Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1988, Page 11
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988.
11
Utlönd
Fóstureyðingar
verða hitamál
George Bush, hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna, sprakk af hlátri á ríkis-
stjórnarfundi í gær þegar einhver sagði að hann ætti nú kannski heldur
að sitja við borðsendann þar sem forsetinn situr. Fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, Nicholas Brady, þótti þetta líka fyndið. Ekki er talið ólíklegt að
Bush útnefni nýjan hæstaréttardómara á næsta ári og auki viö fjölda íhalds-
samra í hæstarétti áður en endurskoðaður verður umdeildur úrskurður um
fóstureyðingar samkvæmt óskum dómsmálaráðuneytisins frá þvi í gær.
Símamynd Reuter
Steinunn Böðvaisdótír, DV, Washington;
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna æskti þess í gær að hæstiréttur
landsins endurskoði einn umdeild-
asta úrskurð sinn varðandi rétt
kvenna til fóstureyðinga. í málinu
Roe gegn Wade árið 1973 úrskurðaði
hæstiréttur að réttur kvenna til
fóstureyðinga væri grundvallaður á
stjómarskránni og heimilaði þar
með fóstureyðingar.
Dómsmálaráðuneytið æskti þess
að rétturinn endurskoðaði þennan
úrskurð frá 1973. Endurskoðunin
myndi taka til umfjöllunar úrskurð
áfrýjunardómstóls Missourifylkis í
júlí síðasthðnum. í þeim úrskurði
var sagt að takmarkanir á fóstureyð-
ingum samræmdust ekki stjómskip-
unarlögum. Fylkisstjóm Missouri
hafði þegar farið fram á að hæstirétt-
ur endurskoðaði úrskurð áfrýjunar-
dómstólsins og lýsti lögin í gÚdi. Því
var hafnað í síðasta mánuði með 5
atkvæðum gegn 4. Nú hefur dóms-
málaráðuneytið látið málið til sín
taka og stutt kröfu fylkisins.
Hæstiréttur rnirn ákvarða í janúar
á næsta ári hvort máhð verði tekið
fyrir. Stuðningsmenn fijálsra fóstur-
eyðinga og samtök frjálslyndra í
Bandaríkjunum óttast að rétturinn
muni breyta úrskurði sínum og í
raun banna fóstureyðingar með öhu.
Árið 1973, þegar dómur féh í Roe
gegn Wade og fóstureyðingar voru
leyfðar, var frjálslyndur meirihluti í
hæstarétti. En nú em íhaldssamir
dómarar í meirihluta, 5 á móti 4, eft-
ir að Anthony Kennedy tók við emb-
ætti.
Ákveði hæstiréttur að taka beiðni
dómsmálaráðuneytisins fyrir mun
hann að öUum hkindum heyra rök
beggja aðha í október á næsta ári.
Þá er Uklegt að að minnsta kosti 1
núverandi hæstaréttardómara hafi
sest í helgan stein en nú era 3 dómar-
ar í hæstarétti að nálgast áttræðis-
aldur. George Bush, hinn nýkjömi
Bandaríkjaforseti, mun því að öUum
hkindum fá tækifæri tU að útnefna
að minnsta kosti 1 dómara áður en
máhð verður tekið til umfjöUunar
og auka þannig við meirihluta
íhaldssamra. Bush hefur margoft
lýst yfir andstöðu sinni við frjálsar
fóstureyðingar.
Hntfjafnt í Kanada
Kosningabaráttan í Kanada miUi
íhaldsmanna, sem em við stjóm, og
frjálslyndra er nú hnífjöfn þegar
tæpar tvær vikur em til kosninga.
Nýjasta skoðanakönnunin sýnir að
38 prósent þeirra sem þegar hafa
ákveðið sig ætla að kjósa frjálslynda,
37,6 prósent ætla að greiða Uialds-
mönnum atkvæði sitt og 21,1 prósent
em fylgjandi Nýja demókrataflokkn-
um. Um 30 prósent sögðu að þeir
kynnu að skipta um skoðun þegar
nær dregur kosningum.
Tvær aðrar skoðanakannanir frá
því í gær spáðu einnig jafhri baráttu.
I annarri þeirra fengu íhaldsmenn
39 prósent atkvæða, frjálslyndir 35
prósent og nýir demókratar 24 pró-
sent. í hinni fengu frjálslyndir 37
prósent, íhaldsmenn 35 prósent og
nýir demókratar 24 prósent.
KanadadoUar hækkaði í verði í gær
eftir að hafa fallið fyrr í vikunni.
Sérfræðingar segja að óttinn um að
ekkert verði af fríverslunarsamn-
ingnum milh Kanada og Bandaríkj-
anna ef íhaldsmenn tapa hafi haft
áhrif á gengið.
