Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
Iþróttir
• Guðriður Guðjónsdóttír skor-
aði 4 mörk gegn Portúgal.
C-keppnin í Frakklandi:
Jafnt
gegn
Portúgal
íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik mátti sætta sig við
að ná jafiitefli á móti Portúgal í
gærkvöidi. Leikurinn var Ula
leikinn af okkar hálfu og mikið
andleysi var i liðinu. Staðan í
hálfleik var 12-9 fyrir Portúgal. í
byrjun siöari hálfleiks var sama
uppi á teningnum en þegar 15
mínútur voru til leiksloka var
staöan 18—13 Portúgal í vil. Þá var
eins og liðið skipti um gír og
komst það í 19-16 og ein og hálf
mínúta eftir af leiknum, Ama
skoraöi jöfnunarmarkiöá síðustu
sekúndu leiksins.
Slavko Bambir hefur keyrt á
sama liðinu í öllum leikjunum og
aö sögn Emu Lúðvíksdóttir þá
situr mikil þreyta í mannskapn-
um.
• Mörle Inga Lára 5/4, Guðríð-
ur 4, Ema, Arna, og Erla 2 mörk
hver, Guðný, Margrét, Rut og Ósk
1 mark hver.
Á morgun er spilað til úrslita í
C-keppninni og era það Frakkar
og Svíar sem spila um fyrsta sæt-
ið, ísland verður aö sætta sig við
að spila um 5.-6. sætið við Sviss.
-ÁS
Mætti á æfingu
rétt eftir fæðingu
HernnmdurSgnjundason, DV, Noregi'
Sissel Bleivik, fyrrverandi
landsliðskona í handknattleik,
sem leikur með 1. deildarliöi
Bækkelaget, vakti á dögunum
mikla athygli. Þann-7. september
tók hún sér frí frá handboltanum,
þann 10. eignaðist hún stál-
hrausta stúlku og þann 21. sept-
ember var Sissel mætt til æflnga
hjá liði sínu á nýjan leikl
.JÞetta er allt í lagi ef maður
passar sig og hinar stelpumar
voru miklu hræddari en ég, ekki
síst þær sem ég spilaði á móti.
En þetta gekk allt mjög vel og
ekkert kom upp á sem þurfti að
hafa áhyggjur af,“ sagði hin eld-
hressa Sissel Bleivik sem lék með
liði sínu fram á níunda mánuð
raeðgöngunnar.
HerxrumduxSigmimdsaan, DV, Noregi:
Bækkelaget tók forystuna í
norsku i. deildinni í handknatt-
leik um síðustu helgi með þvf aö
sigra Skiens BK í miklum marka-
leik, 40-31. Bækkelaget er því
með 11 stig eftir 6 leiki en næstu
liö eru Urædd með 9 stig, Kragerö
og Stavanger meö 8 stig. '
Lið íslendinga eru
aftarlega á merinni
- Island er í flórða neðsta sæti í styrklelkaílokkun UEFA
j ! Fj öldi þátttökuliða einstakra Evrópuþj óða í UEFA-
LÆ keppninni í knattspyrnunni ræðst af gengi félags-
i--lA1 liðanna í leikjum keppninnar. Þær þjóðir sem
spjara sig best eiga þannig fleiri lið í keppninni en
hinar sem fara gjarnan halloka í fyrstu umferðum.
Núnýveriðvarreiknaðurútréttur Mesta athygh vekur staða Finna
þjóðanna til þátttöku í keppninni, viö nýjustu útreikninga en hagur
meö hliðsjón af tímabilinu 1983^84 til
1987-88, og kom þá í ljós að ítalir,
Sovétmenn og V-Þjóðverjar halda
sínum hlut en þessar þjóðir tefla fjór-
um liðum fram í keppninni. Spán-
verjum, Belgum, Portúgölum, Skot-
um og Hollendingum er hins vegar
heimilt að tefla fram þremur liðum.
Hollendingar era eina þjóðin í þess-
um flokki sem auka við, þeir bæta
við einu liöi.
