsson
Sveinn Guðbjartsson forstjóri,
Klettahrauni 5, Hafnarfirði, er
fimmtugur í dag. Sveinn fæddist í
Hafnarfirði og ólst þar upp. Hann
lauk námi í rafeindatækni 1961 og
rak hann fyrirtækið Vélar og við-
tæki sf. og Radíóverkstæðið sf. með
öðrum 1961-1969. Sveinn var heil-
brigðis- og barnaverndarfulltrúi í
Hafnarfirði 1969-1972 og forstöðu-
maður Heilsugæslu Hafnarijarðar
1972-1981 en hefur verið forstjóri
Sjúkrahússins Sólvangs í Hafnar-
firði frá 1981. Hann var um tíma í
námi við Handíða- og myndlista-
skólann í Reykjavík og nam við
Nordiska Helsávards Högskolan í
Gautaborg 1971. Sveinn hefur verið
varaformaður SUS, landsforseti
J.C. á íslandi og stofnandi og fyrsti
forseti og er nú heiðursforseti Kiw-
anisklúbbsins Eldborgar í Hafnar-
firði. Hann. hefur verið í
Félagsmálaráði Hafnarfjarðar og
verið formaður íþróttabandalags
Hafnarfjarðar. Sveinn hefur setið í
bæjarstjórn sem varafulltrúi og sit-
ur í stjórn Rafveitu Hafnarfjarðar.
Hann er í stjórn Landssambands
sjúkrahúsa og í safnaðarstjórn
Hafnarfj arðarkirkj u. Sveinn er í
stjórn Sálarrannsóknarfélags
Hafnarijarðar og var í fyrstu stjórn
Loðdýrs hf, auk fleiri trúnaðar-
starfa.
Sveinn kvæntist 12. febrúar 1958
Svanhildi Ingvarsdóttur, f. 11. okt-
óber 1937, fulltrúa. Foreldrar
hennar eru Ingvar Jónsson, sjó-
maður frá Loftsstöðum í Flóa, sem
nú er látinn, og kona hans, Guðrún
Guðmundsdóttir frá Norðfirði.
Sveinn og Svanhildur eiga eina
dóttur, Katrínu, f. 12. október 1962,
meðferðarfulltrúa, sem gift er
Kristjáni Rúnari Kristjánssyni,
starfsmanni Hagvirkis hf, en þau
eiga tvær dætur, Hildi Dís, f. 8. júní
1983, og Svönu Lovísu, f. 9. júní
1986.
Sveinn átti tíu systkini og eru
ijögur þeirra látin.
Foreldrar Sveins eru Guðbjartur
Ásgeirsson, f. 23. desember 1889,
d. 23. október 1965, matsveinn og
ijósmyndari, og kona hans, Herdís
Guðmundsdóttir, f. 30. maí 1898,
ljósmyndari, en hún býr nú að
Hrafnistu í Hafnarfirði. Faðir Guð-
bjarts var Ásgeir, beykir á ísafirði,
Guðbjartsson, skipstjóra á ísafirði,
Jónssanar, prests á Hrafnseyri,
Ásgeirssonar, prófasts í Holti í
Önundarfirði, Jónssonar, bróður
Þórdísar, móður Jóns forseta. Móö-
ir Ásgeirs var Andrea Andrésdótt-
ir, formanns í Arnardal, Eyjólfs-
sonar, prests á Eyri í Skutulsfirði,
Kolbeinssonar. Herdís var dóttir
Guðmundar, b. og refaskyttu á
Skarði í Lundarreykjadal, ein-
hverrar kunnustu og mikilvirk-
ustu grenjaskyttu á íslandi, en tahð
er að hann hafi um ævina banað
tvö þúsund og fimm hundruö ref-
um; Einarssonar, b. á Heggstöðum
í Andakíl, Guðmundssonar, b. á
Háhóli í Álftaneshreppi, Ólafsson-
ar. Móðir Einars var Helga, dóttir
Salómons, b. í Hólakoti í Álftanes-
hreppi, Bjarnasonar „Horna-
Salómons". Móðir Guðmundar var
Steinþóra Einarsdóttir, b. í Tjarn-
arhúsum á Seltjarnarnesi, Korts-
sonar, b. á Möðr.uvöllum í Kjós,
Þorvarðarsonar. Móðir Steinþóru
var Guörún Gísladóttir, b. á Selja-
landi í Fljótshverfi, Jónssonar og
konu hans, Sigríðar Lýðsdóttur,
sýslumanns í Vík í Mýrdal, Guð-
mundssonar.
