Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1988, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1988.
7
Abba Marcos biskup og Abba Athanasios vigslubiskup.
DV-mynd Róbert Jörgensen
Biskupar koptísku
kirkjunnar
í Stykkishólmi
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Vikuna 11.-17. þessa mánaðar var
bænavika kaþólska safnaðarins. Af
þessu tilefni komu til Stykkishólms
tveir biskupar koptísku kirkjunnar
í Egyptalandi. Þetta voru þeir Abba
Marcos, biskup koptísku kirkjunnar
í Frakklandi, og Abba Athanasios,
vígslubiskup koptísku kirkjunnar í
Frakklandi.
Aðspurðir sögðu þeir að þeir væru
frá klaustri sem staðsett er fyrir
sunnan Kairó. Þeir starfa í Frakk-
landi en þar eru um 4000 manns í
söfnuði þeirra, allt Egyptar. Biskup-
arnir dvelja einn mánuð á ári í
Egyptalandi, aðra hluta ársins starfa
þeir í Frakklandi.
Þeir sögðu að 'koptíska kirkjan sé
elsta kirkjudeild kristninnar og var
hún stofnuð þegar guðspjallamaður-
inn Markús kom til Egyptalands, og
varð þá egypska þjóðin alkristin, en
nú eru um 8 milljónir í þessari frum-
kristnu kirkjudeild.
Til gamans má getá þess að orðið
coptik þýðir egypskt og er komið úr
grísku.
Ótíð á Austuriandi
Ægir Kiistmsson, DV, Fáskiúðsfirði:
Mikil ótíð hefur hrjáð bændur á
Austurlandi í sumar. Gras, sem sleg-
ið var fyrri hluta ágústmánaðar og
ekki náðist í hús, hefur hrakist á
túnum í mánaðartíma og er orðið
ónýtt fóður, o" hafa nokkrir bændur
hent því.
„Við höfum orðið fyrir miklu tjóni
og mikil fóðurbætiskaup eru fyrir-
sjáanleg í vetur þótt eitthvert hey
náist í hús eftir þetta en tún eru svo
blaut að það þyrfti viku þurrk til að
hægt væri að fara með tæki út á
þau,“ sagði Sigmundur Eiríksson,
bóndi á Gestsstöðum. Sigmundur
sagði hátt í fjörutíu ár síðan svona
óþurrkasumar hefði vérið á Austur-
landi.
Víða komu tún kalin undan snjó í
vor og þó borið hefði verið á þá bletti
væru þeir svo veikir núna vegna
bleytu að ekki væri hægt að fara um
með vélar nema stórskemma þau og
því heföu áburðarkaup í vor ekki
skilað sér sem skyldi. Því væri tjón
bænda enn meira.
í haust á að skera niður fé vegna
riðu á sex bæiurr í Fáskrúðsfjarðar-
hreppi og ver. - fé þá eftir á tíu
bæjum í i^eppnum að sögn Sig-
mundar.
Vestmannaeyjar:
19StephTk"p„ti fyr.it yffl fymtm
Eðvarð Matthíasson, 18 ára Eyja- íslandsmeistara og vann allar lot-
peyi, einn fjögurra íslendinga sem umar fiórar. Næst keppti hann við
nú keppa við ballskákarsnillinginn Eðvarð og lauk viðureigninni með
Stephen Hendry, náði frábærum sigri Stephens, 4-2. Það er frábær
árangri í viöureign við hann. Step- árangur hjá Eövarð að ná að vinna
hen Hendry er að sögn Stöðvar 2 lotu gegn manni af þessum styrk-'
liklegur heimsmeistari og mikið leika.
undrabam í þessari íþrótt, aöeins
Fréttir
Nýtt ríki opnar í Mjódd:
Minniverslunmeð
áherslu á létt vín
Ný áfengisútsala opnaði í Mjódd-
inni í dag. Er verslunin minni en
aðrar verslanir ÁTVR, en með sjálfs-
afgreiðsluformi. Aðal áherslan verö-
ur lögð á létt og millisterk vín, á
kostnað sterkra drykkja.
„Fólk mun aldrei geta gengið að
því vísu að fleiri en tvær tegundir
af sterkum vínum muni fást þarna í
einu. Það er um tólf tegundir að ræða
og verður breytilegt hvaða tegundir
vérða inni hverju sinni. Þess i stað
verða fleiri tegundir léttra vína, um
10-20 tegundir umfram-það sem er í
hinum útsölunum. Verslunin er
minni en hinar og þvi ekki hægt
koma jafnmiklu af vínum fyrir. Þetta
verður fín verslun,“ sagði Höskuldur
Jónsson, forstjóri ÁTVR, viö DV.
Þetta ríki kemur í stað konuríkis-
ins svonefnda sem var á Laugarás-
veginum, en það ríki flutti í raun
niður á Snorrabraut. Má segja að
Snorrabrautarríkið hafí flust í
breyttri mynd í Mjóddina.
Nýja ríkið hefur ekki fengið gælu-
nafn, en Höskuldur segir almenning
fljótan að fmna upp á slíku. Öpin-
Lokafrágangur i nýja ríkinu í Mjóddinni i gær. Afengisverslunin var siðan
opnuð í morgun. DV-mynd Brynjar Gaufi
berlega heitir þetta ríki „Vínbúðin í Birgir Stefánsson. áður verslunar-
Mjódd“. stjóri á Snorrabraut.
Verslunarstjóri nýja ríkisins er -hlh
Gárungar segja að í dag sé féð orðið það fátt i réttunum að tveir menn séu orðnir á hverja kind. Að minnsta kosti
var svo komið í Skeiðaréttum í Skeiðahreppi á föstudag þar sem þessi hressilega mynd var tekin. Stráksi elti
lambið langar leiðir af mikilli innlifun, sisvona bara til að ná taki á henni. Yngsta kynslóðin hafði mjög gaman af
að elta féð, rétt eins og þeir fullorðnu. En þegar taki var náð vissu krakkarnir ekkert hvað átti að gera við skepn-
una. Var einhver að tala um kynslóðabil? -GKr/DV-mynd EJ
Hundrað þúsund Visa-kort útgefín
Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa, afhendir Sigurði R. Gíslasyni jarð-
fræðingi,100.000. korthafa Visa, kort hans ásamt ávisun á 100.000 króna ferð-
aúttekt. Á myndinni eru einnig Óskar Hallgrimsson markaðsstjóri og Margrét
Ólafsdóttir, deildarstjóri kortadeildar Visa.
Hundraðþúsundasta
Visa-kortið var afhent
handhafa fyrr í þessum
mánuði. Sá heppni var Sig-
urður R. Gíslason, jarðfæð-
ingur og starfsmaður Raun-
vísindastofnunar Háskól-
ans. Honum var aíhent
100.000 króna ferðaúttekt að
eigin vali í hófi sem Visa
hélt ólympíufórum íslands í
Viðeyjarstofu á dögunum.
í síðasta mánuði voru rétt
5 ár liðin síðan Visa ísland
hóf starfsemi sína. Síðan
hefur korthöfum fiölgað
jafnt og þétt, þeir voru 7.500
í árslok 1983, 27.500 í árslok
1984, 46.000 í árslok 1985,
66.000 í árslok 1986 og 88.000
í árslok 1987.
-GKr