þeirra hefur vænkast mjög. I kjölfar
mikillar uppsveiflu í knattspyrnu-
málum og aukinnar velgengni hefur
þeim tekist aö skáka mörgum þekkt-
um knattspymuþjóðum og tefla nú
fram tveimur liðum í UEFA-keppn-
inni á kostnað Búlgaríu.
íslendingar eiga sæti í neðsta
styrkleikaflokki, eiga eitt hð meðal
þátttakenda í UEFA-keppninni. ís-
lendingar era raunar í 4. neðsta sæti
en að baki okkur eru Irar, Möltu- 16 A-Þýskaland 18.750
menn og Lúxemborgarar. 17 Grikklandi 17.916
Staða þjóðanna er annars þessi: 18Ungveijaland 17.500
1 Italía 41.082 19 Sviss 15.000
2 Sovétríkin 37.082 20 Finnland 13.664
3 V-Þýskaland 36.165 21 Pólland 12.750
4 Spánn 34.799 22 Búlgaría 11.916
5 Belgía 31.800 23 Danmörk 10.916
6 Portúgal 28.183 24 Albanía 9.666
7 Skotland 27.000 25 Tyrkland 7.999
8 Holland 26.633 26Noregur 6.666
9 Austurríki 26.500 27 Kýpur 6.332
10 Júgóslvaía 23.200 28 N-Irland 4.999
llFrakkland 23.200 29 ísland 3.999
12 England 22.094 30 írland 2.665
13 Svíþjóð 21.500 31 Malta 1.666
14 Tékkóslóvakía 21.300 32Lúxemborg 1.665
15 Rúmenía 20.466 -JÖG
• Reykjavikurmeistarar í parakeppninni í keilu. Fyrir miðri mynd eru þau Alois Raschofer og Elín Óskarsdóttir sem urðu Reykjavíkurmeistarar, til vinstri
eru þau Heiðrún Haraldsdóttir og Halldór Sigurðsson sem urðu í 2. sæti og lengst til hægri á myndinni eru þau Dóra Sigurðardóttir og Gunnar Hersir
sem höfnuðu i þriðja sæti. DV-mynd S
Reykjavíkurmótiö í keilu:
Hörkukeppni í öllum flokkum
Keila á vaxandi vinsældum að
fagna hér á landi og nýafstaðið
Reykjavíkurmót bar þess glögg
merki. Gífurlegur fjöldi tók þátt í
mótinu sem var spennandi og fór í
alla staði vel fram. Keppt var í ung-
lingadeild, para-, hða- og einstak-
Ungskeppni. í unglingadeild var
keppt í þremur aldursflokkum
stúlkna og pilta. Mikil þátttaka var
í öllum flokkum en meistarar urðu
þessir:
• 10-12 ára flokkur unghnga,
stúlkur: 1. Birna Einarsdóttir. 2.
Rannveig Guðmundsdóttir. Piltar: 1.
Konráð Olafsson 2. Andrés Júlíusson
og 3. Páll Kristjánsson.
• 13—15 ára flokkur unghnga,
stúlkur: 1. Heiðrún Haraldsdóttir, 2.
Guðrún Soffía Guðmundsdóttir og 3.
Elísabet Geirsdóttir. Piltar: 1. Krist-
inn Freyr Guðmundsson, 2. ívar
Kjartansson og 3. Gísli Sturluson.
• 16-18 ára flokkur unghnga,
stúlkur: 1. Ásdís Ósk Smáradóttir.
Piltar: 1. Róbert Spanó, 2. Hörður
Sigurjónsson og 3. Björn Vilhjálms-
son.
• Parakeppni: l.-Elín Óskarsdóttir
og Alois Raschofer, 2. Heiðrún Har-
aldsdóttir og Halldór Sigurðsson, 3.
Dóra Sigurðardóttir og Gunnar Hers-
ir.
• Liöakeppni: 1. Keilubanar, 2.
Felhbylur og 3. Þröstur.
_ • Einstakhngskeppni kvenna: 1.
Ásdís Steingrímsdóttir, 2. Jóna
Gunnarsdóttir og 3. Sigurbjörg Vil-
hjálmsdóttir.
