Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 37
I.AUGARDAGUR 10. DESEMBER-1988.
49
Handknattleikur unglinga
KA sterkir á heimavelli
KA-strákarnir tryggðu sér sæti í
1. deild í næstu umferð en þeir unnu
alla andstæðinga sína nema HK sem
gerði sér lítið fyrir og sigraði óvænt
í leik þessara liða. Þá gerði KA einn-
ig jafntefli við Þór, Ve.
Þór, Ve., og Fram háðu harða
keppni um annað sætið og urðu Eyja-
strákarnir hlutskarpari.
Fyrir seinustu umferðina voru
Þórarar komnir með sjö stig en
Framarar með sex stig þannig að
þeir urðu að vinna Þórara til að kom-
ast upp fyrir þá á stigatöflunni og
Umsjón
Heimir
Ríkarðsson
og
Brynjar
Stefánsson
hljóta þannig 1. deildar sætið eftir-
sótta.
Leikur þessara liða endaði með
jafntefli, 14—14, og það voru því Þór-
arar sem hrepptu annað sætið í deild-
inni en Framarar urðu að gera ''sér
þriðja sætið að góðu.
HK og Valur urðu jöfn að stigum
með sex stig hvort félag og leika því
í 2. deild í næstu umferð en ÍR og ÍA
falla í 3. deild.
Grótta vann alla leiki sína
Grótta vann alla leiki sína i 3. deild
og með þeim í 2. deild fer lið Hauka
sem tapaði aðeins leiknum gegn
Gróttu og gerði jafntefli við Selfoss,
13-13, en aöra leiki sína unnu Hauka-
piltarnir.
UMFN féll í 4. deild ásamt Fylki en
UMFA og UMFG urðu um miðja
deild.
í 4. deild, sem var leikin í Borgar-
firði, unnu Húsvíkingar alla leiki
sína og flytjast þeir í 3. deild ásamt
UFHÖ sem varð i öðru sæti deildar-
innar.
Reynir varð í þriðja sæti, Skalla-
grímur í fjórða sæti og Þróttur og
IBK í tveimur neðstu sætunum.
Stjarnan sigraði Þór, Ak., nokkuð örugglega en það dugði þeim ekki til að halda sér i 1. deild og féllu þessi lið bæði i
2. deild.
5. flokkur kvenna:
Garðbæingar sigruðu í 1.
Keppni í 5. flokki kvenna hófst um
síðustu helgi. Aðeins er leikið í
tveimur deildum í þessum flokki en
félögum fer sífellt fjölgandi sem
senda lið til keppni. í 1. deild eiga þau
félög lið sem tóku þátt í íslandsmóti
5. flokks kvenna sl. ár en í 2. deild
eru þau félög sem eru að hefja þátt-
töku í íslandsmóti.
Stjarnan sigurvegari í 1. deild
I Grindavík fór fram keppni í 1.
deild og var þetta fyrsta umferðin í
íslandsmóti 5. flokks kvenna en á
síðasta ári bar Grótta sigur úr být-
um.
Keppnin hófst er íslandsmeistar-
amir hófu titilvömina gegn Stjörn-
unni. Bæði þessi hð eru mjög vel
samæfð og hafa á að skipa góöum
einstaklingum en aðalsmerki beggja
þessara liða em sterkir hornamenn
sem draga vel til sín vamarmenn
andstæðinganna og skapa þannig
færi fyrir aðra leikmenn liðsins.
Leikur Gróttu og Stjömunnar var
í járnum allan tímann og áttu sókn-
armenn beggja liða í miklum erfið-
leikum með að bijóta á bak aftur
sterkar varnir og góða markmenn.
Jafntefli varð, 4-4, og verða það‘ að
teljast sanngjörn úrslit þar sem
styrkur liðanna virðist vera mjög
svipaður.
