Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1988, Page 8
8
MÁNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1988.
Canon
Rótti tíminn til
reiknivélakaupa.
Mikið úrval.
l<rifvélin hf
Suðurlandsbraut 12,
S: 685277 - 685275
• Snyrtivöruverslun við Laugaveg -
fallegar innréttingar - góð kjör.
• Skyndibitastaður í miðbænum -
góð velta - miklir möguleikar.
• Bilavarahlutaverslun í Austur-
bænum - i rúmgóðu húsnæði -
miklir möguleikar.
• Heildverslun með vefnaðarvöru -
góð umboð - mikil velta. Uppl. á
skrifstofu.
• Veitingastaður í hjarta borgarinn-
ar - mikil velta - fallegar innrétt-
ingar.
• Heildverslun með snyrtivörur -
góð kjör.
• Lítil matvöruverslun ásamt sölu-
turni, verð 1,7 millj.
• Litil heildverslun með vefnaðar-
vörur - góð kjör.
• Tískuvöruverslun með 35 millj. kr.
veltu á ári - góð staðsetning.
Uppl. á skrifst.
• Billjardstofa i Breiðholti í eigin
húsnæði - góð kjör.
• Sólbaðsstofa í Reykjavík - góð
kjör.
• Tiskufataverslanir í Breiðholti -
ýmsir greiðslumöguleikar.
• Snyrtivöruverslun í vesturbæ -
miklir möguleikar.
• Sportvöruverslun í Reykjavik -
góð velta - fallegar innréttingar.
• Tískuvöruverslun við Laugaveg, -
gott húsnæði - góð kjör.
• Sælgætisgerð með nýjum áhöld-
um - miklir möguleikar.
• Unglingaskemmtistaður í Reykja-
vik- sanngjarnt verð.
• Leikfangaverslun í miðbænum -
eigin innflutn. - góð kjör.
• Matvælaframleiðsla - sósugerð -
arðbært fyrirtæki með mikla
möguleika.
• Söluturn í Reykjavík - við mikla
umferðargötu - mikil velta - góðar
innréttingar.
• Barnafataverslanir í miðbænum -
góð kjör.
• 15 söluturnar víðs vegar í
Reykjavik, Kóp. og Hafnarfirði,
ýmsir greiðslumöguleikar eru í
boði.
Höfum kaupendur að góðum heild-
verslunum og söluturnum með mikla
veltu. Um er að ræða mjög fjársterka
kaupendur.
Við aðstoðum kaupendur og seljend-
ur fyrirtækja.
Ýmsir fjármögnunarmöguleikar.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN
Skeifunni 17
108Reykjavík^
Sími:
(91 )-689299
Viðskiptafræðingur:
Kristinn B. Ragnarsson.
Lögmenn:
Jónatan Sveinsson hrl.
Hróbjartur Jónatansson hdl.
★ Ráðgjöf ★ Bókhald ★ Inn-
heimtur ★ Skattaaðstoð ★ Kaup
og sala
Utlönd
Vopnum búinn israelskur hermaður á eftirlitsferð um Gazasvæðið.
Símamynd Reuter
Aukinátök
á herteknu
svæðunum
ísraelsmenn væru reiðubúnir til þess
að ræða tillöguna. Kvaðst hann taka
hana fram yfir hugmyndina um frið-
arráðstefnu.
Að því er sjúkrahúsyfirvöld segja
særðust sex Palestínumenn af völd-
um skothríðar ísraelskra hermanna
í gær í Nablus á Vesturbakkanum
og Jelazoun flóttamannabúðunum
nálægt Ramallah. Lýst var yfir út-
göngubanni á þessum stöðum um
helgina.
ísraelsmaður er sagður hafa særst
alvarlega eftir að bensínsprengja,
sem kastað var að bíl hans, sprakk.
Nokkrir Palestínumenn voru hand-
teknir, grunaðir um að bera ábyrgð
á hermdarverkum.
Til aukinna átaka kom á herteknu
svæðunum í gær og særðust sex Pal-
estínumenn og einn ísraelsmaður.
Heryfirvöld óttast cnn frekari átök í
dag þegar þúsundir unghnga fara
aftur í skólana eftir sex vikna hlé.
Samtímis því sem óeirðir blossuðu
upp á ný í gær báru Bandaríkin fram
tillögu um takmarkaða sjálfstjórn
Palestínumanna á Vesturbakkanum
og Gazasvæðinu þar sem þrjátíu og
níu arabar hafa fallið fyrir ísraelsk-
um hermönnum frá því í desember-
byrjun.
Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak
Shamir, sem hefur verið andvigur
þátttöku ísraels í friðarráðstefnu um
Miðausturlönd, sagði í gærkvöldi að
Koivisto spáð
sigri í forseta-
kosningunum
Forsetakosningar fóru fram í
Finnlandi í gær. Talið er næsta víst
að núverandi forseti, Mauno Koi-
visto, beri sigur úr býtum.
