Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1988, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988.
Viðskipti
Hörkufundur Kaupmannasamtakanna:
Ólafur Ragnar, viltu bera
út Moggann fyrir ekki neitt?
Veislunni er lokið, sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra á fundi Kaupmannasamtakanna. Hér fær
hann iskalt vatn frá Guðjóni B. Ólafssyni, forstjóra Sambandsins. DV-mynd KAE
Þessa spurningu fékk Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra á fundi
Kaupmannasamtakanna í fyrra-
kvöld á Hótel Loftleiöum sem fjallaði
um stöðu smásöluverslunar á tímum
örra gjaldþrota. Kaupmenn eru
greinilega óhressir yfir því að inn-
heimta söluskatt fyrir ríkissjóð án
þess að fá nokkuð fyrir það. Kaup-
menn segja að þeim sé í nöp við sölu-
skattinn en þeir séu skikkaðir til að
innheimta hann. Þess vegna fékk
fjármálaráðherra áðurnefnda spurn-
ingu.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 5-7 Bb
Sparireikningar
3jamán. uppsógn 5-8 Sb.Sp
6 mán. uppsögn 5-9 Vb,Sb,- Sp
12mán. uppsögn 6-10 Ab
18mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 1-2 Vb.Sb,- Ab
Sértékkareikningar 5-7 Ab,Bb,- Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Bb.Vb,- Sp
6 mán. uppsögn 2-3,75 Vb.Sp
Innlán meðsérkjörum 5-12 Lb.Bb,- Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7,25-8 Vb
Sterlingspund 10,50- 11,25 Vb
Vestur-þýsk mörk 4-4,25 Ab,V- b,S- b.Úb
Danskar krónur 7-8 Vb.Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 15,5-18 Sp
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf. 16,5-21 Vb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 19-22 Lb.Úb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 8-8,75 Vb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 17-20 Lb.Bb
SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp
Bandaríkjadalir 10,25 Allir
Sterlingspund 13,50- 14,50 Lb.Úb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,25 = i Í3 < C >
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 27,6 2,3 á
mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. nóv. 88 20,5
Verðtr. nóv. 88 8,7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2272 stig
Byggingavísitala nóv. 399,2 stig
Byggmgavísitala nóv. 124,8stig
Húsaleiguvísitala Engin hækkun 1. okt. Veröstoðvun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,285
Einingabréf 2 1,880
Einingabréf 3 2,128
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,558
Kjarabréf 3,338
Lífeyrisbréf 1.651
Markbréf 1,761
Skyndibréf 1,025
Sjóðsbréf 1 1,604
Sjóðsbréf 2 1,385
Sjóðsbréf 3 1,143
Tekjubréf 1,555
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnún m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingár 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiðjan 130 kr.
Iðnaðarbankmn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðaö við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
Inn blrtast í DV á fimmtudögum.
„Samkeppnin neyðir kaupmenn til
að mynda stórar verslanakeöjur eins
og tíðkast í nágrannalöndunum. Ég
sé fyrir mér fjórar stórar verslana-
keðjur á íslandi innan nokkurra ára.
Það verða Hagkaup, Samvinnuhreyf-
ingin og tvær keðjur smásöluversl-
ana og heildsala," sagði Júhus Ólafs-
son, forstjóri Kristjáns Ó. Skagfjörð
á fundinum.
800 milljónir tapast í
gjaldþrotum verslana
Erindi Júlíusar var ákaflega fróð-
legt. Hann upplýsti að tapast hefðu
800 milljónir króna vegna gjaldþrota
verslana á þessu ári. Hitt var svo
ekki síður fróðlegt hjá Ólafi Ragnari
Grímssyni fjármálaráöherra á fund-
inum að atvinnureksturinn í landinu
hefði ekki skilað rúmum 3 milljörð-
um sem hann hefði innheimt fyrir
ríkið í söluskatt, þar af heföi smásal-
an ekki skilað 1.300 milljónum króna.
Júlíus segir að heildsölum verði að
fækka í framtíðinni. „Nú eru allt að
300 heildsalar að þjóna smásöluversl-
uninni þegar 30 heildsalar gætu ann-
ast þetta verk. Erlendis eru miklu
færri heildsalar en hérlendis. Þeir
eru að sama skapi stærri. Þess vegna
er hagkvæmni meiri erlendis."
Að sögn Júlíusar er einkenni smá-
söluverslunar erlendis að stórar
verslanakeðjur sjái um smásöluna.
