Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1988, Síða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1988.
Útlönd
Ókeypis bóSusetning gegn infflúensu
Anna Bjamason, DV, Denver
Ákveðið hefur verið að bjóða mörgum milijónum eldri borgara í Banda-
ríRjunum ókeypis bólusetningu gegn inflúensu. Veija á 50 milljónum
doilara til að kanna hvort það borgi sig ekki fyrir Medicare, sem annast
ríkisstyrkta læknisaðstoð viö eldri borgara, að bjóða ókeypis bólusetn-
ingu til að draga úr sjúkrakostnaði vegna árlegs inflúensufaraldurs að
vetrarlagi sem ætíö leggst harðast á eldra fólk.
Ætlunin er að ná til um 20 prósent þeirra sem náð hafa 65 ára aldri
og ganga þeir fyrir sem eru á dvalar- og eUihehnilum, svo og þeir sem
teljast sjúkiingar. Þá á hjúkrunarfólk og starfsfólk sjúkrahúsa kost á
ókeypis bólusetningu og reyndar allir sem mæta á auglýstum tímum.
Áætlað er að 70 til 90 prósent þeirra sem láta bóluselja sig fái ekki inflú-
ensu. Besti bólusetningartíminn er talinn vera frá síðari hiuta október-
mánaöar til nóvemberloka.
Bílasprengja í Suður-Afríku
Leifarnar af bílasprengju í Witbank i Suður-Afríku, sem varð tveimur
mönnum að bana í gær og særði að minnsta kosti fjörutíu.
Simamynd Reuter
Tveir biðu bana og ijörutíu og tveir særðust þegar bílasprengja sprakk
við verslunarmiðstöð í Suður-Afríku, tveimur dögum áöur én kjörfundi
í aðskildum sveitarstjómarkosningum lýkur.
Sprengjan, sem er sú stærsta af mörgum sem hafa veriö notaöar tii að
mótmæla kosningunum, varð tveimur blökkumönnum aö bana í gær-
morgun í bænum Witbank sem er um eitt hundrað og fimmtíu kiiómetra
austur af Jóhannesarborg.
AIK jafnt í ísrael
Yitzhak Shamir tekur hér á móti Tarif Abdatlah, sem er drúsi. Abdallah
gaf Shamir bók á hebresku um samfélag drúsa i israel.
Simamynd Reuter
Nú er að heijast síðasta vika kosningabaráttunnar í ísrael án þess að
neinn stjórnmáiaflokkur virðist eiga sigur visan. Eru menn famir að
gera því skóna aö þeir tveir flokkar, sem eru í núverandi ríkisstjóm,
muni áfram sitja í ríkisstjórn þótt ólíkir séu.
Skoöanakannanir sýna að líklegt er að úrslit kosninganna eftir viku
verði svipuð og úrslit kosninganna árið 1984, sem neyddu flokkana saman
í stjóm.
Taismenn flokkanna hafa viöurkennt aö flokkamir gætu þurft að fara
aftur í stjórnarsamstarf eh hafa ekki viljaö lýsa því yfir opinberlega.
Saufján farast í Mexíkó
Saufján manns fórust og tuttugu slösuðust þegar fólksflutningabifreið
vait á fjallvegi í vesturhluta landsins í gær, að sögn mexíkönsku ríkis-
fréttastofunnar Notimex.
Aö sögn fréttastofunnar flúði bflstjórinn eftir að rúta hans valt er hann
reyndi að taka beygju á of miklum hraöa við slæmar aðstæður á íjall-
vegi. Lögreglan leitar hans nú. Reuter
Sjónvaipsstjórinn kaupír föt fýrir almannafé
Pétur L. Póturœon, DV, Baroedona;
Þaö hefur vakiö mikla hneykslan ailra stjórnmálaafla hér á Spáni að
sjónvarpsstjóri ríkissjónvarpsins, kvikmyndaleikstjórinn Pilar Miró,
skuh hafa fjármagnaö kaup á fótum fyrir sjálfan sig með sjóðum sjón-
varpsins.
