Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988. 17 Lesendur „í innanbæjarakstri er algjör óþarfi að nota ökuljós í sólskini og blíðskapar- veðri“, segir m.a. í bréfinu. Um nýju umferðariögin: Munu auka umferðarvandann 1572-3202 skrifar: Hinn 1. mars nk. ganga í gildi ný umferöarlög. í þeim eru nokkur ný ákvæði sem mig langar til aö fara um nokkrum oröum. Fyrst skal minnst á það óhagræöi sem skapast af því að skikka alla ökumenn tU aö nota ökuljós allan sólarhringinn, allt áriö. Sjáist nokkur bíll ljóslaus skal ökumaður hans sektaður. Þeir sem lögin setja, telja ljósanotkun auka öryggið í umferðinni Rétt er það að við vissar aðstæður er sjálfsagt að menn noti Ijósin, t.d. í dimmviðri og á vegum úti á landi, þar sem ryk er mikið. En í innan- bæjarakstri er, að mínum dómi, algjör óþaríi að nota ökuljós í sólsk- ini og blíðskaparveðri. Sjái menn ekki bílana nema með ljósum ættu þeir að láta athuga sjónina í sér. En það sem mestu máli skiptir er að hér er enn eina ferðina verið að hafa vit fyrir fólki, að láta reglur segja fólki hvað það á að gera í stað þess að láta það um að meta aðstæð- urnar sjálft. Þetta sama á við um bílbeltin. Þau gera gagn við vissar aðstæður en geta Uka drepið fólk við aðrar að- stæður. Þannig er mjög vafasamt, að mínum dómi, að vera að skylda fólk til þess að nota bílbeltin. í nýju umferðarlögunum er líka sterkur áróður fyrir því að sem flest- ir aki á hægri akrein þar sem tvær eru. Þar kemur annað til. Ef menn aka t.d. eftir Miklubrautinni og nálg- ast hringtorg og eru á hægri akrein er oft erfitt að skipta um akrein til að komast í innri hringinn, þar sem umferðarþunginn er gífurlegur og íslendingar ekki mikið fyrir að gefa öðrum tækifæri, alla vega ekki í umferðinni. En að lokum langar mig til að víkja að einu atriði sem mér persónulega hst einnig mjög illa á. Það er að nú á ekki að kalla á lögregluna verði árekstur, nema um meiðsli sé að ræða. Nú eiga menn sjálfir að semja skýrslur á þar til gerð eyðublöð sem bifreiðaeigendum verða send. Ég bara spyr: Hvemig dettur nokkrum manni í hug að ætlast til þess að þeir sem í árekstri lenda vindi sér bros- andi út úr bíl sínum og geri skýrslu um það t.d. að þeir hafi sjálflr „'svín- að“ en ekki bílstjórinn á hinum bílnum? Ég er hræddur um að það geti end- að með handalögmálum og þá þarf örugglega að kalla til lögreglu. - Það var kominn tími til að fá ný um- ferðarlög en þvi miður held ég að þessi nýju lög séu fremur til bölvun- ar en hitt og aðeins samin með það í. huga að auka umferðarþungann, sem nú er nægur fyrir. Lesendakönnun sem villir fyrir Framkvæmdastjóri skrifar: Stjórnendur fyrirtækja eru dag- lega að taka ákvarðanir um hvar þeir eigi að auglýsa. Til viðmiðunar hafa þeir eigin reynslu, upplýsing- ar frá fjölmiðlum og kannanir. Hvers konar mynd er það sem kannanir gefa þegar spurt er í les- endakönnun Verslunarráðs ís- lands hvort viðkomandi haíi lesiö blaðið? í þessari spurningu kemur ekki fram hvaða tölublað af viðkomandi blaði aðpurður hefur lesið. Keypti hann t.d. 1. tbl„ 2. thl., 3. tbl. eða kannski 9. tbl. af viðkomandi blaði? - Auglýsendur verða því að deila í niðurstöðutölu í könnuninni til þess að fá svar. Vandinn er hins vegar sá að þaö liggur ekki ljóst fyrir með hvaða tölu á