Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Síða 15
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
15
Fréttir
Anton Bjarnason flutti fyrirlestur um ratleikinn. OV-mynd Róbert.
Kennaraþing
á Hellissandi
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Föstudaginn 4. nóvember sl. söfn-
uöust saman á Hellissandi u.þ.b. 60
kennarar. Tilgangurinn var sameig-
inlegur kennarafundur aUra skóla á
norðanverðu Snæfellsnesi. Kennara-
fundur sem þessi er haldinn einu
sinni á ári.
Fundurinn byijaði á því að Anton
Bjarnason, íþróttakennari frá
Reykjavík, kynnti ratleik, gildi hans
í námi og leik. Eftir mjög góða kynn-
ingu fóru svo kennarar í ratleik og
sáust þeir á hraðferð um allan bæ-
inn, heimamönnum til mikillar
ánægju.
Eftir hádegið voru síðan fagfundir
og ræddu þá saman þeir kennarar
sem eru að vinna að svipuðum verk-
efnum. Þetta eru hinir gagnlegustu
fundir, jafnt fyrir re'ynda sem
óreynda kennara.
Sameiginlegt borðhald var síðan í
lokin í Félagsheimilinu Röst. Eftir
matinn og svolítið rabb héldu kenn-
arar heim á leið.
Skólastjóri grunnskólans á Helhs-
sandi er Hákon Erlendsson.
Þingeyri:
Nýtt félag stofnað um Framnes ÍS
Siguijón J. Sigurösson, DV, Vestfjöröum:
líf og dauða sé að tefla fyrir fyrirtæk-
ið í heild,“ sagði Hallgrímur.
Sauðárkrókun
Hugmyndir
W W
I |B
uhh oicii
suðurhafsfiska
ÞórhaDur Asmundsson, DV, Sauðárkióki:
Fram til þessa hefur fiskeldi hér
á landi miðast eingöngu við lax-
fiska en svo gæti farið að breyting
yrði þar á áður en langt um liöur
ef hugmyndir um eldi á mun verð-
mætari tegundum, suðurhafsfisk-
um, svonefndum gullbrama og
vartara, ná fram að ganga. Það er
Guömundur Öm Ingólfsson sem
hyggur á þessa starfsemi á Sauðár-
króki. Byggöastofnun tók jákvætt
í umsókn hans um undirbúnings-
styrk fyrir uppsetningu seiðaeldis-
stöðvar og afgreiddi hana með því
aö heita liðsinni sínufái hann fieiri
aðila til samstarfs.
Guðmundur Örn lauk fyrir tæpu
ári námi í lífirasði við Kaupmanna-
hafnarháskóla. Síöustu þrjú árin
vann hann að lokaverkefni sínu í
dönsku fiskeldisstöðinni D.A.I.,
sem tengist rannsóknum á fæðun-
árai og vexti hjá seiðum gullbra-
mans, en hann vann einnig við
sandhverfu og vartaraseiöi i
dönsku stööinni.
Seiðaeldi hjá sjávarfiskum krefst
ræktunar lifandi fóðurs, smásærra
þöranga, sem mjög heftir fleygt
íram síðustu árin. D.A.I. var á sín-
um tíma brautryöjandi í eldi áls viö
25‘C, en suðurhafstegundimar
krefiast svipaðs eldishita og áll. Til
að hægt sé að ala fisk í vatni svo
frábrugönu náttúrlegu hitastigi
landsins eru notuö endumýtingar-
kerfi þar sem vatninu er dælt gegn-
um hreinsibúnað og það síöan end-
urnýtt.
í Danmörku er 90% endumýting
algengust og í sliku kerfi kostar um
1 milljón d.kr. að ala 25 tonn af áli
á ári. Liggur helmingur þess kostn-
aðar í lífhreinsi vatnsins. Guð-
mundur telur endurnýtingargráðu
hér verða mun lægri, eða 50%, sem
þýði lækkun fjármagnskostnaðar.
