Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Blaðsíða 14
Frjálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð I lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Varhugaverðar ráðagerðir
Nýja ríkisstjórnin hyggst halda áfram á sömu braut
og gamla stjórnin í útþenslu ríkisbáknsins á kostnað
annarra þátta þjóðfélagsins, svo sem atvinnulífs og Qöl-
skyldulífs. Ríkið er á þessu ári óvenjulega þungur baggi
á þjóðinni og verður enn þyngri á hinu næsta.
Þetta má sjá í beinhörðum tölum um hlutfall skatt-
tekna ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu. í fyrra var
það 23%. í ár verður það 25,3%. Af sáttmála hinnar
nýju stjórnar má ráða, að það verði 26,8% á næsta ári.
Þetta er samtals 3,8% aukning á aðeins tveimur árum.
. Þetta felur í sér, að gamla ríkisstjórnin lagði á þessu
ári mánaðarlegan 7.500 króna aukaskatt á hverja hög-
urra manna fjölskyldu í landinu. Ennfremur, að nýja
ríkisstjórnin hyggst að auki leggja 4.600 króna mánaðar-
legan aukaskatt á hverja Qögurra manna fjölskyldu.
Alls er þetta um 12.000 króna aukning á hverja fjöl-
skyldu á tveimur árum. Á næsta ári situr því hver fjög-
urra manna Qölskylda uppi með nærri 150.000 króna
meiri skattgreiðslur en ella hefði verið. Dýrt spaug er
að hafa ríkisstjórnir, sem eru örlátar á annarra fé.
Ef haldið yrði áfram á sömu braut, yrði ekkert eftir
í landinu nema ríkið eitt, að einungis tveimur áratugum
hönum. Shkt er auðvitað óframkvæmanlegt, en sýnir
sem talnaleikur, hversu alvarlegur raunveruleiki er að
baki ofangreindra hlutfahstalna um skattheimtu.
Ríkið var á svipaðri óheillabraut árin 1980 til 1982,
þótt mun hægar færi. Stjórnmálamenn báru árið 1982
gæfu til að snúa dæminu við og skera hlutdeild ríkisins
í þjóðfélaginu niður í 23-24%. Það hlutfall hélzt svo
óbreytt aht fram á þetta síðasta og versta ár.
Eðlilegt er, að hlutdeild ríkisbúsins í þjóðarbúinu
haldist óbreytt milli ára og um langt árabh. Með
óbreyttu hlutfahi tekur ríkið, eins og aðrir, þátt í fjár-
hagslegri gleði og sorg þjóðarinnar. Með hækkuðu hlut-
fahi neitar ríkið slíkri þáttöku af sinni hálfu.
Ríkisstjórnum ber að setja sér og ríkinu ákveðin
mörk í þessu efni, th dæmis skattheimtu upp á 23% af
landsframleiðslunni. Th viðbótar við hana kemur svo
skattheimta sveitarfélaga, svo að þáttur hins opinbera
fer samt í 30% og má það teljast ærið hlutfah.
Ef markmið af þessu tagi eru ekki sett, er hætt við,
að ráðamenn láti vaða á súðum í ýmissi óskhyggju, fyrir-
greiðslu og atkvæðakaupum, svo sem handboltahöll,
skipasmíða-ríkisábyrgð og atvinnutryggingasjóði út-
flutningsgreina, svo að nýleg dæmi séu nefnd.
Ef óskhyggjan, fyrirgreiðslan og atkvæðakaupin eru
framkvæmd, leiðir það oft til hækkunar á hlutdehd rík-
isbúsins af þjóðarbúinu og gerir atvinnulífmu erfiðara
fyrir sem dráttardýri rikisvagnsins. Það hagnast minna
en eha á rekstrinum og tapar jafnvel á honum.
Þetta hefnir sín á stjórnmálamönnunum eins og öðr-
um. Ofkeyrsla á hluteild ríkisins leiðir th stöðnunar eða
minnkunar á kökunni, sem er th skiptanna mihi ríkis,
atvinnulífs og fíölskyldna. Minni keyrsla mundi efla
getu atvinnulífsins th að stækka köku þjóðarbúsins..
Mistök síðustu ríkisstjórnar hafa þegar verið gerð og
verða ekki tekin aftur. En mistökin, sem hinn nýi fjár-
málaráðherra ætlar að gera með stuðningi ríkisstjórnar-
innar, hafa hins vegar enn ekki komizt th fram-
kvæmda, svo að enn er tími th að vara aha við.
Ráðgerð aukning skatta á næsta ári um hálfan fjórða
mhljarð er þeim, sem að henni standa, varhugaverð
byrði, er verður hættuleg í næstu kosningum.
Jónas Kfistjánsson
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988.
„Norðmenn kaupa af skyldurækni af okkur lambakjöt og við greiðum 250 krónur með kílóinu til þess að
Norömenn geti sýnt skyldurækni..." segir greinarhöfundur meðal annars.
Fíflun þéttbýlisbúa
Þegar þetta er skrifað er 10. októ-
ber, í sjónvarpi var minnst á land-
búnað og landbúnaðarvörur.
Norðmenn kaupa af skyldurækni
af okkur lambakjöt og við greiðum
250 kr. með köóinu til þess að Norð-
menn geti sýnt skyldurækni, síðan
selja Norðmenn þetta kjöt meö 50
kr. niðurgreiðslu frá sér til Japan.
Ákveðiö hefur verið aö sum slátur-
hús fái peninga vegna einhvers
sem gerðist í fyrra hjá þeim - mik-
ið af peningum. Kaupmenn á horn-
inu kikna undan framlegð til land-
búnaðar og loka vegna þess að
álagning á landbúnaðarvöru er of
lág og skipulag þéttbýlis er að fara
í hundana.
