Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Blaðsíða 10
10 MANUDAGUR 14. NÖVBMBER SM Útlönd Baker raunsæismaður fram í fingurgóma Stemunn Bödvarsdóttir, DV, Washington: James Baker, næsta utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hefur verið lýst sem ákveðnum og sjálf- stæöum stjórnmálamanni af stuðn- ingsmönnum sínum en sem manni án ákveðinnar hugmyndafræði af gagnrýnendum. En bæði stuðn- ingsmenn hans sem og gagnrýn- endur eru sammála um að hann sé umfram allt raunsæismaður fram í fingurgóma. Útnefning Bakers kom fáum á óvart. Tæplega sólarhring eftir að ljóst var að repúblikanar höfðu þriðja skiptið í röð borið sigurorð af demókrötum í forsetakosningum tilkynnti hinn nýkjörni forseti, George Bush, að eitt valdamesta embætti nýrrar ríkisstjórnar félli í hlut kosningastjóra hans og náins vinar, James A. Baker. Starfsmannastjóri Reagans Baker var orðaður við utanríkis- ráðherraembættið í hugsanlegri stjórn Bush fljótlega eftir að hann tók við yfirstjórn kosningabaráttu varaforsetans. Hann hefur að baki áralanga reynslu af stjórnmálum og var starfsmannastjóri Hvíta hússins fyrra kjörtímabil Reagans og siðar fjármálaráðherra. Hann lét af störfum um miðjan ágúst þegar ljóst var að Bush yrði for- setaefni repúblikana í forsetakosn- ingunum, sem fram fóru þann 8. nóvember síðastliðinn, og tók að sér kosningabaráttuna. Baker er 58 ára gamall. Hann er af vel stæðu fólki kominn og ólst upp í Texas, heimafylki Bush. Hann stundaði nám við Princeton háskóla og brautskráðist síðar úr lagadeild Texasháskóla. Hann gegndi herþjónustu í landgönguhði bandaríska flotans um tveggja ára skeið en starfaði sem lögfræðingur í Texas að loknu laganámi. Baker er tvíkvæntur, fyrri kona hans lést úr krabbameini árið 1970 og hann kvæntist síðari eiginkonu sinni, Susan, þremur árum síðar. Þrjátíu ára vinátta Vinskapur þeirra Bush og Bakers hófst í Texas fyrir nær þrjátíu árum en stjarna Bakers fór fyrst að rísa í stjórnmálum árið 1970 þegar hann sá um kosningabaráttu Bush til öldungadeildar Banda- ríkjaþings. Bush tapaði í kosning- unum en frami Bakers var tryggð- ur. Að undirlagi Bush tók Baker við staríi aðstoðarviðskiptaráðherra árið 1975 í stjórnartíð þáverandi forseta, Geralds Ford. Hann sá um kosningabaráttu Fords til endur- kjörs árið 1976, kosningum sem Ford tapaði fyrir Jimmy Carter, frambjóðanda demókrata. Þegar Bush sóttist eftir útnefn- ingu forsetaefnis repúbhkana í Afstaða James Bakers, nýútnefnds utanríkisráðherra Bandarikjanna, til samskipta stórveldanna og afvopnun- armála er ekki þekkt. Líklegt er þó talið að ekki verði um róttæka stefnubreytingu að ræða af hans hálfu og að hann verði áhrifamikill utanríkisráðherra. Simamynd Reuter George Bush ásamt konu sinni Barböru. Baker sagði af sér embætti fjármálaráðherra til að sjá um kosningabaráttu Bush en þeir hafa verið vinir í þrjá áratugi. Simamynd Reuter kosningunum árið 1980 sá Baker enn á ný um kosningabaráttu hans. Bush tapaði útnefningunni til Re- agans en kunnugir segja að Baker hafi talið Bush á að draga framboð sitt til baka í tæka tíð th að ná út- nefningu varaforsetaefnis. Að loknum sigri Reagans og Bush árið 1980 tók Baker við starfi starfs- mannastjóra Hvíta hússins og síðar íjármálaráðherra. Hann sagði af sér embættinu þann 17. ágúst síð- astliðinn til að sjá um kosningabar- áttu Bush. Talinn miðjumaður Baker er vel hðinn meðal stjórn- málamanna beggja flokka. Þeir sem þekkja th vinnubragða hans segja hann ákveðinn og röggsam- an. Hann er þekktur fyrir að taka ákvarðanir grundvahaðar á stað- reyndum frekar en hugmynda- fræði og er talinn miðjumaður inn- an síns flokks. Gagnrýnendur hans segja hann of vhjugan til að fara málamiðlunarleiðina í samninga- umleitunum, gefa eftir að hluta til að ná fram meginmarkmiði sínu. íhaldssamir repúblikanar, sem eru ekki alveg sáttir við ýmis stefnumál Bush, voru allt annaö en ánægðir með útnefningu Bak- ers. Þeir hafa gagnrýnt hann fyrir dræman stuðning við hugmynda- fræði Reaganstjórnarinnar sem og fyrir andstöðu hans við útnefningu Reagans sem forsetaefnis repúblik- ana árið 1980. Takmörkuð reynsla Baker hefur takmarkaða reynslu af utanríkismálum. Bæði sem starfsmannastjóri og fjármálaráð- herra átti hann greiðan aðgang að fundum öryggisráðsins sem fjöll- uðu um utanríkisstefnu núverandi ríkisstjórnar. Hann hefur ferðast í opinberum erindagjörðum til sautján þjóðlanda og verið í for- svari fyrir samninganefnd Banda- ríkjanna í viðskiptaumræðum við erlend ríki. En afstaöa hans til margra mála er ekki þekkt og má þar nefna samskipti stórveldanna, afvopnunarviðræður og ástandið fyrir botni Persaflóa. En fréttaskýrendur búast viö að Baker verði áhrifamikih utanríkis- ráðherra þó að ekki sé líklegt að um róttæka stefnubreytingu verði að ræða. NÝR BÍLLRtA KR.167.80Q (Staögreiösluverö) Viö rýmum til fyrir '89 árgeröinni og seljum sem til er af Skoda 105 L og 120 L '88 á sérstöku útsöluverði. Cóö greiöslukjör: 25% útborgun og afgangurinn á 12 mánuðum. JÖFUR -ÞECAR ÞÚ KAUPIR BÍL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.