Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1988, Page 7
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988.
7
Fréttir
Flokksblöðin:
Fá nú 70 milljónir
frá skattgreiðendum
I frumvarpi að fjárlögum er gert
ráð fyrir að s'tyrkir til flokksblaða
aukist um 70 prósent á sama tíma
og önnur útgjöld ríkissjóðs hækka
um 9,6 prósent að meðaltali. Saman-
iagður styrkur til flokksblaðanna og
beinar greiðslur til þingflokkanna
verða á næsta ári rétt tæpar 100 millj-
ónir.
Það má skipta styrkjum ríkissjóðs
til dagblaðanna í þrennt. í fyrsta lagi
fá þau 50 milljónir í beinan styrk.
Þau fjögur dagblöð sem þiggja styrk-
inn, Tíminn, Þjóðviljinn, Alþýðu-
blaðið og Dagur, fá því um 12,5 milij-
ónir hvert.
í öðru lagi kaupir ríkið 250 eintök
af dagblöðunum. Fyrir ofangreind
dagblöð þýðir þetta um 2,4 milljónir
til viðbótar. Heildarstyrkur tíi þeirra
er því um 15 milljónir.
í þriðja lagi skipta þingflokkamir
á milli sín 22 milljónum „til útgáfu-
mála samkvæmt ákvörðun þing-
flokkanna" eins og segir í fjárlögum.
Þeir þingflokkar sem eiga flokksmál-
gögn láta þennan styrk oft á tíðum
renna til þeirra. Þessari upphæð er
skipt eftir þingstyrk flokkanna.
Þannig fær Sjálfstæðisflokkurinn 6,3
milljónir, Framsókn 4,5 milljónir,
Alþýðuflokkurinn 3,5 milljónir, Al-
þýðubandalagið 2,8 milljónir, Borg-
araflokkurinn 2,4 milljónir, Kvenna-
listinn 2,1 milljón og Stefán Valgeirs-
son fær samkvæmt þessari reglu um
350 þúsund krónur til útgáfustarf-
semi.
Samkvæmt þessu verður styrkur
ríkissjóðs til Alþýðublaðsins um 18,4
milljónir, Þjóðviljinn fær 17,7 millj-
ónir og Tíminn og Dagur fá um 17,1
milljón hvor ef Framsókn deilir sín-
um styrk jafnt á málgögnin tvö.
Samanlagt fá þessi blöð rúmar 70
milljónir í sinn hlut. Til þess að gefa
hugmynd um vægi þessara fjögurra
dagblaða í fjárlögunum þá fá þau
jafnháa upphæð og eftirtalin menn-
ingarfyrirbrigði: Leikfélag Reykja-
víkur, Leikfélag Akureyrar, Banda-
lag jslenskra leikfélaga, íslenska óp-
eran, íslenski dansflokkurinn, Is-
lensk tónverkamiðstöð, Sinfóníu-
hljómsveit æskunnar, íslenska
hljómsveitin, Listasafn Sigurjóns Ól-
afssonar, Listasafn ASÍ, heiðurslaun
listamanna og Listahátíð.
Auk styrkja til útgáfu flokksmál-
gagna fá flokkamir styrki sem heita
„sérfræðileg aðstoð við þingflokk-
ana“. Samkvæmt ijárlögum verða
þeir 18 milljónir á næsta ári. Saman-
lagt eru því styrkir til þingflokkanna
rétt tæpar 100 milljónir króna.
Miðaö við fjárlög yflrstandandi árs
eykst þessi styrkveiting um 58,5 pró-
sent eða 41,5 prósent umfram al-
mennt verðlag. Ef fjármálaráðherrar
næstu ára auka jafn myndarlega við
þessa styrki til þingflokkanna og Ól-
afur Ragnar Grímsson hefur nú gert
má búast við að styrkirnir tvöfaldist
á tveggja ára fresti þó miðað sé við
fast verðlag.
Með sama margföldunarhraða fara
öll fjárlög íslenska ríkisins til þing-
flokkanna eftir nítján ár.
-gse
loðdýrabú lands-
greiðslustöðvun
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Tryggt
verður
að starfs-
menn kaupi
- sagði samgönguráðherra
Að sögn Steingríms J. Sigfus-
sonar samgönguráöherra þá er
enn verið að ræða við starfsmenn
Ferðaskrifstofu ríkisins um hlut-
afjárkaup þeirra í Feröaskrif-
stofu íslands. Mátti af máli ráð-
herra ráða að ætlunin er aö
tryggja að ekki komi neinir nýir
aðilar inn í hlutafjárkaupin. Ekki
vildi ráðherra þó segja neitt um
það hvort með þessu sé verið aö
leggja kvaðir á forkaupsréttindi
starfsmanna.
