Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1989, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1989. Viðskipti Hvernig stóðust spárnar? - Félag íslenskra iðnrekenda komst næst því Félag íslenskra iönrekenda komst næst því aö spá fyrir um verðbólgu á árinu 1988. Þaö spáöi í desember 1987 að verðbólgan yröi 21 prósent frá upphafi til loka ársins 1988. Raun- veruleikinn varð 18 prósent verö- bólga. Miöaö er við hækkun fram- færsluvísitölunnar. Opinberar stofn- anir eins og Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki spáöu 10 og 11 prósent verðbólgu. Þær spár sem hér eru bornar saman eru allar geröar á síð- ustu mánuðum ársins 1987 og voru fyrir áriö 1988. Félag íslenskra iðnrekenda Félag íslenskra iðnrekenda með framkvæmdastjórann, Ólaf Davíðs- Fréttaljós Jón G. Hauksson son hagfræðing, í fararbroddi spáði í desember árið 1987 aö verðbólgan á árinu 1988 yrði 21 prósent. Þetta birt- ist í efnahagsspá félagsins. Þegar leið á árið 1988 breytti félagið raunar spá sinni og gerði ráð fyrir mun meiri verðbólgu. Ólafur Davíðsson hagfræðingur vann um árabil á Þjóðhagsstofnun. Hann var ætíð næstæðsti maður stofnunarinnar. En á tímabili eftir 1980 gegndi hann starfi forstöðu- manns stofnunarinnar er Jón Sig- urðsson vann hjá Alþjóða gjaldeyris- sjóðnum í Bandaríkjunum. Ólafur var ráðinn framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda þegar Jón sneri heim og tók við Þjóðhagsstofnun aft- ur. Verslunarráð íslands í lok ársins 1986 komst Verslunar- ráð íslands næst því að spá fyrir um verðbólgu ársins 1987. Að þessu sinni er Verslunarráð nokkuð frá því. Ráð- ið spáði að verðbólgan yrði yfir 30 prósent frá upphafi til loka ársins 1988. Það sem helst fer með spána er að gert var ráð fyrir mun meiri geng- isfellingu og minni samdrætti en raun varð á. Framkvmdastjóri þess, Vilhjálmur Egilsson, telur raunar aö þessar gengisfellar eigi eftir að koma fram og að í lok ársins hafi um 15 prósent gengisfellingi verið í pípun- um þegar ríkisstjómin felldi gengið um 4 prósent. Þjóðhagsstofnun Þjóðhagsstofnun gaf í október út þjóðhagsáætlun. í kaflanum um horfur fyrir árið 1988 segir að mikil óvissa sé um verðlag á árinu 1988. Þjóðhagsstofnun gerir hins vegar ráð fyrir því aö frá upphafi til loka ársins 1988 verði veröbólgan um og innan við 10 prósent. í þessari áætlun er gert ráð fyrir að gengi krónunnar verði óbreytt út árið 1988. Stofnunin bendir á að kjarasamningar, sem fyr- ir lá að gera á árinu, hafi mikil áhrif á þróun verðbólgunnar. Niðurstaðan er samt sú að Þjóöhagsstofnun var nokkuð fjarri því sem síðar varð. Það er athyglisvert að Þjóðhags- stofnun spáði í desember árið 1986 um 6 til 8 prósenta verðbólgu á árinu 1987. Þegar árið var nýbyrjað kom endurskoöuð þjóöhagsáætlun sem gerði ráð fyrir um 10 til 12 prósent verðbólgu á árinu 1987. Raunveru- leikinn varð hins vegar 25 prósent verðbólga. Seðlabankinn Seðlabankinn er ævinlega mjög á sömu nótum í spám sínum og Þjóð- hagsstofnun. Aö þessu sinni spáði Seðlabankinn í byrjun desember árið 1987 að verðbólgan ætti eftir að verða um 11 prósent á árinu 1988, það er frá byrjun þess til loka. Seðlabankinn gekk út frá því eins og Þjóðhagsstofun að gengiö yröi stöðugt á árinu 1988 og að kjara- samningar yrðu ekki hærri en fyrir lá að BSRB hafði samið um eða í kringum 7 