Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Síða 3
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
3
Fréttir
Skrílslæti um 200 grunnskólanema í Seljahverfi:
Börðust fyrst sín á milli en
snerust saman gegn lögreglu
„Þetta er afskaplega alvarlegt mál
þegar slíkt gerist og eldur er kveiktur
í skóla og rúöur brotnar. Þaö ber
mikið á þessu núorðið - bæði í
Reykjavík og nágrannaby ggðunum, ‘ ‘
sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, skóla-
stjóri Ölduselsskóla.
Seint á fostudagskvöld, eftir að
skóladansleik í Ölduselsskóla lauk,
komu að skólanum nemendur úr
Seljaskóla. Til deOna kom á milli
fylkinganna og brugðu kennarar,
sem höfðu haft gæslu á dansleiknum,
á það ráð að kalla til lögreglu. Þegar
lögregla kom á vettvang sameinuð-
ust nemendur gegn lögreglunni og
höfðu frammi mikil ólæti og brutu
meðal annars ljós á lögreglubílnum
auk minni skemmda.
Ólætin voru slík að lögreglan varð
að leggja á flótta þar til meiri liðsafli
kom til hjálpar. Nemendumir brutu
rúður í skólahúsinu og létu ófriðlega.
Flytja varð hluta nemendanna á lög-
Fossvogsskóli:
Munaði litlu
að illa færi
- segir Kári Amórsson
„Það má segja að litlu hafi mátt
muna að stórtjón yrði. Þetta var á
þeim tíma sólarhrings að fólk varð
vart við eldinn. Drengur á hjóli sá
hvað var um að vera og lét vita. Ef
þetta hefði gerst að nóttu er ómögu-
legt að segja til um hvernig þetta
hefði getað endað,“ sagði Kári Arn-
órsson, skólastjóri Fossvogsskóla.
Klukkan rúmlega eUefu á laugar-
dágskvöld varð vart við eld í kjallara-
herbergi í Fossvogsskóla. Slökkviliði
gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Herbergið, sem eldurinn var í, var
notað tU kennslu í tónmennt. Hljóð-
færi og fleira er mikið skemmt af
völdum elds og reyks. Þá barst reyk-
ur um skólahúsið í gegnum loftræsti-
kerfi skólans.
Ljóst er að um íkveikju er að ræða.
Talið er að rúða hafi verið brotin og
síðan kveikt í herberginu. Rann-
sóknarlögreglan vinnur að rannsókn
málsins. Ekkert hefur enn komið
fram um hver eða hveijir voru að
verki.
Kári Arnórsson skólastjóri segir að
skóhnn hafi til þessa sloppið vel frá
skemmdarverkum, svo sem rúðu-
brotum og fleiru. -sme
reglustöð.
Sjöfn Sigurbjömsdóttir, skólastjóri
Ölduselsskóla, og Hjalti Jónasson,
skólastjóri Seljaskóla, vUdu sem
minnst um málið segja fyrr en þau
hefðu séð lögregluskýrslur.
Sjöfn sagði að kennarar sem voru
við gæslu á dansleiknum segi að
dansleikurinn sjálfur hafi farið vel
fram. Þegar að honum loknum hafi
nemendur Seljaskóla verið við skól-
ann og látið öllum Ulum látum. Nem-
endur Ölduselsskóla hafi ekki þorað
heim og því hafi þótt ástæða tU að
kalla tU lögreglu.
„Ég á eftir að lesa lögregluskýrsl-
una, en hana fæ ég í dag, og eins á
ég eftir að ræöa við þá nemendur sem
stóðu fyrir dansleiknum svo og þá
kennara sem vora við gæslu þetta
kvöld. Meira get ég ekki sagt fyrr en
að því loknu,“ sagði Sjöfn Sigur-
björnsdóttir.
-sme
af hverju TARKETT
er mest selda
parketið hér á landi:
Tarkett er með nýrri lakkáferð sem
gerir það þrisvar sinnum endingar-
betra en væri það með venjulegu
lakki.
Veitir helmingi betri endingu gegn
rispum en venjulegt lakk.
Gefur skýrari og fallegri áferð.
Tarkett er auðvelt að leggja.
Tarkett er gott í öllu viðhaldi.
Verðið á Tarketti er hagstætt.
Ef þú vilt gott parket veldu þá Tarkett.
HARÐVIÐARVAL
H ARÐVIÐAR V AL HF.,
KRÓKHÁLSI4,110 RVÍK. SÍMI671010.
SEX ÁSTÆÐUR
FANTA-
SUÐRÆNAR, SVALANDIAPPELSÍNUR í HVERJUM SOPA