Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1988, Side 43
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1988. 43 Fólk í fréttum Gunnlaugur M. Sigmundsson Gunnlaugur M. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags íslands, hefur veriö í fréttum vegna umræðna um Norræna fjárfesting- arbankann. Gunnlaugur Magnús er fæddur 30. júní 1948 í Rvík og lauk viðskiptafræöiprófi frá HÍ1974. Hann var fulltrúi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu 1974-1978 og var í námi við skóla Alþjóðagjald- eyrissjóðsins (í íjármálum) í Wash- ington 1976. Gunnlaugur var í stjórn Skipaútgerðar ríkisins 1977-1981 og í stjórn Fríhafnarinnar á Keflavík- urflugvelh 1978-1982. Hann var deildarstjóri gjaldadeildar í fjár- málaráðuneytinu 1978-1982 og var í stjórn Þörungavinnslunnar á Reyk- hólum 1979-1982. Gunnlaugur var starfsmaður á skrifstofu banka- stjórnar Alþjóðabankans í Wash- ington 1982-1984 og forstjóri Fram- kvæmdastofnunar ríkisins janúar— september 1985. Hann hefur verið formaður flskeldisnefndar frá sept- ember 1985 og í sljórn Minjavemdar frá 1985. Gunnlaugur hefur verið ,í eftirlitsnefnd með stjórn Norræna fjárfestingabankans í Helsinki frá september 1985 og framkvæmda- stjóri Þróunarfélags íslands frá 1. febrúar 1986. Hann hefur verið formaður fjárfestingafélagsins Silf- urbergs frá september 1986 og var í nefnd til að kanna sameiningu Út- vegsbankans, Búnaðarbankans og Verslunarbankans nóvember 1986- maí 1987. Gunnlaugur hefur verið formaður efnahagsnefndar Fram- sóknarflokksins frá júlí 1987 og í stjórn Stálvíkur hf. frá maí 1987. Hann var formaður Áburðarverk- smiðjunefndar janúar-mars 1988 og hefur verið í stjórn íslensks versl- unarhúss í Hamborg frá mars 1988. Gunnlaugur er formaður nefndar til að kanna aukna hagræðingu trygg- ingafélaganna frá júní 1988 og í full- trúaráði Styrktarfélags Þjóðminja- safnsins frá maí 1988. Gunnlaugur kvæntist 25. ágúst 1973 Sigríði Guðbjörgu Sigurbjörns- dóttur, f. 5. október 1948, meina- tækni. Foreldrar hennar eru Sigur- bjöm Þórðarson, prentmyndasmið- ur í Hafnarfirði, og kona hans, Heið- veig Hálfdanardóttir bankastarfs- maður. Börn Gunnlaugs og Sigríðar em Sigmundur Davíð, f. 12. mars 1975, Sigurbjörn Magnús, f. 6. apríl 1977, og Nanna Margrét, f. 9. apríl 1978. Bróðir Gunnlaugs er Jón Rich- ard, f. 3. júní 1951, tæknifræðingur íRvík. Foreldrar Gunnlaugs eru Sig- mundur Jónsson, íjármálastjóri í Rvík, og kona hans, Nanna Gunn- laugsdóttir snyrtisérfræðingur. Föðursystkini Gunnlaugs eru Magnús yfirverkstjóri í Rvík, faöir Jóns Hjaltalíns verkfræðings, for- manns Handknattleikssambands ís- lands; Stefán, forstjóri Eddu og skrifstofustjóri Fjárhagsráðs, fáöir Erlu, konu Árnar Guðmundssonar tanniæknis; Ólafur, forstjóri El- ectric, faðir Snjólaugar, starfs- manns Norðurlandaráðs, konu Har- alds Briem læknis; Jón Hjaltalín læknir og Örn sálfræðingur; Elín kona Karls Magnússonar, læknis í Keflavík, móðir Guðrúnar banka- starfsmanns; Guðbjörg Hassing; Kristján, starfsmaður Electric, faðir Sigurðar flugstjóra, og vélstjórarnir Bjarni og Guðmundur. Sigmundur er sonur Jóns Hjalta- líns, b. á Kambi i