Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1988, Side 23
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1988.
35-
Fréttir
íslensk kona í Sviþjóð og bankakerfið:
Lífeyririnn var þrjár vikur á leiðinni
„Þetta gekk heldur illa og þaö er
veila í þessu öllu saman sem ég veit
ekki hvar hggur en ég fékk þó pen-
ingana loksins á fimmtudagsmorg-
un. Ég er mjög sár yfir því að þetta
skuli geta komið fyrir og vona að
svona gallað kerfi taki viö sér og fari
að starfa af samviskusemi,“ sagði
Sigríður Sigurðardóttir.
Sigríður er 76 ára gömul íslensk
kona sem flutti í júnímánuði til
Husgvarna í Svíþjóð. Hún átti von á
tryggingabótum og lífeyrissjóðs-
greiðslum frá íslandi og bað bankann
sinn hér heima að senda peningana
út á bankareikning sinn í Jönköping
Ljenssparbank.
Upphæðin, sem hér um ræðir, var
45.530 íslenskar krónur og var hún
send frá Búnaðarbankanum þann 19.
Bensínsjálf-
sali á ísafirði
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
„Bensínsjálfsali verður settur upp
á Isafirði seinni hluta þessa mánað-
ar. Það var á áætlun að setja hann
mikið fyrr upp en ýmsar orsakir
hafa orðið til þess að af þessu hefur
ekki orðið enn,“ sagði Ágúst Karls-
son hjá Olíufélaginu Esso er DV
spurði hann hvenær ísfirðingar gætu
átt von á því að geta keypt bensín
eftir kl. 21 á kvöldin.
Ágúst kvað Olíufélagið hafa haft
mjög mikið á sinni könnu í sumar,
sérstaklega eftir að félagið fékk til-
kynningu um að selja ætti blýlaust
bensín um land allt. Sú tilkynning
hefði haft það í för með sér að aðrar
framkvæmdir hefðu setið á hakan-
um á meöan á breytingum stóð.
„Við erum búnir að fá nokkra sjálf-
sala til landsins og er nú verið að
leysa þá úr tolli. Þeir verða síðan
prófaðir og síðan fer einn vestur á
Isaflörð nú síðar í mánuðinum. Hvaö
varðar ísafjörð þá þarf að gera þón-
okkuð meira en aö setja upp einn
sjálfsala því skipta þarf um allar
dælur á staðnum þar sem þær eru
orðnar ónýtar. Sjávarúði hefur
skemmt þær, sérstaklega á vetuma.
Því verður skipt um ahan dælubúnað
á ísafiröi," sagöi Ágúst.
LITASTÁL ER
LISTASTÁL
Plasthúðaðar stálklæðningar á
þök og veggi frá Inter Profiles eru
til i 17 litum.
- Prófílhæð 20 mm og 35 mm
- Allir fylgihlutir
- Skrúfur frá SFS
- Þéttilistar frá DAFA
- Verkfæri frá BOCH
- Fáanleg bogalaga
- Fáanleg með ALUZINK húð
- Ókeypis kostnaðaráætlanir
VÉRÐIÐ ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF.
LYNGÁSI 15 210 GARÐABÆ
SÍM! 91-53511
GÆÐI TJR STÁLI
- segir að það hafi komið sér illa
júh. Konan fékk þó ekki peningana
inn á reikning sinn og fór fljótlega
að ókyrrast og spurðist fyrir um
þetta í Búnaðarbankanum. Bankinn
mun hafa sent telexskeyti til við-
skiptabanka síns í Svíþjóð bæði þann
2. ágúst og 8. ágúst og bað um skýr-
ingar á þessum töfum. Hafði Búnað-
arbankanum ekki borist svar við
bréfunum fyrir helgina. Sænski
bankinn, sem fékk peningana senda,
er Skandinaviska Enskildabanken í
Stokkhólmi og sagði starfsmaöur í
Búnaðarbankanum að þetta væri
leiðinlegur banki í svona viðskiptum
og seinn. Blaðamaður DV haíði sam-
band við þennan umrædda banka en
þeir höfðu þá sent peningana áfram
til útibús síns í Gautaborg en þaö
tekur við erlendum greiðslum. Það-
an vora svo peningarnir loksins
sendir í fyrradág inn á bankareikn-
ing Sigríðar. rúmlega þremur vikum
síðar. Ahur þessi dráttur vekur upp
þá spurningu hvemig peningamihi-
færsla á milh bankastofnana geti
verið svona lengi á leiðinni á upplýs-
ingaöld.
„Þetta kom sér frekar illa því ég fór
ekki meö mikla peninga út og bjóst
ekki við því að þetta tæki svona lang-
an tíma en ég þekki hér gott fólk sem
betur fer. Auðvitað hlaust af þessu
kostnaður og þetta var dýrt fyrir
mig. Ég þurfti aö hringja mörg sím-
töl í bankann á íslandi og í ættingja
þar,“ sagði Sigríöur.
Sigríður segist hafa lært af þessari
slæmu reynslu af bankakerfinu en
hún á von á fleiri shkum greiðslum
frá íslandi. „Ég læt senda mér þessa
peninga eftir persónulegum leiðum
næst,“ sagði Sigríður Sigurðardóttir'
-JFJ
Ég undirrituö/aður óska eftir að fá sendan nýja FREEMANS
pöntunarlistann í póstkröfu.
Nafn
Heimilisfang Póstnúmer
Nafn.nr.
PÓSTVERSLUN BÆJARHRAUN114, 220 HAFNARFJÖRÐUR
Pöntunarlistinn kostar 160 kr. + póstburðargjald sitrti 53900