Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1988, Síða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1988.
JarðarEarir
Jón Friðrik Matthíasson lést 22. okt-
óber sl. Hann var fæddur í Haukadal
i Dýrafirði 23. ágúst 1901, sonur
Marsibilar Ólafsdóttur og Matthías-
ar Ólafssonar. Jón lærði loftskeyta-
fræði og var farraaður yfir 30 ár. Eft-
irlifandi eiginkona hans er Jónína
Jóhannesdóttn-. Þau hjónin eignuð-
ust 10 böm. Útfór Jóns verður gerð
frá Langholtskirkju í dag ki. 15.
Unnur Ingibjörg Sigfúsdóttir lést 20.
október sl Hún fæddist að Hólmlátri
á Skógarströnd 3. desember- 1901,
dóttir hjónanna Sigfúsar Jónssonar
og Amdísar Finnsdóttm-. Unnur gift-
ist Styrkári Guðjónssyni, og eignuð-
ust þau sex böm. Útfór Unnar verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Útför Ragnars Kjartanssonar mynd-
höggvara verður gerð frá Dómkirkj-
unni miðvikudaginn 2. nóvember kl.
13.30.
Magnúsína Jónsdóttir, Njálsgötu 54,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 2. nóvember
kl. 15.
Andlát
Sigríður Bjamadóttir saumakona,
Langholtsvegi 202, er látin.
Sigríður Ástmundsdóttir, Efstalandi
24, andaðist í Borgarspítalanum 29.
október.
Sigríður Þórðardóttir frá Barðsnesi,
Norðfirði, lést á sjúkrahúsinu á Nes-
kaupstað laugardaginn 29. október.
Gunnar Björnsson frá Sólheimum,
Drápuhlíð 31, Reykjavik, lést í Borg-
arspítalanum 28. október.
Fanney Jónasdóttir lést á Landspít-
alanum 31. október.
Stefán J. Guðmundsson bygginga-
meistari, Breiðumörk 17, Hvera-
gerði, lést 29. október.
—.... ..... 11 " ..T .
Manuela leikur
íkvökl
Gott þykir að vera fyrstur með
fréttimar. Öllu má þó ofgera. Þannig
vorum við degi á undan áætlun í gær
er birt var tilkynning um tónleika
Manuelu Wiesler. Tónleikar Manu-
elu em í Landakotskirkju í kvöld og
hefjast kl. 20.30.
Egill Guðjónsson frá Súgandafirði
lést á Landspítalanum aðfaranótt 31.
október.
Bjamþóra Benediktsdóttir, Selvogs-
grunni 16, lést á Borgarspítalanum
30. október sl.
Guðlaug Jónsdóttir andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Neskaupstað
laugardaginn 29. október.
Fundir
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur fund þriðjudaginn 1. nóvember
kl. 20.30 í Sjómannaskólanum. Að lokn-
mn fundarstörfum verður tískusýning
og kaffiveitingar.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
í kvöld, 1. nóvember, kl. 20.30 verður
fundur og spiluð félagsvist í safnaðar-
heimilinu. Allir velkomnir.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í safnaðarheimili
kirkjunnar fimmtudaginn 3. nóvember
kl. 20.30. Bjöm Th. Bjömsson listffæðing-
ur verður gestur fundarins. Fleira verður
á dagskrá. Kaffi og að lokum hugvekja
sem séra Ragnar Fjalar Lárusson flytur.
Vænst er að konur {jölmenni.
Félagsfundur hjá JC Nes
JC Nes heldur þriðja félagsfund sinn í
kvöld, 1. nóvember, kl. 20.30 að Lauga-
vegi 178,3 hæð. Gestur kvöldsins veröur
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir frá Kyn-
fræðslustöðinni. Kaffiveitingar verða
bomar fram og er fundurinn öllum op-
inn. Félagsmenn eru hvattir til að taka
með sér gesti.
Tónleikar
Háskólatónleikar
Aðrir háskólatónleikar haustmisseris
verða á dagskrá í Norræna húsinu mið-
vikudaginn 2. nóvember kl. 12.30 og
standa í u.þ.b. hálfa klukkustund. Á tón-
leikunum mun Helga Ingólfsdóttir semb-
aUeikari flytja tónlist frá 17. og 20. öld.
Basarar
Kvenfélag Kópavogs - Líkn
arsjóður Aslaugar Maack
Basar og kaffisala verður í félagsheimiU
Kópavogs sunnudaginn 6. nóvember. Þar
verða á boðstólum nýbakaðar kökur,
prjónavörur, fatnaður og ýmsir munir.
Einnig verður selt kaffi með rjómavöffl-
um. Vinnufundir félagskvenna eru á
mánudögum frá kl. 17. AUtaf heitt á
könnunni.
