Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Page 13
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989.
13
13 V
„Islændíngeme skal tippe
nyt og moderne"
Getraunaspá
fjölmiðlanna
Q.
:z, c (0 > c CO
> jQ C E ‘> *o ;° r- 3 O) (0 (0 o> >. ‘3 </> 2 c i- .2.
Q P !a Q m E U)
Hiö nýja íslenska sölukerfi á get-
raunaseðlum hefur vakið athygli
viða. Blaðamenn danska Tipsbladet,
sem er stærsta blað um getraunir á
Norðurlöndum, og þó víðar væri leit-
að, skrifuðu nýlega grein um sölu-
kerfiö nýja og hældu því mjög. Fyrir-
sögn þessarar greinar lýsir innihaldi
greinarinnar sem er óvenju nákvæm
því oft er rangt sagt frá íslenskum
málefnum í erlendum blöðum. Það
er einnig athyglisvert hve greinin
fær mikið pláss. Henni er komið fyr-
ir á heilsíðu, en auk þess eru 240 fer-
sentímetrar á annarri síðu.
Danir eru farnir að huga að bein-
línukeríl og hafa meðal annars skoð-
að hugmyndir í Bandaríkjunum. ís-
lenska kerfið er einmitt hannað hjá
bandaríska fyrirtækinu GTECH.
Nú sýður upp
úr tröllapotti
Úrslit voru með versta móti um
síðustu helgi en þó voru óvæntustu
úrslit bikarkeppninnar ekki með á
seðlinum. Það voru sigur utandeild-
arhðsins Sutton á Coventry, svo og
sigur fjórðu deildar liðsins Grimsby
á Middlesbro. En íslenskir tipparar
áttu nóg með heimasigur Bradford
gegn Tottenham og öll sex jafnteflin.
Því kom engin röð fram með 12 rétta,
en fjórir tipparar náðu 11 réttum.
Fyrsti vinningur, 1.793.769 krónur,
bíður því næstu viku. í annan vinn-
ing komu 498.182 krónur og fær hver
tippari 124.545 krónur fyrir ellefu
rétta. Alls seldust 437.002 raðir. Það
er ljóst að mikið verður tippað um
næstu helgi og potturinn verður stór.
Á fimmtudaginn í síðu%fu viku
sagði ég frá því að hópkeppnin og
fjölmiölakeppnin væru að hefjast, en
þar var ég töluvert fljótfær því
keppni í þessum flokkum hefst ekki
fyrr en á laugardaginn. Skýring er
sú að gert er ráð fyrir þeim mögu-
leika að einhverjir keppendur verði
jafnir og þurfi að keppá bráðabana
um úrslit. Forleik íslenskra getrauna
lauk því ekki fyrr en um síðustu
helgi, með sigri BIS hópsins, sem
reyndar var búinn að vinna keppn-
ina vikuna áður.
Hópkeppnin og fjölmiðlakeppnin
munu fylgjast að næsta árið. I hóp-
keppninni verður keppt þrisvar
sinnum á árinu og krýndir vor-, sum-
ar- og haustmeistarar. Hver keppni
stendur yfir í 15 vikur og gildir hæsta
skor 10 bestu viknanna. Lagðar
verða saman hæstu skorir allra
þriggja hluta keppninnar og með því
eiga að fást úrslit í keppninni um
íslandsmeistara í tippi árið 1989. Fyr-
ir vorleik getrauna verða veitt vegleg
verðlaun, ferð fyrir fjóra aðha á úr-
slitaleik ensku bikarkeppninnar á
Wembley 21. maí næstkomandi.
Fjölmiðlakeppnin er með því sniði
að keppni hefst sömu vikurnar og
hópkeppnin og stendur yfir í 15 vikur
hvert skipti. Árangur allra 15 vikn-
anna gildir.
Nú hafa tæplega þrjú hundruð hóp-
ar skráð sig til leiks í hópkeppninni.
