Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
Útlönd
Bush fetar í
fótspor Dukakis
Steinunn Böövarsdóttir, DV, Washington;
Báöir forsetaframbjóöendurnir í
Bandaríkjunum nota hvert tækifæri
sem gefst til að ná eyrum kjósenda
nú þegar rétt vika er til kosninga.
Michael Dukakis, frambjóöandi
demókrata, reið á vaöið með loka-
sókn sína í síðustu viku þegar hann
samþykkti aö veita nokkur blaða- og
sjónvarpsviðtöl. Til að reyna aö
vinna upp 8 til 11 prósent forskot
andstæðings síns kemur Dukakis nú
fram í hveijum viðtalsþættinum á
fætur öðrum.
George Bush, frambjóðandi repú-
blikana, fetar nú í fótspor Dukakis
og ræðir nú í fyrsta sinn í margar
vikur við blaða- og fréttamenn. í viö-
tah við dagblaðiö Washington Post,
sem birt var í morgun, kveðst Bush
iórast einskis í þessari kosningabar-
áttu. Slagur þeirra Bush og Dukakis
um forsetaembættið hefur veriö allt
annað en prúðmannlegur og hefur
einkennst af haröoröum, persónu-
legum árásum.
I viðtalinu sagðist Bush telja að
ekki kvæði viö neikvæðari tón í þess-
ari kosningabaráttu en verið hefur
áður í baráttu um forsetaembættið.
Hann neitaði því að kosningaherbúð-
ir sínar hefðu verið harðskeyttari í
sjónvarpsauglýsingum en herbúðir
Dukakis og varði notkun persónu-
legra auglýsinga. Hann neitaöi einn-
Bush kynnir barnabörn sin fyrir
stuðningsmönnum á kosningafundi.
Símamynd Reuter
Baráttan um forsetaembættiö i Bandarikjunum hefur einkennst af harðorð-
um, perónulegum árásum, sérstakiega í sjónvarpsauglýsingum.
Teikning Lurie.
LURIE'S W®RLD
ig öllum ásökunum um að hafa
blandað kynþáttahatri í þessa kosn-
ingabaráttu og sagði að Bandaríkja-
mönnum væri kunnugt um að hann
hefði engar slíkar tilhneigingar.
Þrátt fyrir aö skoðanakannanir
síðustu daga sýni að Bush leiðir með
8 til 11 prósent forskot kveðst hann
ekki vera of sigurviss. Hann segist
ekki vilja skipuleggja baráttu sína
lengra fram í tímann en 8. nóvemb-
er, kosningadaginn.
í gær notaði Bush tækifærið og
hamraði enn á ný á fijálslyndi and-
stæðings síns. Dukakis lýsti sjálfum
sér sem fijálslyndum demókrata í
fyrsta sinn í marga mánuði síðastlið-
inn sunnudag og kvaöst hreykinn af
því að vera fijálslyndur í anda Harr-
ys Truman og Johns F. Kennedy for-
seta. Bush hæddi þessa nýju stefnu
Dukakis en árásir varaforsetans á
frjálslyndi Dukakis, sem hann hefur
látið ósvarað hingað til, hafa komið
demókrötum í klípu.
Dukakis háði kosningabaráttu sína
í gær með tilliti til kvenna. Hann
hélt af stað með 26 prósent meira
fylgi meðal kvenna í þessari kosn-
ingabaráttu en Bush en síðustu skoð-
anakannanir sýna nú jafnt fylgi
beggja frambjóöendanna meðal
kvenfólks. Dukakis styöur rétt
kvenna til fóstureyðinga en Bush
hafnar honum. í gær benti hann enn
á það og útlistaði mismunandi við-
horf frambjóðendanna tii ýmissa
málefna er varða konur og fjölskyld-
ur. Hann lofaöi úrbótum í dagheimil-
ismálum og jafnrétti kynjanna i
launamálum.