Sesselja
Sigvaldadóttir
Bergþóra Pálsdóttir
Sesselja Sigvaldadóttir,
Krummahólum 6, Reykjavík, er
sjötíu og fimm ára í dag. Hún fædd-
ist á Gilsbakka í Öxarfiröi og ólst
þar upp. Sesselja giftist Björgvin,
sjómanni frá Borgarfirði eystra, f.
24.2. 1907, d. 1970, syni Jóns, b. á
Hólalandi, Jónssonar og konu
hans, Guðnýjar Jónsdóttur.
Sesselja og Björgvin eignuðust
íjögur börn: Sigurlaug Ehsa hjúk-
runarfræðingur, f. 1934, er gift
Kristjáni Heimi Lárussyni krana-
manni; Þórarinn bifvélavirki, f.
1936, d. 1982, var kvæntur Sigrúnu
S. Sigurðardóttur; Siguröur Gils
hagfræðingur, f. 1943, er kvæntur
Helgu Arnalds kennara; Margrét,
skrifstofumaður hjá Strætisvögn-
um Keykjavíkur.
Sesselja átti ellefu systkini en á
nú sjö systkini á lífi.
Hún mun taka á móti gestum
mhli klukkan 19 og 22 á afmælis-
daginn að Ármúla 40.
Bergþóra Pálsdóttir, Ási í Hvera-
gerði, er sjötug í dag. Bergþóra
fæddist í Veturhúsum við Eskifjörð
og ólst þar upp th tuttugu og sjö
ára aldurs er hún fluttist að Eski-
fjaröarseli en þar var hún til 1971.
Hún bjó þar með Páli bróður sínum
og móður sinni, sem lést 1962. Berg-
þóra og Páll lentu í bílslysi 10.
mars 1971 og uröu þá að hætta bú-
skap. Bergþóra hefur verið sjúkl-
ingur síðan og hefur dvalist í Ási í
Hveragerði. Systkini Bergþóru eru:
Emerentíana Kristín, f. 23. apríl
1900, á eitt barn; Ólafur, f. 29. sept-
ember 1901, d. 14. janúar 1984, b. í
Byggðarholti við Eskifjörð, kvænt-
ur Önnu Vilborgu Bjólfsdóttur og
áttu þau fimm börn; Kjartan, f. 26.
jiílí 1903, d. 3. desember 1986,
vinnumaður á Eskifirði; Arnbjörg,
f. 3. ágúst 1905, d. 29. desember 1932,
gift Lúther Guðnasyni, múrara-
meistara og oddvita á Eskifirði, og
áttu þau fimm börn; Páll, f. 26. júlí
1910, b. í Eskifjarðarseli; Pétur
Björgvin, f. 19. september 1912,
verkamaður á Eskifirði, kvæntur
Rósalindu Ásthildi Magnúsdóttur
og eiga þau fimm börn; Björgólfur,
f. 10. október 1913, d. 14. febrúar
1981, b. á Högnastöðum í Helga-
staðahreppi í Eskifirði, kvæntur
Helgu Stefánsdóttur og áttu þau
einn son; Steinþór, f. 3. október
1922, d. 22. september 1962, verka-
maður á Reyöarfirði, kvæntur
Önnu Pálsdóttur og áttu þau tvö
börn; Magnús, f. 28. október 1926,
skrifstofumaður á Egilsstöðum,
kvæntur Sigríði Torp, fyrri kona
hans var Sigríður Eymundsdóttir
og áttu þrjú börn.
Foreldrar Bergþóru voru Páll
Þorláksson, f. 9. júní 1877, d. 4. júní
1940, b. í Veturhúsum, og kona
hans, Þorbjörg Kjartansdóttir, f. 12.
apríl 1882, d. 26. agúst 1962. Foreldr-
ar Páls voru Þorlákur, b. á Keldu-
núpi á Siðu, Pálsson, og kona hans,
Emerentíana Oddsdóttir, b. í
Neðri-Dal í Mýrdal Árnasonar.
Faöir Þorbjargar var Kjartan, b. í
Eskifjaröarseli, Pétursson Brandt,
b. í Eskifjarðarseli, Péturssonar
Brandt, beykis á Eskifirði.