Því þarf að fara að huga að keppnis-
reglum fynr bikarkeppni íslenskra
getrauna. í fyrravetur fékk hver hóp-
ur 96 raðir til umráða. Ekki hefur
enn verið ákveðið hvernig reglurnar
verði. Sú hugmynd hefur skotið upp
kollinum að hver hópur fái sem svar-
ar 96 röðum. Raðirnar 96 fari allar á
einn seðh. Það er hægt að tippa þann-
ig á einn 96 raða dálk, tvo 48 raða
dálka, þrjá 32 raða dálka, fjóra 24
raða dálka eða sex 16 raða dálka. En
þar sem ekki er enn búið að fullvinna
bikarkeppnisreglur eru hugmyndir
vel þegnar. Því ættu þeir tipparar,
sem langar að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri, að hringja í Sigurð
Baldursson 4 skrifstofu íslenskra
getrauna og reifa málið við hann.
Vegna fjölda hópanna tekur bikar-
keppnin minnst átta vikur. Til að
verða Vorbikarmeistari þarf tippari
að vinna átta andstæðinga í röð því
jafntefh teljast ekki með.
LEIKVIKA NR.: 2
Aston Villa ..Newcastle 1 X 1 1 1 1 1 2 1
Charlton ..Luton 2 X X 1 X 1 X X 2
Derby ..West Ham 1 1 1 1 1 2 1 1 1
Everton ..Arsenal 1 X X 2 1 1 X X 1
Manch.Utd .. Millwall 1 1 1 1 1 1 1 2 1
Norwich ..Coventry 1 X 1 X X 1 1 1 1
Sheff.Wed ..Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2
Southampton ..Middlesbro X 2 1 1 1 X 1 1 X
Wimbledon ..Q.P.R X 1 2 2 X 1 1 1 1
Leicester ..Portsmouth 2 X X 2 1 1 X 1 1
Oldham ..Manch.City 2 X 2 X X 2 2 X 1
Watford ..W.B.A 1 2 X 1 X 1 2 2 X
Hve margir réttir eftir 1. leikviku: 0 0 0 0 0 0 0 0 0
^■TIPPAÐ, r
mmá Á TÓLF
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Enska 1. deildin
L HEIMALEIKIR U J T Mörk U ÚTILEIKIR J T Mörk S
19 5 2 1 16 -8 Arsenal 7 2 2 26-12 40
20 4 6 1 15-12 Norwich 6 2 1 14 -8 38
19 7 1 1 17 -7 Millwall 2 5 3 13-14 33
20 3 5 2 10 -7 Liverpool 5 2 3 14 -9 31
20 5 2 3 16 -9 Coventry 3 4 3 11 -11 30
19 5 3 1 17 -8 Everton 3 3 4 8-11 30
19 4 2 5 11 -9 Derby 4 3 1 10-5 29
20 2 5 2 9-10 Nott. Forest 4 5 2 16-13 28
20 5 4 1 16 -7 Manch.Utd 1 5 4 9-11 27
20 4 4 3 19-16 Southampton 2 4 3 14 -21 26
20 4 4 3 19-17 Tottenham 2 3 4 11 -13 25
19 4 2 4 12-13 Wimbledon 3 2 4 11 -14 25
20 6 2 2 15-10 Middlesbro 1 2 7 9 -21 25
20 4 2 3 11 -7 Q.P.R 2 4 5 12-13 24
20 3 5 1 15 -8 t.uton 2 3 6 8-15 23
20 4 3 3 14-13 Aston Villa 1 5 4 14-18 23
19 3 2 4 8-12 Sheff.Wed 2 4 4 7-14 21
20 1 5 5 12-20 Charlton ..i 2 3 4 7-12 17
20 2 3 5 10-14 Newcastle 2 2 6 6-21 17
20 1 3 6 10-19 West Ham • 2 2 6 6-16 14
Enska 2. deildin -
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
24 8 2 2 26 - 9 W.B.A 4 6 2 17 -12 44
24 6 4 2 24 -12 Chelsea 6 4 2 23-14 44
24 9 1 2 26 -15 Blackburn 4 2 6 14 -20 42
24 8' 2 2 22 -8 Watford 4 3 5 13-15 41
24 6 5 1 22-13 Manch.City 5 3 4 11 -10 41
24 8 1 3 17 -8 Bournemouth 3 3 6 11 -18 37
24 7 3 2 20 -10 Barnsley 3 3 6 12 -21 36
23 6 5 1 21-9 Crystal Pal 3 3 5 16 -21 35