Pilar Miró, sem sett var i embætti fyrir röskum tveimur árum, hefur
aila tíð verið póhtískur ásteytingarsteinn hér á Spáni. Þaö hefur aidrei
fariö leynt aö hún er meðlimur í Sósíaiistaflokknum, sem hér fer með
öll völd, og er talið að hún sé aöeins leppur fyrir stjómvöid.
Þetta hefur gert þaö að verkum aö mikið hefur veriö rifist um hana á
þingi, sérstaklega eftir hreinsanir sem hún ffamkvæmdi innan veggja
sjónvarpsins en hún rak ýmsa úr starfl. Hafa þessar brottvikningar ver-
ið taldar af pólitískura toga spunnar og hefur hún verið kölluð fyrir þing-
ið vegna þeirra.
Nú hefur hún enn vakið umræður á þingi. Komiö hefur í ljós að hún
hefur keypt á sig föt á kostnaö sjónvarpsins. Og það em engin smáræðis
fatakaup. Sjónvarpið hefur greitt aiit aö 300 þúsund íslenskar krónur' í
fatakaup á dömuna.
DV
Tímamót í sam-
Samskipti ríkjanna kólnuöu mjög
þegar Vestur-Þjóðveijar settu upp
Pershing 2 kjarnorkuflaugar árið
1983, en nú er verið að taka þær nið-
ur samkvæmt afvopnunarsamningi
Reagans og Gorbatsjovs. Árið 1986
líkti Kohl Gorbatsjov við áróðurs-
meistara Hitlers, Josef Göbbels, og
urðu þau ummæli ekki til að bæta
sambúð ríkjanna.
Kohl, sem er í fjögurra daga heim-
sókn í Sovétríkjunum, kom með
fimmtíu vestur-þýskum kaupsýslu-
mönnum til landsins og er gert ráð
fyrir að að þeir skrifi undir að
minnsta kosti þijátíu og fimm við-
skiptasamninga.
Einnig verða umfangsmiklar við-
ræður milli háttsettra embættis-
manna og ráðherra.
Mikhail Gorbatsjov, leiðtogi Sovét- hans við Helmut Kohl, kanslara
ríkjanna, sagði í gær að viðræður Vestur-Þýskalands, hefðu verið mjög
gagnlegar og að þær hefðu brotið ís-
inn í samskiptum ríkjanna. Hann
sagði hins vegar að bætt samskipti
Sovétríkjanna við Vestur-Þýskaland
þýddu alls ekki að meiri líkur- væru
á sameiningu þýsku ríkjanna.
Gorbatsjov sagði í ræðu sinni að
fólk ætti að hætta að trúa því að Sov-
étríkin geti ekki stjómað eigin efna-
hagsmálum.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og Mikhail Gorbatsjov Sovétleið-
togi heilsast í Kreml í gær. Við hlið Kohl er Raisa Gorbatsjova.
Símamynd Reuter
í heimsókninni munu Kohl og kona
hans Hannelore þiggja kvöldverðar-
boð í einkabústað Gorbatsjovs, en
mjög fátítt er að erlendum þjóðhöfð-
ingjum sé sýndur slíkur sómi.
Kohl mun í dag eiga fund með
Andrei Sakharov, sem í síðustu viku
var skipaður í sovéska vísindaráðið.
Reuter
skiptum ríkjanna
Spá lélegri kosn-
ingaþátttöku
aernunn Böðvaisdóttir, DV, Washmgtoa:
Talið er að kosnlngaþátttaka í
þing- og forsetakosningunum í
Bandaríkjunum þann 8. nóvember
nsestkomandi verði sú lægsta í 40
ár.
Skráningu kjósenda í flestum
fylkjum landsins lauk í síðustu
viku en heildartölur liggja ekki fyr-
ir. Sérfræöingar, sem byggja niður-
stöður sínar á þeim tölum sem þeg-
ar hafa borist, telja að kosninga-
þátttaka verði undir 50 prósent.
Sumir ganga jafnvel svo langt að
bera þetta ár saman við árið 1924
en þá var kosningaþátttaka aðeins
43 prósent.