Umræða varð um málið í sölum
Alþingis 1 gær í kjölfar fyrir-
spumar Guðmundar Agústsson-
ar, þingmanns Borgaraflokksins.
Sagði Guðmundur að ástæða fyr-
irspurnarinnar væri sú að ýmis-
legt heföi komið í ljós á sfðustu
dögum sem vekti tortryggni varð-
andi söluna. Sagðist hann jafn-
framt efast um að söluverð hafi
verið rétt.
Ráðherra sagði að matsverð
heföi veriö 30,4 milljónir en sölu-
verð 28,4 milljónir. Utskýrði hann
mismuninn með því að viðskipta-
vild fyrirtækisins heföi verið
lækkuð úr sex milljónum í fjórar
til að auðvelda starfsmönnum
kaupin. Hlutafé fyrirtækisins er
21 milljón en 7,4 mifljónir voru
skildar eftir sera skuld við ríkis-
sjóð. Sagðist ráðherra ekki geta
sagt til um með hvaða kjörum sú
skuld yröi. 24 starfsmenn keyptu
hlutafé í fyrirtækinu og keyptu
sjö þeirra yfir milljón.
Fyrrverandi samgönguráö-
herra, Matthías Á. Mathiesen,
sagði aö þegar sala hlutabréfanna
fór fram þá hefðu það verið
starfsmenn sem keyptu.
Þá sagði Albert Guömundsson
aö matsverð á skrifstofunni heföi
verið miklu hærra en söluverð
en enginn vissi í raun hvert
markaðsverð hennar væri því
ekki heföi veriö leitað eftir því.
Sagði hann aö það væri þó mun
hærra en söluverðið og nefhdi
hann máli sínu til stuönings að
hagnaður heföi verið af fyrirtæk-
inu í mörg ár og sá hagnaöur
hefði verið lagður í rekstur fýrir-
tækisins. -SMJ
Stærsta
ins fær
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dahrik:
Stærsta loðdýrabú landsins, loð-
dýrabúið Pólarpels að Böggvisstöð-
um og Ytra-Holti, hefur fengið 3ja
mánaða greiðslustöðvun en fyrir-
tækiö hefur átt í verulegum greiðslu-
I fjárlagafrumvarpi Ólafs Ragnars
Grímssonar er gert ráð fyrir að um
921 milljón króna renni til uppbóta á
lífeyri opinberra starfsmanna.
Þessi útgjaldapóstur er þannig til-
kominn að opinberir starfsmenn fá
verðtryggðan lífeyri öfugt við aðra
landsmenn. Flestir landsmenn þurfa
að þola skertan lífeyri vegna þess að
iðgjöld lífeyrissjóðanna rýrnuðu á
tímum neikvæðra vaxta. Ríkissjóður
bætir hins vegar starfsmönnum sín-
um upp þessa rýmun.
Auk þess eru úthlutunarreglur líf-
eyrissjóða opinberra starfsmanna
þannig að menn fá þar úthlutað eftir
því hvaða laun eru greidd fyrir þá
erfiðleikinn undanfarna mánuði eins
og reindar flest bú og fyrirtæki sem
tengjast loðdýraræktinni með einum
eða öðrum hætti. Fóðurstöðin Dalvík
sf„ sem sér öllum loðdýrabúum við
Eyjafiörð og austur í Fnjóskadal fyr-
ir fóðri, hefur fengið framlenginu á
vinnu sem þeir unnu. Aðrir fá ein-
ungis það sem þeir greiddu í sjóðinn
og því hækkar lífeýririnn ekki eftir
því sem laun hækka í landinu.
Þessar uppbætur ríkissjóðs á líf-
eyri starfsmanna hans hafa farið
stighækkandi á undanförnum árum.
Árið 1986 gerðu fiárlög ráð fyrir um
477 milljónum í uppbætur en ríkis-
sjóður greiddi hins vegar um 574
milljónir. Árið 1987 var gert ráð fyrir
um 527 milljónum en reyndin var sú
að uppbætumar urðu um 861 millj-
ón. í fiárlögum fyrir þetta ár er gert
ráð fyrir sömu upphæð eða 861 millj-
ón. Á næsta ári er síðan gert ráð fyr-
ir um 921 milljón.
greiðslustöðvun en stöðvun þess fyr-
irtækis mundi hafa mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir alla loðdýrarækt á
þessu svæði og þótti þó vandinn ær-
inn fyrir.
Pólarpels er eitt af þremur loð-
dýrabúum sem stofnuð vom árið
1971 er loðdýrarækt var leyfð að nýju
hérlendis. Á búinu em um 14.500
minkahvolpar og 3.200 læður auk
örfárra fullorðinna högna en í Ytra-
Holti era um 5.300 blárefir og nokkr-
ir silfurrefir, þar af eru um 750 læður
og 200 högnar. Nokkuð hefur verið í
fréttum að Framleiðnisjóður lánaði
refabændum vegna búháttabreyt-
inga, þ.e.a.s. refabúum breytt í
minkabú, en reglugerð, sem þar er
stuðst við, er augljóslega meingölluð
því aðeins er lánað út á 200 refalæður
en að Ytra-Holti eru þær 750 eða nær
fiórfalt fleiri.
