Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1988, Side 32
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Hægir á störfum Alþingis:
15 þingmenn
á faraldsfæti
r > Það verður erfitt að halda uppi
venjulegu starfi á Alþingi í næstu
viku vegna fjarveru þingmanna. Þá
verða 15 þingmenn íjarverandi. þar
á meðal allir forsetar sameinaðs
þings. þannig að enginn fundur verð-
ur í sameinuðu þingi í vikunni.
Mánudagsdagskrá verður tekin fyrir
í dag en fundur næsta fimmtudag
fellur niður.
Þáð er aukaþing Norðurlandaráðs
sem gerir strik í reikninginn en
þangaö fara 7 þingmenn og þrír ráð-
herrar. í íslandsdeild Norðurlanda-
ráðs sitja Friöjón Þórðarson. Val-
gerður Sverrisdóttir. Guðrún Helga-
dóttir. Óli Þ. Guðbjartsson. Páll Pét-
ursson. Ólafur G. Einarsson og Eiður
►-^f.uðnason, þau fara öll á þingið. Þá
fara ráðherrarnir Jón Sigurðsson.
Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna
Siguröardóttir. Fundum lýkur á mið-
vikudagskvöld.
í næstu vikú fer fimm manna þing-
mannanefnd til Hamborgar í heim-
sókn á vegum Atlantshafsbandalags:
ins. Það eru Ingi Björn Albertsson,
Salome Þorkelsdóttir, Karl Steinar
Guðnason, Jóhann Einvarðsson og
Guðmundur H. Garðarsson.
Kvennalistinn er eini flokkurinn
sem sendir ekki neina þingmenn út
®Tnæstu viku. -SMJ
Gnúpur GK í brotsjó:
Brúin gekk inn
Skuttogarinn Gnúpur GK fékk
tvisvar á sig brotsjó í óveðrinu í gær
þar sem hann var staddur um 40
mílur vestnorðvestur af Látrabjargi
á svokölluðum Víkurál. Urðu tölu-
verðar skemmdir á skipinu þar sem
fimm rúður og önnur hurðin á stýris-
húsinu brotnuðu. Brúin gekk inn og
brimbijóturinn rifnaöi og gekk upp
úr dekkinu. Komst sjór inn í vistar-
verur áhafnarinnar og í stýrishúsinu
eyðilögðust nær öll siglingatæki.
■ Heiðrún ÍS fylgdi Gnúp áleiðis til
hafnar framan af degi og undir
kvöldið tók Varðskipið Týr og fylgdi
togaranum á leið hans til Reykjavík-
ur. Áhöfnin slapp ómeidd utan einn
messagutti sem virðist hafa fengiö
heilahristing. Fór þyrla Landhelgis-
gæslunnar til móts viö skipin í morg-
un til að ná í manninn og flytja hann
á Borgarspítalann. -hlh
Bilstjórarnir
aðstoða
'geJlDIBiLJlSTÖÐin
LOKI
Skotferðir fóru svo
sannarlega eins og skot!
Jón Sigurðsson hefur undirbúning að stækkun álvers:
Brot á sáttmála
stjórnarinnar
segir Margrét Frímannsdóttir
„Það er í sáttmála ríkisstjómar-
innar að ekki verði unnið að stækk-
un álvers í Straumsvík. Við viljum
að við þær samþykktir verði staðið.
Við munum því ekki standa að
neinni undirbúningsvinnu,'‘ sagði
Margrét Frímannsdóttir, formaður
þingfiokks Alþýðubandalagsins.
Hugmyndir Jóns Sigurðssonar,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um
framhald á undirbúningi að stækk-
un álversins mættu heiftarlegum
viðbrögðum ráðherra Alþýðu-
bandalagsins á ríkissfjórnarfundi í
gær.
Á fundinum kynnti Jón skipun
ráðgjafanefndar er sinna á áfram-
haldandi athugun málsins, sam-
skiptum við þau íjögur erlendu fyr-
irtæki sem standa aö hagkvæmnis-
athugun og hugsanlegum samning-
um við fyrirtækin að aflokinni at-
huguninni um sölu á orku. Þá
kynnti Jón hugmyndir sínar um
athugun sem hann vill láta Þjóð-
hagsstofnun framkvæma í samráði
við Byggöastofnun um þjóðhagsleg
áhrif af aukinni álframleiðslu.
Þetta skipulag á starfinu hér
heima leysir starfshóp um stækk-
un álvers í Straumsvík af hólmi en
skipun þess hóps var bundin viö
könnun um hugsanlega stækkun.
„Við erum alfarið á móti þessu
álveri og stöndum ekki að neinum
breytingum,“ sagði Margrét Frí-
mannsdóttir.
Þrátt fyrir harða andstöðu AI-
þýðubandalagsins mun Jón Sig-
urðsson skipa ráðgjafanefndina. í
henni eiga sæti Jóhannes Nordal
Seðlabankastjóri, Ólafur Davíðs-
son, framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskra iðnrekenda, Guðmundur
G. Þórarinsson, þingmaður Fram-
sóknarfiokksins, Geir A. Gunn-
laugsson, framkvæmdastjóri Mar-
els og fulltrúi Alþýðuflokksins, og
Baldur Óskarsson, viðskiptafræð-
ingur og félagi í Alþýðubandalag-
inu.