Andrés
Karisson
Andrés Karlsson (fæddur Kurt
Karl Andreas Blumenstein), Tóm-
asarhaga 45, Reykjavík, er áttræð-
ur í dag. Andrés fæddist í Kassel í
Þýskalandi en fór tólf ára til Kaup-
mannahafnar þar sem hann gekk
í Saint Petri-skólann í tvö ár og
fermdist í Saint Petri-kirkjunni.
Hann hélt svo aftur til Þýskalands
og lærði þar húsgagnasmíði en til
íslands kom hann sem ferðamaður
1926 og var þá fljótlega boðið hér
starf við iðngrein sína. Hann tók
boðinu og hefur síðan búið hér á
landi. Andrés starfaði hjá þremur
fyrirtækjum fyrir stríð en lengst
af hjá Hjálmari Þorsteinssyni hús-
gagnasmíöameistara á Klapparstíg
28 í Reykjavík, eða frá 1930-1940 og
síöan aftur frá 1948-51. Þegar síðari
heimsstyrjöldin braust út urðu
þáttaskil í lífi Andrésar því sam-
kvæmt Genfarsamkomulaginu
urðu allir Þjóðveijar, sem ekki
voru orðnir íslenskir ríkisborgar-
ar, að yfirgefa landið og var þeim
komið fyrir á eynni Mön í írlands-
hafi th stríðsloka. Áriö 1951 hóf
Andrés störf hjá Sameinuðum
verktökum á Keflavíkurflugvelh og
starfaöi þar næstu tiu árin en 1961
hóf hann störf hjá byggingadeild
borgarverkfræðings og starfaði þar
í sextán ár.
Andrés kvæntist 3.11.1928 Jónínu
Jósefsdóttur Blumenstein, f. 31.12.
1906, dóttur Jósefs, b. í Lambadal í
Dýrafirði, Jesperssonar og Kristin-
ar Guðmundsdóttur.
Börn Andrésar og Jónínu eru:
Kristín Dóris, f. 9.12. 1928, gift Uno
Nhsson, dehdarstjóra hjá símanum
í Stokkhólmi og eiga þau tvo syni;
Leifur byggingafræðingur, f.12.8.
1930, kvæntur Bergljóti Sigfúsdótt-
ur og eiga þau þrjá syni; Nina Carla
Marie, f. 28.3. 1950, gift Ingimundi
T. Magnússyni viðskiptafræðingi
og eiga þau þrjár dætur.
Andrés átti sex systur sem allar
eru látnar. Þær voru Augusta, Else,
Martha, Marie, Emma og Erika.
Faðir Andrésar, Karl Blumen-
stein, sem var af þýskum aðalsætt-
um, lést í fyrri heimsstyrjöldinni,
1914. Móðir Andrésar var Anne
Marie Blumenstein (fædd Mahch).
Aðgát og tillitssmnl
gera umferðina grelðari.
UUMFBCMR
FtAD
Hl hamingju með daginn!
80 ára
70 ára
Valgeir Jónasson, Höfðagrund 6,
Akranesi, er áttræður í dag.
Sigursteina Jörgensdóttir, Skúla-
götu 56, Reykjavík, er sjötug í dag.
75 ára
Kristinn Tryggvason, Kvisthaga 10,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í
dag. . ___
60 ára
Hildegard Jónsson, Bræðratungu
32, Kópavogi, er sextug í dag.
Hákon Bjarnason, Stórholti 15,
ísafirði, er sextugur í dag.
40 ára
Willy Petersen, Hátúni 15, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Bára Guðrún Sigurðardóttir,
Fögrusíðu 15D, Akureyri, er fertug
í dag.
Andlát
Katrín Karlsdóttir lést á Sólvangi í
Hafnarfirði að morgni 27. janúar.
Magnús Magnússon skipstjóri,
Langeyrarvegi 15, andaðist 1 St.
Jósefsspítala aðfaranótt 27. janúar.
Guðmundur Árnason frá Ásgarði í
Vestmannaeyjum, Hólmgaröi 58,
Reykjavík, lést 27. janúar á Hrafn-
istu í Reykjavík.
Guðrún Árnadóttir frá Vogi, Skóla-
tröð 8, Kópavogi, lést í Landspítal-
anum 27. janúar.
Eyjólfur S. Þorvaldsson, fyrrver-
andi skipstjóri, Fornhaga 23,
andaðist í Landspítalanum 27. jan-
úar.
Kristín Stefánsdóttir, Þelamörk 26,
Hverageröi, lést á Grensásdehd
Borgarspítalans að morgni 27. jan-
úar.