Gagnrýnir
Bandaríkin
Steinuim Böð vaisdóttir, DV, Washington;
Samtökin Heilagt stríð í Líbanon
birtu í gær myndband þar sem
Terry Anderson, annar tveggja
gísla í haldi samtakanna, ásakar
ríkisstjóm Ronalds Reagan um að
standa í vegi fýrir lausn hans úr
tæplega fiögurra ára gíslingu. Hann
kvað þaö sér óskiljanlegt að banda-
rísk yíirvöld hefðu beitt áhrifUra
sínum til aö hindra samninga-
umleitanir síðustu tveggja ára sera
hefðu getað leitt til lausnar hans.
Anderson sakaöi Bandaríkja-
sfjóm um að gera of lítið til að
tryggja lausn sextán vestrænna
gísla í haldi öfgasamtaka hliðholla
Iran 1 Líbanon. Hann sagði að for-
setinn og George Bush varaforseti
hefðu fyrr átt í samninga viöræðum
um lausn gíslanna. Hann nefiidi
íran og vopnasöluhneyksliö en þá
reyndu bandarískir embættismenn
að kaupa frelsi gísla í Líbanon gegn
sölu á vopnum til írans.
Hann sagði einnig aö George
Bush hefði átt þátt í samningavið-
ræðum við hryðjuverkamenn sem
rændu bandarískri farþegaflugvél
áriö 1985. í sjónvarpsviötali í gær-
kvöldi vísaði varaforsetinn þessari
staðhæfingu á bug og kvaðst ekki
hafa samið við ræningjana tun
lausn farþeganna.
Gislinn Terry Anderson gagnrýndi
I gær bandarísk yfirvöld á mynd-
bandi sem athent var alþjóðlegri
fréttastofu I vesturhluta Beiruts I
Lfbanon. Simamynd Reuter
Ekki er Ijóst hvort Anderson tal-
aði frá eigin bijósti á myndbandinu.
Reagan forseti kvaðst fiúlviss um
að manmæningjar Andersons
hefðu neytt hann til að lesa undir-
búinn texta. Forsetinn sagði einnig
aö ríkisstjóm sín myndi ekki semja
viö mannræningjana um lausnar-
gjald af neinu tagi fyrir frelsun gísl-
anna.
Talsmaður Reagans, Marlin Fitz-
water, sagði á blaðamannafundi í
gærdag að birting myndbandsins
væri tilraun mannræningjanna til
að hafa áhrif á forsetakosningam-
ar sem fram fara í Bandaríkjunum
eftir rétta viku.
Perez de Quellar tekur hér i hönd Velayati, utanríkisráðherra íran, við
upphaf fundar þeirra i gær. simamynd Reuter
Nýjar viðræður
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna
segir að íran og írak séu tilbúin til
að setjast af alvöra við samninga-
borðiö og reyna að binda enda á átta
ára stríð sitt. Fulltrúar ríkjanna setj-
ast að samningaborðinu í dag tíl
þriöju lotu samningaviðræðna.
Javier Perez de Quellar hitti í gær
utanríkisráðherra beggja ríkjanna í
sitt hvora lagi í Genf. Sagði hann að
báöir hefðu verið áhugasamir um að
byija á alvarlegum viðræðum.
í dag munu utanríkisráðherramir
hittast í fyrsta sinn á fundi síðan
þeir hittust í New York fyrir einum
mánuði. Reuter
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6,3. hæö,
á neðangreindum tima:
Lindargata 42, kjallari, þingl. eig. Ein-
ar Pétursson, fimmtud. 3. nóv. ’88 kl.
10.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Lindargata 47, kjallari, þingl. eig.
Magnús Arinbjömsson, fimmtud. 3.
nóv. ’88 kL 10.00. Uppboðsbeiðandi er
Veðdeild Landsbanka íslands.
Ljárskógar 20, þingl. eig. Komelíus
Traustason, fir.imtud. 3. nóv. ’88 kl.
10.00. Uppboðsbeiðandi er Róbert
Ámi Hreiðarsson hdl._____________
Logafold 75, þingl. eig. Ásmundur
Jóhannsson, fimmtud. 3. nóv. ’88 ld.
10.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Logafold 152, þingL eig. Guðbergur
P. Guðbergsson, fimmtud. 3. nóv. ’88
kl. 10.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Logafold 141, þingl. eig. Öm Guð-
mundsson, fimmtud. 3. nóv. ’88 kl.
