Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1988, Page 25
Veit að hveiju eg geng, segir Ragnar Margeirsson Ragnar Margeirsson, landsliðsmaður í knattspymu frá Keflavík, hefur ákveðið að leika með íslandsmeisturum Fram á næsta keppnistímabili. Hann er ekki ókunnugur þar því hann lék með Frömurum meiri part sumarsins 1987 og varð þá bikarmeistari með þeim. „Ég veit að hverju ég geng hjá Fratn eftir að hafa spilað eitt sumar með hðinu og kann vel við mig þar. Fram hefur meistaratitil að verja og verður örugglega í barátt- unni á toppnum auk þess að leika í Evrópukeppni, þannig að útlit er fyrir skemmtilegt tímabil,“ sagði Ragnar í samtali við DV í gær. Ragnar fór á ný til Keflvikinga sl. vor og lék með þeim í 1. deild- inni i srnnar. Þeim gekk illa, rétt sluppu við fall, en Ragnar var einn jafnbesti leikmaður þeirra og var tyrir skömmu útnefndur knatt- spyrnumaöur ársins 1988 í Kefla- vík. Dapurt tímabil hjá ÍBK „Þetta var mjög dapurt tímabil og það kom í ljós að við vorum ekki með eins sterkt hö og við var búist fyrirfram. En ég á von á því að hðið hefði getað náð betri ár- angri en raun bar vitni, ekki síst ef þjáífarinn hefði verið íslenskur. Frank Upton gerði ýmis mistök sem rekja má til þess að hann þekkti ekki nógu vel íslenskar að- stæður og andstæðinga okkar hverju sinni,“ sagði Ragnar. Ragnar er bundinn Genk Ragnar er bundinn belgíska 1. deildar félaginu Racing Genk, þar sem hann hætti að leika með Wat- erschei fyrir hálfu öðru ári og fór heim til íslands. Eins og kunnugt er var Waterschei sameinað Wint- erslag undir nafni Genk og þar með á það félag rétt á honum í fjögur ár. „Kröfur, sem Genk setti fram, urðu til þess að ekkert varð af því að ég færi til vestur-þýska 2. deildar liðsins Darmstadt í haust Darm- stadt var nánast á hausnum tjár- hagslega og gat ekki greitt þá upp- hæð sem Genk vildi fá fýrir mig,“ sagði Ragnar. Fórtil Belgíu íboði Genk i morgun Ragnar fór í morgun til Belgíu til viðræðna við stjóm Genk. „Þeir hafa veriö í sambandi við mig og vilja fá mig til sín. En ég tel nær útilokað að af því verði, ég fer ekki aftur út nema Genk gangi að ákveðnum kröfum sem ég legg fram og sé ekki að þeir samþykki. Hins vegar ætti ferðin að nýtast mér vel til þess að koma mér af stað fyrir næsta keppnistimabil með Fram þar sem ég mun æfa með hðinu í viku til tíu daga,“ sagði Ragnar Margeirsson. Ragnar er 26 ára gamall og hefur leikið 36 landsleiki fyrir Islands hönd. Hann hefur lengst af leikið með Keflvíkingum en einnig um tima með AA Gent og Waterschei í Belgíu og vestur-þýsku hðunum Homburg og 1860 Múnchen. Hann er annar markahæsti leikmaður ÍBK í 1. deild frá upphafi, með 36 mörk, og skoraði auk þess 4 mörk í 12 leikjum með Fram í 1. deildinni 1987. -VS • Ragnar Margeirsson styrkir án efa lið Fram veruiega í baráttunni næsta sumar. Ragnar leikur með Fram Tvö íslandsmet á Evrópubikarmótinu í sundi: Ragnheiður bætti met sitt í tvígang - íslendingar komust 1 úrslit 1 þremur greinum Evrópubikarkeppnin í sundi í 25 metra laug fór fram í Edinborg í Skotlandi um helgina. Ragnar Guð- mundsson og Ragnheiður Runólfs- dóttir kepptu fyrir íslands hönd en þau fóru utan ásamt þjálfara íslenska