Reykhólasveit, Brandssonar, bróður Daníelínu, ömmu Kristjáns Loftssonar, fram- kvæmdastjóra Hvals hf. Móðir Sig- mundar er Sesselja Stefánsdóttir, Kristjánssonar, bróður Snæbjarnar í Hergilsey afa Snæbjarnar Jónas- sonar vegamálastjóra. Móðursystkini Gunnlaugs eru Filippus, skrifstofustjóri í Rvík, fað- ir Hauks tannlæknis, Harðar líf- efnafræöings og Hrefnu, konu Árna Gunnarssonar alþingismanns; Magnús, b. á Ósi, faðir Þóru, konu Ríkarðs Jónatanssonar flugstjóra; Marta, kona Svavars Jónatanssonar verkfræðings; Nanna, sambýlis- maður hennar er Hrólfur Guð- mundsson bílstjóri, og Þórarinn verkfræðingur og Fjóla snyrtifræð- ingur. Nanna er dóttir Gunnlaugs, b. á Ytra-Ósi í Hrófbergshreppi í Strandasýslu, Magnússonar, bróður Ingimundar, afa Sigríðar Ólafsdótt- ur, konu Vals Arnþórssonar og langafa Magnúsar Friðgeirssonar, forstjóra Iceland Seafood. Móðir Nönnu er Marta Magnúsdóttir, b. í Gunnlaugur M. Sigmundsson. Halakoti í Flóa, Éinarssonar, prent- ara og bæjarfulltrúa í Rvík, Þórðar- sonar, dbrm í Skildinganesi, Jóns- sonar. Móðir Mörtu var Sesselja, systir Ámundar, langafa Guðrúnar Helgadótturalþingismanns. Sess- elja var dóttir Filippusar, b. á Bjólu, Þorsteinssonar, bróöur Önnu, langömmu Svövu, móður Matthías- ar Á. Mathiesens samgönguráð- herra. Afmæli Svavar Árnason Svavar Ámason, fyrrv. oddviti í Grindavík, er sjötíu og fimm ára í -dag. Svavar fæddist að Bjargi í Grindavík en ólst upp að Garði í sömu sveit. Foreldrar hans eru Árni Helga- son, sjómaður og organisti í Grindavíkurkirkju og síðari æviár- in útibússtjóri hjá Kaupfélagi Suð- urnesja í Grindavík, og kona hans, Petrúnella Pétursdóttir húsmóðir. Árni Helgason var fæddur 27.10. 1879 að Þorvaldsstöðum í Hvítár- síðu en ólst upp í Fljótstungu í sömu sveit hjá hjónunum Jóni Pálssyni og konu hans, Guðrúnu Pétursdóttur. Foreldrar Árna voru Helgi Böðvarsson, b. að Lamba- stöðum á Mýrum, og kona hans,, Guðrún Sveinsdóttir, b. og smiðs að Beigalda. Árni andaðist 19.8. 1956. Petrúnella Pétursdóttir fæddist 6.11. 1890 að Skildinganesi á Sel- tjarnamesi. Foreldrar hennar voru Pétur Guðmundsson, kennari í Grindavík og Keflavík og lengi rómaður kennari og skólastjóri á Eyrarbakka, og kona hans, Katrín Jónsdóttir, útvegsb. á Jámgerðar- stöðum í Grindavík, Sveinssonar, á sama stað. Ekki varð þar af hjú- skap en faðirinn fékk því ráðið að dóttirin hlaut nafn móður hans, Petrúnellu Guðnadóttur frá Nesi í Selvogi. Petrúnella ólst upp við gott atlæti í Garðhúsum í Grinda- vík hjá Einari óðalsb. Jónssyni og konu hans, Guðrúnu Sigurðardótt- ur, frændkonu Péturs úr Selvogi. Petrúnella andaðist 11.6. 1958. Svavar stundaði nám við Sam- vinnuskólann 1935-37 og lauk þaö- an verslunarprófi. Hann stundaði sjómennsku framan af ævi. Svavar var kosinn í hreppsnefnd Grinda- víkurhrepps 1942, varð oddviti hreppsins 1946 og gegndi því emb- ætti til 1974 en þá fékk Grindavík kaupstaðarréttindi 10.4. Svavar var því síðasti oddviti Grindavíkur- hrepps og fyrsti forseti bæjar- stjórnar Grindavíkurkaupstaðar. Við bæjarstjórnarkosningarnar 1982 gaf hann ekki lengur kost á sér til endurkjörs og hafði þá lokið fjörutíu ára starfstímabili við sveit- arstjórnarmál. Nú