Ef dæmiö væri svona
Vegna norrænnar samvinnu
kauga Norömenn af okkur 300 tonn
af íslendingasögum af skyldu-
rækniástæöum en við greiðum 500
kr. með kílóinu en þar sem Norð-
menn eru ekki almennt læsir á
forna íslensku þá hafa þeir ekkert
við þetta aö gera en senda þetta í
pappavinnslu til Taiwan.
Akveöið hefur verið að sum verk-
takafyrirtæki, sem flytja út niður-
greidda möl, fái bætur vegna þess
að bætur, sem þeir fengu í fyrra,
voru óréttlátar. Leigubifreiöastjór-
um fækkar nú óöum með mjög
breyttri félagslegri skipan þéttbýlis
vegna þess að sérstakur vegaskatt-
ur á leigubifreiðir er miðaður við
fast gjald sem alltaf er tekiö fyrir
íjóra farþega, en einnig er tekinn
sami skattur fyrir sama flölda far-
þega í stórum bílum en ekki fyrir
þá sem eru umfram 4.
Ef þér flnnst fyrra dæmið eðlilegt
en það síðara óeðlilegt þá ætla ég
að móöga þig og frýja þér vits. A
venjulegu eldhúsmáli er ég aö segja
„asni“. Það er vegna þess aö dæm-
in hér að ofan eru jafnfáránleg og
heimskuleg.
„Lítil frétt“
Átján af nilján þingmönnum
ReyKjávíkur sóttu fund fimm stiga-
húsa í Breiöholti og var tilefnið aö
þessi flmm stigahús vildu vera
sjálfstæðir hreppar. Þrátt fyrir
áköf tilmæli þingmanna var að lok-
inni atkvæðagreiðslu ljóst að stiga-
húsin vildu ekki vera saman í
hreppi heldur hvert vera hreppur
fyrir sig.
KjaUarinn
Þorsteinn Hákonarson
framkvæmdastjóri
Fimm þingmemm Vestfjarða
sóttu fund við innanvert Djúp
vegna sameiningar hreppa þar,
íbúatala er víst eitthvað innan við
tvö hundruð manns í hreppunum
öllum og þeir vildu ekki hafa einn
hrepp. Þvi aðeins mundu svo marg-
ir þingmenn Reykjavíkur vera
samtímis 1 öllu Breiöholti að neðri
hluti bæjarins væri sokkinn í sæ
eða Davíð heíði boðað þá upp eftir
og ætti eitthvaö að drekka. Hvurn
varðar um svartjúðaatkvæði þétt-
býlisfólks? Svona lagaö vitum við
almenningur.
Þetta rugl og annaö sem yfir oss
dynur er nú farið að kasta tólfun-
um. Við skuldum landeigendum
ekkert, þeir komu því til leiðar aö
hér gat ekki vaxið upp menningar-
þjóðfélag í margar aldir meö því
að vista fólk á bæi og koma í veg
fyrir notkun auðlinda sjávarins.
ÞéttbýU var bannaö og þótti land-
eigendum lítið til koma. Þetta rugl
afleggst svo ekki fyrr en seint á síö-
ustu öld og ekki formlega fyrr en
1928. Það er kominn tími til þess
að afnema þessa forsmán og móög-
un við heilbrigða hugsun í eitt
skipti fyrir öU, að hætt verði endan-
lega að vista okkur þéttbýUsfólk á
landeigendur eins og nú er. Við
gerum það þannig að gera þing-
mönnum okkar í þéttbýU ljóst aö
þetta rugl verður að hætta, fyrst
engan varðar um lífsafkomu kaup-
mannsins á horninu þá varðar eng-
an heldur um lífsafkomu landeig-
enda. Það er bara þeirra mál, eins
og við erum vön innan okkar hóps
í þéttbýUnu. Eða viU nokkur vera
svo vænn að útvega mér niður-
greiðslu á útflutning á möl, ég skal
lofa aö fara aö eins og við ofbeit og
eyða gróðurlendi vel og dyggilega,
veita mörgum vörubílstjórum at-
vinnu svo fjárfestingar okkar í veg-
um verði notaðar og komi að gagni,
ég skal meira að segja hafa útskip-
unartíð á haustin fyrir farand-
verkafólk á möUnni, leyfa öllum
aö moka með handskóflum til að
útvega vinnu. En auðvitað ætla ég
ekkert að keppa viö þá verktaka
sem nú selja möl innanlands, hún
veröur bara ódýr handa útlending-
um. Svo legg ég til að komiö verði
á malarfélagi Islands og sérstakt
gjald tekið af niðurgreiöslum til
þess að byggja hótel handa félaginu
svo hægt sé aö halda þing þess einu
sinni á ári enda fáist til þess fjár-
veiting á fjárlögum.
Finnst þér komið nóg?
Þetta landbúnaðarrugl er á sum-
uin sviðum mjög líkt þessu. Við
þurfum breytt lög svo þéttbýUsfólk
og sveitarfélög í þéttbýU geti keypt
jarðir úr ábúð. Við erum víst aö
greiða marga milljarða í þetta á
ári, en því má hætta ef við notum
milljarðana til að taka jarðir úr
ábúð þar sem fólk viU hætta og
flyija.
Og láta svo hina sem eftir eru um
markaöinn, ef þeir offramleiða þá
er þaö bara þeirra mál. Byggða-
stefna? Hér er ein ný, hún er að
hafa kaupmanninn á hominu.
Þorsteinn Hákonarson.
„Við erum víst að greiða marga millj-
arða í þetta á ári, en því má hætta ef
við notum milljarðana til að taka jarðir
úr ábúð þar sem fólk vill hætta og
flytja.“