Tilkyimingar
Ný verslun var opnuð á Tálknafirði,
föstud. 21. okt. Ber hún nafnið TungufeU
og er í eigu Jónínu Haraldsdóttur. Versl-
ar hún með fatnað, gjafavöru og Utils
háttar matvöru. Þetta er þriðja verslunin
á staðnum, en fyrir eru Bjamabúð, mat-
vöruverslun með meiru, og Tían með
fatnað og gjafavöru. Ekki má gleyma'
Vélstniðju Tálknafjarðar sem er með
varahlutaverslun ásamt þvi að selja
vinnufot og fleira.
Öldrunarfélag íslands
með ráðstefnu
Miðvikudaginn 2. nóvember nk. kl. 14-18
mun Öldrunarfélag íslands gangast fyrir
námsstefnu í Kristalssal Hótel Loftleiða.
John Christiansen, tannlæknir og lektor
við Tannlæknaháskólann í Kaupmanna-
höfn, mun fjaUa um tannheilsu og tann-
Innilegar þakkir til ættingja og vina
fyrir gjafir, hlýhug og vinsemd á 70
ára afmæli mínu 29. október sl.
Guð blessi ykkur öll.
Óskar Ingimar Jóhannsson Husby
Norðurbrún 1
Menning______________________________dv
Fjórir einleiks-
konsertar
- lokatónleikar Tónlistarhátíðar ungra einleikara
lega góður og kurteis samleikur
hljómsveitar og einleikara.
Þaö var reyndar alveg sérstakt
gleðiefni að heyra hljómsveitina á
báðum sinfóníutónleikum hátíðar-
innar í allt lék hún í átta einleiks-
konsertum óg hafði af skiljanlegum
ástæðum ekki mikinn tíma til að
æfa hvert verk. En samt var spilið
óvenju hreint og klárt í flestum til-
fellum, stundum reyndar hreint
afbragð. Er greinilegt að okkar nýi
og stórsnjalli stjómandi, Petri Sak-
ari, hefur þegar náð góðu sambandi
við hljómsveitina og bíða menn
spenntir eftir áframhaldinu. Á
næstu „áskriftartónleikum" verða
enn fluttir einleikskonsertar,
Rokkoko tílbrigðin fyrir selló og
Píanókonsert nr. 1 eftir Tsjæ-
kofskí, að viðbættu „Franceska da
Rimini".
Lokatónleikar Tvíærings ungra
norrænna einleikara vom sin-
fóníutónleikar í fyrradag. Þar
komu fram fjórir einleikarar, Dan
Laurin, blokkflauta, Geir Draugs-
voll, akkordion, Jan-Erik Gustav-
son, selió, og Anders Kilström,
píanó. Stjómandi var Petri Sakari.
Allt era þetta afbragðs einleikarar
sem erfitt er að gera upp á milli.
Þó held ég að enginn geti móðgast
þó að fuliyrt sé að Dan Laurin sé
hreinn snillingur á sitt hljóðfæri.
Leikur hans í konsert eftir Vivaldi
var eitthvað alveg sérstakt og ein-
leikstónleikar hans í Listasafni ís-
lands um daginn munu örugglega
seint líða úr minni.
Geir Draugsvoll lék „A dirge“,
verk sem Ivar Frounberg frá Dan-
mörku hefur samið til minningar
um ameríska tónskáldið Morton
Feldman. Þetta verk er gríðarerfitt
í samspili og stundum það flókið
að erfitt er að fylgja þræði. En hinn
imgi norski accordionisti (harmon-
ikkuleikari) og Sinfóníuhljómsveit
' íslands undir ömggri „talningu“
Petri Sakaris fluttu það af öryggi
og talsverðri list.
Hinn komungi finnski sellóleik-
ari, Gustavson, gerði þá margt
Tónlist
Leifur Þórarinsson
bráðfallegt í hinum stórglæsilega
sellókonsert Elgars. Og í lokaverk-
inu, Píanókonsert nr. 1 í d-moll eft-
ir Brahms, sem Anders Kilström
frá Svíþjóð lék, heyrðist oft vem-
Höggmynd sem nýtir orku heita vatnsins
- sú fyrsta sinnar gerðar í heimi
Hugmyndaflugi listamanna era lít-
il takmörk sett. Það hafa verið gerð
listaverk þar sem roki, sólarorku,
rennandi vatni og jafnvel eldingum
hefur verið fléttað á einhvem hátt
inn í myndgerðina. En engum hafði
dottið í hug að nota heitt vatn beint
úr iðram jarðar sem hluta af hsta-
verki fýrr en New York-búinn Robert
Dell tók sig til. Hann hefur undanfar-
ið unnið hér á landi við að gera
tveggja metra háan skúlptúr úr ryð-
fríu stáli, að hluta til koparklæddu,
og verður smiðinni lokið innan fárra
daga.
