Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989.
25
DV
LífsstOl
Spumingar til lögfræðings Húseigendafélagsins:
Mikil viðbrögð lesenda
í síðustu viku birtum við spurn-
ingar lesenda til Sigrúnar Bene-
diktsdóttur, lögfræðings Húseig-
endafélagsins, og svör hennar. Af
viðbrögðum lesenda að dæma virð-
ast margir þurfa á aðstoð aö halda
við að leysa úr ýmsum vandamál-
um varðandi íjölbýli og ýmislegt
annað í húsnæðismálum. Fjöl-
margar fyrirspurnir bárust og hér
á síðunni eru birt svör Sigrúnar
og Sólveigar Kristjánsdóttur hjá
Húseigendafélaginu. Þær reyna að
leysa úr spurningum varðandi fjöl-
býlishúsalög, húsaleigulögin og
ýmis vandamál sem geta komið
upp hjá húseigendum. Viö bendum
á að tekið er við fyrirspurnum í
síma 27022.
-ÓTT
Sigrún Benediktsdóttir, lögfræð-
ingur Húseigendafélagsins.
Sólveig Kristjánsdóttir, ritari Hús-
eigendafélagsins.
Seljandinn
gleymdi að
segja okk-
ur að...
íbúi í gamla bænum í Reykjavik
spyr:
- Við hjónin fengum afhenta
íbúð sem við keyptum íyrir
nokkrum mánuðura. Skömmu
eftir afhendingu tókum við eför
því að það fór að leka út frá röri
í vegg á baði. Nú er dúkurinn á
gólfmu skemmdur og skipta þarf
um hluta af flísurn á veggnum.
Verst er að þær eru orðnar það
gamlar að þær fást ekki lengur.
Seljandinn sagðist hafa haldið að
þama væri bara hélað rör og að
hann hefði gleymt að segja okkur
frá þessu. Bn steypan í veggnum
er morknuð og það verður tölu-
verður kostnaður viö að lagfæra
skemmdirnar. Okkur langar til
að vita hvort seljandinn sé bóta-
skyldur?
Svar: Ef skemmdin er í íbúðinni
þegar hún er keypt eða flutt er
inn er um leyndan galla að ræða.
Seljandi er bótaskyldur í þes9u
tilfelli Hins vegar falla skemmd-
imar undir húseigendatrygg-
ingu. Húseigendatryggingin bæt-
ir flísalögn, brot og viðgerðar-
kostnaö aö undanskildum kostn-
aði við sjálfa lögnina. Sé trygging
ekki fyrir hendi á seljandinn að
bæta tjónið.
Er haegt að
láta endur-
reikna
eignarpró-
sentu?
Eigandi blokkaribúðar með
nokkrar spurningar:
- Mig langar til að vita hvort
hægt sé að láta reikna upp eingar-
prósentuhlutfall á milli íbúða, því
þar sem ég bý borga eigendur til-
tölulega minni íbúða meira í hus-
sjóð en eigendur stærri íbúða?
Það hlýtur að hafa orðið einhver
misskilningur varðandi teikning-
ar í upphafi (þetta er nýleg
blokk).
Auk þessa leikur mér forvitni á
að vita hvort seljanda beri ekki
að borga upp skuldir hússjóðs
þegar hann selur íbúð sína.
Svar:Það hefur komið fyrir að
íbúðahlutfall hafi verið ranglega
reiknað vegna mistaka. í tilfell-
um sem þessum er ráðlegast að
leita til byggingafulltrúa sem
myndi annast endm-mat á pró-
sentuhlutfalli hverrar ibúðar. Að
þessuJoknu verður að fá lögfræð-
ing til að útbúa skiptayfirlýsingu.
Varðandi seinni spuminguna
er seljanda skylt að láta liggja
frammi staðfestingu um stöðu
viðkomandi gagnvart sameign.
Sé inneign í viðkomandi hússjóði
skal kaupandi yflrtaka hana en
skuld við hússjóð skal seljandi
greiða.
Á m á 1 n i ngarkostnaöu r að
skiptast jafnt á raðhúsaeigendm?