„Þar hafa smásalar og heildsalar
slegið sér saman. Samkeppnin hefur
séð til þess.“
Afsláttur með því að
staðgreiða heildsölum
Júlíus sagði ennfremur að smásal-
an gæti náð verulegum sparnaði í
vöxtum með því að minnka greiðslu-
frest sinn hjá heildsölum. „Markmið-
ið ætti að vera aö koma greiðslufrest-
inum niöur úr 75 dögum í 30 daga,
síðar í staðgreiðslu sem endanlegt
markmið. Þá fengist staðgreiðsluaf-
sláttur hjá heildsölum sem aftur
þýddi að smásalan fengi meira út úr
álagningu sinni.“
Júlíus benti ennfremur á að launa-
kostnaður í smásöluverslun hefði
hækkað um 60 prósent á milli áranna
1986 og 1987. „Síðan bætist vaxta-
þunginn við.“
Guðjón B. Ólafsson
Guðjón B. Ólafsson vakti athygli á
því að þrátt fyrir mikla veltuaukn-
ingu á síðustu árum í verslun hefði
staöan sjaldan verið eins slæm í
smásöluverslun og núna. Guðjón
kenndi um of mikilli fjárfestingu á
undanförnum árum. „Verslanir eru
einfaldlega of margar. Þeim þarf að
fækka."
Hann benti síðan á að of margar
verslanir þýddi að sala á hvem
starfsmann væri of lítil sem aftur
hefði það í för með sér að launakostn-
aður allrar smásöluverslunar væri
orðinn of hár miðað við heildarvelt-
una.
„Á meðan laun era um 8,5 prósent
af heildarveltu í Danmörku eru þau
um 11,8 prósent á íslandi,” sagði
Guðjón og bætti við að þessi mismun-
ur væri íljótur að segja til sín þegar
veltan skipti tugi milljörðum króna.
Guðjón kvað verslanir ekki ein-
ungis vera of margar á íslandi, þær
væru líka of smáar. Vék hann að því
hve verslanakeðjur settu mikinn
svip á smásöluna í Svíþjóð og Banda-
ríkjunum þar sem hann þekkti til.
Um álagninguna sagði hann: „Það
er of lítil álagning á svonefndum vísi-
töluvörum. Þannig stendur þóknun
verslana fyrir að selja landbúnaðar-
vörar engan veginn undir kostnaðin-
um við að dreifa þeim.“
Guðjón tók álagningu á mjólk sem
dæmi. Álagning hennar dygði engan
veginn fyrir kostnaði verslunarinnar
viö að dreifa henni.
Því næst fullyrti hann að vandi
dreifbýlisverslana og hverfaverslana
væri mestur í smásöluverslun hér-
lendis.
Verslunum verður að fækka
Niðurstaða Guðjóns var sú að
verslunum fækkaði og þær yrðu
jafnframt stærri, vöruval yrði að
vera meira staðlað, sérvörur yrðu aö
mestu seldar í Reykjavík, betri nýt-
ing þyrfti að fást á húsnæði og að
Fréttaskot
Jón G. Hauksson
bylting yrði að eiga sér stað í upplýs-
ingastreymi verslana með notkun
tölva, þannig að menn hefðu allar
upplýsingar um reksturinn á tak-
teinum og stjómuðu út frá þessum
upplýsingum.
Sigurður E. Haraldsson
Sigurður E. Haraldsson, kaup-
maður í Elfu í Reykjavík, sagði aö
verslunin væri góð mælistika á at-
vinnu- og efnahagslífið í landinu.
Hann vék að ofijárfestingunni.
„Talsmenn kaupmanna vöruðu við
fjölgun verslana. Nú er komið á dag-
inn að þessi varnaðarorð voru ekki
sögð aö ófyrirsynju.“
Sigurður taldi komið í mikið óefni
vegna krítarkortanotkunar. „Kostn-
aðurinn við krítarkortin nemur
hundruðum milljóna króna. Hann er
jafnmikill og kostnaður smásölu-
verslunarinnar vegna húsaleigu."
Og áfram:„Kaupmenn hafa látið
hlunnfara sig heríilega vegna kort-
anna.“
Sigurður hvatti loks Ólaf Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra, sem sat
fundinn, til að taka hressilega á öll-
um innflutningi sem kæmi í ferða-
töskum fólks eftir innkaupaleið-
angra til stórborga, svonefndra Glas-
gow-ferða.
„Þá hvet ég stjórnvöld til að falla
frá hugmyndum um aukna skatt-
heimtu á verslunar- og atvinnurekst-
ur,“ sagði Sigurður.
Pétur Blöndal
Pétur Blöndal, forstjóri Kaupþings,
sagði að forráðamenn verslunar, sem
annars atvinnureksturs í landinu,
hefðu ekki gert sér grein fyrir nauð-
syn arðsemi þegar horfið var frá nei-
kvæðum vöxtum yfir í verðtryggingu
og raunvexti árið 1979.