24 7 3 2 21 -9 Portsmouth 2 5 5 13 -22 35
24 6 6 0 21 - 8 Sunderland 2 4 6 13 -19 34
24 6 3V 3 19-11 Leeds 2 7 3 9-11 34
24 6 2 4 19-14 Ipswich 4 2 6 13 -16 34
24 7 3 2 19-11 Stoke 2 4 6 10-26 34
23 5 4 2 17-11 Swindon. 3 5 4 15 -19 33
24 6 4 2 18 -9 Leicester 2 4 6 12 -24 32
24 7 3 2 23 -11 Plymouth 2 2 8 8 -25 32
24 4 6 2 14-11 Bradford 3 4 5 11 -17 31
24 4 7 1 16-10 Ilull 3 1 8 13 -25 29
24 5 3 4 23 -18 Oxford 2 3 7 15-19 27
24 4 5 3 24 -18 Oldham 1 4 7 12-22 24
24 6 2 4 22 -13 Brighton 1 1 10 11-28 24
24 1 6 5 10-16 Shrewsbury 3 4 5 10-19 22
24 2 3 7 11-21 Birmingham 1 4 7 5-25 16
24 2 3 7 13-18 Walsall 0 5 7 6 -20 14
______________________________Tippaðátólf
Nær Norwich toppnum á ný?
1 Aston Villa - Newcastle 1
Eftir hrikalega byrjun vetrarins tók Newcastie smásprett
strax eftir að Jim Smith tók við framkvæmdastjórastöðunni
fyrir mánuði en fljótlega fór allt í sama horfið og fyrr og nú
er hðið í næstneðsta sæti. Aston Villa er þremur sætum
ofar, hefur tapað tveimur síðustu leikjum sinum. Leikmenn
Villa spila af krafti og skora töluvert af mörkum.
2 Charlton - Luton 2
Charltonhóið er ákaflega slakt, hefur ekki unnið deildarleik
í tíu síðustu viðureignum sínum. Liðið er í þriðja neðsta
sæti deildarinnar. Luton er með betri mannskap, en er þó
neðarlega. Leikmenn Luton hafa skorað fá deildarmörk í
vetur, 23 mörk í 20 leikjum. Þó hef ég meiri trú á sigri Luton
í þessum leik.
3 Derby - West Ham 1
Derby hefur staðið sig vel sem nýhðar í 1. deild. Liðið er
sem stendur í sjöunda sæti en komst alveg upp að toppsæt-
inu um hríð fyrr í vetur. Vöm Derby hefur verið góð, hðið
hefur fengið á sig fæst mörk allra hða í 1. deild, 14 samtals,
á meðan sóknin hefur valdið áhangendum hðsins vonbrigð-
um. West Ham er mjög slakt um þessar mundir, er í neðsta
sæti. Leikmenn hðsins hafa einungis skorað 6 mörk í tíu
útileikjum í vetur.
4 Everton - Arsenal 1
Munurinn á þessum hðum er 10 stig, Arsenal í hag. Ef Ever-
ton ætlar að veita Arsenal keppni í vetur veröur Everton
að vinna þennan leik. Það er hvergi veikleika að finna í
Evertonhðinu en þó hefur hðið ekki spjarað sig eins vel í
vetur og sparksérfræðingar vonuðust til. Arsenal er efst,
enda eru leikmennimir miklir markaskorarar, hafa skorað
42 mörk í 19 leikjum, rúmlega tvö mörk í leik. Everton tap-
ar ekki svo mikilvægum leik á heimavelh og vinnur líklegast.
5 Manch. United - Millwall I
Manchester United er ávallt sigurstranglegt á heimavelh
þó svo að hðið hafi ekki rifið sig upp í vetur og gert út um
leiki á Old Trafford. Leikmenn Mihwall njóta þess enn að
spila í 1. deOdinni þar sem hðið er í fyrsta skipti. Millwall
hefur vægast sagt komið á óvart, er í þriðja efsta sæti deild-
arinnar. Millwall er svo til ósigrandi á heimavelh en slakara
úti þar sem hðið hefur einungis unnið tvo leiki.
