Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1988, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1988. 17 Lesendur Ríkisstjórn Steingrims Hermannssonar. - „Sannkölluð Happaþrenna". Nafii á nýju ríkisstjómina: Happaþrenna skal hún heita Ásgrímur hringdi: Það hefur verið vani að einkenna ríkisstjómir hér á landi með ýmsu móti, svo sem viðreisnarstjórn, ný- sköpunarstjórn, o.s.frv. - Eða þá að nefna þær eftir þeim forsætisráð- herrum sem þær hafa myndað. Sú nýja stjóm sem tók við völdum á dögunum getur varla dregið nafn af skapara sínum. það hreinlega fer ekki vel í munni að kalla hana Stein- grímu eins og einhver var að ýja að fyrir nokkru. Þessi stjórn verður að fá eitthvert sérstakt heiti og taka þá nafn sift af einhveiju því sem hana einkennir eða hún rekur uppmna sinn tiL - Ég legg til að hið ágæta nafn „Happa- þrenna" sem Kristín Halldórsdóttir, þingkona Kvennalistans, gaf þessari ríkisstjórn í grein í DV í dag verði hið endanlega nafn stjórnarinnar. Að vísu bætti Kristín orðinu „bón- us“ við, vegna þess gildisauka sem Stefán Valgeirsson gefur henni og gæti þá fullt nafn stjórnarinnar verið Happaþrenna'með bónus. - En mér íinnst að í daglegri umræðu manna á meðal megi að ósekju kalla þessa stjórn Happaþrennu. Stjómina tókst að mynda með heppninni einni sam- an og flokkarnir sem að henni standa eru þrír og því er núverandi ríkis- stjórn sannkölluð Happaþrenna. Leiðinlegt útvarp á morgnana Þór Gunnarsson hringdi: Það er annars furðulegt hvað all- ar þessar nýju útvarpsstöðvar hafa lítið auðgað þá dagskrá sem fólki er boðið upp á. í fyrstunni lofaði þetta allt góðu og manni fannst sem þetta yrði talsverð bót að þvi leyt- inu til að fólk gæti í raun vahð úr, t.d. hvað tónhst varðar. Sumir héldu sig einfaldlega við gömlu gufuna og aðrir skiptust svo á hin- ar stöðvamar, eftir því hvaða tón- hstarsmekk menn höfðu Það myndi verða, héldu menn, sín hver tegund tónhstar á stöðvunum. - En það varð ekki raunin. Að vísu kom ein stöð inn í mynd- ina nokkuð fljótt, Ljósvakinn, þar sem leikin var tónlist svo th stans- laust og án mikiha eða stöðugra innskota um ekki neitt, frá morgni til kvölds. Þessi stöð var mörgum mjög kærkomin til hlustunar, þar sem þarna voru leikin vinsæl ný og gömul dægurlög ásamt klassísk- um lögum eða brotum úr klassísk- um verkum. Uppistaðan var þó svoköhuð „lyftutónhst" eða af- þreyingartónhst. - Stöðin var því miður lögð niður fyrirvaralaust. Engar skyldur við þá sem höfðu „ánetjast" stöðinni sem fastir og þakklátir hlustendur! Og nú er engin slík stöð til í landinu, nema hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvehi, en hana meg- um við ekki hlusta á, hún sendir út í kapalkerfi. Á morgnana eru útvarpsstöðv- arnar hér hver annarri leiðinlegri, allar með sömu tónhstina, grað- hestamúsík samkvæmt vinsælda- hsta, og hundleiðinleg innskot um- sjónarmanna stöðvanna. Hver hef- ur t.d. áhuga á fréttapisth frá Þýskalandi, Bandaríkjunum eða Svíþjóð? Eða upplestri úr lands- málablöðum eins og Skuth eða Dagskrá? Nú, eða þá fréttum utan af landi, eins og um það að önnur hver kerling í einhverju þorpinu gangi ýmist með berjafötur eða sláturbala þessa dagana! Gamla gufan er góð að sínu leyti, en þar er heldur mikil klassík svona snemma dags. Hvers á sá fjölmenni hópur landsmanna að gjalda sem vill hlusta á samfehda afþreyingartónhst, þótt ekki ýæri nema mihi kl. 7 og 9 á morgnana? FRÁ MENNTA- MALARAÐUNEYTINU Lausar stöður við framhaldsskóla. Við Iðnskólann í Reykjavík er laus til umsóknar staða bókasafnsfræðings frá og með 1. desember nk. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember nk. Menntamálaráðuneytið M.B. 280 SE 1983 Ekinn 103 þús. Topplúga rafdr. Centrallæsingar aflbremsur, plussáklæði. Upplýsingar í síma 671900 Nýr 1988 GMC SIERRA CLASSIC 6,2 dísil Rafmagnshurðalæsingar, rafmagnsrúðu- upphalarar. Sjálfvirkur hraðastillir, stereo útvarp og segulband, veltistýri, sjálfskiptur m/overdrive. Rally sportfelgur 31" dekk, læst drif 3,73 drifhlutfall. Upplýsingar í síma 92-46641 eða 985-21341. ik 'rvMytatvyx' Dans kemur í veg fyrir ýmislegt neikvætt, sérstaklega hjá strákum. DV fór í dansskóla Auðar Haralds í vikunni þar sem rætt var við dansfólk, yngra sem „aðeins eldra". Viðmælendur voru sammála um að það vantaði stráka til að dansa við. En hvers vegna ekki aðtvinna dans saman við skóla- kerfið, einu sinni í viku t.d.? Þar sem Islendingar eru mikið fyrir að skemmta sér, því þá ekki að kenna krökkum að dansa svo þeir kunni það? Það yrði e.t.v. til að minnka áfengisneyslu á skólaböllum. í Lífsstíl á morgun verður einnig sagt frá átta danspörum sem búin eru að halda sam- an í átta ár. Nýlega voru gef nar út fyrstu íslensku næringarefnatöflurn- ar. Töfluheftin eru tvö og í þeim eru upplýsingar um efna- innihald íslenskra matvæla. Tilgangurinn með útgáfunni er að draga saman og gera aðgengilega þá þekkingu sem er til staðar á efnainnihaldi ís- lenskra matvæla. I Lífsstíl á morgun verður þessum töflum lýst enn frekar og gerð grein fyrir gagnsemi þeirra fyrir almenning sem og sérfræðinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.