Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 34
38 MÁNUDAjSUR 19. DESEMBER 1988. Merming Óttaskógurinn Fugl óttans er stór hann tekur manneskjuna í klærnar og flýgur með hana langt svo langt frá gleðinni en hann er líka lítill þá flýgur hann inn í brjóstin og veinar og veinar þar. Svo orti Nína Björk í sjöttu ljóða- bók sinni, Svartur hestur í myrkr- inu (1982). Helstu yrkisefni þeirrar bókar eru togstreita á milli innri og ytri veruleika, þrá eftir umbúöa- lausri samkennd, vanmáttur gagn- vart orðum og ýmsu því sem mark- ar mannlegum tjáskiptum ramma og síðast en ekki síst: óskilgreindur og óáþreifanlegur ótti sem kemur að innan. Enn sígur Nína Björk í látrabjörg ljóðsins án þess að ljóst sé hver festinni heldur. Sum ljóðanna í Hvíta trúðnum eru sprottin úr til- teknum (bernsku)minningum, í öðrum er minnst látinna vina en í flestum ljóöum bókarinnar er meö einum eða öðrum hætti tekist á við sársaukafull mannanna samskipti, svo brothætt, og/eða hinn innri ótta, óhemjuna í brjóstinu, þetta viðkvæma og húðlausa sem þolir ekki birtu: „Birtan er of skær fyrir dimmufuglinn" sem ljóðmælandi felur innst í hjarta sér þar sem hann „hlær og syngur og syngur og grætur / stundum um vá og háska og voðaleynd mannsins". (12) Þó nást vissar sættir við dimmufuglinn, honum er ekki út- hýst. Og „þessi dagur er svo gegn- sær“: farðu ekki ég gæti brotið þennan dag haltu um hann með mér faröu ekki núna. (69) Það ljóð sem bókin dregur nafn sitt af, Hvíti trúðurinn, kallast á við ljóðið Minning frá Haderslev í Svartur hestur í myrkrinu. í þeim báðum er Ijóömælandinn í trúðs- Bókmenntir Jóhanna Sveinsdóttir hlutverki án þess að vita hvers vegna, berskjölduð: Ekki bak við hurð Ekki bak við tjald heldur á torginu miðju heldur í veislunni miðri (24) segir í Hvíta trúðnum þar sem trúðshlutverkið er þó tengt rofnum samvistum við ástvin og deginum sem kemur aftur og opnar sárin. Brothættar tilfmningar Og i ljóði eftir ljóð er klifað á brot- hættum tilfmningum, brothættum dögum. Það er svo sárt að vera hleypt inn í annarra hjörtu til þess að láta ýta sér út aftur (Hvílíkar rósir), svo sárt þegar bandið slitn- ar, „svo orðlaust án snertingar“ (Bandið), en þótt snerting geti orðið „andleg og sjúk“ bíður kvíðinn á hverju horni ef við forðumst hana með grímum og kvíðinn grætur undir grímunum hvislar og grætur seg þú eitt orð og sál mín mun heil verða (22). Þaö er vandlifað í ljóðheimi Nínu, óttaskóginum. Stundum er jafnvel enga samfylgd að fá út úr þeim dimma skógi, þrátt fyrir lófa fulla af ástarblómum, augu full af stjörn- um (í óttaskógi). Hér sem víða í fyrri ljóðabókum hennar tengjast augun þeirri samlíðan og því innra lífi sem orðin megna ekki aö tjá. Erfitt bjargsig. Óvíst hver fest- inni heldur. En fengurinn ótvíræð- ur. Hvíti trúðurinn geymir ýmsar gersemar, ekki síst fyrir okkur, þessi brothættu, sem trúum því að engar breytingar eigi sér staö án sársauka... Og hver býr ekki í ótta- skógi? Myndmál bókarinnar er að öðru jöfnu einfalt og sterkt. Þó þykir mér gæta nokkurrar ofnotkunar á hjörtum, rósum og stjörnum sem verða sjálíkrafa klisjur í (ástar)- ljóðum, nema þau séu sett í þetta eftirlýsta „nýja og óvænta sam- hengi". Og þá er sú baldna tík, erót- íkin, býsna vandleidd