Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 53
LAUGA^DAGUR 10. DESEMBER 198?..
65
Afmæli
Kristinn Einarsson
Kristinn Einarsson hrl., Vestur-
bergi 30, Rvík, er fimmtugur í dag.
Kristinn er fæddur í Rvík og ólst
upp þar. Hann lauk lögfræðiprófi
frá HÍ1964 og var fulltrúi á lögfræði-
skrifstofu Guölaugs Einarssonar
1964-1965. Kristinn hefur rekið sjálf-
stæða málflutningsskrifstofu í Rvík
frá 1965 og varð hrl. 1969. Hann hef-
ur fengist við ljóðagerð og á í fórum
sínum safn óbirtra ljóða. Kristinn
kvæntist Guðrúnu Leifsdóttur, f. 16.
júlí 1942.,Foreldrar hennar eru Leif-
ur Bjömsson, múrari í Hafnarfirði,
og kona hans, Guðmunda Stella
saumakona. Dóttir Kristins og Guð-
rúnar er Hrand, f. 4. september 1974.
Fyrri kona Kristins var Sigrún
Rafnsdóttir, f. 19. júlí 1938. Þau
skildu. Foreldrar hennar em Rafn
Jónsson, tannlæknir í Rvík, og kona
hans, Hulda Olgeirsson. Börn Krist-
ins og Sigrúnar eru Rafn, f. 14. jan-
úar 1962, d. 16. júlí 1964, og Hrönn,
f. 29. maí 1965, háskólanemi í Berlín,
gift Behnam Valdabeygi, og Einar,
f. 16. apríl 1967, starfsmaöur hjá
Kristjáni Siggeirssyni hf. Fóstur-
böm Kristins eru Eva Egilsdóttir,
f. 15. apríl 1962, fóstra, og Þór Egils-
son, f. 4. maí 1984, í háskólanámi í
Trier í Þýskalandi, unnusta hans er
KlaraGunnlaugsdóttir. Systkini
Kristins era Guðlaugur Maggi, f. 13.
janúar 1921, d. 17. febrúar 1977, hrl.;
Kristján Ingi, f. 1. ágúst 1922, d. 3.
febrúar 1977, tæknifræðingur; Axel
Wilhelm, f. 5: desember 1923, skrif-
stofumaður; Einar Gunnar, f. 10.
júlí 1926, d. 7. febrúar 1972, hrl.;
Sverrir, f. 20. nóvember 1927, tann-
læknir; Ingibjörg, f. 10. október 1934,
d. 1936, og Ingibjörg, f. 27. maí 1934,
skrifstofumaður.
Foreldrar Kristins voru Einar
Björgvin Kristjánsson, húsasmíða-
meistari í Rvík, og kona hans, Guð-
rún Sigríður Guðlaugsdóttir, bæjar-
fulltrúi í Rvík, Föðursystir Kristjáns
er Elínborg, gift Stefáni Jónssyni
skókaupmanni. Einar var sonur
Kristjáns, b. í Tungu í Fróðár-
hreppi, síðan þvottalaugavaröar í
Rvík, Loftssonar, b. á Víghólsstöð-
um á Fellsströnd, Jónssonar, bróður
Saura-Gísla. Annar bróðir Lofts var
Sveinbjöm, langafi Gunnars, föður
Gísla, lektors í sagnfræði, og Jó-
hannesar, formanns Neytendasam-
takanna. Móöir Einars var Ingibjörg
Einarsdóttir, b. á Botnastöðum,
Guðmundssonar, b. í Þverárdal,
Einarssonar, b. í Þverárdal, Jóns-
sonar, b. á Skeggsstöðum, Jónsson-
ar, ættfóður Skeggsstaðaættarinn-
ar. Móöir Einars á Botnastöðum var
Margrét Jónasdóttir, b. í Gili í Svart-
árdal, Jónssonar. Móðir Jónasar
var Ingibjörg Jónsdóttir Harða-
bónda, b. í Mörk í Laxárdal, Jóns-
sonar, ættföður Harðabóndaættar-
innar. Móðir Margrétar var Ingi-
björg Jónsdóttir, systir Einars í
Þverárdal. Móöir Ingibjargar Ein-
arsdóttur var Björg Jónasdóttir, b.
á Gili, Einarssonar, bróður Guð-
mundar í Þverárdal.