Það sem eftir lifði umferðarinnar
var mikil keppni milli þessara
tveggja liða, sem virðast vera í
nokkrum sérflokki enn sem komið
er, um hvort liðið heföi betri marka-
töku í leikslok en bæði liðin sigruðu
alla andstæðinga sína.
íslandsmeistarar Gróttu léku næst
gegn Víkingi og unnu með fjögra
marka mun á meðan Stjarnan vann
Grindavík með fimm mörkum. Þessi
markamunur jókst smátt og smátt
og það var ekki fyrr en í næstsíðustu
umferð sem Grótta náði betri marka-
tölu með því að vinna Fram, 11-4,
og Hauka, 8-1, á meðan Stjaman átti
í hinum mestu erfiðleikum gegn FH,
9-8.
í síðustu umferðinni sat Grótta hjá
en Stjarna átti að leika gegn Haukum
sem voru fallnir í 2. deild. Stjörnu-
stúlkurnar urðu að vinna leikinn
með minnst sex mörkum til að
hreppa stigið eftirsótta sem þær
tækju með sér í úrslitin.
Stjarnan náði fljótt forustunni í
leiknum og í leikslok hrósuðu
Stjörnustúlkur sigri í leiknum, 13-6,
og þar með sigri í 1. deild en Grótta
varð að gera sér annað sætið að góðu
að þessu sinni með jafnmörg stig og
Stjarnan en óhagstæða markatölu.
í þriðja sæti deildarinnar urðu
Reykjavíkurmeistarar Fram aö
þessú sinni en Framstúlkurnar sigr-
uðu helstu keppinauta sína um
bronssætiö en töpuðu fyrir Gróttu,
Stjörnunni og Grindavík sem féll í
2. deild. Helstu keppinautar Framara
um þriðja sætið voru lið Víkings, sem
Fram vann, 4-2, í síðustu umferð-
inni, og FH en Fram vann þann leik,
6-4. Þá lágu Haukastúlkurnar einnig
fyrir Frömurum.
Mikil keppni var einnig milli FH
og Víkings um fjórða sætið, bæði lið-
in unnu Grindavík en FH-stúlkurn-
ar, sem urðu vitni að sigri Víkings
gegn Haukum, máttu sætta sig við
jafntefli, 6-6, gegn þessum aðaland-
stæðingum sínum úr Hafnarfirði.
FH-stúlkurnar urðu því að sigra
Víkinga til að hreppa fjórða sætið en
Víkingum dugði jafntefli. Leikur lið-
anna var ótrúlega jafn og spennandi
allan tímann. Lítið markaskor var í
leiknum og endaði leikurinn með
jafntefli, 4-4, sem bæði liðin geta ver-
ið sátt við, þannig að fjórða sætið var
Víkinga en FH mátti gera sér fimmta
sætið að góðu.
Grindavík og Haukar féllu í 2. deild
eins og áður sagði, Grindavík vann
aðeins leikinn gegn Fram og gerði
jafntefli við Hauka. Haukastúlkurn-
ar gerðu einnig jafntefli við FH eins
og áður sagði.
Hörkukeppni í Eyjum
í Vestmannaeyjum var ekki síður
spennandi keppni en þar áttust við
þau lið er skipa 2, deild. Upphaflega
var gert ráð fyrir að í deildinni yrðu
sjö lið en HK dró sig úr keppni ein-
hverra hluta vegna.
Keppnin um tvö efstu sæti 2. deild-
ar varð aðallega á milli UBK og KR,
ekkert lið veitti þeim teljandi mót-
spyrnu nema ÍBV. KR-ingar hófu
keppnina með sigri á Njarðvík, 6-3,
þá sigruðu þeir Fylki stórt og einnig
áttu Hvergerðingar litla möguleika
gegn þeim. Það var ekki fyrr en KR-
ingar mættu Vestmannaeyingum að
um einhverja mótspyrnu var að
ræða. Lítið var skorað í leiknum og
í hálfleik var jafnt, 2-2. í upphafi
seinni hálfleiks náðu KR-ingar að
skora tvö mörk án þess að Eyjastúlk-
ur næðu að svara fyrir sig. Síðustu
mínútuna skoruðu síðan bæði liðin
eitt mark hvort þannig aö lokatökur
urðu 5-3, KR í vil.
