Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Qupperneq 29
»m>! H30M38aa ,01 HUÐAflflAOUAJ
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
8S
/TIGfk
BRUNSLEDK
meiríháttar
tryliitækil
Sænskur hágæðasleði með fjaðrandi stýris-
skíði og öryggisbremsum. Þú getur sveigt, beygt og
bremsað að vild. Stigasleðinn er níðsterkur og getur
því líka borið bæði pabba og mömmu!
Meiming
Stýrisskiðið er með fjöðrum og sjálfupprúll-
andi dragsnúru á sumum gerðum. Skíðin
eru breið og stöðug og renna einstaklega
vel. Öryggisgrindin er úr sænsku gæðastáli.
Þrælöruggar hand og fót-
bremsur. Varnargrind fyrir
framan fætur úr sænsku
stáli.
Mér sérhönnuðum útbúnaði sveigir
sleðinn og stöðvast strax ef þú
missir hann. Allur sleðinn er hann-
aður með öryggið í fyrirrúmi í sam-
vinnu við fjölmarga barnasérfræði-
nga.
EINKAUMBOÐ
Á ÍSLANDI
ÖRNINN
Spítalastíg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888
Frá Gyðingalandi
að Galtalæk
Opið
til kl. 18
í dag
Barnaskór
Jólaskómir em komnir.
Smáskór er eina versl-
unin á íslandi sem sel-
ur eingöngu barnaskó.
Verslunin er nýflutt
Skólavörðustígsmegin
Póstsendum
smáskór
Skólavörðustíg 6 Sími 622812
sérverslun med barnaskó
„Þaö hefur mörgu veriö logiö á
skemmri leið en frá Gyðingalandi að
Galtalæk," sagði kellingin forðum,
innt eftir sannleiksgildi biblíunnar.
En hvað sem sannleiksgildinu Uður
hefur alla tíð frá því að dró til stórtíð-
inda austur í Miðjarðarhafsbotnum
fyrir tvö þúsund árum þótt frétt-
næmt, jafnvel á útskeri þessu, þaö
sem mehn tóku sér fyrir hendur í
Landinu helga. Og enn er það svo,
að þótt fréttamiðlun og fjarskiptum
hafi fleygt fram, þá vill margt skolast
til á leiðinni frá Gyðingalandi að
Galtalæk og menn eiga í erfiðleikum
með hverju skal trúa og hverju skal
kyngja og greina á milli, hver nú er
í hlutverki Davíðs og hver í gervi
Goliats.
Ævisaga Goldu Meir er hin prýði-
legasta heimild um ágreining júða
og filistea á þessari öld, séð frá sjón-
arhóli zíonista. Um leið er hún saga
konu, sem fæddist í Rússlandi zars-
ins, menntaðist og mótaðist í mið-
vesturríkjum Bandaríkjanna, og
gerðist ung að árum landnemi og
frumherji í fámennum hópi gyðinga,
sem fór að undirbúa jarðveginn í
auðnum Palestínu til að skapa þama
nýtt þjóðarheimili gyðinga.
Þjóöarheimili
Golda var frá byrjun í framlínu
þeirra 80 þúsund manna, sem upp
úr 1920 höfðu sest þarna að gagn-
teknir þessum fjarlæga draumi. Og
þjóðarheimilið var tilbúið þegar þeir,
sem höfðu sloppið við gasofna Hitlers
og höfðu möguleika á að flýja undan
ofsóknum Stalíns og allra hinna, leit-
uðu að vin í eyðimörkinni, þar sem
þeir gætu hvílst og verið þeir sjálfir.
Nú eru þar samankomnar um þrjár
milljónir gyðinga, en ekki hefur til-
veran verið þeim andskotalaus, og
nú sjáum við þá daglega í fréttum
inni á heimilum okkar sem grájárn-
aða kúgara vopnlauss minnihluta,
sem slöngvar grjóti gegn ofureflinu.
Golda lýsir bakgrunni þeirra
átaka, sem þarna eiga sér stað í dag,
skýrt og skilmerkilega. Frásögn
hennar er yljuð hugsjónaglóð og eld-
móði draumamanns, sem séð hefur
marga drauma sína rætast og veit
að einmitt í því getur faU hans verið
falið. Allur þorri manna styður lítil-
magnann, en þegar stríðsgæfan hef-
ur snúist honum í vil fimm sinnum
á fjörutíu árum, er það eins og einum
of mikið og margir fara að halda með
hinu liðinu, sem einnig á sér sínn
málstað.