Móðursystkini Kristjáns eru Jón-
as skáld, Elínborg, Þórdís, Jóhanna,
Lára, Ingibjörg, Theódóra, Ólöf,
Kristín, Kristján hrl. og Guðmund-
ur forstjóri. Guðrún var dóttir Guð-
laugs, prests á Stað í Steingríms-
firði, Guðmundssonar, b. í Syðri-
Skógum í Kolbeinsstaöahreppi,
Gíslasonar. Móðir Guömundar var
Þuríður Bárðardóttir, systir Hall-
dóru, langómmu Daða, föður Sigfús-
ar skálds. Halldóra var einnig lang-
amma Þorsteins Víglundssonar
skólastjóra, afa Árna Sigfússonar
borgarfulltrúa. Móðir Guörúnar var
Margrét, systir Ingibjargar, móður
læknanna Jónasar og Kristjáns og
ömmu Sveins Jónssonar, formanns
KR. Margrét var dóttir Jónasar,
prests á Staðarhrauni, Guðmunds-
sonar, bróður Einars á Botnastöð-
um.
Móðir Margrétar á Stað var Elín-
borg Kristjánsdóttir, sýslumanns á
Skarði á Skarðsströnd, Skúlasonar,
sýslumanns á Skarði, Magnússon-
ar, sýslumanns á Skarði, Ketilsson-
ar. Móðir Magnúsar var Guörún
Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta. Móðir Kristjáns var Kristín
Bogadóttir, b. í Hrappsey, Bene-
Kristinn Einarsson.
diktssonar og konu hans, Sigríðar
Jónsdóttur. Móðir Sigríðar var
Ragnheiður Gísladóttir, systir
Magnúsar amtmanns, föður Sigríð-
ar, konu Ólafs Stefánssonar stift-
amtmanns, ættforeldra Stephensen-
ættarinnar. Móðir Elínborgar var
Ingibjörg Ebenezersdóttir, sýslu-
manns í Hjarðardal, Þorsteinssonar
og konu hans, Guðrúnar Þórðar-
dóttur, prests í Skarðsþingum, Ól-
afssonar. Móðir Guðrúnar var
Kristín Bogadóttir, móðir Kristjáns
Skúlasonar. Kristinn dvelst erlendis
á afmælisdaginn.
Til hamingju með daginn
90 ára 50 ára
Guðmundur Hannesson, Dalbraut 27, Reykjavík. Gréta Aðalsteinsdóttir, Starfshúsi 1, Reykjalundi. Jóna Björg Jónsdóttir, Stigahlíð 2, Reykjavík. Esther Valdimarsdóttir,
85 ára
Aðalbjörg Jónsdóttir, Ásgarðsvegi 18A, Húsavík. Dverghamri 42, Vestmannaeyjum. Rúna B. Sigtryggsdóttir, Miklubraut 11, Reykjavik. Selma Ósk Björgvinsdóttir, . Lynghaga 15, Reykjavík. Þórunn Einarsdóttir, Brekkutanga 26, Mosfellsbæ. Jóhannes Þ. Jónsson, Torfufelli 50, Reykjavík. Marinó Jóhannsson, Tunguseli, Sauðaneshreppi. Guðný Helgadóttir, Lándargötu 25, Reykjavík.
80 ára
Trausti Þórðarson, Klapparstíg 11, Reykjavík.
75 ára
Halldór Kristjánsson, Skerðingsstöðum I, Reykhóla- hreppi. Una Dagný Guðmundsdóttir, Hólavegi 38, Siglufirði.
40 ára
70 ára Jóhann Jónsson, Hátúni 10, Reykjavík.
Sigriður Helgadóttir, Holtsgötu 29, Njarðvíkum. Ásta Sylvía Rönning, Austurgerði 7, Reykjavík. Svanhildur Einarsdóttir,
60 ára Birkihlið 15, Sauðárkróki. Hörður Stefón Harðar, Meistaravöllum 21, Reykjavík. Rúnar Halldórsson, Bleiksárhlíö 16, Eskifirði. Áslaug Jónsdóttir, Skólavegi 12, Búðahreppi.
Níels Elis Karlsson, Holtagerði 59, Kópavogi. Emma Benediktsdóttir, Kársnesbraut 47, Kópavogi.