Samkvæmt síðustu skoðanakönn-
un hlýtur Koivisto 52 prósent
atkvæða. Aðalkeppinaut hans, Harry
Holkeri, íhaldsmanni og forsætisráð-
herra, var spáð 17 prósent atkvæða,
aðeins meira en Paavo Vaeyrynen,
fyrrum utanríkisráðherra. Vaeyryn-
en er formaður Miðflokksins. Sósía-
hstinn Kivisto og kommúnistinn
Kajanoja hlutu samkvæmt könnun-
inni minna en 10 prósent.
Aðalspumingin er hvort Koivisto
vinnur með meira en 50 prósent at-
kvæða. Búist er við að úrslit liggi
fyrir í kvöld. Ef Koivisto tekst það
ekki munu þrjú hundruð kjörmenn,
sem einnig var kosið um í gær skera
úr um hver hlýtur embættið.
Koivisto hefur setið eitt kjörtímabil
eða frá því að Urho Kekkonen dró
sig í hlé eftir tuttugu og flmm ár við
stjórnvöhnn.
Mauno Koivisto i ræðustól á kosningafundi. Lítið fór annars fyrir kosninga-
baráttu hans þar sem talið var næsta vist að hann yrði öruggur sigurvegari.
Simamynd Reuter
Nrtján felldir
Nitján blökkumenn féllu í átök-
um milli tveggja hópa andstæðinga
kynþáttaaðskilnaðar í Suður-Afr-
íku um helgina. Átökin, sem staðið
hafa frá því á síðasta ári, milli Zulu
Inkatha hreyfingarinnar og hreyf-
ingar sameinaðra lýðræðissinna,
kostuðu um eitt hundrað mannslíf
í janúarmánuði einum saman.
Myrtu logreglumenn
Þrír lögreglumenn voru skotnir
til bana á götu í Manila, höfuöborg
Filippseyja, í gær og talið er að
skæruiiðar kommúnista hafi staðið
að morðunum.
Til átaka kom einnig milli lög-
reglu og hóps mótmælenda, undir
forystu tveggja frambjóðenda sem
töpuðu í kosningunum 18. janúar.
Beitti lögreglan táragasi til aö
dreifa hópnum.
Flokkurinn riðlast
Breski sósíaldemókrataflokkur-
inn riðlaðist endanlega í gær þegar
meginhluti flokksmanna sam-
þykkti að sameinast frjálslyndum
í stofnun nýs miðjuflokks. Brot úr
flokknum ákvaö hins vegar að
halda baráttu sinni fyrir sjálfstæð-
um flokki sósíaldemókrata áfram
og stofna nýjan flokk undir forystu
David Owen sem var einn af helstu
leiðtogum gamla flokksins.
Snjókast í Varsjá
Lögreglan í Varsjá í Póllandi varð
að þola snjókast frá mótmælendum
í borginni í gær þegar hún reyndi
að stöðva aðgerðir gegn verð-
hækkunum þeim sem ríkisstjóm
landsins hefur boðað.
Mótmælendur komu saman fyrir
utan kirkju eina í borginni og þegar
lögreglan reyndi að dreifa hópnum
rigndi snjóboltunum yfir hana.
Minntust blóðbaðs
Um fimm þúsund manns efndu í
gær til göngu um stræti London-
derry á Norður-írlandi til þess að
minnast þess að þá voru liðin sext-
án ár frá því að breskir hermenn
skutu til bana þrettán almenna
borgara þar. Blóðbað þetta vakti
mikla reiðiöldu á N-írlandi og hef-
ur dagurinn síðan verið nefndur
„blóðugur sunnudagur".
Þetta er fjölmennasta ganga sem
farin hefur veriö undanfarin ár til
að minnast atburðarins.
Óveður
Fimm manns létu lífiö og flmm
er saknað eftir mikið óveður sem
gekk yfir vestur og norö-vestur-
hluta Frakklands um helgina.
Veðurfræðingar höfðu varað fólk
við að mikill stormur væri í aðsigi.
Tveir hinna látnu bárust á haf
út og drukknuðu en þrír létust í
umferðarslysum.
Þeir sem saknað er voru allir á
hafi úti.
Daniel Ortega
hertið stuðningi
Páll Vmijátasson, DV, Osló:
Daniel Ortega, forseti Nicaragua,
kom í stutta heimsókn til Noregs á
sunnudagsmorgun. Ortega átti við-
ræður við Gro Harle'm Brundtland,
forsætisráðherra Noregs.
í viðræðunum bað Ortega um
stuðning Norðmanna við mögulega
friðarsamninga á milli ríkisstjórn-
ar Nicaragua og kontraskæruhð-
anna sem njóta stuðnings
Bandaríkjamanna. Enn hafa engir
samningar verið gerðir en Ortega
vill tryggja að þeir verði virtir ef
deiluaðilar ná samkomulagi.
Gro Harlem Brundtland sagði eft-
ir viðræðurnar við Ortega að
Norðmenn væru tilbúnir til að
fylgjast með að friðarsamkomulag
í Nicaragua yrði haldið. Áður hefur
Gonzales, forsætisráðherra Spán-
ar, lýst Spánverja tiibúna til að
gera það sama og sömuleiðis ríkis-
stjóm Ítalíu.
Frá Noregi fór Ortega til Svíþjóð-
ar og þar slógust Svíar í hóp þeirra
yfirvalda er lýstu yfir stuðningi
sínum.