Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1989, Qupperneq 28
28
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989.
Andlát
Kristín Guðmundsdóttir, áður að
Vesturgötu 17a, lést 10. janúar á EUi-
og hjúkrunarheimilinu Grund.
Ólafur Jónsson, Skipholti 54, er lát-
inn.
Guðrún H. Sveinsdóttir, Hverfisgötu
34, Hafnarfirði, andaðist miðviku-
daginn 11. janúar.
Sigrún Sigurðardóttir frá Faeti, Sæ-
bólsbraut 28, lést í Landakotsspítala
10. janúar.
Jarðarfarir
Hjördís Pétursdóttir, húsfreyja að
»- Grænutungu3íKópavogi,lést2.jan-
úar og verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 13. janúar kl.
15.00. Hjördís fæddist 11. ágúst 1926,
dóttir hjónanna Þórönnu Pálmadótt-
ur og Péturs Péturssonar, kaup-
manns á Akureyri og Siglufirði. Al-
systkini Hjördísar voru Pálmi Pét-
ursson skrifstofustjóri og Anna Pét-
ursdóttir bókari. Hálíbróðir hennar
var Pétur Pétursson, bóndi á Höllu-
stöðum. Hjördís var menntuð sem
snyrtifræðingur frá Kaupmanna-
höfn 1948. Hún giftist 30. september
1950 Páh Hannessyni verkfræðingi
og íifir hann konu sína. Þau eiga tvær
dætur, Þórönnu Pálsdóttur veður-
fræðing, gifta Þorsteini ÓMssyni
dýralækni, og Hólmfríði Guðrúnu
Pálsdóttur tölvunarfræðing, gifta
Guðmundi Skúla Stefánssyni
íþróttakennara. Bamaböm Hjördís-
ar em orðin flmm.
Árni Jónsson, Melabraut 5a, Sel-
tjamamesi, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
13. janúar nk.
Útför Ágústu Jónsdóttur, Austur-
brún 2, sem andaðist 2. þ.m., hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þorgeir Jónsson, bóndi í Gufunesi,
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju fóstudaginn 13. janúar kl.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Húsnæöi fyrir vörugeymslu til leigu strax. Nýtt
hús, 330 ferm, lofthæð 7 metrar. Malbikað plan
fyrir framan. Hillur o.fl. getur fylgt. Nánari upp-
lýsingar veitir Amgeir Lúðvíksson í síma 688222.
ARNARFLUG HF.
tt BLAÐ
BURDARFÓLK
cL öMimw
ú ■■
1? t
t t
t t
t t
í\ t\
- t t
Ít ^ t t
Beykihlíð Birkihlíð Viöihlíð Reynihlíð Lerkihlíð Baldursgötu Bragagötu Haöarstíg Uróarstig Nönnugötu á a
Bárugötu Ránargötu Bergstaöastræti Hallveigarstíg Barónsstíg Eiriksgötu Fjölnisveg Mímisveg 11' t i
t t t t t t t t
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
t t Í
SIMI 27022
13.30. Jarðsett verður í Lágafells-
kirkjugarði.
Sigurlína Jakobsdóttir, Strandgötu
13, Akureyri, lést á hjúkmnarheimil-
inu Seli 5. janúar sl. Jarðarförin fer
fram frá Akueyrarkirkju föstudag-
inn 13. janúar kl. 13.30.
Útför Helgu Sigrúnar Zoega, Álakvísl
112, fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 13. janúar kl. 10.30.
Sveindís Sveinsdóttir, Kleppsvegi
134, verður jarðsungin frá Háteigs-
kirkju föstudaginn 13. janúar kl. 15.
Hannes Jónsson, Drápuhlíð 40, fyrr-
um bóndi að Austur-Meðalholtum,
verður jarðsunginn frá Gaulverja-
bæjarkirkju laugardaginn 14. janúar
kl. 14.
Útför Öldu Kristínar Jóhannsdóttur,
SólvaUagötu 16, Keflavík, fer fram
frá Keflavíkurkirkju laugardaginn
14. janúar kl. 14.
Pálmi Frímannsson heilsugæslu-
læknir lést 5. janúar. Hann fæddist
1. ágúst 1944 í Garðshorni á Þela-
mörk, sonur hjónanna Guðfmnu G.