Gullbrúðkaup
Gullbrúðkaup eiga í dag Anna Ól-
afsdóttir og Karl Eiríksson, Giljaseli
5, Reykjavík, áður bændur á Öxl í
Breiðuvík. Foreldrar Önnu voru
Ólafur Einarsson, b. í Geirakoti í
Fróðárhreppi, og kona hans, Ólöf
Einarsdóttir, og er Anna ein fjórtán
systkina. Hún réðst tuttugu og eins
árs kaupakona í Gröf í Breiðuvík til
Guðrúnar Eiríksdóttur og manns
hennar, Haraldar Jónssonar, er þar
höfðu tekið við búi ásamt bróður
Guörúnar, Karli, er þá var tuttugu
og sjö ára. Foreldrar Karls vom
Eiríkur Sigurðsson, b. í Gröf í
Breiöuvík, og kona hans, Steinvör
Ármannsdóttir, og er Karl yngstur
fimm systkina. Anna og Karl bjuggu
fyrstu árin í Gröf en keyptu Öxl í
Breiðuvíkurhreppi 1941 og bjuggu
þar í fjörutíu ár.
Anna og Karl eignuðust flmmtán
börn sem öll eru á lífi. Þau eru:
Reimar, b. á Öxl í Breiðuvík; Jó-
hannes, kvæntur Sigrúnu Jónsdótt-
ur og eiga þau tvö börn; Ingólfur,
kvæntur Sigrúnu Jóhannsdóttur og
eiga þau íjögur börn; Steinar,
kvæntur Ester Halldórsdóttur og
eiga þau tvö börn; Kristjana, gift
Guömundi Einarssyni og eiga þau
fjögur börn; Ólöf, gift Vigfúsi Jóns-
syni og eiga þau einn son; Ólafur,
sambýliskona hans er Þórhildur
Richter og eiga þau eina dóttur en
Þórhildur á fyrir einn son; Krist-
laug, gift Gesti Kristjánssyni og eiga
þau tvö börn, áður eignaöist hún
einn son; Elín, ógift; Eiríkur, kvænt-
ur Önnu Vésteinsdóttur og eiga þau
þijú börn; Anna, gift Einari Þórs-
syniog eiga þau þrjú börn; Emelía,
gift Ólafl Hjálmarssyni og eiga þau
tværfósturdætur; Guörún, sambýl-
ismaður hennar er Þorvaldur
Bjarnason og eiga þau tvö böm; Sig-
Hjónin Anna Olafsdóttir og Kari Ei-
riksson.
urður Karl, sambýliskona hans er
Ása Magnúsdóttir og eiga þau eina
dóttur, og Guðbjörg Baldvina, sam-
býlismaður hennar er Egill Magn-
ússon. Anna og Karl taka á móti
gestum í sal Múrarafélags Reykja-
víkur, Siðumúla 25, í dag kl. 16-20.
Guðmann Einar Magnússon
Kjartan Ingibjörn
Guðmundsson
og Hugborg
Guðjónsdóttir
Gullbrúðkaupsafmæli eiga í dag | Jóni Auðuns dómprófasti.
Kjartan Ingibjörn Guðmundsson og Afmælisbömin taka á móti gest-
Hugborg Guðjónsdóttir. Þau voru um í Gaflinum frá klukkan 15.00 til
gefin saman þann 10.12.1938 af séra | 18.00 í dag, laugardag.
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð og starfssögu
þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Guðmann Einar Magnússon, b. á
Vindhæli í Vindhælishreppi í Aust-
ur-Húnavatnssýslu, varð sjötíu og
fimm ára í gær. Vegna mistaka birt-
ist röng afmælisgrein í gær. Guð-
mann Einar er fæddur á Skúfi í
Norðurárdal og ólst upp hjá foreldr-
um sínum á Skúfi og víðar í Vind-
hælishreppi en lengst af bjuggu þau
á Bergsstöðum, Þverá og Sæunnar-
stöðum í Hallárdal á Skagaströnd.
Guðmann hóf búskap með foreldr-
um-sínum og bræðrum á Sæunnar-
stöðum í Hallárdal og bjó þar til
ársins 1944 er hann festi kaup á jörð-
inni Vindhæli á Skagaströnd en
þangað fluttist hann sama ár ásamt
fjölskyldu sinni og hefur búiö þar
síðan í félagi við bræður sína, Guð-
mundogPál.
