Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1988, Page 40
40
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1988.
ísafjörður:
Fyrsta heilsu-
stöðin opnuð
Sgurjón J. Sgurösscn, DV, feafixði:
Nýlega opnaði Stefán Dan
Óskarsson og fjölskylda hans
fyrstu heilsustöðina á ísafirði.
Stöðin, sem heitir Stúdíó Dan, hýð-
ur upp á margs konar þjónustu,
t.d. nudd og ljós, nálastungur, æf-
ingabekki, heitan nuddpott og
gufubað.
Auk þess sem að ofan greinir
veröur Stefán með á boðstólum
ýmsar heilsuvörur. Þá veitir hann
fólki aðstoð viö aö megra sig, hann
hjálpar fólki að hætta að reykja og
notar hann nálastungutæki til
þess.
Fjöldi fólks kom í hið nýja heilsu-
stúdíó á opnunardaginn og var al-
menn ánægja hjá fólki með þennan
fyrsta stað sinnar tegundar
ísafiröi.
Stefán Dan Oskarsson, eiginkona hans, Rannveig Hestnes, ásamt dætr-
um á opnunardegi Stúdíó Dan. DV-mynd BB, ísafirði.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði. . .
Michael Douglas
hefur mikinn áhuga á að gera
fallega kvikmynd fyrir börn.
Efniviðurinn er hin hugljúfa saga
um Heiðu litlu eftir Jóhönnu
Spyri. Sagan af Heiðu, Pétri og
afa hefur lengi verið í hávegum
höfð hjá börnum og fullorðnum
og ófáar kvikmyndir verið gerðar
eftir henni. Michael Douglas er
þekktur fyrir allt annað en leik í
barnamyndum enda hafa kvik-
myndir hans víirleitt verið bann-
aðar börnum. En nú hyggst hann
snúa við blaðinu og segir að sag-
an um Heiðu eigi erindi til alls
heimsins.
Michael Jackson
á ekki sjö dagana sæla því hver
ógnin á fætur annarri heltekur
líf hans. Nýlega spurðist að hann
væri á góðri leiö með aö leysast
í sundur og nánast gufa upp.
Hann er því sífellt á varðbergi
gagnvart veirum, sýklum og öðru
smitandi. Fyrir stuttu var hann á
ferð á írlandi og heimsótti helgan
stað þar sem er átrúnaöur á stein
einn. Trúin segir að þennan stein
eigi að kyssa og öölast með því
hamingju. En Michael vildi ekki
leggja svo mikið á sig fyrir ham-
ingjuna og neitaði að koma ná-
lægt þessum steini. Ástæðan var
ótti hans við eyðnismit. írska
þjóðin getur ekki á sér heilli tekið
af móðgun eftir heimsókn Mic-
haels.
Grace Jones
þykir sumum hið huggulegasta
fljóö. Þessi fyrrum fyrirsæta og
núverandi leik- og söngkona er
samt ekki eins hugguleg í um-
gengni og útlitið segir til um. Sög-
ur herma aö henni hafi nýlega
verið kastað út af virðulegu hót-
eli í Los Angeles. Hótelstjórinn
fékk nefnilega kast þegar hann
komst að því að daman hafði nán-
ast gengið berserksgang í íbúð-
inni. Hún hafði í reiði sir.ni brot-
ið einn stól mélinu smærra, brot-
ið rúður í íbúðinni og til að kór-
óna ósköpin skorið í sundur verð-
mætt málverk. Það er víst ekki
nóg að vera ríkur og frægur þegar
aðrir kunna ekki að meta uppá-
tækin.
Guðrún Alda Erlingsdóttir, eiginkona Óðins bakara, í nýju versluninni í
Hafnarstræti. DV-mynd BB
ísafjördur:
Bakarinn flytur um set
Sguijón J. Sgurösson, DV, ísafirði:
Óðinn Geirsson, bakari á ísafirði,
hefur flutt verslun sína úr gamla
Félagsbakaríinu í húsnæði við Hafn-
arstræti 4 þar sem tískuverslunin
Tipp topp var áður til húsa. Óðinn
heldur samt áfram að baka í hinu
gamla húsnæði.
„Maöur verður að vera í hjarta
bæjarins og ég vona að viðskiptin
aukist við þetta,“ sagði Óðinn í sam-
tali við DV. „Ég vona að fastakúnn-
arnir, sem búa nálægt Silfurgötunni,
fyrirgefi mér þetta. Ég kem til með
að hafa einn ofn í nýju vérsluninni
og get þá boðið upp á heit vínarbrauð
og fleira með kaffinu þannig að þá
verður þessi yndislega lykt af nýbök-
uðum brauðum í götunni."
Þess má geta að þetta er ekki fyrsta
bakaríið sem er til húsa i Hafnar-
stræti 4, þar var áður Búbbabakarí,
sem margir muna eflaust eftir, og þar
á undan Ólafsbakarí.
Rómantík í tölvum
Tölvur eru, eins og kunnugt er,
mikil þarfaþing. Þær vinna ólíkleg-
ustu verk og létta mörgum starfið í
amstri dagsins. En nú er hægt að
nota tölvur við að leysa aldagamalt
vandamál - eigum við saman eða
ekki? Við því sem áður hefur þróast
af sjálfu sér er nú hægt að fá svör
strax og því þarf ekki að sóa neinum
tíma í vonlaust samband.
Tölva var notuð til að para saman
nokkra þekkta leikara og skilaöi
furðulegum niðurstöðum. Maður
skyldi ætla að Farah Fawcett yrði
hlessa ef Ryan O’Neal, kærasti henn-
ar til margra ára, labbaði út og til-
kynnti henni í leiðinni að tölva vildi
að hann tæki saman við Joan Coll-
ins. Tölvan er ósveigjanleg og telur
þau tvö geta átt vel saman, bæði
skapmikil og sjálfstæð. Aldursmun-
urinn er ekki mjög mikill, hún er 55
ára og hann 47 ára. Reyndar kemur
fram í ævisögu Joan að þau hafi átt
í stuttu en villtu ástarsambandi fyrir
nokkrum árum.
Tölvan leggur blessun sína yfir
samband Roberts Redford og Soniu
Braga. Robert er 51 árs en Sonia 37
ára og hefur samband þeirra staðið
um nokkum tíma. Ef marka má tölv-
una hafa þau lík áhugamál, bæði
hafa þau mikinn áhuga á málefnum
liðandi stundar og eru fijálslynd. ,
Hins vegar gaf tölvan lítið fyrir
hjónaband Bruce Willis og Demi
Moore og taldi hann betur settan með
Börbru Streisand. Demi Moore ætti
betur við Don Johnson og því leggur
tölvan til að þau skipti innbyrðis.
Ryan O’Neal og Joan Collins yrðu hið fullkomna par.
Bruce Willis ætti að taka upp samband við Börbru Streisand ...
Tölvan ieggur blessun sína yfir samband Roberts Redford og Soniu Braga. ... og eftirláta Don Johnson eiginkonu sína, Demi Moore.