Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Síða 13
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
13
Utlönd
Gula pressan í Ameríku
Elvis var sagður á lifi i World Weekly News en skömmu síðar framdi hann
sjálfsmorð á forsiðu The Globe.
„Skotbardagi á milli geimvera í
Perú“, „Sjáandi gerir við bíla með
einni snertingu“, „Elvis Presley er á
lífi“. Þessar fyrirsagnir eru á fréttum
í blððum bandarísku gulu pressunn-
ar, en það er samheiti á dagblöðum
og tímaritum sem láta sig sannleik-
ann ekki miklu skipta.
Gula pressan selur um 50 milljónir
eintaka og meðal annars má kaupa
útgáfur cif svona blöðum á íslandi.
Blaðið World Weekly News sagði
frá því nýlfega að „fulltrúar frá 60
plánetum koma til jarðar bráðlega
til að ræða viðskiptasamninga við
jarðarbúa". í blaðinu er viðtal við
svissneskan stjarnfræðing sem seg-
ist hafa fengiö heimsókn frá furðu-
veru úr öðrum heimi. Furðuveran lét
stjarnfræðinginn fá silfraða plötu
þar sem á stóð væntanlegur komu-
dagur viðskiptafulltrúanna frá plán-
etunum 60. „Ég get ekki sagt ná-
kvæmlega frá atvikinu en um hitt
get ég fullvissað ykkur aö þetta var
háþróuð furðuvera sem ég talaði
við,“ segir sá svissneski.
„Vitanlega tortryggjum viö sumar
fréttirnar,“ segir ritstjóri World
Weekly News, Eddie Clontz, við
fréttamann Reuters-fréttastofunnar.
„En við erum ekki það tortryggnir
að við hættum á að missa af góðri
frétt, sérstaklega ekki ef fréttin gæti
ekki skaðað heilsu nokkurs manns,“
bætir Clontz viö.
Lesendur gulu pressunnar fá
ómælda skammta af fréttum sem
sjaldnast birtast í venjulegum fjöl-
miðlum. Fréttir af geimverum, fljúg-
andi furðuhlutum og lífi eftir dauð-
ann, djöfladýrkun og kynskiptum á
skurðarborðinu.
„Við sögðum nýlega frá því að höf-
uð eðlisfræðings hefði sprungið í loft
upp og að tvær sprengjuflugvélar úr
síðari heimsstyijöld hefðu lent á
tunglinu, þetta voru sniðugar frétt-
ir,“ segir Clontz ritstjóri.
„Ég á ekki von á því að stór hópur
lesenda trúi á sannleiksgildi frétt-
anna okkar,“ segir Mike Nevard sem
er framkvæmdastjóri fyrir þrjár út-
gáfur gulu pressunnar; The Sun, The
Globe og National Examiner.
„Það er tíska núna að kaupa þessi
blöð. Fólk spyr hversu langt þeir
gangi þessa vikuna." segir Nevard.
Clontz er aftur á móti þeirrar skoð-
unar að flestir lesenda vilji trúa frétt-
unum.
„Fólk vill gjaman trúa því að það
sé eitthvaö annað en tóm þarna úti
í heimi. Því hrýs hugur við hugsun-
inni að tilverunni sé lokið eftir þessa
jarðvist. Þess vegna verða lesendur
ánægöir þegar við segjum frá manni
sem fór til himna í þrjá mánuði, kom
aftur til jarðar og segir himnavistina
prýðilega," er álit Clontz.
Að sögn Clontz á gula pressan ræt-
ur sínar að rekja til ódýrra skáld-
sagna sem komu út um síöustu alda-
mót í Bandaríkjunum. Bresk slúður-
blöð þróuðu hugmyndina og endur-
bættu. Frá Bretlandi kemur bók-
menntagreinin aftur til Bandaríkj-
anna og, eins og stundum áður, bæta
Ameríkanar um betur og ýkja enn
meira.
Nevard nefnir sem dæmi aö ein
útgáfan, The Sun, sé með fastan dálk
þar sem lesendum er gefmn kostur
á að fá svör við sínum vandamálum
að handan.
„Við færum fólki þaö sem það vill.
Fólk vill lesa um geimálfa sem geta
jarðneskum konum börn, um sirkus-
dverg sem skolaðist niður klósettið
og fleira í sama dúr,“ slær Nevard
föstu.
Nýlega var Elvis heitinn Presley í
fréttum gulu pressunnar. „Við riðum
á vaðið með fréttir um að Elvis væri
á lífi og seldum ekki ófá eintök út á
það,“ segir Clontz hróðugur. Trúir
Clontz þvi sjálfur að Elvis sé á lífi?
„Ég veit það ekki, það gæti svo sem
verið. Mergurinn málsins er sá að
við skrifum fréttir sem fá fólk til að
hugsa Nei, þetta er ekki satt. Eða
hvað?“ Reuter
LOKSINS ERU DÖMUJAKKARNIR/
FRAKKARNIR FRÁ LUHTA KOMNIR
Ármúla 40, Reykjavík, sími 8355$
Eiðistorgi 11, Seltjarnarnesi, 2. hæð, sími 611055.
BSS
Tökum til dæmis System 1, sem er árgerð ’89
frá PIONEER
Magnari 2x50W • Hálfsjálfvirkur plötuspilari • Stafrænt útvarp
m/24 stöðva minni • Tónjafnari 2x5 banda • Tvöfalt segulband
(Annað „Auto reverse") • Surround System • Timer (klukka/vekj-
ari) • Hátalarar 100 W • Þráðlaus fjarstýring •
System 1 Verð kr. 38.685,-
stgr. án geislaspilara
SYNISHORN UR VERÐLISTA
Verð stgr.:
PIONEER A 443 magnari (2x100 W).................20.663,-
PIONEER A 333 magnari (2x72 W)..................16.407,-
PIONEERF 443 útvarp, stafrænt m/24 stöðva minni....l2.640,-
PIONEER CT223 segulband, einfalt................12.999,-
PIONEER PL223 plötuspilari, hálfsjálfvirkur.....13.907,-
PIONEER CS590 hátalarar (70 W)..............Parið 9.682,-
PIONEER CS 990 hátalarar (190 W) .........Parið 18.624,-
fl,J)r»IOI\ieŒR
I HEIL 25 AR HOFUM VIÐ SELT HIN
HEIMSÞEKKTU PIONEER HLJÓMTÆKI HÉR Á LANDI,
OG NÚ BJÓÐUM VIÐ ÁRGERÐ ’89 Á ALLSENDIS
FRÁBÆRU VERÐI!!!
PIONEER hljómstæðurnar hafa notið mikilla vinsælda undanfarinn aldarfjórðung vegna mikilla
gæða, klassískrar hönnunar og ótrúlegrar endingar.
Sjón er sögu ríkari,
VERIÐ VELKOMIN
HLJOMBÆR
—"■w*muííbb
cBHBP
COpmjmccjj
II
HUÐM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGOTU 103
Sími 25999, 8 línur
Opið laugardaga
frá kl. 10 til 14.