prósent. Ekki varð það raunveruleikinn. Hvað þá að spá bankans um gengi væri rétt. Það átti Ólafur Daviðsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra iðnrekenda, var næstæðsti hagfræðingur Þjóð- hagsstofnunar um árabil. nefnilega eftir aö falla um 22 prósent á árinu. ASÍ Alþýðusamband íslands, ASÍ, gerði ráð fyrir því í kringum síðustu ára- mót að verðbólgan myndi verða um 30 prósent á árinu. Forsendurnar voru ekki ósvipaðar þeim sem Versl- unarráðið haföi eða að stjórnvöld myndu skrá raungengið rétt, það er láta gengið falla og síga, eða hvað það heitir, til að halda útflutningsat- vinnuvegunum gangandi. Sem aftur átti að þýða að samkeppnisstaðan breyttist ekki. Gert var ráð fyrir að kaupmáttur héldist. Þannig að for- sendurnar voru í raun verðbólga og launahækkanir á árinu 1988. í mars endurskoðaði ASÍ svo spána og gerði ráð fyrir um 17 prósent verðbólgu. Þar hitti sambandið nokkuð nærri raunveruleikanum. VSÍ Vinnuveitendasamband íslands, VSÍ, gerði í raun enga áætlun um verðbólguna á árinu 1988. Það gaf sér hins vegar að ef launahækkanir yröu snemma á árinu aðeins 7 prósent og í kjölfarið kæmi 6 prósent gengis- feliing yrði verðbólgan um 12 prósent á árinu. Eftir að Vestfjarðasamning- ar voru í höfn og þóttu ekki nægileg- ir var ljóst aö ekki myndi 12 prósent spáin ganga eftir. Veðurspá og verðspá Hagfræðingar hafa stundum líkt verðbólguspám við veðurspár. Hag- stjórnartækin eru þá þau tæki sem hafa áhrif á gang lægða hjá veður- fræðingunum. Þetta er skemmtileg samlíking. í stað þess að hið opinbera hefði áhrif á gang lægða og héldi verðbólgunni niðri, flæddu lægðirn- ar yfir okkur með tilheyrandi verð- bólgurigningu. Annað verður að hafa í huga. Það er í raun ekki það sama að gera efna- hagsspá og efnahagsáætlun. Amy Engilberts spákona spáir en gerir ekki áætlanir. Hún segir ekki að ef þetta og hitt gerist lendi menn í ævin- týrum. Hún segir einfaldlega að menn lendi í ævintýrum eða ekki. Það gefur auga leið að Seðlabank- inn er meira í því sem kallast efna- hagsáætlanir en efnahagsspár. Ef bankinn spáði mikilli gengisfellingu gæti orðið erfitt að birta slíka spá þar sem bankinn myndi fyllast daginn eftir af fólki sem væri gráðugt í gjald- eyri. Hvernig hefði Amy Engilberts spáð? Þaö hefði verið gaman að sjá spá spákonu eins og Amy Engilberts um verðbólguna árið 1988. Kannski að hún hefði séð fyrir launahækkanir sem kæmu af stað verðbólgu. Tregðu í nokkum tíma við að fella gengið. Svartan miðvikudag í maí þegar gengið féll af sjálfu sér vegna mikill- ar ásóknar í gjaldeyri. Og svo nýja Hvernig stóðust verðbólguspárnar? Svona voru verðbólguspárnar. Raunveruleikinn, er kemur fram á myndinni sem ör þvert á súlurnar, varð 18 prósent verðbólga frá upphafi til loka árins 1988. DV-graf JRJ Sametning Sjóvá og Almennra: Búið er að skrá fyrirtækið Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - tveir forstjórar stýra því Fyrirtækiö Sjóvá-Almennar tryggingar hf. var stofnaö 16. des- ember síðastliðinn og skráö hjá Hlutfélagaskránni 30. desember, samkvæmt upplýsingum frá Hluta- félagaskránni í gær. Forstjórar hins nýja fyrirtækis eru Einar Sveinsson og Ólafur B. Thors. Stjórnarformaður er Benedikt Sveinsson, fyrrura stjómarformað- ur Sjóvá. Síðar f þessum mánuði halda bæði Sjóvá hf. og Almennar trygg- ingar hf. hluthafafundi