Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 27
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
27
Hinhliðin
Leiðinlegast af öllu finnst Helga Péturssyni að rífast við fólk.
er uppáhalds-
skemmtistaðminn
- segir Helgi Pé fréttamaöur í Hinni hliðinni
Helgi Pétursson er horflnn af
skjánum hjá Stöð 2 í bili að minnsta
kosti. Hann er þó ekki kominn út
úr húsi eins og félagi hans Ómar
Valdimarsson eftir að upp úr sauð
á fréttastofu stöövarinnar fyrir
skömmu.
Helgi vinnur nú að skipulagn-
ingu á nýjum þætti sem á að vera
um helgar á Stöð 2 eftir áramótin.
Auk fjölmiðlastarfanna tekur Helgi
enn lagið með gömlu félögunum
úr Ríó tríóinu og þeir hljóma á
plötu nú fyrir jólin með öðrum.
Helgi tók ljúflega þeirri bón að
vera í Hinni hhðinni og fara svör
hans hér á eftir:
Fullt nafn: Helgi Pétursson.
Fæðingardagur og ár: Ég verð fer-
tugur á næsta ári.
Maki: Birna Pálsdóttir.
Börn: Bryndís, Pétur, Heiða Kristín
og Snorri.
Bifreið: Opel Kadett.
Starf: Ég vinn við sjónvarp og
stundum í músík.
Laun: Duga ekki.
Áhugamál: Samverustundir með
fjölskyldunni.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottóinu? Tvær minnir mig.
Hvað flnnst þér skemmtilegast að
gera? Elda mat ofan í fólkið mitt
og sjá nýja staði í veröldinni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Rífast við fólk. Geri eins lítiö
af því og mér er framast unnt.
Uppáhaldsmatur: Kalkún sem
Birna matreiðir.
Uppáhaldsdrykkur: „En lille én“
með tengdapabba.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Er Ólafur H. Jóns-
son ekki ennþá í vörninni.
Uppáhaldstímarit: Time.
Fegursta kona sem þú hefur séð
fyrir utan konuna þína? Fegurð er
svo afstæð.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni: Þetta eru allt tómir snillingar.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Ted Koppel (bandarískur
sjónvarpsmaður).
Uppáhaldsleikari: Jack Nichols-
son.
Uppáhaldsleikkona: Lilja Þóris-
dóttir.
Uppáhaldssöngvari: Ágúst Atlason
þegar hann er í stuði.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Giss-
ur Pétursson, formaður Sambands
ungra framsóknarmanna.
Hlynntur eða andvígur hvalveið-
um íslendinga: Það stríð tapaðist
fyrir fimm árum að minnsta kosti.
Hlynntur eða andvígur bjórnum:
Hlynntur.
Hlynntur eða andvígur veru varn-
arliðsins hér á landi: Við megum
ekki gleyma því að þeir eru gestir
hérna.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Gufan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ólafur
Þórðarson þegar hann talar við
börn utan af landi.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Jafnmikið/lítið á báð-
ar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Páll
Magnússon.
Uppáhaldsskemmtistaður: Stöð 2.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Breiða-
blik.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Halda vitinu.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Heimsótti föður minn og bróður og
vinafólkáNorðurlöndum. -GK
ólatilboð
AFSLATTUR AF
STURTU-KLEFUM
OG HURÐUM
•i i
( 1 I / ; IJ{
r-íg! 1 / flj J / | I ■ k -í 11
1 \' 1 ■■hm BM / . 'S --- ^ / B h
1
V VATNSVIRKINN HF.
~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LVNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
brosum/
og V
allt gengur betur •
NILFISK
'tJ É [
U
stórlœkkab verð, nú aðeins
' £jjjJl
11.999,-)
Mótor rneð 2000 tíma kolaendingu
=20 ára notkun
Þreföld ryksíun
=mengunarlaus útblástur
10 lítra pappírspoki
=sá stærsti (oger ódýr)
Kónískslanga
=stíflast síður, eykur sogajlið
stálrör, afbragðs sogstykki,
áhaldageymsla
lojtknúið teppasogstykki með
snúningsbursta fæsl aukalega
Nilfisk ernú með nýrri
enn betri útblásturssíu
"MikroStatic-Filter".
Hreinni útblástur en áður
hefurþekkst. Þetta ergóð
fréttfyrir asma ogofnœmis-
sjúka.
kraftur
gœði
NILFSSK ending
jFOrax
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420