10.15. Uppboðsbeiðendur em Ásgeir
Thoroddsen hdl., Verslunarbanki ís-
lands hf., Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Klemens Eggertsson hdl.,
Gjaldheimtan í Reykjavík og Jón Ing-
ólfsson hdl.
Maríubakki 18,2. hæð t.h., þingl. eig.
Gylfi Traustason, fimmtud. 3. nóv. ’88
kl. 10.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Ránargata 10, jarðhæð, þingl. eig.
Guðjón Benediktsson, fimmtud. 3.
nóv. ’88 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur
eru Símon Ólason hdl. og Lögmenn
Austurströnd 3.
Réttarsel 7, þingl. eig. Lovísa Viðars-
dóttir, fimmtud. 3. nóv. ’88 kl. 10.45.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Seljavegur 23, þingl. eig. Kristján
Þorsteinsson, fimmtud. 3. nóv._ ’88 kl.
11.00. Uppboðsbeiðandi er Útvegs-
banki íslands hf.
Síðumúli 3-5, hluti, þingl. eig. Svavar
Höskuldsson og Kristrún Kristjáns,
fimmtud. 3. nóv. ’88 kl. 11.00. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Landsbanki íslands.
Skólavörðustígur 23, 1. hæð, þingl.
eig. Borgarfell hf., fimmtud. 3. nóv. ’88
kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Skúlagata 42, þingl. eig. Lakk og
málningarverksm. Harpa hf.,
fimmtud. 3. nóv. ’88 kl. 11.15. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Stíflusel 14, 3. hæð 3-2, þingl. eig.
Helga Katrín Gísladóttir, fimmtud. 3.
nóv. ’88 kl. 11.15. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Suðurhólar 26,2. hæð 0203, þingl. eig.
Guðlaug Helga Sveinsdóttir, fimmtud.
3. nóv. ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Súðarvogur 24, hluti, þingl. eig. Leik-
félag Reykjavíkur, fimmtud. 3. nóv. ’88
kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Vesturbeig 78, hluti, þingl. eig. Elíar
D. Dagbjartss. og Bjamey Júh'usd.,
fimmtud. 3. nóv. ’88kl. 11.45. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Yesturgata 53, 2. hæð, þingl. eig.
Ágúst Vemharðsson, fimmtud. 3. nóv.
’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík. ___
Vindás 2, íb. 0201, talinn eig. Ólafiir
Karel Jónsson, fimmtud. 3. nóv. ’88
kl, 13.30. Uppboðsbeiðandi er Veð-
deild Landsbanka íslands.
Ægisíða 101, þingl. eig. Bjami Jóns-
son, fimmtud. 3. nóv. ’88 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Útvegsbanki ís-
lands hf.
Ægisíða 115, risíbúð, þingl. eig. Gerð-
ur Bemdsen, fimmtud. 3. nóv. ’88 kl.
13.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
BORGARFÓGETAEMBÆTID í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á efttrtöldum fasteignum:
Bíldshöfði 16, hluti, þingl. eig. Engi
hf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtud.
3. nóv. ’88 kl. 17.30. Uppboðsbeiðendur
em Eggert B. Ólafsson hdl. og Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Blesugróf 38, þingl. eig. Guðbeigur
Sigurpálsson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 3. nóv. ’88 kl. 16.30.
Úppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Dúfriahólar 2, 7. hæð C, þingl. eig.
Þóra Ámad. og Jónas Guðmundsson,
fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 3.
nóv. ’88 kl. 15.45. Uppboðsbeiðendur
eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Veð-
deild Landsbanka íslands, Jón Ing-
ólfeson hdl. og Útvegsbanki íslands
hf.
Háberg 3, íbúð merkt 0204, þingl. eig.
Hallgrímur Æ. Másson, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtud. 3. nóv. ’88
kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Ólaf-
ur Axelsson hrl., Landsbanki íslands,
Gunnar Jónsson hdl., Gjaldheimtan í
Reykjavík og Veðdeild Landsbanka
íslands.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK