Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Síða 23
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988, 23 íþróttir Tæpt hjá flfðvík - Grindavik glopraði sigrinum Ægir Már Kárason, DV, Suóumesjum; „Það hefur sýnt sig í gegnum áhn að Njarövíkingar gefast aldrei upp fyrr en flautað er til leiksloka og það sást á þessum leik okkar. Þetta var frekar slakt af okkar hálfu en gifurleg barátta í lokin færði okkur sigur,“ sagði Hreiðar Hreiöarsson, fyrirliði Njarðvík- inga, sem tryggði liði sínu narnnan sigur á Grinda\dk, 68-67, í æsi- spennandi leik í Fiugleiðadeildinni sem fram fór í Njarðvík í gær- kvöldi. Staðan í hálfleik var 39-37 fyrir Njarðvík en þegar tvær mínútur voru eftir leiddu Grindvíkingar, 59-67, og allt stefndi i óvæntan sig- ur þeirra. Á siðustu sekúndunum náöi Hreiðar boltanum af þeim, skoraði, og fékk að auki vítaskot sem hann gerði úr sigurstigið! „Mínir menn fognuðu tveimur mínútum of snemma. Þaö var mjög sárt að tapa þar sem við vorum með unninn leik en ég er mjög án- ægður með leik minna manna hér í kvöld,“ sagði Doug Harvey, þjálf- ari Grinda\Tkinga, við DV. Bestir i liði Njarðvíkinga voru Helgi Rafnsson og Friðrik Ragnars- son en yfírburðamaður hjá Grind- víkingum var Jón Páll Haraldsson. Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygs- son 18, Friðrik Ragnarsson 16, Helgi Rafnsson 12, Hreiðar Hreið- arsson 9, Kristinn Einarsson 6, ísak Tómasson 5, Georg Birgisson 2. Stig Grindavíkur: Jón Páll Har- aldsson 20, Hjálmar Hallgrímsson 14, Steinþór Helgason 9, Sveinbjörn Sigurðsson 8, Rúnar Árnason 6, Guðmundur Bragason 4, Eyjólfur Guðlaugsson 2, Ólafur Jóhannsson 2, Ástþór Ingason 2. Dómarar voru Helgi Bragason og Leifur Garðarsson og stóðu sig þokkalega. Margir duttu úr keppninni vegna óhappa. DV-mynd Eirikur Amar og Valtýr unnu Sprett-raílið: Ökugleði við völd Þrettán frískir vélfákar sprettu úr spori á laugardag í nokkurs konar æfingaralli. Keppni þessi var hugsuð fyrir nýliða þ ví Á og B réttindamönn- um var meinuð þátttaka, auk ann- arra sem sigrað hafa í ár. Seinni regl- an virtist aðeins sett til að útiloka einn mann frá keppni, hinn stórefni- lega Rúnar Jónsson sem ók með því- líkum tilþrifum í síðasta spretti að neðrikjálkar áhorfenda hanga enn niður á bringu. í þetta sinn voru eknar stuttar sér- leiðir á Stór-Hafnarfj aröarsvæði, alls átta, og á úrslitum sést að sigurveg- arinn var tóf mínútur og átján sek. að aka þær. Keppnin hófst á Esjuleið sem tók mikinn toll af keppendum. Þótti tíðindum sæta ef einhver slapp í gegn áfallalaust og bar ökugleðin þar margan góðan dreng ofurliði. Sjö áhafnir af þrettán máttu sætta sig við að falla úr keppni, einn eftir veltu, tveir út af og fjórir vegna bil- ana. Keppni af þessu tagi er algeng er- lendis og til þátttöku í stærri mótum þarf að skila tilsettum árangri í æf- ingasprettum. Úrslit: 1. Arnar/Valtýr.......Talbot 12:18 2. Guðmundur/Borgar....Toyota 13:16 3. Bjöm/Ágúst...............Opel 13:23 4. Viðar/Gunnlaugur.Toyota 13:47 5. Páll/Fjóla.............Subaru 14:02 6. Konráð/Ásgrímur..Datsun 15:38 Allur ágóði af keppninni rennur til Samtaka áhugafólks um bætta um- ferðarmenningu. ás/bg ÍR-ingar betri - unnu Tindastól, 81-88 Þórhallur Ásnumdsson, DV, Sauðárkrókun ÍR-ingar unnu Tindastól, 81-88, á Íslandsmótinu í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikur liðanna var jafn framan af en um miðbik hálf- leiksins náðu Breiðhyltingar afgerandi forystu sem þeir héldu síð- an i leikhléi, 38-49. Heimamenn mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik en liði þeirra gekk þó mjög illa að láta boltann ganga manna á milli og kerfin gengu illa upp samhliöa þvi sem hittnin var slök. Þetta var raunar höfuðverkur Sauðkrækinga í öllum leiknum. ÍR-ingar voru hins vegar hittnir og yfirvegaðir í sínum leik á sama tíma og Sauðkrækingar létu slaka dömara fara í skap- ið á sér. Sérstaklega átti það við um Val Ingimundarson en hann var þó bestur í liði Tindastóls. í liði ÍR-inga bar hins vegar mest á Bimi Steffensen og Sturlu Örlygssyni og þeir Jón Örn og Karl Guðlaugsson voru einnig sprækir en liðið var þó jafnt og heild- steypt Stig Tindastóls: Valur Ingimundarson 31, Eyjólfur Sverrisson 23, Haraldur Leifsson ll, Sverrir Sverrisson 7, Guðrandur Stefánsson 5, Kári Marísson 4. Stig ÍR: Björn Steffensen 18, Karl Guðlaugsson 17, Sturla Örlygs- son 16, Jón Örn Guðmundsson 14, Jóhannes Sveinsson ll, Ragnar Torfason 8, Bragi Reynisson 4. mWM Sjárflokandi P^RUSUPOKAR Nýtegund, hreinlegri, sterkari, meðfærilegri. Nú er óþarfi að leita að bandi eða límbandi til að loka. Bandið er þrætt í pokatoppinn og ALFA- PAC pokinn tekur því 10-15% meira magn en venjulegir ruslapokar. Ómissandi á heimilinu, vinnustaðnum, í bílnum og að sjálfsögðu við jólatiltektina. Fást í næstu búð, bensín- stöð, byggingavöruverslun og í kaupfélaginu. 'Á 100 í ;! ) l|tRf c J P°UBE|I r . ^•COUl SSAc LLE 5 HEILDVERSLUN SÍMAR 621607-671441 l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.