Hér er líka kona á ferð, sem sam-
tímis umfangsmiklum og erfiðum
störfum í þágu þjóðar sinnar, tók
virkan þátt í uppeldi barna sinna og
átti tíma afgangs fyrir fjölskyldu og
vini. Kona, sem komst í fremstu röð
meðal einnar mestu karlrembuþjóð-
ar heimsins, heilsteypt, ákveðin,
stolt og þrjósk, kona, sem þráði frið
en hikaði þó hvergi væri stríðið eitt
í boði.
Andlegir frændur
íslendingar hafa alltaf fundiö til
andlegs skyldleika við gyðinga. Allt
frá því þeir fundu Jahve í eyðimörk-
inni (eða Jahve valdi þá sem sína
sérstöku þjóð) hafa þeir verið að
velkjast með bókfell áletruð lögmál-
inu og öllum þeim kynstrum af skýr-
ingum við lögmálið, sem orðið hafa
til í rás árþúsundanna. Þeir hafa
byggt kröfur sínar á gömlum sátt-
málum, sem eru tvisvar og þrisvar
sinnum eldri en okkar Gamh sátt-
máli og verið þrætubókarmenn af
shkri Guðs náð að hlýtur að renna
hverjum réttbornum íslendingi til
hjartaróta. Og hversu mikla eymd,
sem samfélög gyðinga hafa sokkiö í,
hafa þau jafnan orðið að halda uppi
lærdómsmönnum á fræði feöranna
og viðhalda víðtæku læsi, svo að lýð-
urinn megi halda tryggð við Helga
bók. Því var það, aö þegar gyðingar
fengu víða almenn mannréttindi á
Litur: Svart m/grænu
Verð: 1.885,-
Litur: Svart leður
Verð: 2.245,-
Litur: Svart lakk
Stærðir: 24-32
Verð: 1.690,-
Golda Meir.
Bókmenntir
Ólafur Hannibalsson
síðustu öld, voru þeir óðar komnir í
fremstu röð í.menntum, vísindum,
listum, stjórnmálum og fjármála-
vafstri hvers konar og máttu nú þola
meiri ofsóknir fyrir yfirburði sína en
meðan þeir töldust meðal dreggja
samfélaganna. Svona gáfur kunnum
við íslendingar vel að meta og innst
inni teljum viö líka að guðleg öfl
hafi stýrt okkur til okkar fyrirheitna
lands og potaö öndvegissúlum Ing-
ólfs gegn straumum og vindi, þangað
sem við gætum byggt okkar Zion á
hæðunum sjö. Þetta er því forvitnileg
bók og á erindi við okkur um þessar
mundir, ef við viljum reyna að skilja
eitthvað í því, hvílík púðurtunna
þessi landræma við Miðjarðarhafs-
botna er búin að vera.
Þýðing Bryndísar Víglundsdóttur
virðist prýðilega af hendi leyst og vel
til fundið að hafa mynd af þýðandan-
um aftan á kápu bókarinnar, en
hingað til hefur manni þótt gott ef
þýöandi hefur fengist til að leggja
nafn sitt við verk sitt. Ég hefði raun-
ar líka viljað hafa mynd af prófarka-
lesaranum, sem vinnur það afrek að
hafa villur á 152 blaðsíöum af 437.
Engar þeirra eru svo slæmar að ekki
megi lesa í málið, en vinnubrögð af
þessu tagi eru vottur um óþolandi
virðingarleysi fyrir kaupendum og
lesendum þessarar ágætu bókar.
Golda Meir
Ævi mín eftir Goldu Meir
Þýðandi: Bryndís Viglundsdóttir
Útgefandi: Bókrún
Ólafur Hannibalsson
ELOQIE-Fi
HARROl.D-J
Litur: Svart lakk
Stærðir: 31-36
Verð: 1.690,-
JACYNTH-FiíC;
Litir: Svart, grænt
Stærðir: 31-36
Verð: 1.885,-
Litur: Svart lakk
Stærðir: 28-34
Verð: 1.590,-
- V
HONORE-J
FANNY-Fi
Litur: Svart rúskinn
Stærðir: 28-34
Verð: 1.590,-
.HiLDA-J (C.)
Rúskinn
Stærðir: 31-35
Verð: 1.690,-