að deila. Þegar ekki er spurt um ákveðið blað og sýnd forsíöa þess er slík könnun marklaus. Svarið getur einfaldlega átt við eitt tölublað af mörgum. - Þess vegna getur þaö verið mjög arðbært fyrir útgefanda að senda út þúsundir eldri blaða, sem ekki hafa selst, fyrir slíka könnun til þess áð hafa áhrif á hana. Verslunarráðið og Félagsvísinda- deild Háskóla íslands verða að framkvæma nýja könnun. Könnun sem ekki er kynnt fyrirfram og gefur skýr svör við því hversu margir hafa lesiö tiltekið eintak af blaði, eða eru áskrifendur að því. HVAO FÍRDU FYRIR AUCLÍSINCUNA? LESENOAKÖNNUN Á TInARITUH Verslunarráð íslands stendur fyrlr könnun á útbrelðslu og lestrl tímarita á ncstunnl. Könnun þessi er afrakstur samstarfs á vegum ráösins milli aug1ýslngastofa, nokkurra stórra auglýsenda og útgefenda tímarita. Könnun þessl veröur gerö af Félagsvís1ndastofnun Máskóla íslands og stuðst er viö 2000 manna úrtak úr þjóðskrá. Tímasetning könn- unarlnnar er óráðtn en veröur á ncstu vikum eða mánuöum. Könnunin hefur víötekt gildi fyrir auglýsendur þar sem þeir fá markvlssar upplýsingar um útbreiöslu tfmaritanna í könnunlnnl. Einnig koma fram upplýsingar um lesendahóp þelrra og hvar og hvernig þau eru lesin. Fyrlrtcki sem auglýsa fyrir hundruö þúsunda eöa Jafnvel milljónir á hverju ári geta notfcrt sér þessar upplýsingar til þess að fá sem mest fyrir það fé sem fer í auglýsingar. NIÐURSTÖOUR KÖNNUNARINNAR VER0A GEFNAR ÚT 1 SKÝRSLU SEM K0STAR KR. 8000.-. ÞÉR ER HÉR ME0 B0DID A0 CERAST ASKRIFANDI AÐ SKÝRSLUNNI. SÍMI VERZLUNARRAOSINS ERi 8 30 88 0G SICMAR ÞORMAR GEFUR ALLAR UPPLýSINGAR. í könnuninnl eru tvenns konar upplýslngar. Annars vegar er almennur hluti þar sem öll blööin í könnuninnl eru meö. Þar er m.a. spurt um: - Hvort viðkomandi hafi lesið blaðið. - Hvort viökomandi lesi erlend tfmarit. - Hversu margir séu á heimilinu. - Hvaða starfi viökomandi gegni. - Hverjar helldartekjur heimilisins séu. Verslunarráðið stóð fyrir könnun á útbreiðslu og lestri timarita á dögun- um. - Bréfritari vill láta gera nýja könnun. MARKADUR ...ó fullri ferct Á bllamarkaði DV á laugardögum, auglýsa fjöldi bllasala og bllaumboða fjölbreytt úrval blla af öllum gerðum og I ölium verðflokkum. ^ll J L_ AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! Auglýsingar I bllakálf þurfa að berast I slðasta lagi fyrir kl. 17:00 fimmtudaga. Smáauglýsingar I helgar- blað þurfa að berast fyrir kl. 17:00 föstudaga. Slminn er 27022 BLAÐAUKI ALIA LAUGARDAGA Klæða allir framhaldsskólanemar sig eins? Eða er það mismunandi eftir skólum? Blaðamaður DV fór á stúfana, heimsótti nokkra framhaldsskóla og ræddi við nemendur um þetta. Niðurstöðurnar verða birtar í máli og myndum í Lífsstíl DV á morgun. I Lifsstíl á morgun verður fjallað um hversu lengi happdrættin eiga að geyma ósótta vinninga og hvort sá frestur sem þau gefa sinum vinn- ingshöfum sé löglegur. Þessi frestur hefur yfirleitt miðast við eitt ár, en nú hefur eitt happdrættið auglýst að vinninga beri að vitja innan mánað- ar. Sjá nánar í DV á morgun. þeir og lesa bókmenntir af innlifun? DV hafði sambard við nokkra fram- haldsskóla og kannaði hverjar væru vinsælustu námsbrautirnar. Sjá nánar í Lífsstil DV á morgun. tvvO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.