Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988. 13 Lesendur Bréfritara finnst orðið ófært að fara í Laugardalsiaugina vegna mannmergðar og óþrifnaðar. OPIÐ FÚSTUDAGINN TIL KL. 22.00 OG LAUGARDAGINN FRÁ KL. 10.00-19.00 * Allt í ferðalagið frá Seglagerðinni Ægi. Para- diso-fellihýsið uppsettá '/2 mínútu. * FERÐAMARKAÐURINN Bíldshöfða 12 (við hliðina á Bifreiðaeftirlitinu), sími 680003 Ófært í sundlaugina Bjarni E. skrifar: Ég gerði mikið að því hér áður fyrr að fara í sundlaugina í Laugardal því sund er holl hreyfing og ég á heima í næsta nágrenni. En nú er svo kom- ið að ég er hættur öllum shkum iðk- unum. Sundlaugin er orðin svo óþrifaleg, vatnið er alls ekki nógu hreint, auk þess sem þykkt lag af sólarolíu flýtur jafnan ofan á vatn- inu. Þetta er sérstaklega áberandi í heitu pottunum. Eina ráðið, sem menn virðast grípa til gegn þessu, er aö dæla nógu miklu af klóri í laug- arnar þannig að maður verður dof- inn af því einu að anda að sér í laug- unum. Ég þoldi lengi vel við, við þessar aðstæður, en eftir að sundlauga- rennibrautin kom legg ég ekki lengur í laugarnar í Laugardal. Fjöldinn er orðinn svo yfirþyrmandi að varla er lengur hægt að fá skápapláss lengur. Ekki er rýmið mikið í laugunum heldur. Því miður á ég ekki bifreið eins og flestir íslendingar svo það er of mikiö mál fyrir mig að sækja laug- ar annars staðar. Mér finnst að standa ætti betur aö þrifnaði í lauginni og banna ætti sólarolíu. Þaö væri þá strax skárra, en erfitt á ég meö að ímynda mér að rennibrautin verði fjarlægð. Sláttuvélabrjálæðingar Guðrún Jónsdóttir skrifar: Ég er mikill sóldýrkandi og finnst gott að leggjast út í sólbað þá sjald- an sólin lætur sjá sig. Það er af- skaplega þægilegt að leggjast í friði og ró út í garð og láta fuglana syngja sig í svefn. En því miður gefst aldrei færi á því, þar sem sláttuvélabrjálæðingamir fara allt- af á stjá þegar sólin skín og ætla allt og alla að æra með látum sín- um, Virðist þá engu máh skipta hvort bletturinn þarf á því að halda að vera sleginn. Þetta fer mikið í taugamar á mér og vona ég að ein- hver „bijálæðingurinn“ lesi þetta og taki til sín. Brefritari er þreyttur á „sláttuvéiabrjálæðingum“ sem fara á stjá þegar sólin skín. Góður V.J. hringdi: Ég vil láta í ljós ánægju mína með þáttinn í sumarskapi sem sýndur eru á fóstudagskvöldum á Stöð 2. Saga Jónsdóttir, sem stjórnar þáttunum, er einstaklega góð og fagmannleg í þessu hlutverki. Jörundur Guð- mundsson var upphaflega með Sögu sem stjórnandi en nú hefur Bjarni Dagur tekið við hlutverki hans. Bjarni Dagur er ágætur en persónu- lega fannst mér Jörundur betri og vh helst fá hann aftur. Þetta er mjög þarft framtak af Stöð 2 að hafa svona þátt sem er eitthvað öðruvísi en til- búið efni. þáttur á Stöð 2 Þátturinn I sumarskapi, sem Saga Jónsdóttir og Jörundur Guómundsson stjórna, finnst mörgum góður en hann er sýndur á föstudagskvöldum á Stöð 2. Málvemd í stað málspillingar Ingvar Agnarsson skrifar: I fjölmiðlum er mikið um mál- spillingu í staö málverndar. Illa kann ég viö að heyra fréttamenn í útvarpi og sjónvarpi stöðugt tönnl- ast á erlendum staðamöfnum með slíkum áherslum að mjög verður ankannalegt á að hlýða. Eitt er það nafn, fiestum öðrum fremur, sem mjög stingur J stúf við íslenskan framburð. Þaö er nafnið Nik- aragúa, þar sem aðaláherslan er ávallt látin vera á síöara a-inu í miðju orði. Þessi framburöur er bæði ákaflega ljótur á aö hlýða og einnig óíslenskulegur sem mest raá verða. Erlend nöfn skyldi ávallt bera fram þannig að ekki særi stórlega raálsraekk eða raáltilfmningu fólks sem á blýðir og skiptir þá vitanlega engu máh hvernig aörar þjóöir bera nöfnin fram. Þuhrnir eru að tala fyrir íslenskum eymm en ekki útlendum og verða að laga fram- burð á útlendum nöfnum eftir ís- lenskum framburðarreglum og hafa aöaláhersluna á fyrsta at- kvæði. Hér þyrftu kunnáttumenn í íslensku máh og málnotkun um að flalla. Jfl LQ) Gabriel HÖGGDEYFAR STERKIR, ORUGGIR ÓDÝRIR! E G ” SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91 -8 47 88 NÚ FÆRÐU. . I05g MEIRIJOGURT ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS!* * miðað við verð á jógúrt í 180 g dósum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.