Reuter
Ný bandarísk herþota
í gær var sjö ára leynd svipt af
herþotu sem opinberlega var ekki til
í Bandaríkunum. Á blaðamanna-
fundi var skýrt frá því að framleidd-
ar hafa verið 52 herþotur sem ganga
undir nafninu „stelUi“. Þessar þotur
hafa þann kost helstan að þær geta
Uogið án þess að ratsjár óvinarins
nemi þær.
Að sögn eiga Sovétríkin ekkert sem
jafnast á við þotuna F-117a. Yfirmað-
ur bandaríska herráðsins, Crow
hershöfðingi, sagði að Rússar gerðu
ábyggfiega hvað þeir gætu tU að kom-
ast yfir álíka vopn.
Ástæðan fyrir því að leyndarhul-
unni var svipt af stálfuglinum er sú
að herinn taldi það orðið líklegt að
leyndarmáUð læki út.
Tvær þotur af þessari gerð hafa
þegar hrapað og létust báðir flug-
menn þeirra. Þær 50 þotur sem er
búið að framleiða era staðsettar í
Nevada. Reuter
Herþotan F-117a er þríhyrningslaga og sést ekki á ratsjám.
Jafnrétti
kemur körlum við!
Jafnréttisráð og Trésmiðafélag Reykjavíkur halda
hádegisverðarfund laugardaginn 12. nóvember í sal
Trésmiðafélags Reykjavíkur að Suðurlandsbraut 30.
Fundurinn hefst kl. 11 og stendur til kl. 14.
Efni fundarins er að ræða með hvaða hætti karlar
geti komið meira inn í jafnréttisumræðuna. Ýmsar
knýjandi spurningar verða teknar fyrir: Hafa konur
slegið einkaeign sinni á jafnréttismálin? Eru karlar
hræddir við að taka þátt í þessari umræðu? Eru karl-
ar sáttir við stöðu sína og hlutverk í samfélaginu?
Frummælendur eru þau Helga Jónsdóttir lögfræðing-
ur, Gylfi Már Guðjónsson, varaformaður Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur og Snorri Konráðsson, starfsmaður
M.F.A. Fundarstjóri er Ásdis J. Rafnar, formaður
Jafnréttisráðs.
Fundurinn er öllum opinn og hægt verður að kaupa
veitingar á hóflegu verði.
Jafnréttisráð og Trésmiðafélag Reykjavíkur
Iðnkynning
í Hafnarfirði
í tilefni 60 ára afmælis Iðnaðarmannafélagsins í Hafn-
arfirði 11. þ.m. munu eftirtalin fyrirtæki kynna starf-
semi sína og framleiðslu í Hafnarborg (neðri hæð)
laugardaginn 12. nóvember frá kl. 10 f.h. til 17 sd.
Fyrirtækin, sem sýna þarna, eru:
Rafha - raftækjaverksmiðja
Rásverk - blikksmiðja
B.Ó. - trésmiðja
Prisma - prentsmiðja
Bátasmiðja Guðmundar
Byggðaverk hf. - byggingarfyrirtæki
Hafnfirðingar, notið einstætt tækifæri og kynnist því
sem hafnfirsk fyrirtæki bjóða upp á.
Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði
(ontinenlai *
VETRARHJÓLBARÐAR
TS 740
Contact
TS 740-E
Contact Spikeable
Conti vetrar gríp TS 740 m + s hjólbarðar hafa besta
fáanlega ís- og snjógrip, enda mest seldir í Vestur-
Þýskalandi.
Gerð TS 740 Contact er ekki neglanleg. Góð fyrir þá
sem vilja hlífa malbikinu én aka samt af öryggi.
Gerð TS 740 E hefur holur fyrir nagla og sömu ís-
og snjógripeiginleika. Þar sem verð miðað við gæði
er hóflegt ættu þeir sem ekki hafa prófað þessa gæða-
hjólbarða að gera það hið snarasta.
Eftir að hafa prófað Conti gripið þarf ekki að skylda
ökumenn til að nota þá.
Útsölustaðir: Hjólbarðaverkstæði Vesturbæjar
Jón Ólafsson, Ægissíðu, Reykjavík
Hjólabarðaverkstæðið, Þjóðbr. 1, Akra-
nesi
Hjólbarðaverkstæði Daða, ísafirði
Bílaverkstæðið Kambur, Dalvík
Viljum gjarnan komast í samband við fleiri söluaðila
á landsbyggðinni.
Jæ—
SödflifllaiuigKUiif’ ©®= D=Ð/K
PÓSTHÓLF60S —121 REYKJAVÍK ICELAND
Símar 13280 og 14680.