Hingað til hefur ekki þótt taka því
að rækta lax í endumýtingarkerfi
hér á landi vegna þess að markaðs-
verö hans hefur verið of lágt. Öll
framansögð atriði telur Guömund-
ur sig þekkja mjög vel, og með því
að ná tökum á endumýtingarkerf-
um og lifandi fóðrun hafi íslending-
ar höndlað þekkingu á öllum þeim
stigum sem notuð em til fiskeldis
í dag.
Guömundur segir að áætlanir
sínar byggist á seiöaeldi til að byrja
með, tilraunaeldi í hagkvæmri
stærðareiningu. Starfsemin mundi
byija eingöngu á seiðaeldi og síöan
kæmi matfiskeldið seinna. Mark-
aðir fyrir hvort tveggja hafa verið
mjög góðir. „Það vom mér auðvit-
að mikil vonbrigði þegar boran eft-
ir jarðsjó á Borgarsandi bar ekki
árangur og þaö þýöir auðvitað að
sjótaka verður dýrari. En hér er
alltént nóg af heitu vatni. Spurn-
ingin er hvað vilja menn, telja þeir
þörf fyrir nýja atvinnugrein hér og
vilja þeir léggja henni lið,“ sagði
Guðmundur Ingólfsson.
Stjórnir Utgerðarfélags Bílddæl-
inga og Fáfnis hf. á Þingeyri ræða
nú stofnun nýs hlutafélags um út-
gerð togarans Framness ÍS 708 frá
Þingeyri. Eignahlutföll hafa ekki
endanlega verið ákveðin en líklegt
er aö Fáfnir hf. muni eiga 52% og
Útgerðarfélagið 48%.
Að sögn Jakobs Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Fiskvinnslunnar
á Bíldudal, verður hlutafélagið stofn-
að fyrir áramót og þá mun Framnes
landa jafnt á Þingeyri og Bíldudal.
„Við höfum verið í vinsamlegum
viðræðum viö Bílddælinga um þessi
mál en það er ljóst að ekki verður
gengið frá neinu fyrr en okkur berst
svar við umsókn okkar til atvinnu-
tryggingarsjóðs um fyrirgreiðslu til
Kaupfélags Dýrfirðinga,“ sagði Hall-
grímur Sveinsson, stjórnarformaður
Fáfnis, í samtali við DV.
„Ef af þessu verður mun togarinn
verða mannaður Þingeyringum og
framkvæmdastjórn verður óbreytt
frá því sem verið hefur. Okkar óska-
staða er auðvitað sú að þurfa ekki
að selja eignir en eins og staðan er í
dag er nokkuð óljóst um framhaldið.
Það verður hvorki seldur heill né
hálfur togari frá Þingeyri nema um
JÖFUR - ÞEGAR
ÞÚ KAUPIR
BÍL
JÖFUR HF
405 GR OG SRI
w
A
RÝMINGARSALA
Við rýmum fyrir 1989 árgerðinni af Peuge-
ot 405, lækkum verðið og bjóðum einstak-
lega góð greiðslukjör - 25% ÚTBORGUN
OG EFTIRSTÖÐVAR TIL 18 MÁNAÐA Á
ÓVERÐTRYGGÐU SKULDABRÉFI.
Staðgr.verð ' Afborg.verð
PEUGEOT 405 GR 1900 ’88 795.000,- 858.600,-
VERÐ1989 ÁRGERÐAR 895.500,- 967.100,-
Búnaður: 110 ha vél, 5 gíra skipting, vökvastýri, veltistýri,
rafhitaðir útispeglar, rafhituð framsæti o.fl.
Staðgr.verð Afborg.verð
PEUGEOT 405 SR11900’88 895.000,- 966.600,-
VERÐ1989 ÁRGERÐAR 1.014.700,- 1.095.900,-
Búnaöur: 125 ha vél með beinni innspýtingu eldsneytis á vél. 5
gíra skipting, vökvastýri, rafdrifnar rúður, fjarstýrðar miðlæsingar
(central), litað gler, rafhitaðir útispeglar. rafhituö framsæti o.fl.
ÁRGERÐ 1988
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
OPIÐ 9-18 VIRKA DAGA
OG 13-17 LAUGARDAGA