Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1988, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1988. Andlát Pálina Margrét Guðjónsdóttir hús- freyja, Hólakoti, Hrunamanna- hreppi, lést 11. nóvember á Sjúkra- húsi Suðurlands, Selfossi. Jónas Gunnar Jóhannesson, Lerki- grund 2, Akranesi, varð bráðkvadd- ur laugardaginn 12. nóvember. Jón Ottesen, Ytra-Hólmi, Innri Akra- neshreppi, varð bráðkvaddur 12. nóvember. Kristinn Nikulás Ágústsson, Hjalla- braut 5, Hafnarfirði, lést á heimili sínu laugardaginn 12. nóvember. Jarðarfarir Bjarnþóra Benediktsdóttir, verður jarösungin þriöjudaginn 15. nóvemb- .iír kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Þórdís Aðalbjörnsdóttir, Dalbraut 18. Revkjavík, verður jarðsungin frá Hafnarijarðarkirkju í dag, 15. nóv- ember, kl. 15. Bjarni Markússon matsveinn frá Rofabæ. Meðallandi. Laugarnesvegi 76, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 16. nóvember kl. 15. Þórarinn Ó. Vilhjálmsson lést 5. nóv- ember. Hann fæddist í Keflavik 6. ágúst 1904 og ólst þar upp. Hann var sonur Vilhjálms Bjarnasonar og konu hans Guðnýjar Magnúsdóttur. Þórarinn hóf ungur sjómennsku en starfaði lengst af sem verkamaöur hjá Slippfélaginu í Reykjavík. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðmunda Gísladóttir, en hún lést af bamsfórum. Seinni kona hans var Guðrún Georgsdóttir, en hún lést árið 1963. Þau hjónin eignuðust sjö böm. Útför Þórarins verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Tilkyimingar Skinfaxi kominn út 5. tölublað Skinfaxa, tímarits ungmenna- félaganna, er komiö út. Skinfaxi er að 'nokkrum hluta tileinkaður Ungmennafé- laginu Tindastóli á Sauðárkróki en íþróttafólk þaðan stendur nú framarlega á landsvísu. Nefna má meistarflokkslið Tindastóls í körfuknattleik sem er nú komið í úrvalsdeildina en viðtöl eru við Val Ingimundarson, þjálfara og leikmann með liðinu, og Eyjólf Sverrisson. Knatt- spymumenn Tindastóls eru i 2. deUd og síöast en ekki síst má nefna Lifju Maríu Snorradóttur sem stóð sig frábærlega fyrir stuttu á ólympíuleikum fatlaðra i Seoul. í Skinfaxa er einnig sagt frá undir- búningj fyrir 20. landsmót UMFÍ sem verður haldiö að Varmá í Mosfellsbæ árið 1990. BráðskemmtUegur skákþáttur Jóns L. Ámasonar er á sínum stað og margt margt fleira. Árshátíð Siglfirðingafélagsins verður haldin laugardaginn 19. nóvemb- er í FélagsheimUi Seltjamamess. Húsiö verður opnaö kl. 19 og borðhald hefst kl. 20. Að loknu borðhaldi verða skemmtiat- riði. Kl. 23 hefst almennur dansleikur með hfjómsveitinni Vanir menn. Forsala aögöngumiöa er í Tösku- og hanskabúö- inni. Sjá nánar auglýst í fréttabréfi. Foreldrafélag misþroska barna í kvöld, 15. nóvember, kl. 20.30 heldur Helga Friðfinnsdóttir kennari erindi um málþroska bama og svarar spumingum í ÆfingadeUd Kennaraháskólans við Há- teigsveg, gengið inn frá Bólstaðarhlíð. ÆskUegt er að sem flestir sjái sér fært að koma og hlusta á fróðlegt erindi sem á erindi tU okkar allra. Á fundinum verð- ur einnig hægt að fá keypfa athygUsverða bók um síðasta norræna þingið um MBD, Einnig verður tU sölu mjög fróðleg