Önnur nefnd verður skipuð til að
vinna með Þjóðhagsstofnun að at-
hugun sinni. Birgir Árnason, \úð-
skiptafræðingur í viðskiptaráðu-
neytinu, verður formaður hennar.
-gse
Pólýfónkórinn hélt hátíðartónleika I Háskólabíói I gærkvöldi við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Islands, í tilefni 30
ára afmælis kórsins, undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. Viðtökur áheyrenda voru stórkostiegar en kórinn, ein-
söngvarar, hljómsveit og stjórnandi voru hyllt í lokin með langvarandi lófataki og síðan flæddu blóm yfir flytjend-
ur. Hér er stjórnandi kórsins, Ingólfur Guðbrandsson, með þeim Elísabetu F. Eiríksdóttur, Sigriði Ellu Magnús-
dóttur og Elísabetu Erlingsdóttur en þær sungu einsöng með kórnum. DV-mynd GVA
Veðriö á morgun:
Norðan-
gola
Á landinu á morgun verður norð-
an- og norðvestan gola eða kaldi.
É1 norðanlands en bjart veður
syðra. Hitinn verður nálægt frost-
marki víðast hvar.
Hiti 1 Eyjamönnum:
Það verða
mikil læti
- segir Óskar Þórarinsson
Tillaga sú sem samþykkt var á
Fiskiþingi á dögunum þess efnis að
ferskfiskútflutningurinn skuli verða
hlutfall af aflakvóta hvers skips, hef-
ur sett allt á annan endann í Vest-
mannaeyjum. Halldór Ásgrímsson
hefur lýst því yfir að hann sé tilbúinn
til að skoða jiessa hugmynd. í gær-
kvöldi hélt Utvegsmannafélag Vest-
mannaeyja fund vegna þessa máls
og var hann mjög fjölmennur og
mikill hiti í mönnum að sögn Óskars
Þórarinssonar skipstjóra.
„Að sjálfsögðu var þessari hug-
mynd harðlega mótmælt. Hún myndi
enda þýða atvinnulegan dauða fyrir
eigendur og sjómenn minni báta hér
í Vestmannaeyjum, sem ekki eru í
eigu stöðvanna. Hér er því um líf eða
dauða að tefla fyrir þessa aðila. Menn
skilja þetta ef til vill betur þegar
upplýst er að 35 prósent af gámaút-
flutningi landsmanna eru frá Vest-
mannaeyjum," sagði Óskar.
Hann nefndi dæmi af sjálfum sér.
Óskar á Frá VE sem er 124ra tonna
bátur. Hann hefur flutt út það sem
af er árinu 735 lestir af fiski í gámum
fyrir 56 milljónir króna. Þetta er
blandaður afli en koh að stórum
hluta og hefur meðalverðið veriö
rúmar 76 krónur fyrir kílóiö. Miðað
við verðlagsráðsverð hefði hann
fengið rúmar 24 milljónir króna fyrir
aflann ef hann hefði selt hann hér
heima, en meðalverðiö samkvæmt
því er innan við 30 krónur fyrir kíló-
ið.
„Ég er alveg sannfærður um að ef
sjávarútvegsráðherra verður viö
hugmynd Vestfirðinga sem sam-
þykkt var á Fiskiþingi, verða mikil
læti, verkföll og átök. Og ekki bara
hér í Eyjum, það er bullandi óánægja
víðar um landið vegna þessa máls.“
Á fundinum í Vestmannaeyjum í
gærkvöldi var kjörin nefnd sem fara
á með hugmyndir Vestmannaeyinga
um gámaútflutninginn á fund sjávar-
útvegsráðherra.
-S.dór
Jón Baldvin
ávítar sendi-
menn hjá SÞ
„Frystingartillögurnar eru úrelt-
ar,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson
utanrikisráðherra þegar hann var
spurður um ástæður þess að íslend-
ingar sátu hjá við atkvæðagreiðslu
um tillögur um frystingu kjarnorku-
vopna á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna í gær. Ráðherra sagði að það
hefðu fleiri en íslendingar áttað sig
á því en ekki flytjendur tillagnanna.
Athygli vekur að ráðherra hefur
þurft að taka ákvörðun í þessum
málum með mjög skömmum fyrir-
vara og það sama má segja um tillög-
una varðandi fordæmingu á ísrael.
Sagði Jón Baldvin að kl. 11.35 í gær
hefði hann fengið fimm tillögur inn
á borð til sín og þurft að taka afstöðu
til þeirra fyrir klukkan 12.
„Ég hef ítrekað fyrirmæh til sendi-
nefndarinnar í New York um að láta
þetta ekki henda aftur og að senda
tillögur, ef þær eru taldar vera eitt-
hvert álitamál, um leið og þær eru
lagðar fram þannig að það gefist ein-
hver timi til umfjöllunar."
Þess má geta að utandagskrárum-
ræða verður um utanríkismál á Al-
þingi í dag að beiðni Hjörleifs Gutt-
ormssonar. -SMJ