sundlandshðsins, Conrad Cawley. í sveitakeppni urðu íslendingar neðarlega enda aðeins um einn kepp- anda að ræða í hvorum flokki. Ágæt afrek Ragnheiðar dugðu þó til að koma íslandi í 15. sætið í flokki kvenna og láta þannig Finnum eftir það neðsta. Þessu var hins vegar öfugt farið í karlaflokki en þar urðú íslendingar neðstir en Finnar næstir okkur þar fyrir ofan. Ragnheiður komst í úrsht í tveimur greinum, í 100 og 200 metra bringu- sundi. í fyrrtöldu greininni varð hún í 8. sæti, hreppti tímann 1:11,81 mín- útur, en í þeirri síðartöldu skákaði Ragnheiður sænskri stúlku og varð 7. í mark á 2:32,99 mínútum sem er nýtt íslandsmet. Hún hafði raunar bætt íslandsmetið í greininni í un- anrásum en þá synti Ragnheiður á 2:33,25 minútum en gamla metið var 2:34,60 mínútur. Búlgörsk sunddrottning, Tania Dangalakova, vann í 100 metra bringusundinu á timanum 1:08,20 mínútum, en Daniela Brendel frá A-Þýskalandi varð hlutskörpust í 200 metra bringusundinu, fór vegalengd- ina á 2:26,54 mínútum. Ragnheiður keppti einnig í 200 metra fjórsundi, fékk þar timann 2:22,86 og var hálfa sekúndu frá ís- Ragnheiður Runólfsdóttir. landsmeti og úrshtasæti. Hún varð þar 9. Ragnar Guðmundsson braut sér leið í úrsht í 1500 metra skriðsundi en lét þar í minni pokann fyrir mót- heijum sínum. Fékk hann frekar slakan tíma í úrshtunum, 16:21,01 mínútur. Sigurvegarinn í greininni var Bretinn Kevin Boyd, sem fór vegalengdina á 14:57,36 mínútum. Ragnar keppti einnig í 400 metra skriðsundi en var þar talsvert frá sínu besta og hafnaði í 11. sæti. í sveitakeppni karla urðu Sovét- menn hlutskarpastir en röðin varð þessi þar hjá þeim efstu og neðstu: 2. A-Þýskaland 208 14. Finnland 20 15. Island 13 í kvennaflokki varð hins vegar sveit A-Þjóðveija hlutskörpust en röðin þar þessi hjá þeim efstu og neðstu: 1. A-Þýskaland 256 2. Bretland 220 15. Island 27 16. Finnland 18 -JÖG • Stanislav Modrovski tekur bannið út gegn B-liði Vals. DV-mynd EJ Modrovski stjórnar gegn KR - í banni annaö kvöld Stanislav Modrovski, þjálfari ís- lands- og bikarmeistara Vals í hand- knattleik, verður ekki í leikbanni þegar hð hans mætir KR í 1. deild- inni á miövikudagskvöldið - eins og búist hafði verið við. Hann tekur bannið út annað kvöld en þá mætast A- og B-hð Vals í bikarkeppni HSÍ á Hhðarenda kl. 18.15! -VS Luzern vetrar- meistari í Sviss Luzern, hð Sigurðar Grétarssonar, varð í gær vetrarmeistari í sviss- nesku knattspymunni eftir marka- laust jafntefli við Neuchatel Xamax á útivelh. Liðið varð eitt og efst í 1. deild að loknum fyrri hluta keppn- innar með 28 stig en Grasshoppers fékk 27. Þessi hð og sex önnur leika til úrshta um meistaratitilinn í vor og fara þangað með helming stiga sinna - Luzem og Grasshoppers með 14 stig en önnur minna. „Það er alltaf gott að ná stigi úti gegn Xamax en við hefðum þurft að vinna og komast með því í 29 stig. Þá hefðum við byijað með 15 stig í vor. En þessu aukastigi töpuðum við á heimavelh um síðustu hélgi þegar við gerðum jafntefli við Wettingen. Annars er þetta búið að vera gott og ég er bjartsýnn á gengi okkar þegar úrshtakeppnin hefst þann 5. mars,“ sagði Sigurður í samtah við DV í gær. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.