Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Qupperneq 16
16
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
Spumingin
Hverju spáir þú um gengi
íslensku sveitarinnar á
ólympíumótinu í skák?
Hafsteinn Lárusson framkvæmda-
stjóri: Þeir hafa staöiö sig vel aö und-
anförnu og ég spái þeim 2.-3. sæti.
Einar Hrólfsson sjómaður: Ég vil
engu spá - ég fylgist ekkert meö þess-
um skákfréttum.
Ómar Hannesson verktaki: Ég tel
góðar líkur á aö þeir lendi í svona
4.-5. sæti.
Ari Jónsson nemi: Ég er bjartsýnn -
tel aö þeir veröi í fyrsta sæti.
Anna Pálsdóttir verslunarmaður:
Ætli þeir veröi ekki í þriðja sæti -
annars veit ég ekkert um þetta.
Ólafur Sæmundsson sjómaður: Ég
hef nú ekkert getað fylgst með þessu
en ætli þeir verði ekki í 5. sæti.
Lesendur
. .og loks fer húsfreyjan að taka eftir fatnaði sem hún kannast ekkert
við í þvottakörfunni," segir m.a. i bréfinu.
Áskorun Kvennalistans til karlanna:
Unglingar axli
líka ábyrgð
Húsfreyja skrifar:
1 ályktun Kvennahstans til full-
trúa á ASÍ þingi kemur fram að
sífellt sé verið aö gera kröfur til
kvenna og löngu timabært sé aö
gera kröfur tii karia um að þeir
taki jafnan þátt í umönnun bama
og þeirri vinnu sem fylgir því aö
reka heimili.
Ég er í hópi kvenna sem ræddi
þessa ályktun. Við erum sammála
um að aldrei hafa konur veriö jafn-
þrælkaöar andlega og líkamlega
síöustu 40 ár og nú. En við kom-
umst einnig aö raun um aö nokkuð
vantaöi á þessa ályktun. En þaö ber
ef til vill keim af því að konurnar
í Kvennalistanum eru margar
hverjar ungar og með lítil börn. -
Okkur finnst ekki nóg aö gerðar
séu kröfur til heimilisfeðra. Viö
viljum aö unglingar skoöi einnig
sinn gang.
í öllum þeim tímaskorti, sem
hrjáir foreldra (og þá einkum for-
eldra eldri barna), hefur gleymst
aö ala börnin upp í samhjálp og
samábyrgö. Þaö er ekki nóg aö
heimilisfaðirinn taki til hendi.
Börn og tengdaböm eiga að gera
það líka.
Þá kem égað viðkvæmu málisem
tengist tilvonandi tengdabörnum
(sem oft eru bara tilvonandi en
veröa ekki fullgild). Þess eru mörg
dæmi að foreldrar uppgötva einn
góðan veðurdag aö bæst hefur í
hópinn nýr fjölskyldumeðlimur,
meölimur sem þarf að borða, láta
þvo af sér og taka til eftir. - Allt
hefur þetta gerst án þess aö viö-
komandi hafi í raun verið boðið
upp á slíkt.
Þróunin er yfirleitt þessi: Fyrst
er þetta bara næturgestur, síöan
gestur í morgunmat, þá kvöldmat
og loks fer húsfreyjan að taka eftir
fatnaði sem hún kannast ekkert við
í þvottakörfunni. Semsé, „stóru
börnin“ og tengdabömin eru líka
baggi á húsmæörum sem hafa ær-
inn starfa fyrir. Þetta er aðeins viö-
bót viö gagnmerka ályktun
Kvennalistans.
Miklll er manndómur forstjórans:
„Mér er kennt
um allt saman!“
áskilursér rétttil
að stytta bréf og
símtöl sembirt-
ast á lesendasíð-
um blaðsins
Þorsteinn hringdi:
í Þjóðviljanum las ég einhveija þá
einkennilegustu yfirlýsingu for-
stjóra íslensks fyrirtækis sem ég hef
lengi séö á prenti. Þarna var verið
aö tala um byggingarframkvæmdir
Sambands ísl. samvinnufélaga á
Kirkjusandi og að vinna við breyt-
ingar á húsnæði Sambandsins hefði
farið 20% fram úr áætlun.
í viötali blaðsins við forstjóra Sam-
bandsins kemur fram að hann treyst-
ir íslenskum verkfræöingum ekki
um of og ekki til aö gera kostnaöará-
Kristján hríngdi:
Kunningi minn, sem var að fara í
dagsferö til útlanda, fór í banka til
að ná sér í gjaldeyri til ferðarinnar.