þar sem gengið verður formlega frá samein- ingunni. Fundirnir veröa að öllum líkindum haldnir sama dag. Síð- degis þennan dag veröur svo sara- eiginlegur hluthafafundur Sjóvá- Almennra trygginga hf. haldinn. Formaöur hinnar nýju stjómar Ólafur B. Thors, nýr forstjóri Sjóvá-Almennra trygginga hf. Einar Sveinsson, nýr forstjóri Sjóvá-Almennra trygginga hf. er Benedikt Sveinsson, formaður stjórnar Sjóvá. Varaformaður er Hjalti Geir Kristjánsson, núver- andi formaöur stjórnar Almennra trygginga. Svo virðist því sem Sjóvá muni eiga meira í hinu nýja fyrirtæki en Almennar tryggingar. Aörir í stjórn em ÁgústFjeldsted, Jóhann G. Bergþórsson, Kristinn Björnsson, Kristján Loftsson, Teit- ur Finnbogason. Varamenn eru Ólafur Davíðsson og Einar Sveins- son. Framkvæmastjórar hins nýja fyrirtækis era Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Sjóvá, og Ólafur B. Thors, framkvæmdastjóri Al- mennra trygginga hf. Báðir hafa eru þeir handhafar prókúru, sam- kvæmt Hlutafélagaskránni í gær. -JGH ríkisstjóm um haustið með Stein- grím Hermannsson í fararbroddi. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 2-4 Lb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 2-4,5 Lb 6mán. uppsögn 2-4,5 Sb 12mán. uppsögn 3,5-5 Lb 18mán.uppsögn 8 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Vb Sértékkareikningar 0.5-4.0 Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb Innlán með sérkjörum 3,5-7 Lb Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 7.5-8,5 Úb.Bb,- Vb Sterlingspund 11-12,25 Úb Vestur-þýsk mörk 3,75-4,5 Vb.Sp,- Úb.Bb Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 11-12 Lb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 11,75-12,5 Vb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(vfirdr.) 14,5-17 Lb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 8-8,75 Vb Útlántilframleiðslu isl. krónur 12-12,5 Lb.Sb,- Bb.Úb SDR 9.5 Allir Bandaríkjadalir 11-11,5 Úb Sterlingspund 14,50- allir 14,75 nema Úb Vestur-þýsk mörk 7,25-7,5 allir nema Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán. MEÐALVEXTIR óverötr. des. 88 17,9 Verðtr. des. 88 8.7 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitalajan. 2279 stig Byggingavisitala jan. 399,5 stig Byggingavisitala jan. 125,4stig Húsaleiguvísitala Engin hækkun Verð- stoðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 3,428 Einingabréf 2 1,932 Einingabréf 3 2,226 Fjölþjóöabréf 1.268 Gengisbréf 1.586 Kjarabréf 3,417 Lífeyrisbréf 1.724 Skammtímabréf 1.193 Markbréf 1.813 Skyndibréf 1,045 Sjóösbréf 1 1.644 Sjóðsbréf 2 1.381 Sjóösbréf 3 1,168 Tekjubréf 1.545 HLUTABREF Söluverð aó lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 130 kr. Eimskip 380 kr. Flugleiðir 288 kr. Hampiðjan 155 kr. Hlutabréfasjóður 151 kr. Iðnaöarbankinn 177 kr. . Skagstrendingur hf. 200 kr. Útvegsbankinn hf. 134 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 126 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, LJb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. ENOURSKINSMERKI ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA! Best er að hengja tvii merid, fyrir neðan mitti - sitt á Imxa hlið. Á skjótfatnaði er heppilegt að hafa endurskinsrenninga fremst á ermum og á faldi að aftan og framan. UMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.