6 Norwich - Coventry 1
Gengi Norwich er með ólíldndum. Liðið hefur verið í efsta
sæti lungann úr vetrinum en er nú nsestefst. Liðið hefur
einungis tapað tveimur leikjum til þessa í 1. deildinni. Það
er besti árangur hða í l. deild. Coventryhðið er í sárum
eftir smánarlegt tap fyrir utandeildarhðinu Sutton í bikar-
keppninni. Coventry hefur gengið iha á útivelh undanfarið.
Liðið vann þxjá fyrsm útileiki sína í haust en hefur ekki unn-
ið neinn af sjö þeim síðustu.
7 Sheff. Wed. - Liverpool 2
Sigurður Jónsson og félagar í hnífaborgarhðinu taka á móti
Englandsmeisturunum frá Liverpool. Kurr er í leikmönnum
Sheffieldliðsins, margir vilja fara og framkvæmdastjórinn
er valtur í sessi eftir slakan árangur undanfarið. Liverpool
refsar hðum fyrir mistök og má búast við að refsivendimir
Rush og félagar vinni Shefifield Wednesday í beinni útsend-
ingu í íslenska sjónvarpinu á laugardaginn.
8 Southampton - Middlesbro X
Seraúlega er heimasigur líklegastur í þessum leik þó svo
að ég spái jafntefh. Gengi Middlesbro hefur verið rýrt und-
anfarið. Liðið hefur einungis unnið einn af síðustu átta deild-
arleikjum sínum og tapaði fyrir ^órðu deildar hðinu Grims-
by um síðustu helgi í bikarkeppninni. Southampton hefur
eixuúg verið slakt undanfarið, er án sigurs í átta síðustu
deildarleikjum sinum. Southampton •hefux spilað tvo erfiða
bikarleild undanfarið og því verða leikmeraúmir kraftlausir.
9 Wimbledon - QPR X
Þessi Lundúnaslagur verður erfiður. Liðin spila ólfka knatt-
spymu, Wimbledon með hálofta-ribbaldaknattspymu, en
OPR rembist við að halda knettinum með jörðinni. Liðin em
á svipuðum stað í deildinra, fyrir neðan miðju. Það má bú-
ast við miklum hlaupum, en engum kaupum. 0-0 er ekki
ólíklegt.
10 Leicester - Portsmouth 2
Portsmouth gekk vel á tímabih í vetur, var komiö upp und-
ir toppinn en er í niunda sæti sem stendur. Nú þarf hðið
að taka sig á ef það ætlar upp í 1. deild. Árangur Ports-
mouth á útivelh hefur verið frekar slakur hingað til. Leicest-_
er hefur unnið fimm af síðustu sex heimaleikjum sínum.'
Portsmouth kemur á óvart og vinnur þennan leik.
11 Oldham - Manch. City 2
Nágrannaslagur í 2. deildinni því Oldhamborgin er örstutt
frá Manchesterborginni. Manchester City er með ungt og
sókndjarft hð, en á móti kemur reynsluleysi. Oldham hefur
verið slakt og er í fimmta neðsta sæti. Mikfil þrýstingur er
á efstu liðunum í 2. deild þennan veturinn því keppnin er
jöfii. Hvert stig er dýrmætt og eykur það spennuna. Citylið-
ið er á flugi og brotlendir varla í þessum leik, á gervi-
grasinu í Oldham.
12 Watford - WBA 1
Watford hefur ekki tapað nema tveimur leikjum á heima-
vehi í vetur. Nú eru andstæðingamir erfiðari en oft áður
því West Bromwich Albion hðið firá Biiminghamborginni
er efst í 2. deildinni. WBA hefur einungis tapað einum af
síðustu fjórtán deildarleikjum sínum, en slik sigurganga tek-
ur enda þegar minnst varir. Watford hefur einungis fengið
á sig átta mörk í tólf leikjum á heimavelh. Af því er tekið
mið þegar heimasigri er spáð.