Kona í Breiðholtinu hringdi:
- Við höfum nokkrir íbúar í rað-
húsalengju verið að velta því fyrir
okkur hvort kostnaður við málning-
arvinnu eigi að skiptast jafnt niður.
Ég geri ráð fyrir að töluvert meiri
málningu þurfi til að mála endarað-
hús vegna gaflanna. Eiga „miðhús-
in“ að borga jafnt og eigendur enda-
húsanna?
Svar: Svona tilfelli verður helst að
meta með tilliti til lóðarúthlutunar
og byggingarmáta hverju sinni. Hafi
íbúar raðhúsanna keypt af bygginga-
meistara og ráöa verktaka tO máln-
ingarframkvæmda er sjálfsagt að
greiða sameiginlega. Sér lóðarút-
hlutun leiðir frekar af sér sér kostn-
að. Yfirleitt er nú samkomulag um
svona atriði. Hins vegar getur lög-
fræðingur Húseigendafélagsins út-
búið skriflega álitsgerð um gafla á
húseignum, þar sem skorið er úr
vafaatriðum.
Eru raðhús sameign eða ekki?
„Vilja ekki láta gera við þótt hripleki"
Kona utan af landi hringdi:
- Mér er mikill vandi á höndum. Ég
bý á neðri hæð í tvíbýli og eignar-
hlutur minn í húsinu er 50%. í hús-
inu er töluvert mikið um leka, sér-
staklega með gluggum. Það er mjög
margt í húsinu sem þarf að bæta og
gera við. Það lekur niður til okkar á
neðri hæðina, dúkar og annað hefur
skemmst. Við erum búin að mála og
bæta hér niðri en það skemmist jafn-
harðan aftur vegna ástandsins að
ofan. En þaö er ósætti í húsinu því
íbúi efri hæðarinnar vill fyrir enga
muni ráðast í framkvæmdir - við
erum búin að reyna allt tO sátta. Og
svo getum við ekki selt því allir
þekkja til hérna, bæði ástand hússins
og íbúann uppi. Hvert eigum við aö
snúa okkur?
Svar:Best er fyrir þig að boða tO lög-
legs húsfundar um málið. Ef sam-
bandið er með öllu óviðunandi getur
þú sent nágrannanum símskeyti um
það sem taka skal fyrir og taka afrit.
Síðan getur þú fengið byggingafull-
trúann í byggðarlaginu til að kanna
skemmdirnar hjá þér og í hinni íbúð-
inni. Hann myndi gera skýrslu um
ástand hússins. Hinum eigandanum
er óheimilt að hindra aðgang í þess-
um tilgangi, skv. fjölbýlishúsalögun-
um um sameiginlegt viðhald. Neiti
hann verður að koma tO fógetavalds.
Neiti svo eigandi með öllu að taka
þátt í nauðsynlegum framkvæmdum
er hægt að stefna honum og þú feng-
ir í framhaldi af því lögveð í eign
hans fyrir kostnaði við viðgerðir.
Ræður meirihlutinn vegna teppahreinsunar í stigagangi?
DV-mynd BG
Það er staðið
fyrir þrifum
Kona í fjölbýlishúsi
hringdi:
- 1 stigaganginum þar
sem ég bý eru 9 íbúðir.
Fram kom tOlaga um að
fá mann til að hreinsa
teppin á sameigninni -
þau eru farin að láta
verulega á sjá vegna
óhreininda. En það þurfa
alltaf einhverfir að vera á
móti svona framkvæmd-
um þó aö þær kosti ekki
nema um 600 krónur á
íbúð. Meira að segja held
ég að þaö sé til peningur
í hússjóðnum fyrir þessu.
6 eigendur voru með-
mæltir þessu en 3 íbúðar-
eigendur standa nú þessu
verki fyrir þrifum. Hverj-
ir eiga að hlíta hverju í
þessu tilfeUi?
Svar: í þessu tilfelli þarf
að boða til löglegs hús-
fundar með átta daga fyr-
irvara og tiltaka málefnið
sem á að taka fyrir. Sam-
þykki eigendur meiri-
hluta íbúðanna skv. eign-
arprósentu að láta þrífa
teppin er ósamþykkum
skylt að borga líka -
meirihlutaprósenta ræð-
ur.
