Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1988, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 1988.
Fréttir
Bankamir stóðu fyrir
gjaldeyriskaupunum
-sagði Ólafur G. Einarsson, þingflokksformaður sjálfstæðismanna, á fundi á Álftanesi
„Ef það er satt að bankarnir liafi en á fundi sjálfstæöismanna í „Jú, það er rétt að ég nefndi þetta. Mér finnst það hæpin skýring að væri rétt.
sjálfir staöiö fyrir gjaldeyriskaup- Bessastaöahreppi á mánudags- Ég var einfaldlega að segja frá þvi þaö sé hinn „breiði massi“ sem „Ég fagna rannsókn viöskipta-
unum á miðvikudaginn þá hlýtur kvöldið sagöi Ólafúr að það væru sem gekk Qöllunum hærra i bæn- hafi staðið að þessum gjaldeyris- ráðherra því að ef satt reynist þá
það að teljast mjög ámælisvert svo bankarnir sem hefðu staöið fyrir um. Ég hef engar sannanir fyrir kaupum. Þaö gengur einfaldlega er þetta mjög alvarlegt mál fyrir
ekki sé sterkara að orði komist,“ hinum raiklu gjaldeyriskaupum þessu en það var hins vegar at- ekki upp þvi aö engin örtröö var i bankana."
sagði Ólafur G. Einarsson, þing- sem urðu tilefni þess að Seðlabank- hyglisvert að þó ég hefði víða ieitaö bönkunumsagði Ólafur og sagð- -SMJ
flokksformaður sjálfstæðismanna, inn lokaði gjaideyrisafgreiðslum. skýringa þá fékk ég engin svör. ist ítreka alvöru málsins ef þetta
Sverrir Hermannsson settist í bankastjórastól Landsbankans í gærmorgun kl. 10 og var honum heilsaó af ráða-
mönnum bankans þegar hann hóf sinn fyrsta starfsdag í banka. Hér má sjá þá Björgvin Vilmundarson banka-
stjóra, Pétur Sigurðsson, formann bankaráðs, Kristin Finnbogason varaformann, Sverri og Helga Bergs bankastjóra.
DV-mynd GVA
Útflutningsleyfi fyrir fiystan físk tií Bandarikjanna:
Allir sem sóttu um fengu leyfi
- endurskoðað á næsta ári
Útflutningsleyfi á frystum fiski til
Bandaríkjanna hafa nú verið end-
umýjuð og fengu þeir aðilar, sem
sóttu um leyfi, heimild til að heíja
útflutning. Þannig bætast 9 fyrirtæki
við þau 6 fyrirtæki sem viðskiptaráð-
herra veitti leyfið tímabundið í okt-
óber. Þá fengu Vogar hf„ Marbakki
hf„ G. Ingason hf„ Stefnir hf„ ís-
lenskur gæðafiskur hf. og íslenska
útfiutningsmiðstööin hf. leyfi til að
hefja útflutning á Bandaríkjamarkað
en fram að þvi höfðu aðeins Sölumiö-
stöð hraðfrystihúsanna, Sambandiö
og íslenska umboðssalan leyfi á þess-
um markaði þó síðastnefnda fyrir-
tækið væri langminnst.
Nú hafa 9 fyrirtæki til viðbótar
fengið leyfi. Það eru Fisktækni hf„
Luna Seafood hf„ Asiaco hf„ Nasco
hf„ Andri hf„ Seifur hf„ R. Hansen
hf„ Marfang hf. og íslenska markaðs-
félagið hf.
Um leið og utanríkisráöherra
kynnti þessa ákvörðun sagði hann
að það atriði, sem mest hefði verið
legið yfir, væri gæðaeftirlitið. „Við
viljum ekki slys,“ sagði Steingrímur
en í reglum fyrir leyfunum er kveðið
á um að fuílnægjandi gæðaeftirlit
verði að vera fyrir hendi og Ríkis-
matiö hafi yfirumsjón og ábyrgð á
því.
Leyfin eru veitt til 1. júni 1989 en
þá veröa þau tekin til endurskoðun-
ar. Ráðherra sagði að með því væri
ekki verið að boða aö þessu kerfi
verði kollvarpað að ári heldur væru
menn aöeins hræddir við of snöggar
breytingar.
-SMJ
Bogi hlaut
flest atkvæði
Bogi Ágústsson, blaðafulltrúi kvæði og Ögmundur Jónasson fékk
Flugleiöa og fyrrverandi fréttamað- eitt atkvæði. Hallur Hallsson dró
ur hjá Sjónvarpinu, fékk flest at- umsókn sína til baka.
kvæði í leynilegri atkvæðagreiðslu á Nær öruggt má telja að Bogi verði
fundi útvarpsráðs í gær þegar um- ráðinn en Markús Örn Antonsson
sóknir umsækjenda um fréttastjóra- útvarpsstjóri ákveður endanlega
stöðu Sjónvarpsins voru teknar til hver fær stöðuna. Hann hefur enn
umfjöllunar. ekki gefið út yfirlýsingu um það.