sýslar Svavar við umboðs- störf fyrir Brunabótafélag íslands í Grindavík. Svavar Árnason. Svavar er ókvæntur og barnlaus en heldur heimili með Sigrúnu Högnadóttur, ekkju Þórarins Pét- urssonar, útgerðarmanns í Grinda- vík. Foreldrar hennar eru Högni Guðnason, b. í Laxárdal í Gnúp- verjahreppi, og kona hans, Ólöf Jónsdóttir, en þau eru bæði látin. Afmælisbarnið dregur sig í hlé frá skarkala heimsins um stund og verður ekki heima á afmælisdag- inn. Guðríður Guðmundsdóttir Guðríður Guðmundsdóttir kaup- kona, Eyrarvegi 9, Selfossi, er sjötug ídag. Guðríður fæddist að Háamúla í Fljótshlíð og ólst upp í Fljótshlíð- inni. Hún giftist 4.6.1938 Sigurgeir Ingvarssyni, b. og síðar kaupmanni, f. 18.7.1914, syni Sigríðar Steins- dóttur, ljósmóður frá Minna-Hofi, og Ingvars Ólafssonar, sem ættaður var úr Landeyjunum. Guðríður og Sigurgeir hófu sinn búskap í Berjanesi undir Eyjaíjöll- um og voru þar í eitt ár en bjuggu síöan í átta ár á Móeiðarhvolshjá- leigu. Eftir það fluttu þau Guðríður og Sigurgeir til Selfoss þar sem þau hafa búiö síðan. Sigurgeir starfaði hjá Kaupfélagi Árnesinga eftir að þau fluttu til Selfoss en fyrir tuttugu og flórum árum hófu þau hjónin verslunarrekstur og hafa stundað hann síðan, fyrst í leiguhúsnæði en síðar í eigin húsnæði. Börn Guðríðar og Sigurgeirs eru: Sigrún húsmóðir, f. 1941, gift Reyni Valgeirssyni pípulagningamanni, þau búa á Selfossi og eiga þrjá syni; Guðmundur, mjólkurfræðingur hjá Mjólkurbúi Flóamanna, f. 1944, kvæntur Ágústu Traustadóttur, þau búa einnig á Selfossi og eiga þrjú börn; og Pálmar, deildarstjóri hjá Jóni Ólafssyni og Co í Reykjavík, f. 1952, kvæntur Valgerði Sigurðar- dóttur, þau búa í Reykjavík og eiga tvö börn. Guðríður á tvær alsystur. Þær eru Guðrún Hulda og Halldóra. Auk þess átti Guðríður þrjá hálíhræður og eina hálfsystur en þau eru öll látin. Foreldrar Guðríðar voru Guð- mundur Jónsson, b. á Háamúla í Fljótshlíð, f. í Nikulásarhúsum 2.10. 1861, d. 1936, og Guðrún Jónsdóttir húsmóðir, f. 26.6.1895, d. 10.9.1982. Móðurforeldrar Guðríðar voru Jón Jónsson, verkamaður í Reykja- vík, og Þuríður Jónsdóttir. Föðurforeldrar Guðríðar voru Jón Þórðarson frá Þórunúpi í Hvol- hreppi og Þórný, systir Sæmundar, föður Nínu listmálara. Þórný var dóttir Guðmundar, b. í Nikulásar- húsum í Fljótshlíð, bróður Bjarna, langafa Sigmundar, afa Sigmundar Guöríður Guómundsdóttir. Guðbjarnasonar, rektors HÍ. Guð- mundur var sonur Helga, b. í Heys- holti á Landi, Erlendssonar, b. á Hæringsstöðum í Flóa, Helgasonar, b. á Hæringsstöðum, Erlendssonar, b. á Bakka í Leirársveit, Þorláksson- ar, iðnaðarmanns, Gunnlaugsson- ar, prests í Saurbæ í Eyjafirði, Sig- urðssonar, afa Hjalta Þorsteinsson- ar, hins fræga prófasts og listmálara í Vatnsfirði. Guðríður verður ekki heima á af- mælisdaginn. Hermann Hermann Jónsson, b. og hreppstjóri á Lambanesi í Fljótum, varð fimm- tugur í gær. Hermann er fæddur á Móskógum í Haganeshreppi og ólst upp í Fljótum. Hann vann ýmis störf til sjós og lands 1954-1960 ogvar b. á Merkigili í Eyjafirði 1960-1965. Hermann hefur verið b. á Lamba- nesi frá 1965 og verið í sóknarnefnd Barðskirkju, stjórn Veiðifélags Miklavatns og