Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 25
somt Magnusi
Cprtansson ogj^g^, tognaRSoa
sfc»S«as-“.
Bnn»g-.V'ttvV'nrtP«
úr hestamonnaiebf
oq biórsöngvarmn
Íansanuw
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
Nýjar plötur
Bubbi Morthens - Serbian Flower:
í slenska broddinn vantar
Fáar íslenskar plötur hafa veriö
jafnlengi í smíðum og þessi íslensk-
ensk-sænska útgáfa af bestu lögum
Bubba Morthens síðustu árin.
Platan var allt að því komin út fyr-
ir tveimur árum en síðan hefur loka-
vinnslu hennar verið frestað marg-
sinnis. Fyrir vikið má segja að hún
hafi orðið betri því sum af bestu lög-
um hennar hefur Bubbi einmitt sam-
ið á þessum tveggja ára biðtíma.
Hér er sem sagt um að ræða útgáfu
sænska hljómplötufyrirtækisins
Mistlur á úrvali af lögum Bubba og
eru allir textar á ensku. Stefnan er
því greinilega sett á alþjóðamarkað.
Og vissulega á Bubbi jafnmikið er-
indi á alþjóðamarkað og hver annar
og kannski meira því eins og þessi
plata ber með sér og við íslendingar
vissum fyrir löngu þá eru jafnfram-
bærOegir lagasmiðir og Bubbi ekki á
hverju strái. Sem slíkur er Bubbi í
fremstu röö hvar sem er í heiminum
en engu að síður er eins og eitthvaö
vanti á þessari plötu.
Og það sem vantar að mínu mati
er krafturinn og broddurinn í Bubba
en hann hefur einmitt verið fólginn
í textum hans. Og beittum textum
hans á íslensku tekst ekki að koma
til skila á ensku enda líklega aldrei
ætlunin. Fyrir vikið verður Bubbi á
ensku eins og hver annar réttur og
sléttur góðpoppari en ekki sá reiði
og gagnrýni ungi maður sem við
þekkjum.
Reiðir og gagnrýnir ungir menn
eru enda fyrir löngu dottnir úr tísku
í poppheiminum og vísasta leiðin til
vinsælda er að segja sem minnst í
textum sínum nema helst eitthvert
orðagjálfur um ást.
En þessir vankantar á plötunni eru
nokkuð sem íslendingar einir fmna
fyrir að ég held og í heild er þessi
plata enn ein skrautfjöðrin í hatt
Bubba og eru æði margar þar fyrir.
-SþS-
Ellý Vilhjálms - Jólafrí
Smælki
Vel heppnuð jólaplata
Ellý Vilhjálms er mjög góð dægur-
lagasöngkona. Það hefur hún marg-
oft sannað. Falleg og þróttmikil rödd
hennar hefur glatt eyru unnenda
léttrar tónlistar í þrjá áratugi. Plötur
með henni eru farnar að koma til ára
sinna en hljómá samt ótrúlega oft á
öldum ljósvakanna.
Eftir langt frí frá söng opinberlega
kom hún fram snemma á þessu ári
á leik- og söngsýningu á Hótel íslandi
og sló í gegn. Það var því kominn
tími til að rödd hennar heyröist aftur
á plötu og Jólafrí veldur ábyggilega
engum hlustanda vonbrigðum.
heyrast jólabjöllur, sem er við
skemmtilegan texta Ólafs Gauks.
Önnur erlend lög eru minna þekkt.
Þegar ástarstjarnan skín er að vísu
klassískt dægurlag en ekki beinlínis
jólalag.
Jólafrí er virkilega vel heppnuð
plata sem er bæði létt og hátíðleg.
Sumir munu sjálfsagt sakna aö ekki
skuli vera meira af þekktum jólalög-
um. Öllum lögum þarf að venjast og
það er ekki erfitt að venjast dægur-
lögunum sem prýða Jólafrí. Sérstak-
lega þegar jafnfrábær söngkona og
Ellý Vilhjálms flytur þau.