í ljóðheimi Nina Björk Árnadóttir og ekki endilega víst að „ástar- sprotar" hafi þar tilætluð áhrif. Að minnsta kosti ekki á undirrit- aða. Nína Björk Árnadóttir Hviti trúðurinn Forlagið, 1988 Jóhanna Sveinsdóttir Út úr þögn og kröm Þaö fer ekki á milli mála að bók írska drengsins Kristófers Nolan, Undir augliti klukkunnar, er meðal óvenjulegustu uppvaxtarrómana sem skrifaðir hafa verið. Eins og berlega sást í fréttatíma Stöðvar 2 um daginn er Kristófer svo hreyfihamlaður að hann hefur enga stjórn á líkama sínum, er auk þess vita mállaus og hefur verið það frá fæðingu. Með aðstoð fjölskyldu sinnar og nýjustu ritvinnslutækni hefur Kristófer hins vegar tekist að brjót- ast út úr þögn sinni og kröm, ljúka háskólanámi í enskum bókmennt- um og senda frá sér tvö skáldverk Bókmeimtir Aðalsteinn Ingólfsson sem tekið hefur verið með kostum og kynjum. Sú bók, sem hér er til umræðu, vann meira að segja til eftirsóttustu bókmenntaverðlauna Breta, Whit- bread verðlaunanna, árið 1987. í stuttu máli sagt fjallar bók Nol- ans um ævi fjölfatlaðs drengs, Jós- eps Meehan, allt þar til hann vinn- ur til eftirsóttra bókmenntaverð- launa og ákveður aö helga sig rit- störfum fremur en langskólanámi. Dregur höfundur þar ekkert und- an, hvorki líkamlegan vesaldóm söguhetjunnar né næstum óbæri- móti koma innblásnar lýsingar hans á þeim hugljómunum sem Meehan/ Nolan upplifir í bók- menntunum. Óhjákvæmilega grípur höfundur til bókmenntamáls til að koma reynslu sinni til skila og gengur þá helst í smiðju til þeirra sem fjörleg- astan og ríkastan stílinn hafa skrif- að; Shakespeares, Hopkins, Joyces og Dylans Thomas. Ofvaxið iíkingamál Þar með er sérhverjum þýðanda auðvitað talsverður vandi á hönd- um. Á hann að þýða bókstaflega það Christopher Nolan. ofvaxna líkingamál sem þessir höf- undar og hinn bæklaði lærisveinn þeirra nota eða umorða það? Eða láta vera að þýða svona bækur? Þýðandi Nolans á ísiensku, Garð- ar Baldvinsson, berst hetjulega við þær gildrúr málsins sem höfundur ieggur fyrir hann en verði^r á end- anum að lúta í lægra haldi: „Löð- randi í velgengni sem ungskáld hikaði hann ekki við að velgja vín sitt, fylla hóla sína af fólki með kveðjum sem kastað var til hans af gæfuhjólinu og sem hann byggði á þessu innihaldi gaggaði hann væna fegurð út úr aðþrengdri sálu sinni.“ (bls. 167) Málsgreinin hér á undan er tekin nánast af handahófi úr bókinni. En þrátt fyrir þá hnökra, sem ís- lenskur lesandi er sifellt að reka sig á, kemst tii skila sú hefjusaga sem hinn ungi íri segir. Og viðbragðsflýtir þýðanda er vissulega lofsveröur. Meö vinstri fæti Það hefúr verið talaö um Nolan sem einstakt fyrirbæri í bók- menntaheiminum. Og það er hann að ýmsu leyti en kannski ekki öllu því að fyrir nokkrum árum dó á Irlandi annar spastiskur höfundur, Christy Brown, sem gat aðeins hreyft á sér vinstri fótinn og með honum skrifaöi hann nokkrar bækur, meðal annars fyndna sjálf- sævisögu sem auðvitað nefnist „My Left Foot“ (Vinstri fótur minn), Chistopher Nolan - Undir augliti klukkunnar, 177 bls. Þýðandi: Garðar Baldvinsson Útgefandi: ísafold „Eitri þrunginn á ég flein“ Nokkrir hagyrðingar hafa ort með þeim hætti aö vísur þeirra munu lifa meöan hagmælska er einhvers metin á íslandi. Einn