is- lensk ritgerð um MBD. Hrjóbjargarstaðaætt Niðjar Katrínar og Benjamíns ætla að hittast á Hótel Lind, Rauðarárstíg, nk. fimmtudag, 17. nóvember, kl. 20. Félags- vist og bingó. Rádstefnur Evrópuráðstefna um tölvur í skóiastarfi Siðastliðið sumar var haldin í Sviss Evr- ópuráðstefna um tölvur í skólastarfi. Við- fangsefni ráðstefnunnar vorú fjölbreytt og er fyrirhugað að kynna hluta þess sem þar kom fram í Kennslumiðstöðinni mið- vikudaginn 16. nóvember kl. 16-18. Áhersla verður lögð á notkun tölvubún- aðar i skólastarfi. Umræður verða að loknum framsöguerindum. Tapað fundið Ábreiða tapaðist Hvít ábreiða með rauðu munstri i miðj- unni fauk af svölum i Hátúni 12 fyrir ca mánuði. Finnandi vinsamlegast hringi í sima 13758. Leikhús Leikrit Harðar Torfa frumsýnt í Djúpinu Frumsýnt verður í Djúpinu í kvöld, 15. nóvember, kl. 21 leikritið Óvinurinn. Leikstjóri og höfundur er Hörður Torfa en hann bæði semur og flytur tónUstina og hannar leikmynd. Verk þetta skrifaði Hörður á árunum 1980-1981 og var verk- ið sviðsett í leikstjóm hans í Kaup- mannahöfn vorið 1981 og var farið með það um íslendingaslóðir. Leikandi verks- ins er Þröstur Guðbjartsson. Búninga hannaði Gerla. Lýsing er í höndum Lár- usar Bjömssonar og aðstoðarleikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Sýningar verða frá sunnudagskvöldum til fimmtudags- kvölda. Upplýsingar í síma 13340. Og svo þetta... Rúmlega 100 eintök af nýjustu plötu Harðar Torfa verða seldar fyrirfram á aðeins 1.000 kr. Keyptu þér ávísun á plöt- una hjá Steinari í Austurstræti strax og fáðu svo plötuna þegar hún kemur út í mánaöarlok. Þú getur lika keypt þér ávís- un í Djúpinu. mjómplata þessi heitir Rauði þráðurinn og er tvöfalt albúm með 18 af þekktustu og bestu lögum Harðar Torfa semm hljóðrituð vom á tónleikum hans í haust. Meiming________________________________________________________________________pv Undir nasista- fána í Garðinum Litla leikfélagið, Garði, sýnir: Himnaríki Hitlers, eða ðtti og eymd Þriðja rikisins. Höfundur: Bertolt Brecht. Leikstjðri: Þórir Steingrímsson. Ljós og hljóð: Sigfús Dýrfjörð. Um síðustu helgi efndi Bandalag íslenskra leikfélaga til sérstakrar kynningar á starfi áhugaleikhópa. Kynningin fór m.a. fram í húsa- kynnum bandalagsins í Reykjavík en auk þess lögðu leikhópar víðs vegar um landið sitt til málanna, hver í sinni heimabyggð. Starf áhugamanna er unnið af hugsjón og metnaði og ánægju- stundirnar í kringum starfið eru oftar en ekki einu launin sem þátt- takendur fá. Þó að hstrænn árangur sé mis- jafn er félagslegt gildi þessa starfs óumdeilt og ómetanlegt og þess vegna ber ráðamönnum skylda til að styrkja áhugaleikhús eftir megni. Leikstarfsemi af þessu tagi er í hugum fólks fyrst og fremst tengd landsbyggðinni en ekki má gleyma því að í Reykjavík starfa líka sprækir leikhópar. Nægir þar að nefna hinn undarlega og dularfuha áhugahóp, Hugleik, auk Gaman- leikhússins. Hið síðarnefnda byrj- aði sem bamaleikhús og telst það að vísu enn sem komið er en for- ráðamenn þess eru sem óðast að vaxa úr grasi án þess að nokkurn bilbug sé að finna á