Aðstoð Framleiðnisjóðs mundi í
þessu tilfelli því aðeins vera yfirklór
af verstu tegund.
í dag er áætlað að framleiðslu-
kostnaður á refaskinn sé um 2.500
krónur en nú nýverið fengust um
1.600 krónur fyrir blárefaskinnið eða
aðeins um 65% af framleiðslukostn-
aði. Til samanburðar má geta þess
að verð á minkaskinni var á sama
tíma um 1.400 krónur eða aðeins um
15% lægra.
Að framansögðu má ljóst vera að
fyrir löngu er orðið tímabært að að-
hafast eitthvað raunhæft í málum
refabænda. Skrumyfirlýsingar póh-
tíkusa duga hreinlega ekki lengur.
Það verður að teljast æði ótrúlegt
að þessar uppbætur hækki ekki um
nema 7 prósent frá árinu 1987 til 1989
á sama tíma og gert er ráð fyrir að
almennt verðlag hækki um 40 pró-
sent. Ef sú yrði raunin að uppbæt-
urnar hækkuðu í takt við verðlag
má búast við að þær verði á næsta
ári um 1.200 milljónir.
Þessi 921 milljón, sem frumvarp að
fiárlögum gerir ráð fyrir að fari í
uppbætur á lífeyri opinberra starfs-
manna, er um 1,2 prósent af fiárlög-
um. Það er um þrír fióröu af því sem
ríkissjóður innheimtir af éinstakl-
ingum í eignarskatt.
-gse
Skálinn að Böggvisstöðum, stærsti refaskáli í heimi.
Uppbætur á lífeyri opinberra starfsmanna:
Gleypir þrjá fjórðu eignarskatts
TOYOTA COROLLA TWIN CAM GTi
ÚRVAL
B FRE
AUDI 200 QUATTRO TURBÓ 4X4
árgerð 1986. Fjórhjóladrifin lúxus-
bifreið, ekin 63 þús. km, með ótal
aukahlutum, 5 gíra, vökvastýri, ál-
felgur, ABS bremsukerfi, bilana-
tölva, fartölva, rafmagnsloftnet,
tölvustýrð miðstöð, sumar-
dekk/vetrardekk, útvarp/segulband,
litur steingrár, ýmisleg skipti koma
til greina. Verð 1.650.000.
SUBARU 1800 station 4x4 árgerð
1988. Ekinn 13.000 km, 5 gira,
vökvastýri, útvarp/segulband, litur
hvítur, skipti koma til greina á ódýr-
ari bifreið, ekki eldri en árgerö
1987. Verð 840.000. EIGUM EINNIG
ELDRI ARGERÐIR.
NISSAN SUNNY 1600 SGX SEDAN
4X4 árgerð 1987. Fjórhjóladrifinn
smábill, ekinn 40.000,5 gíra, vökva-
stýri, útvarp/segulband, litur silfur,
skipti koma til greina á ódýrari bif-
reið. Verð 590.000. ENNFREMUR
ÁRGERÐ 1988.
árgerð 1988. Glæsilegur sportbíll,
ekinn aðeins 11.000 km, 5 gíra,
vökvastýri, topplúga, litað gler, 16
ventla, rafmagn í rúðum og læsing-
um, spoiler, álfelgur, útvarp/segul-
band. Skipti gætu komið til greina
á ódýrari bifreið. Verð 780.000.
LADA SPORT árgerðir ’83, ’84, ’85,
'87, ’88.
ISUZU TROOPER LS, lengri gerð,
dísil, árgerð 1986. 4ra dyra, ekinn
aðeins 54.000 km, 5 gira, vökva-
stýri, útvarp/segulband, sumar-
/vetrardekk, litur blár, tvílitur. Engin
skipti, aðeins bein sala og góður
staðgreiðsluafsláttur. Verð
1200.000.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ:
Teg.
Blazer SIOTahoe
BMW316
Bronco IIXLT
Carina II, 16ventla
Charade TS
Cherokee Chief 4,0L
CivlcGTI
Colt 1500 GLX
Corolla Liftback 16 v.
Dodge Aries
Golf GL
Honda Accord
árg. Verð i þús.
1987 1.500
1987 800
1987 1.350
1989 900
1988 430
1987 1.500
1987 650
1987 490
1988 830
1987 640
1987 580
1987 770
MIKIÐ ÚRVAL NÝLEGRA BÍLA
GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI
0PIÐ LAUGARDAGA
KL. 10-17.30