Alþýðublaðið - 04.07.1921, Page 1
Alþýðublaðið
Öeflð út aí Alþýðuflokkraism.
1921
Mánudagian 4. júlí.
150 tölubl.
Qfarir Grikkja fyrir Kemalistum
og Bolshevikum.
Hvað verður um Konstantinopel?
Etlendu símskeytin eru daglega
að flytja fregnir um styrjöld þá,
sem undanfarið heflr verið háð í
Litlu Asíu I skeytunum eru Ke*
maiistar oít nefndir á nafn, en
mönnum mun lítt ljóst hverjir þeir
eru og er því rétt að gefa hér
stutta skýringu á því.
Þegar Bandamenn settu tyrk-
aesku stjórninni í Konstantinopel
sína ósvífau friðarkosti, eftir heims
styrjöldina, tók einn af atkvæða-
mestu mönnum Ungtyrkja, Mus-
tapha Kemal, að safna leyfunum
af Tyrkjaher til þess að verja
sjálfstæði hinnar tyrknesku þjóðar
gegn yfirgangi Vestur-Évrópu stór-
veldanna. Eru síðan fylgismenn
hans nefndir Kemalistar. Sam-
kvæmt friðarsamningum soldáns-
stjórnarinnar f Konstantinopel og
Bandamanna, mátti svo heita, að
Tyrkir væru þurkaðir út úr tölu
sjálfstæðra þjóða. Þeir voru sviftir
nær öllum löndum í Asíu, en
héldu aðeins eftir landtanganum
með Konstantinopel, og að þeir
mistu ekki þá borg með er sjálf-
sagt því einu að þakka, að banda-
menn geta ekki orðið ásáttir um
hvað við þana „dýra gimstein"
eigi að gera. Alla langar þá í
hann. Hitt urðu þeir ásáttir um,
að heimta eftirlitsrétt með öllum
atvinnumálum og fjármálum Tyrkja.
Er það hín mesta svívirða að
sjá hvernig Vestur Evrópustórveld-
in hafa reynt að auðga sjálf sig
á reitum Tyrkjaveldis, en þó er
slík framkoma ekki ný í sögu
stórveldastefnunnar. Bretar, Frakk-
ar, ítalir og Grikkir hafa allir
reynt að skara eld að sinni köku
Og það eftir mætti.
Móti græðgt þessara ríkja til
Alúðarþakkir til allra þeirra, er auðsýndu hjálp og hluttekningu við
fráfall og jarðarför skipstjóra Jóhannesar Bjarnasonar frá Þingeyri.
Frá konu hans og börnum.
auðs og landa reis Mustapha Ke-
mai óg hans fylgismenn. Þeir
bjuggust fyrir í Litlu-Asíu og
settu með sér stjórn í Angora.
Neitaði hún að viðurkenna friðar-
samninga Konstantinopelstjórnar-
innar og bandamanna, en leitaði
hjálpar bjá bolsivfkastjórninni í
Moskva, sem einnig hefír átt f vök
áð verjast fyrir fjandskap auð-
vaidsrfkjanna. Þessi einarðlega
framkoma Kemalistanna gerði
bandamenn tilleiðaniega til þess
að endurskoða friðarsamningana
og slaka á kröfunum við Tyrki,
en Grikkir tóku því fjarri og kusu
heidur að hefja ófrið á hendur
Kemalistum upp á eigin spýtur.
Hófst viðureignin fyrir alvöru í
marz í vetur og gekk Grikkjum í
fyrstu vel. Nú hafa Kemaiistarnir
fengið liðsstyrk frá bolsivfkum og
strfðsgæfan heflr snúist á sveif
með þeim. Skeytin kunna ekki
frá öðru að herma en nýjum og
nýjum ósigrum Grikkja. Samkvæmt
síðustu skeytunum í gær, eiga Ke-
malistar skamt eitt ófarið til Sku-
tari, sem stendur á ströndinni við
Bosporus beint á móti Konstan-
tinopei.
Leidin til Konstantinopel er op
in Kemalistunum og bolsivíkum.
Tyrkjasoldán býst til að flýja
borgina. Eftir er að vita hvað
bandamenn gera nú eftir þessa ó-
væntu viðburði. En hvernig sem
veltur má búast við miklurn tfð-
indum úr þessari átt áður en langt
líður.
Söngflokkurina, sem sungið
heflr við konungskomuna, ætlar
að halda konsert í Nýja Bfó í
kvöid kl. 7V2.
jHlenning eg kurteisi.
Aiment er talið að miðstöð
menningarinnar f hverju landi séu
iíaupstaðirnir. Þar eru samankomin
á einn stað helstu menningartæki
nútímans, svo sem bókasöfn, lista-
söfn, leikhús, kvikmyndahús, alis-
konar vélar, sem inna sitt verk af
hendi fljótt og vel, og margskon
ar lífsþægingindi og nautnalyf,
sem ekki þekkjast úti um sveit-
irnar. Vegna þessa er því mjög á
lofti haldið, hve menningin og
kurteisin sé á mikið hærra stigi í
kaupstöðum en f sveitum, og þá
auðvitað þvf meir, sem kaupstað-
urinn eða borgin er stærri. Það
mætti líka ætia að svo væri, og
því verður mörgu fólki utan af
landsbygðinni að fyliast lotningar
fullri auðmýkt, þegar í kaupstaðinn
kemur. Því finst a!t svo „fínt* og
viðhafnarmikið, sem þar getur að
lfta, og það sjáift verða svo Iftið
og aulalegt innan um stórhýsin
og skrautlegu búðirnar. En kaup-
staðarbúar ifta aftur á móti með
svo óendaniega smáum augum á
„sveitadónana", sem ekki kunna
einu sinni að ganga á götu eða
taka ofan höfuðfatið svo f lagi sé
og vita ekkí hvað kurteisi er.
Manni verður því að gera
nokkrar kröfur til þessa „fína"
fóiks í kaupstöðunum hvað menn-
ingu og kurteisi snertir^ og veita
því ekki fullkomna lotningu fyrri
en það er reynt, að það kunni
alla sæmilega háttprýði og kurteisi.
Eg hefl ekki alið aldur mina
hér í borginni, kom aðeins hingað
til þess að sjá hina margumræddu
Reykjavík — höfuðstað ríkisins —
til þess að líta á menningarblóma
hennar og andans aðal. Og mér