„Fyrirtæki, sem voru ekki með
rekstrargrundvöll en högnuðust á
því að taka lán á tímum neikvæðra
vaxta, hafa engan veginn verið tilbú-
in til að mæta þeirri miklu arðsemis-
kröfu sem raunvextir gera. Þess
vegna er svo illa fyrir mörgum kom-
ið núna,“ sagði Pétur.
„Vandi verslunarinnar er að marg-
ar verslanir hafa engan fekstrar-
grundvöll. Þess vegna þarf rekstur-
inn að vera rekinn með hagnaði svo
að hægt verði að snúa dæminu við.
Það er hins vegar ljóst að smásalan
gengur í gegnum mikla hreinsun
núna. Þetta er sársaukafull hreinsun
en að mínu mati nauðsynleg. Menn
verða að átta sig á að reksturinn
þarf að skila ágóða og eigið fé verður
að vera mikið og það þarf líka að
skila af sér arði.“
Bættar samgöngur að drepa
dreifbýlisverslun
Pétur sagði ennfremur að bættar
samgöngur væru að drepa alla versl-
un úti á landi en hefðu að sama skapi
bjargað mörgum verslunum í
Reykjavík. „Hvemig á lítil verslun í
400 manna þorpi úti á landi að geta
borið sig þegar íbúamir fara saman
í rútu til Reykjavíkur í innkaupaleið-
angra? Það þarf heldur ekki annað
en að skoða númer bílanna við
Kringluna til að sjá að utanbæjar-
menn koma til Reykjavíkur til að
versla."
Pétur áréttaði mikilvægi þess að
eigendur verslana hefðu gleggri upp-
lýsingar um þá sem fengju lánaö hjá
þeim.
„Vegna gjaldþrotanna að undan-
fómu og þess sem hefur tapast verða
menn að gera miklu meiri kröfur um
kreditupplýsingar, upplýsingar um
þá sem fá lánað.“
Og áfram: „Allir í atvinnurekstri
verða að átta sig á að það er gífurleg-
ur vaxtasparnaður í því að koma við-
skiptum meira yfir í staðgreiðslu-
form. Vaxtatap verslana vegna þess
að lána út á krítarkort er um 3 pró-
sent og síðan þarf aö greiða um 2
prósent í þóknun til kortafyrirtækj-
anna. Ef menn fá 11 prósent álagn-
ingu og 5 til 6 prósent fara strax í
kostnað vegna krítarkorta skal eng-
an undra þó að lítið sé eftir.“
Veislunni er lokið
„Veislunni er lokið," voru fyrstu
orð Ólafs Ragnars Grímssonar fiár-
málaráðherra í framsögu hans. „Það
er nauðsynlegt að raða borðbúnaðin-
um upp á nýtt. Við höfum fifað langt
um efni fram á síðustu árum, fiárfest
of mikið og tekið of mikið af erlend-
um lánum. Þessar erlendu skuldir
em með raunvöxtum og þær eru
orðnar mjög íþyngjandi fyrir þjóðar-
búið.“
Ólafur sagði síðan að það væri
óhjákvæmilegt að á næstu mánuðum
yrðu enn meiri erfiðleikar og að
margir yrðu að hætta í verslun.
„Svigrúm til aukinnar veltu verður
skert, eins og fram kemur í fiárlaga-
fmmvarpinu,“ sagði Ólafur.
Niðurstaða fundarins
Niðurstaðan af fundinum var sú
að leiðin út úr vandanum sé að draga
úr krítarkortaviðskiptum og að fá
hærri álagningu á landbúnaðarvör-
ur. Að grundvöllur sérverslana sé
fyrst og fremst í Reykjavík vegna
bættra samgangna. Að fækka þurfi
heildsölum sem þjóni smásölunni í
um 30 til 40. Að verslanir leggi
áherslu á að fá staðgreiðsluafslátt hjá
heildsölum og með stærri verslana-
keðjum fái þær magnafslátt líka. Að
verslunum fækki. Að verslanir
stækki og veröi mest í formi versl-
anakeðja sem berjist kröftuglega í
harðri samkeppni. Að kaupmenn nái
meiri sölu á hvern starfsmann.
Þessi markmið þýða að sala á
starfsmann verði að aukast, sala á
hvern fermetra húsnæðis aukist og
vextir sem hlutfall af sölu lækki. Með
öðram orðum að framleiðsluþættirn-
ir, vinna og fiármagn, gefi meira af
sér. Þannig telja forráðamenn versl-
ana hægt aö losna við að halda fleiri
gjaldþrotafundi í framtíðinni.
-JGH