-HK
Heil og sæl! Þau sorgartíðindi
bárust í vikunni að hinn gam-
al- og góðkunni söngvari og
rokkari Roy Orbison hefði lát-
ist af hjartaslagi. Orbison,
sem var á 53. aldursári, sló
í gegn i lok sjötta áratugarins
og átti sitt blómaskeið á árun-
um 1960 til 1964. Meðal
þekktustu laga Orbisons má
nefna Only the Lonley, Runn-
ing Scared og Oh Pretty Wo-
man. Siðast heyrðist til Orbi-
sonsá opinberum vettvangi á
nýútkominni plötu, Travelling
Wilburys, þar sem þeir Ge-
orge Harrison, Bob Dylan,
Jeff Lynne og Tom Petty stilla
saman strengi sina auk Orbi-
sons.... Tom Wits, hinn
rámi söngvari og píanóleikari,
á í sérkennilegum málaferlum
þessa dagana. Hann telur að
fyrirtæki eitt, sem framleiðir
kartöfluflögur, hafi stolið og
stælt rödd sína i auglýsingu
fyrir snakkið. Auk venjulegra
skaðabóta krefst Waits þess
að allur ágóði, sem rekja má
til snakk-auglýsinganna,
renni tilsín... U2voruað
senda frá sér nýja smáskífu
Bubbi Mortens.
ntafsson fcr a k0**?”*
Magnus hliómplotu.
á stórskemm Dreifing:
Steinar
Nýbýlavegi 4, símí 46799
Bono
með lagi af plötunni Rattle
and Hum, laginu Angel of
Harlem, en á bakhlið smáskif-
unnar er nýtt lag frá U2, A
Room atthe Heartbreak Hot-
el. Á12 tommu útgáfunni er
að auki að finna hljómleika-
útgáfu af laginu Love Rescue.
Me en í því lagi aðstoða Keith
Richards við gítarleik og
Ziggy Marley & The Melody
Makers viðsöng... Ailir
helstu rapparar í Bandaríkjun-
um ætla að taka höndum
saman á næstunni og gefa
út plötu til styrktar baráttunni
gegn ofbeldi i tónleikasölum
vestra. Ástæðan fyrir því að
rapparar taka sig sérstaklega
saman af þessu tilefni er sú
að rapptónleikar hafa haft á
sér einkar slæmt orð vegna
ofbeldissinnaðra tónleika-
gesta. Til marks um góðan
hug í þessu máli verður plata
rapparanna gefin út 16. janúar
næstkomandi en það er fæð-
ingardagur Martins Luthers
King... Zak Starkey, sonur
Ringos nokkurs Starr, hefur
að undanförnu verið á tón-
leikaferð með lcicle Works
og þanið húðir. Hann er þó
alls ekki genginn til liðs við
hljómsveitina heldur er þetta
bara vinargreiði... Gott í
bili... -SþS-
Ellý Vilhjálms.
Nýjar
plötur
Blandað er saman nýjum og göml-
um lögum og það er sama hvar borið
er niður, Ellý gæðir lögin lífi sem
aðeins góðir söngvarar geta gert.
íslensku lögin eru öll ný. Magnús
Kjartansson hefur samið tvö þeirra:
Það eru að koma jól og Jólafrí. Þeir
eiga svo sitt lagið hver, Vilhjálmur
Guðjónsson, Geirmundur Valtýsson
og Valgeir Skagtjörð.
Það er sameiginlegt með þessum
lögum að þau eru öll í rólegri kantin-
um og eru stefin nokkuð góö Qg auð-
lærð. Útsetningar Magnúsar Kjart-
anssonar eru vel af hendi leystar.
Ekki ofhlaðnar og passaö er upp á
aö rödd Ellýjar Vilhjálms njóti sín.
Það er ekki laust við að lögin virki
betri en þau eru í raun í meðfórum
hennar.
Aðeins eitt lag er á Jólafríi sem
getur kallast klassískt jólalag, Það