Verð ég að vera með
í þvottavélarkaupum?
Eigandi íbúðar í fjölbýlishúsi hringdi:
- Sameignin í húsinu sem ég á íbúð
í hefur til þessa kostað kaup og við-
gerðir á sameiginlegri þvottavél.
Hún hefur bilað í nokkur skipti og
hússjóður greiddi viðgerðir af henni.
Svo er mál með vexti að ég leigi íbúð-
ina og leigjendur hafa kvartað yfir
því að vera að borga viðgerðir (í hús-
sjóð) af þessari þvottavél sem hvorki
ég né þeir nota. Nú á að kaupa nýja
þvottavél í sameignina - hlut sem
hvorki ég né leigjendur koma tO með
að nota. Er mér skylt að vera með í
þessum kaupúm?
Svar:Já, þú ert skyldug/ur til þess
svo framarlega sem meirihlutasam-
þykki hefur fgngist hjá húsfélagi.
Þvottavélin tilheyrir sameigninni og
því fellur viðgerðarkostnaður henn-
ar undir rekstrarkostnað í hússjóði.
Þannig á leigjandinn í þínu tilfeUi að
greiða sem nemur prósentuhlutfalh
íbúðarinnar.
Ekki nota allir þvottavél sem til-
heyrir sameign. DV-mynd BG
Má leigan
hækka
íyrir
1. apríl?
Kona á Akureyri hringdi vegna
leigukostnaðar:
- 1 lok síðasta árs borgaði ég 16'
þúsund kr. í leigu af íbúðinni sem
ég leigi. Um áramótin hækkaði
leigan í 20 þúsund kr. og eigand-
inn segir mér að leigan hækki
upp í 25 þúsund kr. efiir 2-3 mán-
uði og frá og meö vorinu skuli
leigan enn hækka og fari þá upp
í 30 þúsund krónur. Mér fmnst
þetta skrýtið þegar mér er tjáð
að húsaleiga megi ekki hækka
fyrr en 1. april. í mínu tilfelli eru
reyndar engir skriflegir samn-
ingar í gangi - en er þetta leyfi-'
legt?
Svar: Á meöan veröstöðvun rikir
er ekki heimfld tfl að hækka leig-
una eins og í þínu tilfelli nema
aö ganga frá nýjum leigumála.
Hins vegar er skylda af hálfu
leigusala að sjá um aö ganga frá
skriflegum leigusamningi. Neitir
þú aö greiða hækkað leigugjald
getur leigusali gripið til þess að
segja þér upp. En þá gfldir upp-
sagnaifrestur. Hafir þú t.d. búið
lengur í íbúðinni en í eitt ár er
uppsagnarfresturinn 6 mánuðir
frá og með 1. mars eða frá 1. okt-
óber.
Fæ ekki
að klippa
og úða
trén mín
íbúi i Hafnarfirði hringdi:
- Ég er búinn að búa i góöu sam-
býli í raðhúsalengju í 25 ár. Ný-
lega keyptu nýir íbúar húsiö við
hliðina. Én nú ber svo við að trén
sem ég hef ræktað og séð um í
15 ár standa á lóðamörkunum -
þetta eru tré sem ég hef alfarið
séð um að klippa, úða o.s.frv. Tfl
þessa hef ég aðeins fengiö að
klippa trén mín megin, en ihú-
arnir hinum megin neita mér um
að klippa þau hinum megin frá,
og að úða. Ég hef reynt að leita
sátta án teljanlegs árangurs. Er
hægt að skjóta svona ágreiningi
til garðyrkjustjóra t.d. eða eru
engin lagaákvæði til um svona
lagað?
SvanÞetta er erfitt mál viður-
eignar. Um tflfelli sem þessi er
ekki til reglugerð. Um þessar
mundir er þó verið að leggja fyrir
stjóm Húseigendafélagsins að
leggja tfllögu fyrir garðyrkju-
stjóra um að reglugerð verði sam-
in um trjáræktun. Hins vegar
virkar þessi trjágróður sem girð-
ing - þannig ætti að vera hægt
að skjóta þessari deflu til bygg-
ingafiflltrúa.