í fótstalh verksins sem sést á með-
fylgjandi mynd er komið fyrir litlum
rafskautum sem hlaða sig þegar hita-
veituvatn rennur um þær. Þær senda
rafstrauminn upp í efsta hluta verks-
ins þar sem hann kveikir á smáper-
um, líkt og notaðar era í jólaseríum.
Eftir því sem vatnið er heitara lýsa
Robert Dell: Frumstæðar þjóðir trúa
aö töframáttur tylgi járni og berg-
kristal. DV-mynd Hanna
maður í heimalandi sínu, hefur notið
stuðnings Fulbrightstofnunarinnar,
Hitaveitu Reykjavíkur og fleiri aðila
í tilraun sinni til að beisla jarð-
varmaorku til listsköpunar.
Vinnuteikningar hans, sem og ýmsa
skúlptúra sem hann hefur áður gert,
má skoða á sýningu sem nú stendur
yfir í Menningarstofnun Bandaríkj-
anna, Neshaga 16, Reykjavík. Henni
lýkur 6. nóvember. .;hh
perumar skærar. Ljósið frá þeim
fellur gegnum 3ja sentímetra þykka.
plötu úr bergkristal þar sem það leik-
ur í síflöktandi dansi vegna þess hve
raforkan frá heita vatninu er ójöfn.
Upphaflega var ráðgert að verkið
yrði sett upp við Nesjavelli en nú eru
líkur á að því verði vahnn staöur á
Öskjuhlíð, nálægt veitingahúsinu
sem reist verður á hitaveitugeymun-
um. Robert Dell, sem er kunnur hsta-
sjúkdóma eldra fólks. Námsstefnan ér
öllum opin en þeim sem annast um eldri
sjúklinga er sérstaklega bent á þetta
tækifæri. Fyrirlesari flytur mál sitt á
ensku en spumingar má leggja fyrir á
dönsku og íslensku.
Félagsvist
Félagsvist verður hjá Starfsmannafélag-
inu Sókn og Verkakvennafélaginu Fram-
sókn á morgun, miðvikudag, kl. 20.30 í
Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Sovéskjr dagar
Félagið MÍR, Menningartengsl íslands og
Ráðstjómarríkjanna, efnir til árlegra
Sovéskra daga nú í byrjun nóvember.
Dagamir em að þessu sinni sérstaklega
helgaðir einu af Asíulýðveldum Sovét-
ríkjanna, Kirgizíu, og kemur hópur lista-
fólks og fleiri þaöan til þátttöku í einstök-
um dagskráratriöum. Sovésku dagamir
verða settir í Félagsheimili Kópavogs
miðvikudagskvöldið 2. nóv. kl. 20.30.
Veröa þar flutt ávörp, en auk þess
skemmta listamennimir frá Kirgizíu með
hljóðfæraleik, söng, kvæðaflutningi og
dansi. Fimmtudaginn 3. nóvember verða
tónleikar og danssýning í Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi og Bændaskólanum á
Hvanneyri og föstudaginn 4. nóvember í
Fjölbrautaskólanum á Selfossi. Laugar-
daginn 5. nóv. verður opiö hús á Vatns-
stíg 10 frá kl. 14. Sýning á myndlist og
listmunum frá Kirgízíu opnuð kl. 15.
Einnig sýndar kvikmyndir, skáld flytur
kvæði, ávörp og listafólkið skemmtir.
Sunnudaginn 6. nóv kl. 20 verða hátíðar-
tónleikar og danssýning i Þjóðleikhús-
inu. Þriðjudaginn 8. okt. verða tónleikar
og danssýning í Félagsheimili Vest-
mannaeyja.
Heyrn og tal rannsakað
á Húsavik
Móttaka verður á vegum Heymar- og
talmeinastöðvar íslands á Húsavík 5. og
6. nóvember nk. Þar fer fram greining
heymar- og talmeina og úthlutun heym-
artækja. Sömu daga aö lokinni móttöku
Heymar- og talmeinastöðvar verður al-
menn lækningamóttaka sérfræðings í
háls- nef og eymalækningum. Tekið
verður á móti viðtalsbeiðnum hjá við-
komandi heilsugæslu.
Nótnabækur eftir
Björgvin Þ. Valdimarsson
Komnar em út tvær nótnabækur effir
Björgvin Þ. Valdimarsson. Önnur bókin
hefur að geyma 12 píanólög af ýmsu tagi
fyrir böm og unglinga. í hinni bókinni
em 8 dúettar (tvísöngslög). Fjórir þessara
dúetta em einnig útsettir þannig, aö
hægt er að syngja þá með kór. Höfundar
ljóðanna em: Þuríður Kristjánsdóttir,
Ingólfur Jónsson frá Prestbakka, Hall-
grímur Jónsson frá Ljárskógum, Guðrún
Auðunsdóttir, Jón Magnússon, Jón frá
Ljárskógum og Þorsteinn Valdimarsson.
Útgefandi er höfundur bókanna.