Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Side 27
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1988. 27 Hinhliðin Séra Ólafur Skúlason segist ekki geta gert upp á milli stjórnmálamanna því svo margir séu í sókninni Konurnar1 kómum fallegar - segir séra Ólafur Skúlason Sera Olafur Skúlason dómpró- fastur á fyrir höndum annasama daga þar sem er hátíð ljóss og frið- ar. Þá flykkjast landsmenn til kirkju til að heyra fagnaðarerindið. Séra Ólafur er einnig kandidat í biskupskjöri sem fram fer á næsta ári og mun nýáriö því að öllum lík- indum verða annríkt hjá dómpró- fastinum sem sýnir okkur hina hiiðina á sér að þessu sinni. Fullt nafn: Ólafur Skúlason. . Fæðingardagur og ár: 29. desember 1929 og styttist því í afmælið. Maki: Ebba Sigurðardóttir. Börn: Guðrún Ebba, fædd 1956, Sig- ríður, fædd 1958, og Skúli Sigurður, fæddur 1968. Auk þess á ég fjögur barnabörn. Bifreið: Subaru árgerð 1987. Starf: Dómprófastur í Reykjavík. Laun: Samkvæmt launataxta opin- berra starfsmanna auk viðbótar-. greiðslna fyrir aukaverk. Áhugamál: Það er nú geysilega víð- tækt. Auk alls kirkjustarfs og menningarmála hef ég gaman af að synda, fara í gönguferðir, lesa bækur, horfa á fréttir í sjónvarpi og fylgjast með þjóðmálpm. Hvað hefur þú fengið margar tölur réttar í lottóinu? Ég hef aldrei spil- að i lottói en sonur minn hefur gert það og fengið mest tvær tölur réttar. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Ætli mér líði ekki best að geta hallað mér út af í sófanum með góða bók eftir annasaman dag sem hefur verið góður dagur. Hvað finnst þér leiðinlegast aö gera? Mér finnst leiðinlegast að ræða við hjón sem snúa kærleika sínum upp í illsku hvort við annaö og reyna ekki að draga úr gremj- unni. Uppáhaldsmatur: Að mati sonar míns fmnst mér allur matur góður. Ætli mér finnist þó ekki eitthvað betra en annað. Svínasteik með öllu tilheyrandi er líklegast minn uppáhaldsmatur. Ég á góðan vin sem er svínabóndi og hann kemur venjulega til mín fyrir jólin með sérstaklega góðan svínabita sem konan mín eldar af sinni einstöku snilld um jólin. Uppáhaldsdrykkur: Það fer auðvit- að eftir ástæðum en þegar ég er þyrstur finnst mér alltaf Gvendar- brunnavatnið langbest. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Ætli ég segi ekki Arnór Guðjohnsen. Uppáhaldstímarit: Það tímarit sem ég les alltaf best og lengst er Time. Fallegasta kona sem þú hefur séö fyrir utan eiginkonuna? Ég þori nú varla að gera upp á milli kvenn- anna í kórnum mínum og í kvenfé- laginu svo ég svara bara: Konurnar í kórnum og kvenfélaginu. Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn- inni: Þegar ég innritaði mig í guð- fræði á sínum tíma ákvað ég að skipta mér ekki að stjórnmálum. Ég er því hlynntur þeirri stjórn hverju sinni sem getur leist úr þjóðarvanda og er öllum til góðs. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Páfann. Uppáhaldsleikari: Helgi Skúlason. (Það þarf nú ekkert að koma fram að hann sé bróðir minn.) Uppáhaldsleikkona: Helga Bach- mann. (Eiginkona Helga.) Uppáhaldssöngvari: IngibjörgMar- teinsdóttir. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Þeir eru svo margir í sókninni minni að ég má ekki gera upp á milli þeirra. Hlynntur eða andvígur hvalveið- um íslendinga: Ég vil ekki að við látum undan þrýstingi annarra en það þýðir þó ekki að berja höföinu við steininn í þessu máli. Hlynntur eða andvígur bjórnum: Ég var á móti bjórnum en það þarf ekki að rífast um það mál lengur. Hlynntur eða andvígurveru varn- arliðsins hér á landi: Ég vona að hugur fylgi máli í tillögum Gor- batsjov. Maður vonast eftir friöi í heiminum þannig að herir verði óþarfir. Hver útvarpsrásanna frnnst þér best? Ég hlusta mest á gömlu guf- una. Uppáhaldsútvarpsmaður: Ætli ég segi ekki Markús Örn Antonsson. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið? Sjónvarpiö. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Þessi er erfið því ég horfi mest á fréttir en ætli það sé ekki Sigrún Stefáns- dóttir. Uppáhaldsskemmtistaður: Sund- laugarnar. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Víking- ur. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, ég vona aö mér takist að sinna störfum mínum á sem bestan hátt og aö það færi mér og minni fjölskyldu ánægju. Hvað geröir þú í sumarfríinu? Ég fór ásamt konu minni til Gauta- borgar þar sem mér bauðst íbúð vinar minns í einn mánuð. Það var mjög góður tími. Ég hélt að ég gæti ekki lengur sofið út á morgnana en komst að öðru þar. Þessi mánuð- ur var alveg glimrandi eins og maður segir og frábær hvíld. -ELA JOLASVEINAR Jólasveinar taka að sér að skemmta í og við verslanir, einnig á jólaskemmtunum og fjölskylduskemmtunum. Eru vanir Upplýsingar og pantanir hjá: Rakarast. Péturs, sími 16520, og eftir kl. 18 og um helgar í síma 621643 eða 84766. P.S. Komum einnig í heima- hús á aðfanga- dag. Sjáumst. UTIVISTARGALLI JÓLAGJÖFIN IÁR! • Hentar öllum sjómönnum, rjúpna- skyttum, snjósleðafólki, hestamönnum, verktökum og veitustofnunum. • Vatnsheldur vinnuflotgalli. • Rennilásar á skálmum. f „ * • Tvöfalt ytra byrði á hnjám og sitjanda. • Uppblásanlegur höfuðpúði. • Mikið vasapláss. • Hetta sem hindrar ekki sjónsvið. • Þyngd aðeins 2,3 kg. • Fæst í stærðum „XS“ - „XXXL“. • Viðurkenndur af Strandgæslu USA til notkunar á heimskautasvæðum. ÍsAcO: Kaplahrauni 12, 220 Hafnarfirði Sími 54044 BYLGJU-BINGÓ RAUÐA KROSSINS NÆST SUNNUDAGINN 18. DES. Bylgju-bingó er útvarpsbingó, á Bylgjunni, í þætti sem hefst kl. 16:00. Stjórnandi og kynnir er Magnús Axelsson. Bingóheftin kosta litlar 150 krónur og með hverju bingóhefti er hægt að spila 3 um- A ferðir. Þeir sem fá bingó geta raJtim hringt í hasti í Bylgjuna og þeir mF/ fyrstu geta náð bónusvinn- m ingi að auki. Vinningarnir M —‘"M eru stórskemmtilegir, allt frá leikföngum og rafmagns- tækjum til glæsilegra utanlands- ^H ferða. Ágóða er varið til styrktar l|9 dagheimili fyrir Alzheimer-sjúklinga. H Spilaðu með á sunnudögum á Bylgjunni. _ BYLGJAN, Bylgjubingóheftin fást i flestum söluturnum á eftlrtöldum stöðum. Reykjavík, Garðabæ, Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Selfossi, Hveragerði, Hvolsvelli, Hellu, Þorlákshöfn, Keflavík, Grindavik, Sandgerði, Vogum, Garði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.