Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
37
Fréttir
Isafjörður:
Líkamsárásum hefur
stórfjölgað á árinu
í 10-11 ár þá tek ég helst eftir því í
ár aö líkamsársásarmálum hefur
stórQölgað en þau eru um 20 núna,“
sagði Jónas H. Eyjólfsson yfirlög-
regluþjónn í samtali við DV.
Þjófnaðir voru 41 talsins þessa 10
mánuði, eldsvoðar 11 og skjalaföls-
unar- og svikamál 10. Fyrir meinta
ölvun við akstur voru 55 aðilar kærð-
ir og er það svipaður fjöldi og síðustu
ár. Sjötiu og fimm karlar voru settir
í fangahúsið á ísafirði en aðeins sex
konur. Hvorki meira né minna en 71
skemmdarverk var framið.
Umferðarlagabrot eru stór hluti
þessara 1000 mála, sem hafa komið
upp á árinu, eða 434. Stór hluti þeirra
brota er hraðakstur að sögn Jónasar.
Umferðarslys og óhöpp tengd um-
ferðinni voru 110. „Það vekur at-
hygli hversu mikill fiöldi þetta er og
það þrátt fyrir að menn gera oftast
upp málin sín á rnilli með tjónatil-
kynningum,“ sagði Jónas.
Hjá rannsóknardeild lögreglunnar
komu 173 mál inn til rannsóknar
þessa tíu mánuði.
Sigurjón J. Sigurdsson, DV, fsafiröi:
---------------------------------------7--
Lögreglan á Isafirði og í Isafiarðar-
sýslu hefur fengið 1082 mál til með-
ferðar a timabilinu fra aramótum til
októberloka og upplýst öll nema 32
sem eru i vinnslu.
„Eftir að hafa starfað í lögreglunni
71 skemmdarverk hefur verið framið það sem af er árinu á Isafirði.
DV-mynd BB, ísafirði
Egilsstaöir:
Eitt útkall hjá
slökkviliðinu á árinu
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum:
Þau ánægjulegu tíðindi gerðust að
slökkviliðið á Héraöi hefur aðeins
einu sinni verið kallað út síðan í jan-
úar sl. Þá kviknaði í vörubíl við sorp-
brennsluna. Slökkviliðsstjóri, Sigfús
Árnason, sagði að vonandi yrði fram-
hald á þessu. Undanfarin ár hafa
útköll verið 7-10 á ári.
„Þetta er allt tilviljunum háð,“
sagði Sigfús þegar hann var spurður
hvort hér væri um framtíðarþróun
að ræöa.
Hann hefur unnið mikið forvarnar-
starf- heimsækir alla skóla á hveriu
ári og kennir nemendum að fara með
slökkvitæki. Þá fer hann á alla
sveitabæi að athuga ástand slökkvi-
tækja og fleira. „Mér þykir best ef
ég er beðinn að koma,“ sagði hann.
Slökkvistöðin á Egilsstöðum er til
húsa í tveim litlum skúrum, rétt
nógu stórum til að hægt sé að
smeygja slökkvibílunum þar inn.
Þeir eru tveir og komnir nokkuð til
ára sinna, módel 1952 og 1953. En
veldur hver á heldur.
Nú á að hefiast handa við byggingu
á nýrri slökkvistöð, vonandi á næsta
ári, sagði Sigfús, og er áformað að
hún verði sambyggð fyrirhuguðu
áhaldahúsi Egilsstaðabæjar. Þá hafa
einnig komið fram óskir um að
kaupa nýjan slökkvibíl.
Sigfús Árnason slökkviliðsstjóri við annan slökkviliðsbílinn.