Bogi Ágústsson fékk þijú atkvæði, Á fundinum voru allir útvarps-
Helgi H. Jónsson fékk tvö atkvæði, ráðsmenn og sat því enginn vara-
Sigrún Stefánsdóttir fékk eitt at- maður fundinn. -JBj
Svartur miðvikudagur:
Bankarnir krafðir
um upplýsingar
Jón Baldvin Hannibalsson, sem er
viðskiptaráðherra í viðlögum meðan
Jón Sigurösson situr fund ráðherra
OECD í París, sendi gjaldeyriseftirliti
Seðlabankans bréf í gær þar sem
hann krafðist lista yfir þá sem tekið
hefðu út gjaldeyri fyrir meira en eina
milljón króna í byijun síðustu viku.
Þá runnu út 2,5 milljarðar króna af
gjaldeyri og ákvöröun um gengis-
fellingu þar með tekin af ríkisstjórn-
inni.
„Þetta er gert öörum til viðvörunar
Mikill groöi
Eftir gengisfellinguna segja spár
að viðskiptahallinn á árinu stefni í
um 10 milljarða. Fyrir lækkun geng-
issins stefndi hann í um 13 milljarða,
eins og greint hefur verið frá í DV.
Gengisfellingin nær ekki að draga
meðaltalsafkomu frystingarinnar
upp fyrir núllið en saltfiskvekun
og lærdóms," sagði Jón Baldvin, aö-
spurður hvort ríkisstjómin gæti
beitt þá sem keyptu óeölilega mikinn
gjaldeyri einhveijum viðurlögum.
Að sögn Stefáns Friðfinnssonar, að-
stoðarmanns Jóns, var árangurs-
laust reynt að fá þessar upplýsingar
frá rikisbönkunum. Þar báru menn
annríki fyrir sig.
„Ein ákvöðmn í einu,“ svaraði Jón
Baldvin spurningu um hvort listinn
yrði birtur.
-gse
aff saltfiski
ætti nú að vera rekin með 8-9 pró-
sent hagnaði. 10 prósent gengisfell-
ing gefur svigrúm fyrir 4-5 prósent
hækkun fiskverðs án þess að þrýsta
mjög á þau 3 prósent sem Seðlabank-
inn getur fellt gengið án umræðna í
ríkisstjóm.
-gse
Sigrún Þorsteinsdóttir, sem hyggur á forsetaframboð í vor, var í Austurstræt-
• inu í gær þar sem hún óskaði eftir undirskriftum vegfarenda hennl til stuðn-
ings. Undirskriftasöfnuninni er að Ijúka en þegar hafa safnast yfir 2000
meðmælendur um allt land. DV-mynd GVA
Forsetakosningar kosta 20-30 milljónir:
Ekki þekkstáðurað rætt
sé um kostnað kosninga
- segir blaðafulltrúi væntanlegs forsetaframbjóðanda
„Við stuðningsmenn Sigrúnar
Þorsteinsdóttur emm mjög óhressir
með fréttaflutning varðandi kostnað
við forsetakosningamar. Það hefur
ekki þekkst áður aö rætt sé um hvað
kosningar kosti, hvort sem það em
alþingis-, bæjar- eða sveitarstjómar
kosningar," segir Áshildur Jónsdótt-
ir, blaðafulltrúi Sigrúnar Þorsteins-
dóttur, sem hyggur á forsetafram-
boð.
Áshildur telur slíkan fréttaflutning
hlutdrægan vegna þess að óbeint sé
verið að álasa væntanlegum fram-
bjóðanda fyrir óþarfa eyðslu og telur
hún slíkt lágkúralegt.
„Við búum í lýðræöislegu þjóð-
félagi þar sem kosið er á fjögurra ára
fresti. Þess vegna ættu forsetakosn-
ingar ekki að snúast um peninga
heldur lýðræði. Við stuðningsmenn
Sigrúnar viljum endurvekja frelsis-
og sjálfstæðisbaráttu íslendinga og
framkvæma hugsjónir þeirra sem
settu í upphafi ákvæði í sljómar-
skrána um forsetaembættið sem er
aö efla lýðræöi og standa vörð úm
rétt einstaklingsins og veita stjóm-
völdum aðhald“, sagði Áshildur.
-JBj