• Einstakhngskeppni karla: 1. Sig-
urður V. Sverrisson, 2. Alois Rasc-
hofer og 3. Helgi Ágústsson.
-SK
ÖskjuhMöarhlaup ÍR og Hótel Loftleiða:
Frímann litlu tánni á undan Bessa
Hið árlega Öskjuhlíðarhlaup ÍR
og Hótel Loftleiða fór fram um síð-
ustu helgi. Keppt var í tíu flokkum
og var þátttakan í þeim frá einum
upp í fimm keppendur, nema í
flokki 17-34 ára karla en þar mættu
17 til leiks.
Frímann Hreinsson FH sigraði í
flokki 17-34 ára karla, hljóp á 24,05
mínútum. Bessi H. Jóhannesson ÍR
veitti honum harða keppni og varð
annar á 24,07 og þriðji varð Sigurð-
ur P. Sigmundsson FH á 24,14 min.
Martha Ernstsdóttir ÍR sigraði í
flokki kvenna 17-34 ára en hún
fékk tímann 12,48 mín. Margrét
Brynjólfsdóttir UMSB varð önnur
á 14,42 og og Lillý Viðarsdóttir UÍA
þriðja á 15,09.
Sigurvegarar í öðram flokkum
urðu eftirtaldir:
Stelpur 12 ára og yngri: Ólöf Huld
Vöggsdóttir, 18,48 mín.
Strákar 12 ára og yngri: Jóhann
H. Bjömsson HSK, 14,03 mín.
Telpur 13-14 ára: Þorbjörg Jens-
dóttir ÍR, 15,04 mín.
Piltar 13—14 ára: Bergur P.
Tryggvason ÍR, 15,58 mín.
Meyjar 15-16 ára: Guörún B.
Skúladóttir, 15,00 mín.
Sveinar 15-16 ára: Bragi Smith,
12,36 mín.
Konur 35 ára og eldri: Guðrún
Einarsdóttir, 18,25 mín.
Karlar 35 ára og eldri: Jóhann
Heiðar Jóhannsson ÍR, 29,14 mín.
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
17
Iþróttir
• Steve Cram og Sebastian Coe með klukk-
una frægu i baksýn.
Frétta
Klukkan sigruð
igCr Sebastian Cœ og Steve Cram
' 1 kepptu á laugardaginn við
skólaklukkuna frægu í Cam-
bridge. Þar er hlaupið um-
hverfis skólagarðinn og markmiðið er að
komast hinn 367 metra óreglulega hring
áður en klukkan slær tólf. Þetta var ein-
mitt sýnt á áhriiámikinn hátt í kvikmynd-
inni „Eldvagninn". Og Coe tókst það sem
engum haföi lánast nema Lord Buckley
árið 1927, hann komst í mark áöur en
klukkan sló, á 45,52 sekúndum. Mikill
fíjgnuður brausi út meöal áhorfenda og
því varð ekki fullsannaö hvort Cram hefði
um var sjónvarpað beint í Bretlandi og
markmiðið var að safna fé tii handa bam-
aspítala í London.
Porto misstl stig
Porto missti dýrmætt stig í baráttunni um
portúgalska meistáratitilinn í knatt-
spyrnu um síðustu helgi er liðið gerði
raarkalaust jafntefli við Fafe. Á meðan
vann Benfica útisigur, 2-0, á Leixoes og
Sporting sigraði Esphinho 3-1. Eftir 11
umferðir er Benfíca með 18 stig, Sporting
með 17 og Porto með 16 stig.
Real áfram efst
Real Madrid heldur forystunni 1 spænsku
1. deildinni eftir öraggan útisigur á Real
Mureia, 3-0, um helgina. Emilio Butragu-
eno skoraði tvö markanna og Hugo Sanc-
hez eitt. Barcelona vann Real Zaragoza 1-0
raeð marki frá Roberto Fernandez. Real
Madrid er með 15 stig eftir 9 leiki, Barcel-
ona hefur 14 en sfðan kemnr hópur liöa
með 11 stig.
