Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Page 40
52
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988.
Lífestm
Flug og bíll:
Undanfarin ár hefur rutt sér til
rúms nýr ferðamáti hjá íslendingum
og gengur hann undir nafninu flug
og bíll. Þessi leið býður upp á ýmsa
möguleika fyrir ferðalanga. Fólk er
frjálsara í ferðalögum sínum og er
ekki eins bundið við ákveðna staði.
Vinsældir þessa ferðamáta hafa auk-
ist jafnt og þétt. íslendingar eru
sífellt að verða sjóaðri í ferðalögum
og jafnframt öruggari með sig. Áður
fyrr vildi fólk helst ekkert nema
þrælskipulagðar sólarlandaferðir en
það hefur verið að breytast í gegnum
tíðina.
Með aukinni reynslu og öryggi hefur
fólk áttað sig á að það er hægt að
ferðast um heiminn án þess að hver
einasti hlutur sé skipulagður fyrir-
fram.
Skipulagt eða
óskipulagt
ferðalag
Flug og bíll ferðamátinn er snið-
ugur að því leyti að hægt er að
skipuleggja hann eins mikið eða lítið
og hverjum hentar. Ferðalangar geta
skipulagt ferðina út í ystu æsar,
ákveðið ökuleiðir, tímalengd á hverj-
um stað og látið bóka fyrir sig hótel
eða sumarhús á leiðinni. Allt þetta
er hægt að gera áður en haldið er af
stað. Þeir sem vilja hins vegar hafa
hlutina óskipulagða fljúga bara út,
setjast upp í bílinn, líta á kortið og
aka af stað.
Hvort sem ferðalagið er skipulagt
eða ekki er skynsamlegt að athuga
nokkra hluti áður en lagt er af stað.
Það er hægt að aka á hraðbrautum
um þvera og endilanga Evrópu og sjá
lítið annað en öryggisveggi meðfram
vegum eða lítið spennandi landslag.
Hraðbrautirnar eru ekki lagðar með
útsýpissjónarmið í huga. Það er þvi
nauðsynlegt að kynna sér aðeins
svæði vel í rólegheitunum. Þetta þýð-
ir ekki að ferðafólk þurfi að vera
bundið á sama stað. Það er vel hægt
að nota hraðbrautirnar til að komast
á milli staða.
Vegakort og
ökuskírteini
Að sjálfsögðu þarf að hafa með
sér ökuskírteini og kynna sér að-
stæður til aksturs. FÍB hefur liðsinnt
fólki eftir bestu getu í þeim efnum.
Vegakórt af þeim svæðum sem fólk
ætlar að keyra um er í sumum tilfell-
er gott að hafa í huga að oftast er
hægt að fá inni á sveitagististöðum.
Það getur verið mjög skemmtilegt að
gista á þessum sveitagististöðum þar
sem þeir eru ákaflega sérstæðir og
öll þjónusta mjög persónuleg. Matur
og vín er yfirleitt í mjög háum gæða-
flokki og réttir og drykkir eru oftast
einkennandi fyrir það svæði sem
ferðast er um.
Mikil
fjölbreytni
Skoðunarferðir um Evrópu á
• 'tmp
Flug og bíll er ferðamáti sem nýfur vaxandi vinsælda
Þegar einhver staður heillar er hægt aö staldra við eftir eigin geðþótta.
ferðaleiðir og möguleika áður en
haldið er af stað.
Þó svo að fólk vilji ekki njörva ferð-
ina niður þá er gott að gera grófa
ferðaáætlun og ákveða hvað eigi að
skoða. Algeng mistök við svona
ferðaáætlanir eru tilraunir til að
komast sem lengst og sjá sem mest.
Oft setur fólk sér markmið um að
komast ekki aðeins langt heldur sjá
sem mest á sem allra stystum tíma.
Þetta endar síðan í einu allsheijar
spani við að halda fyrirfram ákveðnu
plani. Róleg og þægileg skoðunarferð
getur endað í óþægilegu stressi af
þeim sökum. Betra er að gefa sér
rúman tíma og skoða skemmtileg
um hægt að fá á ferðaskrifstofum
þeim sem verslað er við. Bókaversl-
anir hafa einnig eitthvað af vegakort-
um til sölu og yfirleitt er hægt að
kaupa nákvæm vegakort á áfanga-
stað. Umfram allt borgar sig að vera
ófeiminn við að fá sem bestar upplýs-
ingar um vænlega staði til að ferðast
um hjá þeim aðila sem selur ykkur
miðana. Yfirleitt eru til bæklingar
um áhugaverða staði til að sjá á leið-
inni og er um að gera að fá sem mest
úrval af þeim.
Ef bóka á hótel eðá sumarhús á
leiðinni er best að hafa tímann fyrir
sér í því. Eigi hins vegar ekki að fast-
bóka fyrirfram dvalarstaði á leiðinni
þennan máta eru ákaflega heillandi.
Fiölmargar leiðir og enn fleiri staðir
bjóða upp á dæmalausa íjölbreytni.
Fjölskyldan getur sámeinast um
leiðaval og síðan eru endalausir
möguleikar til frávika. Flestallar
ferðaskrifstofurnar bjóða upp á flug
og bíl og einnig flugfélögin. Verð-
lagningu og þjónustu eru gerð skil í
annarri grein í blaöinu.
Það má búast við því að þessi ferða-
máti verði æ vinsælli þegar fram líða
stundir. Það er því verðugt verkefni
að auðvelda þeim ferðamönnum lífið
sem vilja ferðast um á þennan máta
og aðstoða þá við að finna bestu
ferðamöguleikana. -EG
Bon Giomo
- við erum byrjuð að œfa ítölskuna, fyrir áœtlunarflugið
til Mílanó.