Fljótár, hreppsnefnd Holtahrepps 1970-1982 og hrepp- stjóri Holtahrepps frá 1982. Hann kvæntist Auði Ketilsdóttur, f. 19. október 1937. Foreldrar hennar voru Ketill S. Guðjónsson, b. á Finnastöð- um í Hrafnagilshreppi, og kona hans, Hólmfríður Pálsdóttir. Sonur Hermanns og Auðar er Hafþór, f. 19. apríl 1960, bifvélavirki á Akur- eyri, kvæntur Agnesi Arnaldsdótt- ur, og eiga þau tvö börn, Bryndísi, f. 3. febrúar 1980, og Hermann, f. 13. ágúst 1981. Systkini Hermanns voru þrettán og er einn bróðir, Ásmund- ur, látinn fyrir nokkrum árum. Þau sem eru á lífi eru Alfreð, vegaverk- stjóriá Sauðárkróki; Guðmundur, verslunarmaður í BYKO í Kópa- vogi; Aðalbjörg, húsmóðir í Varma- hlíð í Skagafirði; Sigríður, húsmóðir á Steinsstöðum í Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði; Svavar, umdæ- misstjóri Vegagerðarinnar á Húsa- vík; Kristinn, strætisvagnastjóri í Rvík; Baldvin, verkamaöur á Sauð- árkróki; Halldóra, kjötvinnslukona á Selfossi; Pálmi, verkamaður í Dan- mörku; Lúðvík, verkamaöur á Ak- ureyri, og Svala, húsmóðir á Sauð- árkróki. Foreldrar Hermanns voru Jón Guðmundsson, b. og hreppstjóri á Molastöðum, og kona hans, Helga Guðrún Jósefsdóttir. Jón var sonur Guðmundar, b. á Neðra-Haganesi, bróður Jóns, afa Jóns Sveinssonar, Jónsson Hermann Jónsson. aðstoðarmanns forsætisráðherra. Guðmundur var sonur Halldórs, b. á Stóra-Grindli Guðmundssonar, b. á Kjarvalsstöðum, Einarssonar. Móðir Halldórs var Kristín, systir Margrétar, langömmu Kristínar Jónsdóttur listmálara. Kristín var dóttir Gísla, konrektors á Hólum, Jónssonar, biskups á Hólum, Teits- sonar. Móðir Gísla var Margrét Finnsdóttir, biskups í Skálholti, Jónssonar. Móðir Kristínar var Ingiríður Halldórsdóttir, konrekt- ors á Hólum, Hjálmarssonar. Móðir Halldórs var Filippía Pálsdóttir, systir Bjarna landlæknis. Móðir Guðmundar Halldórssonar var Kristín Anna Filippusdóttir, b. á 111- ugastöðum, bróður Guðmundar, b. á Kjarvalsstöðum. Móðir Kristínar var Anna Jónsdóttir, systir Guðrún-- ar, ömmu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Móðir Jóns var Aðal- björg Anna Pétursdóttir, b. á Sléttu Jónssonar, b. á Utanverðunesi, Ól- afssonar. Helga Guðrún var dóttir Jósefs, b. á Stóru-Reykjum í Flókadal, Björnssonar, sem fórst með Haff- rúnni við Skaga 1864, b. í Hvanndöl- um, Gíslasonar, b. í Saurbæ í Siglu- firöi, Hinrikssonar. 80 ára 50 ára Jón Þorkelsson, Grenimel 8, Reykjavík. Jóhann P. Elnarsson, Fýlshólum 3, Reykjavík. Helga Elísdóttir, Gilsbakka, Neshreppi, Snæfellsnes- sýslu. Anna Krlstjánsdóttir, Boðagerði 11, Presthóiahreppi, Norð- ur-Þingeyjarsýslu. Hún verður að heiman í dag. 75 ára Þorsteinn Sigurðsson, IUugagötu 43, Vestmannaeyjum. 60 ára Helena Brynjólfsdóttir, Lindarseli 5, Reykjavík. Jóhann J. Andersen, Tjarnarstíg 5, Seltjamarnesi. Þórður Mart Adolfsson, Skildinganesi 4, Reykjavík. 40 ára Ágúst Kristjánsson, Hátúni 12, Reykjavík. Sigriður Ingimarsdóttir, Fögruhlíð 9, Eskifirði. Margrét Sveinsdóttir, Hátúni 10A, Reykjavík. Auður Hjaltadóttir, Viðimei 69, Reykjavík. Gísli Magnússon, Fannafold 30, Reykjavík. Helgi Jakobsson, Stórhólsvegi 5, Dalvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.