Partizan sektað
Aganefnd Knattspyrnusam-
bands Evrópu hafnaöi á
sunnudaginn þeirri kröfu AS
Roma frá ítalfu að félaginu
yrði dæmdur 0-3 sigur gegn Partizan
Belgrad í UEFA-bikaraum. Rómverjar
kröfðust þessa þar sem áhorfendur kö-
stuðu einhverju í höfuð eins leikmaima
og vegna þess að leikurinn var stöðvaður
í 15 minútur á meðan eldur sem brausi
út var slökktur.
um 6,600 doUara og gert að leika næsta
tiarlægð frá heimavelUnum. Partizan
vann leikinn 4-2 og þau úrsUt starida öhög-
guð. ,
Jón Gunnar Zoega formaöur Vals:
Gervigras er draumurinn
„Því er ekki að neita að þetta er
draumur sem við höfum gengið
með í maganum í langan tíma. Viö
höfum verið aö láta reikna út
kostnaðaráætlun fyrir okkur og í
framhaldi gert fyrirspurnir um
ýmsar gerðir af gervigrasvöllum.
Þegar þessi þættir liggja fyrir er
fyrst hægt aö gera sér grein fyrir
hvort raunhæfir möguleikar séu á
lagningu gervigrasvallar," sagöi
Jón Gunnar Zoega, formaöur Vals,
í samtali við DV.
Valsmenn hafa um tíma látið
kanna fyrir sig uppsetningu á
gervigrasvelli á félagssvæðinu á
Hlíöarenda en eins og kemur fram
í máli Jóns Gunnars hér að framan
eru þessi mál aðeins á frumstigi
enda eru svona framkvæmdir
óhemju fjárfrekar. Reynslan af
gervigrasvellinum í Laugardal,
sem er sá eini sinnar tegundar hér
á landi, hefur verið mjög góö og
hafa félögin nýtt sér tíma þar og
sérstaklega yfir veturinn.
„í athugun okkar höfum viö ekki
leitað að gervigrasi sem er sömu
tegundar og á vellinum í Laugardal
heldur að eins konar sandvelli sem
á aö líkjast mun meira venjulegu
grasi. Þeir sem hafa leikið á gervi-
grasi og hafa samanburð telja sand-
völhnn mun betri. Gervigrasvöllur
úr þessu efni er framleiddur í Eng-
landi,“ sagði Jón Gunnar.
„Þegar út í svona framkvæmdir
er farið er Ijóst að til þarf að koma
styrkur frá hinu opinbera. Án
styrks tel ég ekki mikla möguleika
að við Valsmenn hefjum fram-
kvæmdir viö gervigrasvöll, kostn-
aöur yröi yfir 20 milljónir. Þetta er
hins vegar þaö sem koma skal því
félögin veröa að finna einhverja
lausn á þeim dauða tíma sem varir
yfir veturinn og þá er gervigras
eini kosturinn. Ég veit um fleiri
aðila á höfuðborgarsvæðinu sem
eru að íhuga þessi mál,“ sagði Jón
Gunnar Zoega.
-JKS
VIÐBÆTUM ÞJÓNUSTUNA OG
FÆRUM AMERÍKUIMÆR!
Með siglingum vestur um haf á 10 daga fresti í stað 14 daga áður
styttum við bilið milli íslands og Ameríku um 30%.
Nú höfum við Reykjafoss og Skógafoss í stöðugum beinum .
siglingum til New York, Portsmouth og Halifax. Nýja siglingakerfið er
stórbætt pjónusta við alla inn- og útflytjendur sem eiga viðskipti í
Vesturheimi.
HALIFAX IMEWYORK / PORTSMOUTH
F.K. Warren Ltd. EIMSKIP USA
P.O.Box 1117 ' Wheat Building - Suite 710
2000 Barington St. P.O.Box 3589
Sujte 920 Cogswell Towers Norfolk, Virginia, 23514 U.SA
Halifax, N.S.B3J2XI Sími: 804-627-4444
Sími: 902-423-8136 Gjaldfrjáls sími: 800-446-8317
Telex: 019-21693 Telex: 684411
Telefax. 902-429-1326 Telefax: 804-627-9367
FLUTNINGUR ER OKKAR FAG
EIMSKIP
Eimskip stydur kwnnalandslidii) i handknattleik.
4