Svipaða sögu er að segja af Breiða-
bliksstúlkunum en þær sigruðu
sömu lið og KR. Breiðablik sigraði
ÍBV nokkuð örugglega, 5-1, og þá
sigraði sterkt Blikaliðið Hvergerð-
inga, 16-0, Fylki, 11-0, og Njarðvík,
8-3.
Leikur Breiðabliks og KR reyndist
því vera úrslitaleikur deildarinnar
en bæði liðin voru þó örugg um sæti
í 1. deild. Leikur liðanna var ótrúlega
jafn og spennandi eftir að Blikar
höfðu verið yfir í hálfleik, 3-1. KR-
deild
ingum tókst síöan með mikilli bar-
áttu að jafna leikinn stuttu fyrir
leikslok, 3-3.
Bæði liðin geta verið sátt við
frammistöðu sína í deildinni og verð-
ur gaman aö fylgjast með gengi,
þeirra í 1. deild í næstu umferð.
ÍBV mátti gera sér þriðja sætið að
góðu en Vestmannaeyjastúlkurnar
töpuðu aðeins fyrir KR og Breiða-
bliki en aðra leiki sína unnu þær
með miklum yfirburðum. Það er
helst reynsluleysi sem háir Eyjalið-
inu en þarna léku þær sína fyrstu
leiki í keppni og með meiri leikæf-
ingu gætu þær hæglega hrellt bestu
liðin.
Njarðvík varð í fjórða sæti deildar-
innar eftir sigur á Fylki og jafntefli
gegn Hveragerði. Tryggði jafnteflið
Hvergerðingum fimmta sætið þar
sem þeir höfðu gert jafntefli við Fylki
í fyrsta leiknum og var það eina stig-
ið sem Fylkisstúlkurnar hlutu í
keppninni að þessu sinni, 6. sætið
varð því þeirra.
Það er ljóst að keppnin í 5. flokki
kvenna á eftir að vera geysilega jöfn
og spennandi er líður á þar sem lið
eins og Stjarnan, Fram, Víkingur og
jafnvel liðin tvö sem komu úr 2. deild
hafa dregið nokkuð á gott lið Gróttu.
Þá má ekki gleyma FH-ingum sem
hæglega geta sett strik í reikninginn
hjá einhverjum þessara liöa.
Leiðrétting
Þau mistökurðuþegargreintvar sem fóru upp í l. deild og ÍBV og
frá úrslitum í 4. flokki kvenna að Víkingur verða áfram í 2. deild.
sagt varaðÍBVhefðifaUiðí3. deild Beðist er velvirðingar á þessum
en hið rétta er aö KA féll ásamt mistökum.
HK. Það voru þvi Haukar og KR
GÓÐ HUGMYND
Mafnspjöld og Bökalímmiðar Ex-Libris
Persónuleg og skemmtileg
jólagjöf sem kemur á óvart
• Bjóðum uppá upphleypta prentun (Thermographyl sem er nýjung á (slandi •
• Alhliða prentþjónusta •
Nánari upplýsingar og pantanir teknar í síma 30630 og 22876 á kvöldin og um helgar
LETURprent Síðumúla 22-Sími 30630
LEÐURHUSGOGN - JOLATILBOÐ
Vorum að taka inn nýjar sendingar:
sófasett, hornsófar, stakir sófar,
hægindastólar, margir litir.
Opið laugardaga frá kl. 10-18
Sunnudaga frá kl. 14-18
HALLDÚR SVAVARSS0N
UMBOÐS- 0G HEILDVERSLUN
Suðurlandsbraut 16
Sími 680755