Hann fékk þann gjaldeyri sem hon-
um bar og farmiði hans var stimplað-
ur samkvæmt því eins og reglur
segja til um. Þennan gjaldeyri tók
hann í feröatékkum, eins og hann
sagöist vera vanur að gera.
Hann spurðist síðan fyrir um hvort
ætlanir sem standist. Síöan kemur
klásúlan sem mér finnst marka tíma-
mót í ummælum íslenskra forstjóra:
„Við leituðum til sérfróöra manna
um þetta og svo kemur í ljós aö út-
reikningar þeirra standast ekki og
mér er kennt um allt saman!“ - Ég
tek fram aö ég tek þetta orðrétt upp
úrtilvitnun Þjóöviljans hinn 16. þ.m.
Ég verö að segja eins og er aö ég
hef nú ekki fyrr heyrt aumingjalegri
ummæli eins ráöamanns hjá fyrir-
tæki hér á landi og hefur þó stundum
veriö af ýmsu aö taka, eins og t.d.
hann gæti ekki fengið keypt nokkur
sterlingspund aukalega til að hafa
með sér til að nota við komu erlend-
is, svo sem vegna leigubílakostnaðar
o.þ.h. - Svariö var nei. Reglumar
segöu aö hann mætti ekki kaupa
gjaldeyri umfram það sem hann
heföi fengið út á farseðil sinn.
Hann sagðist ekki hafa haft fleiri
orð um það aö sinni enda afgreiðslu-
fólk bankans aöeins aö sinna sínum
þegar forstjórar fiskvinnslufyrir-
tækjanna eru að barma sér vegna
þess að hiö opinbera „skapi þeim
ekki rekstrargrundvöll" eins og þeir
orða þaö svo snyrtilega.
En ef forstjóri Sambandsins heldur
að ekki eigi aö kenna honum um
misfellur og mistök, sem í fyrirtæki
hans eru gerð, þá fer hann villur
vegar. Ábyrgöin er alltaf þess sem
er í forsvari - bæði hjá „kallinum í
brúnni" og „kallinum á toppnum".
Háu launin eiga einmitt m.a. að
„dekka ábyrgðina". Ekki satt?
skyldustörfum og fara eftir settum
reglum. Hann sagðist hins vegar vera
sár yfir því óréttlæti sem hann kall-
aði svo að verá meinað að kaupa ein-
hveija upphæö gjaldeyris gegn staö-
greiðslu í banka hér heima en þeir
sem væru handhafar greiöslukorta
gætu svo keypt gjaldeyri út á þau
erlendis - og þaö með gjaldfresti!
„Þetta,“ sagði hann, „er óréttlæti í
gjaldeyrissölu."
Endur-
skoðun
m m w
a sjo-
manna-
lögum
Krístján S. Kjartansson skrifar:
Ég vil leggja til aö eftirfarandi
breytingar verði gerðar til hagsbóta
fyrir sjómenn og aðra þá sem eiga
afkomu sína undir sjómennsku eöa
fannennsku.
í fyrsta lagi að skipstjórar og aðrir
yfirmenn á skipum skuli hlíta al-
mennri heilbrigðis- og geöheilbrigö-
isskoðun einu sinni á ári og oftar ef
þurfa þykir.
í öðru lagi að allir skipstjórar og
yfirmenn skuli skyldugir að ganga
gegnum námskeið og verklega þjálf-
un í björgun manna frá björgunar-
þyrlu. Þjálfun í köfun ætti einnig að
vera skyldugrein og löglegur köfun-
arútbúnaöur ætti einnig að vera til
staðar í hveiju skipi að kröfu Sigl-
ingamálastofnunar og Öryggiseftir-
lits.
Með tilkomu aukins gæðamats og
fiskmeðferðar þarf aö koma á sér-
stöku greiðslukerfi vegna löndunar
úr öllum tegundum fiskiskipa og sjó-
menn ættu að njóta einhverra „fjar-
veruuppbóta" vegna langra fjarvista.
Að lokum. Vinnuverndarlög skuli
framkvæmd og gerð að lögum. Ráð-
gefandi aðilar verði: Heilbrigðiseftir-
lit, Öryggiseftirlit, Siglingamála-
stofnun, Slysvamafélag íslands, Vél-
stjórafélagið, sjómannafélögin og
Fiskifélag íslands.
Sumir „jafnari en aðrir“ varðandi gjaldeyrissölu til ferðamanna?
Óréttiæti í gjaldeyrissölu