Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 19. MAl 1988.
dv Úflönd
Brottflutningur
fyrstu sovésku her-
mannanna afstaðinn
Brottflutningur fyrstu sovésku
hermannanna frá Afganistan er nú
afstaðinn. Herménnimir óku yfir
„vináttubrúna" á Amu Darya ánni í
gær, en áin rennur á landamærum
Sovétríkjanna og Afganistan við
Termez.
Sovésku hermönnunum var vel
fagnað af löndum sínum við komuna
yfir landamærin og þeim búin veisla.
Ferð herdeildarinnar, sem telur
um tólf hundruð manns, frá Kabul,
höfuðborg Afganistan, gekk tíðinda-
lítið fyrir sig. Ótti manna um að
skæruliðar stjórnarandstöðunnar í
landinu kynnu að gera árásir á her-
mennina á leið þeirra úr landi reynd-
ust ástæðulausar. Höfðu leiðtogar
stjórnarandstöðunnar haft í hótun-
um um að stunda skæruhemað gegn
sovéska herliðinu allt að landamær-
um ríkjanna tveggja. Skæruliðamir
gerðu þó htlar tilraunir til aö valda
skaða á þessari fyrstu brottflutnings-
lest og reyndust þær aðgerðir, sem
þeir gripu til, árangurslausar.
Brottflutningur sovéska herliðsins
frá Afganistan heldur nú áfram sam-
kvæmt áætlun undir eftirliti Samein-
uðu þjóðanna. Líklegt er talið að nú
þurfi að finna nýjan yfirmann sendi-
nefndar Sameinuðu þjóðanna í Afg-
anistan sem fylgist með framkvæmd
brottflutninganna. Núverandi yfir-
maður nefndarinnar, Diego
Cordovez, hefur fengið boð frá ný-
kjörnum forseta Ecuador um að ger-
ast utanríkisráðherra í ríkisstjórn
hans.
Talið er líklegt að Argentínumaður
muni taka við yfirstjóm eftirlits
Sameinuðu þjóðanna með brottflutn-
ingunum ef Cordovez lætur af því
starfi.
Fyrstu sovésku hermennirnir fara yfir landamærabrúna við Termez. Brúin
er nefnd „vináttubrúin" en hún liggur yfir Amu Darya fljótið.
Simamynd Reutcr
Fyrstu sovésku hermennirnir, sem komu til Sovétríkjanna frá Afganistan nú i vikunni, njóta hádegisverðarveislu
sem þeim var gerð við heimkomuna. Símamynd Reuter
Mqi ir TTE
. N '
4 - i ^ -
“ TjlPSÍ
NÝKOMIÐ
Brasilia mahóní, askur, eik, iraco, pann-
marfins brenne. Fullþurrkaður viður.
BYGGlfí HF.
Grenásvegi 16 - sími 37090
BÆJARFÉLÖG-VERKTAKAR-VINNUSKÓLAR
Minnkið fjármagnskostnaðinn. Bjóðum til leigu í
styttri eða lengri tíma sterka og góða Land-Rover
jeppa, 7 og 10 manna, einnig pallbíla og sendibíla.
Leigjum einnig kerrur af mörgum stærðum.
Upplýsingar hjá næsta umboðsmanni
Reykjavík, Skeifan 9, sími: (91) 686915 og (91) 31615
Akureyri, Tryggvabraut 12, sími: (96) 23515 og (96) 21715
og útibú í kringum landið.
Bílaleiga Aureyrar
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18,
sími 28705
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI
Formaður gyðinga-
samtaka misnotaði
miskabætur
Asgeir Eggerlssan, DV, Miinchen;
í Ijós hefur komið að hinn látni
formaður samtaka gyðinga í Vestur-
Þýskalandi, Wemer Nachmann, hef-
ur misnotað talsvert fé úr sameigin-
legum sjóði gyðinga. Eftírmaður
hans, Heinz Galinski, segir að hér sé
um að ræða vexti af 400 milljónum
marka sem Vestur-Þýskaland
greiddi gyðingum í miskabætur á
árunum 1980 til 1987.
Galinski segir að peningamir hafi
upphaflega verið greiddir samtökUn-
um Claims Conference og hafi átt að
renna til gyöinga sem hlutu illa með-
ferð á árum nasista. Samtökin
greiddu Nachmann peningana og
kom hann þeim fyrir á bankareikn-
ingum fyrirtækis síns.
Sjálfar skaðabætumar komust til
réttra aðila en vöxtunum á Nach-
mann að hafa stimgið í eigin vasa.
ALLT MOGULEGT
verslun med hitt og þetta, Laugavegi 26, sími 21615