leikgleðinni eða áræðninni við að koma upp leik- sýningum og er spennandi að fylgj- ast með þessu dugnaðarfólki. í tilefni þessara kynningardaga brá ég mé'r hins vegar af bæ og heimsótti Litla leikfélagið suður í Garði. Þar voru nýlega fnnnsýndir þrír þættir úr verki Bertolts Brecht, Himnaríki Hitlers, eða Ótti og eymd Þriðja ríkisins og er Þórir Steingrímsson leikstjóri. Litla leikfélagið er að mörgu leyti dæmigerður áhugahópur. Það hef- ur starfað í 12 ár og sett upp 22 sýningar af ýmsum toga. Leikendur mæta til æfinga eftir langan vinnudag, eins og th heyrir hjá áhugafólki, og allt í kringum sýninguna er heimatilbúið og hannað á staðnum. Vahnkunnur leikstjóri er síðan fenginn (oftar en ekki „að sunn- an“) til að leiðbeina hópnum og þegar allt er tilbúið er þyngsta þrautin eför en það er að draga áhorfendur frá sjónvarpstækjun- um og út í félagsheimili til að horfa Bílstjórinn, Hreinn Guðbjartsson, og SA-maðurinn, Egill Egilsson. Ljósmynd Hiimar Bragi Leiklist Auður Eydal á sýningima. Þetta gildir að sjálf- sögðu jafnt um aha áhugahópa. Himnariki Hitlers er alls safn 24 þátta sem lýsa lífi og tilveru fólks í Þýskalandi á þeim tíma þegar nasisminn er að festa sig í sessi. í þeim þremur þáttum, sem valdir eru úr til sýningarinnar í Garðin- um, lýsir höfundur mætavel hvemig fjarstýrð innræting veldur tortryggni og skelfingu þannig að enginn er lengur óhultur og engum er treystandi, jafnvel ekki nánustu skyldmennum. í fyrsta þættinum eru leikendur tveir, eiginkonan Júdít býst til brottferðar vegna þess að hún er gyðingur og er ekki lengur vært í landinu. Eiginmaðurinn er innst inni harla feginn en lætur þó sem honum þyki miður. Aðdragandi þess að Júdít ákveð- ur að hverfa á brott kemur fram í eintali hennar og símtölum við vini og vandamenn. Anna María Guð- mundsdóttir réð að vonum ekki alveg við þetta erfiða hlutverk sem byggist niikið á nákvæmum blæ- brigðum í framsögn og svipbrigð- um en túlkun hennar var hins veg- ar látlaus og yfirveguð og henni tókst að láta skina í innibyrgða th- finningaólgu þessarar ólánsömu konu sem hefur, þegar upp er stað- ið, engan til að reiða sig á. Miðþátturinn, Spæjarinn, lá best við leikendum. Sólveig Pétursdótt- ir var örugg í hlutverki móðurinn- ar, framsögn hennar góð og hreyf- ingar eðhlegar. Þátturinn íjallar um það hvemig tortryggnin hefur sáð fræjum í innsta kjarna fjöl- skyldunnar. Aht eðhlegt mat á mannlegum samskiptum er brenglað, foreldramir í þættinum eru skelfingu lostnir og halda að þeirra eigið bam sé njósnari sem bíði færis á því að koma þeim í klær nasistanna. í síðasta þættinum, Krítarkross- inum, ber Egih Egilsson hitann og þungann af atburðarásinni með ágætum og rösklegum leik í hlut- verki SA-mannsins. Ofstæki og heift gruggar hér upp lygnan flöt daglegs lífs og enn sem fyrr bregur höfundur ljósi á ástandið með því að sýna viðbrögð, nú eða sljóleika, venjulegs fólks við hversdagslegar aðstæður. Leikmynd er gerð af nákvæmni og reynt er að halda stil híbýla þessa tíma. Best heppnuð fannst mér leikmyndin vera í Krítarkross- inum en aftur á móti var óþarflega að Önnu Maríu