I þeim fylkjum þar sem tölur um
skráningu kjósenda liggja fyrir er Sérfræöingar telja að ástæður lé-
ljóst að þátttaka hefur minnkað.- í legrar skráningar í ár raegi meðal
Texasfylki hefur skráning minnk- annars rekja til almenns áhuga-
að um 1,4 prósent og um 1 prósent leysis kjósenda og þess að hvorug-
í Kentucky. Auk talna um skrán- ur frambjóðenda viröist vera þess
ingu kjósenda byggja sérfræðingar megnugur að vekja áhuga þeirra.
spár sínar á almennu áhugaleysi Tilraunir til að fá fólk tfl aö skrá
almennings samkværat niöurstöð- sig hafa ekki borið árangur og svo
um skoðanakannana, fjölda kjós- virðist sem báðar kosningaherbúö-
endasemfylgdustmeðkappræðum ir hafi lagt meiri áherslu á að ná
frambjóðendanna og ferli síðustu til þeirra sem þegar eru skráðir en
ára. hinna sem teljast vera óákveönir.
Alltfráárinu 1960, þegar 62,8 pró- Kosningaþátttaka skráöra kjós-
sent kosningabærra Bandaríkia- enda er há í Bandaríkjunum eða
manna neyttu kosningaréttar síns, vel yfir 80 prósent. En vandamálið
hefur þátttakan minnkað jafnt og liggur í því að fá fólk tfl að skrá sig
þétt Arið 1984 kusu einungis 53 og allt að tveir fimmtu kosninga-
prósent en það var minnsta þátt- bærra Bandaríkjamanna láta aldr-
taka í forsetakosningum í 32 ár. ei verða af því.
Barist um öldungadeildma
Steinunn Böðvaisdóttir, DV, Washington;
Þana 8. nóvember næstkomandi
kjósa Bandaríkjamenn sér nýjan for-
seta. Barátta þeirra Michael Dukakis
og Georges Bush um það embætti
hefur skyggt á aðra ekki síður mikil-
væga kosningabaráttu um meiri-
hluta í öldungadeild þingsins.
Demókratar hafa haldið þingmeiri-
hluta í fulltrúadeildinni í áratugi en
misstu meirihluta í öldungadeildinni
árið 1980 þegar Ronald Reagan, nú-
verandi forseti, vann yfirgnæfandi
sigur á Jimmy Carter. Vinsældir
Reagans voru slíkar að öldungadeild-
in féll í hendur repúblikönum sem
héldu meirihluta til ársins 1986. Þá
náðu demókratar meirihluta, 54
þingsætum gegn 46 sætum repúbhk-
ana.
Nú þegar um tvær vikur eru til
kosninga telja flestir fréttaskýrendur
líklegt að demókratar muni halda
meirihluta í öldungadeildinni. Alls
heyja 33 öldungadeildarþingmenn
baráttu um endurkjör, 18 demó:
kratar og 15 repúblikanar. Líkur eru
á að repúblikanar missi 2 eöa 3 þing-
sæti og því léggja þeir mikla áherslu
á að nýta sér forskot það sem Geórge
Bush, forsetaframbjóðandi repúblik-
ana, hefur á andstæðing sinn sam-
kvæmt flestum skoðanakönnunum.
En forskot Bush viröist ekki hafa
gagnað repúblikönum í baráttunni
um öldungadeildina. í 17 af 50 fylkj-
um Bandaríkjanna er ekki um end-
urkjör að ræða og í hinum 33 fylkjun-
um telja stjórnmálaskýrendur að
demókratar séu öruggir með sigur í
að minnsta kosti 12 fylkjum. Repú-
blikanar eru taldir nokkuð öruggir
með sigur í 6 fylkjum.
Repúblikanar eru taldir eiga erfitt
uppdráttar í 8 fylkjum en demó-
kratar í 6 fylkjum. í 3 fylkjum,
Nevada, Nebraska og Kaliforníu,
telja fréttaskýrendur líklegt aö repú-
blikanar missi sæti sín í hendur
demókrötum.
Vonir repúblikana eru því bundnar
við sigur Bush yfir Michael Dukakis
í forsetakosningunum. Nái þeir ekki
meirihluta í öldungadeildinni vilja
þeir að minnsta kosti halda völdum
í Hvíta húsinu.