þessara manna er Sveinn frá Ehvogum. Sá aðdáandi ferskeytlunnar er ekki til sem ekki hefur annað hvort heyrt vísu eftir Svein eða kann nokkrar eftir hann. Það var því þarft og gott verk hjá syni Sveins, Auðuni Braga, að safna saman vísum fóður síns og gefa út í myndarlegri bók. Að stofrd til er þessi bók byggð á tveimur litlum bókum sem Sveinn annaðist sjálfur útgáfu á og hétu „Andstæður", sem kom út 1933, og „Nýjar andstæður" sem kom út 1935. Þessi tvö kver eru löngu ófáanleg. Nú eru þau sem sé endurútgefm og að auki nokkrar vísur, áður óprent- aöar. Sveinn Hannesson frá Elivogum fæddist 3. apríl 1889 en hann andað- ist aðeins 56 ára gamall áriö 1945. Sveinn var snemma landskunnur fyrir góðar vísur en sennilega hefur hann orðið frægastur fyrir grimmar ádeiluvisur. Urðu margir til að líkja honum við Bólu-Hjálmar á því sviði. Slík samlíking er óþörf. Sveinn var einstakur, hafði sinn stíl og vissulega gat hann bitiö frá sér eins og vel kemur fram í einni kunnustu vísu hans. Sagan segir aö þá hafi ungur kjaftaskur verið að abbast upp á Svein meö svívirðingar en fékk þessa vísu sem lokaði á hon- um munninum: Hafðu ungur hóf við Svein, hreyfðu ei þungum nótum, eitri þrunginn á ég flein undir tungurótum. Á mjúkum strengjum Þannig er vísan í þessari bók en ég hef einnig heyrt botninn svona: því eitur þrunginn á ’ann flein, undir tungurótum. Skiptir í rauninni ekki mál hvor botninn er réttur, vísan er snilld. En þótt margar kunnustu vísur Sveins séu heldur kaldar, átti hann líka til mjúka strengi eins og vísan sem hann orti til konu sinnar þegar hann kom heim dauövona. Þetta er raunar sögð vera síðasta vísan sem Sveinn orti: Langa vegi haldið hef, hindrun slegið frá mér. Hingað teygja tókst mér skref, til að deyja hjá þér. Þær gerast ekki betri ferskeytlurn- ar. Sveinn var bóndi og erfiðismaður alla tíð. Hann átti að sjálfsögðu oft erfitt og mætti ranglætinu gjarnan með munninum, eins og hann segir Bókmenntir Sigurdór Sigurdórsson sjálfur, en vísan var oft vopn þeirra sem minna máttu sín. Hann lýsir þessu sjálfur þannig: Móti opnum illskuheim eg læt munninn glíma. Margt aö vopni verður þeim vel sem kunna að ríma. Mig þó stangi mannýg naut minnst það angrar gaman. Skulu fanga þunga þraut, þau sem ganga að framan. Maður augnabliksins Sveinn frá Elivogum var sagður fljótur að yrkja og sennilega hefur hann ekki gert mikið af því að laga eða breyta fyrstu gerð vísunnar, það tel ég aö megi sjá á mörgum þeirra. Þó er hvergi um hroðvirknislegar yrkingar að ræða en ef bestu vísur hans eru bornar saman við þær lak- ari sést að hann heföi getað gert þær betur úr garði ef hann hefði sinnt því. Margar vísur Sveins bera þess líka merki að hann hefur lagt í þær Sveinn frá Elivogum. vinnu. Einnig sést að hann hefur verið maður augnabliksins, eins og svo margir hagyrðingar. En hvers vegna að vera að ræða þetta. Sveinn hefur fyrir löngu unniö sér ódauðlegan sess sem hagyrðing- ur. Það er alveg víst að allir unnend- ur ferskeytlunnar munu fagna því að fá vísur þessa snillings saman í eina bók. Það hefði raunar átt að gerast miklu fyrr. Skuggsjá Sveinn frá Elivogum Andstæður Ljóðasafn Auðunn Bragi Sveinsson annaðist útgáfuna -S.dór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.