þrengt í fyrsta þættinum þar sem hún hafði aðeins mjóa ræmu fremst á sviðinu til að hreyfa sig á. Búningar voru prýði- lega valdir. Aörir leikendur en þeir sem að ofan era taldir komust misjafnlega frá hlutverkum sínum eins og gengur en Þórir Steingrímsson leikstjóri hefur leiðbeint hópnum mætavel. Sýningin gekk snurðulít- iö fyrir sig og var vel tekið af áhorf- endum. -AE Klassablóm - um sýningu Kristínar Jónsdóttur í Lástasafhi íslands Kristin Jónsdóttir á vinnustofu sinni í Kaupmannahöfn. A meðan draumsýnir súrrealista gagntóku Evrópu á ámnum mihi stríða var það öðru fremur rökræn meinlætastefna sem réð lögum og lofum á íslandi. Jón Stefánsson á e.t.v. mestan heiðurinn af þessari „andborgaralegu" innreið sem var' mjög í anda franska listjöfursins Céz- annes. En Kristín Jónsdóttir á ekki síður þátt í viðgangi þessa viðhorfs í málarahstinni hér á fyrra helmingi aldarinar. Hugmyndir Cézannes gengu mikið th út á rökræna mótun forma með impressjónískri litameð- höndlun og uppbyggingu í anda klassíkera. Þannig virka blómaupp- stilhngar Kristínar háklassískar úr fjarlægö en þegar nær dregur kemur impressjónísk tæknin í ljós. Pensh- drættimir einfaldast og styrkjast eft- ir því sem hður á málaraferil Kristín- ar. Árið 1940 málar hún uppstilhngu af postulíni og fleim (nr. 7) af klass- ískri nákvæmni en aðeins tveimur árum síðar er flæðið í teikningunni orðið mun meira (nr. 14). Hún slepp- ir þó aldrei algjörlega fram af sér beish rökrænunnar. Ekki úrtengslum Fmmforsendur þær sem nýklass- íkin endurvakti fyrir tveimur th þremur öldum höfðu enn tögl og hagldir um aldamótin, jafnvel þótt ytra borðið hefði einfaldast í með- Myndlist Ólafur Engilbertsson forum listamanna á borð við Céz- anne og Monet. Kristín hélt aha tíð tryggð við þessar sömu forsendur, jafnvel þótt ahs kyns vhhgróður sprytti upp í kringum hana. í mynd- inni Mandólín frá 1950 (nr. 17) má þó sjá að Kristín hefur ekki shtið sig úr tengslum við nýjabrumið í mynd- hstinni. Þessi mynd er á margan hátt eins konar óður th kúbismans og mun reyndar theinkuð Braque sem var þekktur fyrir margt annað en aö fara troðnar slóðir. Þarna er Kristín á svipuðum grösum og hinir íslensku semíkúbistar; Snorri Arin- bjamar, Þorvaldur Skúlason, Gunn- laugur Scheving o.fl. Stefnt var á ein- földun forma með sterkum dráttum en ekki svo mjög að því að brjóta upp myndflötinn eins og t.d. Picasso varð kunnur fyrir. Þorvaldur hneigðist reyndar til umbrota þegar afstrakt- holskeflan reið hér yfir um 1950. Dyr inn í rómantíkina Undirritaður sér hins vegar htla ástæðu th að bendla Kristinu Jóns- dóttur við þá stefnu eins og Aðal- steinn Ingólfsson gerir óbeint í sýn- ingarskrá. Afstraktið var umbrota- stefna gagnstæð hinum klassíska byggingarstíl sem er megineinkenni uppstilhnga Kristinar. Þessi sthl opnar henni miklu fremur dyr inn í rómantíkina og aðrar Ijóðrænar viddir, t.d. í myndinni Laufásvegur frá 1950 (nr. 16) þar sem tvær stytt- ur, önnur utanhúss en hin innan, magna upp draumkennda spennu í anda hinna rómantísku snhlinga. -ÓE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.