Guðmann kvæntist Maríu Ólafs-
dóttur, f. 27. nóvember 1931. For-
eldrar hennar voru Ólafur Einars-
son, b. í Stakkadal á Rauðasandi,
og kona hans. Anna Guðrún Torfa-
dóttir. Börn Guðmanns og Maríu
eru: Guðrún Karólína, f. 11. maí
1953, viðskiptafræðingur á ísafirði,
sambýlismaður hennar er Bjarni
Jóhannsson viðskiptafræðingur og
eiga þau tvær dætur; Anna Kristín,
f. 17. apríl 1955, sjúkraliði á Blöndu-
ósi, gift Erni Ragnarssyni, starfs-
manni Blönduhrepps, og þau eiga
tvær dætur; Einar Páll, f. 9. júní
1956, skipasmiður á Sauðárkróki,
kvæntur Ingibjörgu Rögnu Ragn-
arsdóttur, starfsstúlku á sjúkrahúsi
Sauöárkróks, og eiga þau tvær dæt-
ur; Ólafur Bergmann, f. 8. janúar
1959, vinnur hjá Særúnu hf. á
Blönduósi, kvæntur Helgu Kára-
dóttur, og eiga þau tvær dætur;
Magnús Bergmann, f. 27. júlí 1961,
vinnur hjá Hólanesi hf. á Skaga-
strönd, sambýliskona hans er Erna
Högnadóttir, vinnur hjá Hólanesi
lif., og eiga þau tvær dætur; og
Halldóra Sigrún, f. 8. nóvember
1972, nemi í MÍ.
Systkini Guðmanns eru Stein-
grímur, b. á Eyvindarstöðum í
Blöndudal, nú látinn; Sigurður
verkstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga á Sauðárkróki; María, fyrrv.
Ijósmóðir á Sauðárkróki, býr í Hafn-
arfirði; Guðmundur, b. á Vindhæli,
ogPáll.b.áVindhæli.
Foreldrar Guðmanns voru Magn-
ús Steingrímsson, b. á Bergsstöðum,
og kona hans, Guðrún Einarsdóttir.
Föðursystkini Guðmanns voru Páll,
ritstjóri Vísis, Páll, b. á Njálsstöðum
á Skagaströnd, og Friðrika, hús-
freyja á Kagaðarhóli á Ásum. Faðir
Magnúsar var Steingrímur, b. á
Njálsstöðum á Skagaströnd, bróður
Þorgríms, afa Önnu Sigurðardóttur,
forstöðumanns Kvennasögusafns-
ins. Steingrímur var sonur Jónat-
ans, b. á Marðarnúpi í Vatnsdal,
Davíðssonar. Móðir Jónatans var
Ragnheiður Friðriksdóttir, prests á
Breiðabólstað í Vesturhópi, Þórar-
inssonar, sýslumanns á Grund í
Eyjafiröi, Jónssonar, ættföður
Thorarensensættarinnar. Móðir
Ragnheiðar var Hólmfríður Jóns-
dóttir, varalögmanns í Víðidals-
tungu, Ólafssonar, lögsagnara á
Eyri, Jónssonar, ættföður Eyrar-
ættarinnar. Móðir Magnúsar var
Anna Friðriksdóttir Schram, b. á
Kornsá í Vatnsdal, Christianssonar
Schram, verslunarstjóra Höföa-
kaupstaðar, ættfööur Schramættar-
innar. Móðir Önnu var Margrét
Stefánsdóttur, amma Árna Pálsson-
ar prófessors.
Móðursystkini Guðmanns voru
Gísli, sjómaður á Skagaströnd, og
Sigþrúður, húsmóðir á Skaga-
strönd. Guðrún var dóttir Einars,
b. á Hafurstaðakoti í Vindhælis-
hreppi, Gíslason, afkomanda Jóns
harðabónda á Mörk í Laxárdal um
1740. Móðir Guðrúnar var María,
systir Guðmundar á Torfalæk, föð-
ur Páls Kolka læknis og Elínborgar,
móður Guðrúnar Teitsdóttur ljós-
móður. Móðir Maríu var Guðrún
Guðmundsdóttir, smiðs á Siðu í
Víðidal, Guðmundssonar og konu
hans, Guðrúnar Sigfúsdóttur Berg-
mann, b. og hreppstjóra á Þorkels-
hóli í Víðidal, Sigfússonar, ættföður
Bergmannsættarinnar.
Sigurður Ingimundarson
Þau mistök urðu í afmælisgrein
um Sigurð Ingimundarson að
gleymdist að geta um mann Guö-
bjargar systur hans, Harald Óskar
Leonhardsson, verslunarmann í
Rvík, sem lést 13. maí 1966. Eftirlif-
andi sambýlismaður hennar er hins
vegar Ari Ágnarsson, fyrrv. bílstjóri
í Rvík.