DV-mynd: Sigrún
Selfoss:
Upplyfting eldri
borgara í Iðnó
- 95 sáu Sveitasinfóníuna hans Ragnars Amalds
Regina Thorarensen, DV, Selfoesi:
Síðastliöinn fimmtudag fóru 95
eldri borgarar á Selfossi aö sjá
Sveitasinfóníuna hans Ragnars
Amalds hjá Leikfélagi Reykjavíkur
í Iðnó við Tjörnina. Það var sann-
kölluö upplyfting aö sjá þetta leik-
rit, - ógleymanleg kvöldstund. Allir
heyr öu svo vel í hinu litla leikhúsi.
Leikarar kunnu vel til sinna
verka og betur heföu ráöherrar í
síðustu ríkisstjórn kunnað eins vel
sín verk. Mér fannst Margrét Áka-
dóttir vera frábær í sínu hlutverki.
Hún viidi öllu góðu koma til leiðar
þrátt fyrir óreglu manns síns. Þökk
sé Ragnari Arnalds fyrir snjallt
leikrit og skemmtun, svo og öllum
leikurunum.
Þegar við komum að leikhúsinu
voru hindranir á vegi rútubílanna
en einn fór út og ruddi þeim úr
vegi svo viö komumst alveg að dyr-
um leikhússins. Sérleyfisbifreiðar
Selfoss fluttu okkar frítt fram og
til baka í leikhúsið og eiga þeir
þakkir skildar fyrir.
Munið ÓDÝRA SKÓMARKAÐINN,
Hverfisgötu 89, sími 18199
Kvenkuldaskór frá kr. 1.000,-
STARTARAR Yfirleitt fyrirliggjandi fyrir flestar teg. dísilvéla. i fólksbíla: M. Benz 200, 220, 240, 300. Oidsmobile, GM 6.2, Land <#> C •#
í sendibila: M. Benz 307, 309, kálfa o.fl. í vörubíla & rútur: M. Benz, Volvo, Scania, Man, Bedford, Tradero.1l. i vinnuvélar: Broyt, Caterpillar, Payloader, Clark, Ursus, Ferguson, Zetor, Same, Hyster, Deutz o.fl. í bátavélar: Lister, Volvo Penta, Scania, Cummings, Cat, Ford, Mercruiser o.fl. * w*
Mjög hagstætt verð.
Einnig tilheyrandi varahl., s.s. anker, segulrofar, bendixar o.fl. -iQa
BILARAF HFbj Borgartúni 19 - Sími 24700.
m
HVITLAUKUR
Þýski llja Rogoff hvitlaukurinn er sá besti á
markaðnum enda yfirfullur af vítamínum og
steinefnum. Lifskraftur sjálfrar náttúrunnar.
Alveg lyktar- óg bragðlaus. Mikilvægasta
efnið i góðum hvítlauk heitir allicin og llja
Rogoff. Laukurinn inniheldur meira af þessu
mikilvæga efni en nokkur annar hvítlaukur
á markaðnum. Það er tryggt að í hverjum
100 g séu 440 mcg af allicini. Hinn þekkti
visindamaður á sviði hvítlauksrannsókna,
dr. Jerzy Lutomsky, álitur þennan hvitlauk
bestan þvi hann er ekki unninn viö upphitun
eða kaldgerjun sem hann álítur aö eyöi
mikilvægustu efnum úr hvftlauknum. Það
er allicinið í llja Rogoff hvítlauknum sem
stuðlar að betra blóðrennsli, eðlilegri melt-
ingu og góðum svefni auk þess að vera
bakteriudrepandi. Fæst i Heilsubúðum,
heilsuhillum markaða og mörgum apótek-
um.
BIO SELEI\I UMBOÐIÐ, SÍMI 76610
Rafmagns- og lyftupallar
LEIGA - SALA
Pallar hf.
Vesturvör 7, sími 42322
SÝNINGARPALLUR Á STAÐNUM
Vinnuhæð allt að 13,1 m.
Má nota úti sem inni.
HENTAR VEL FYRIR:
Rafvirkja
Blikksmiði
Gluggaþvott
íþróttahús
Kirkjur
Verksmiðjur
Vörugeymslur
Lelkhús/Skemmtistaði
Stórmarkaði og m. fl.