Bjamadóttur og Frímanns Pálsson-
ar. Pálmi lauk prófi frá læknadeild
Háskóla íslands 1972. Hann var skip-
aður héraðslæknir í Stykkishólms-
læknishéraði 1974 og þar gegndi
hann læknastörfum þar til hann varð
að láta af störfum sökum heilsu-
brests á sl. ári. Eftirlifandi eiginkona
hans er Heiðrún Rútsdóttir. Þau
eignuðust saman tvö börn, auk þess
átti Pálmi kjördóttur. Útför Pálma
verður gerð frá Akureyrarkirkju í
dag kl. 13.30.
Hjalti Benediktsson, fv. aðalvarð-
stjóri, lést 2. janúar sl. Hann fæddist
í Hafnarfirði 2. júlí 1915 og vom for-
eldrar hans þau hjónin Sólrún Nikul-
ásdóttir og Benedikt Jónsson. Hjalti
var tvíkvæntur. Með fyrri konu
sinni, Gróu Pétursdóttur, átti hann
þrjár dætur. Áður hafði hann eignast
son. Eftirlifandi eiginkona hans er
Ingibjörg Stefánsdóttir og eignuðust
þau eina dóttur. Hjalti starfaði lengst
af í Slökkviliðinu. Útför hans verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl.
13.30.
Tilkyimiiigar
Myndakvöld Útivistar
fimmtudagur 12. jan.
Ferðaáætlun 1989 - Grænland Lóns-
sveit - Esjufjöll. Fyrsta myndakvöld árs-
ins verður í Fóstbræðraheimilinu Lang-
holtsvegi 109 og hefst kl. 20.30. Veglegar
kaffiveitingar kvennanefndar Útivistar
eru innifaldar í aðgangseyri. Allir vel-
komnir. Kærkomið tækifæri til að kynn-
ast ferðamöguleikum innanlands og á
Grænlandi. Dagskrá: 1. Kynnt verður
glæný ferðaáætlun Útivistar 1989 og
sýndar myndir er tengjast efni hennar.
Margar nýjungar. 2. Esjuflöll. Þátttak-
endur úr Esjuflaliaferð 13.-17. júlí sýna
myndir og segja frá ferðinni. 3. Lóns-
sveit. Myndir úr sumarleyfisferð í Lóns-
sveit 1.-6. júlí. 4. Grænland. Eftir hlé mun
Leifur Jónsson sýna myndir úr Græn-
landsferð Útivistar 4.-9. ágúst sl. en
nokkrar spennandi Grænlandsferðir
verða á boðstólum fyrir Útivistarfélaga í
sumar.
Menning dv
Jafnvægi
Norræna Húsið miðvikudaginn 11.
janúar kl. 12.30:
Robyn M.C. Koh lék verk eftir Cou-
perin, Purcell, Froberger og Rameau.
Þegar Jóhann Sebastían Bach fór
að kynna sér þau hljóðfæri sem síðar
gátu af sér píanóið (hann eignaðist
sjálfur það sem nefnt var fortepiano)
var ein helsta umkvörtun hans yfir
þeim sú hversu tónsviðin vom ólík
að styrk. Sterkastur var bassinn og
svo dofnaði styrkur eftir því sem ofar
dró. Þetta hentaði illa í tónlist þar
sem allar raddir gegndu jöfnu hlut-
verki en kom ef til vill minna að sök
í þeirri lagskiptu tónlist sem var að
komast í tísku í byijun 18. aldar.
Píanó nútímans em með sömu
ósköpum ger og nefndir forverar
þeirra þótt góðir píanóleikarar þurfi
engar áhyggjur af því að hafa. Bach
hafði vanist hinu fullkomna styrk-
leikajafnvægi sembalsins og þótti
fúgur jafnan hljóma betur á honum
en hamraverkinu.
Þegar leikið er á sembal þarf ekki
að halda aftur af neinu tónsviði og
þetta hefur óneitanlega áhrif á sál-
ræna upplifun okkar á tónlistinni,
Robyn Koh, semballeikari.
Tónlist
Atli Ingólfsson
einkum á tónleikum. Við finnum að
tónlistin er gerð fyrir þetta hljóðfæri
og hljóðfærið fyrir tónlistina og túlk-
andinn þarf ekki að miðla málum,
hann þarf aðeins að láta verkin
hljóma.
Robyn Koh lét verkin svo sannar-
lega hljóma í Norræna húsinu. Efnis-
skráin var heilsteypt, verk frá 17.
öld, og eftir mestu hljómborðsmeist-
ara þeirrar aldar auk verka Rameaus
(dáinn 1764).
Robyn hefur náð afbragðsgóðum
tökum á tækni sembalsins. Unun er
að heyra leik hennar að áherslum,
sem í semballeik eru snúið mál. Sem
dæmi um vel unnið áhersluspil nefni
ég Hornpipe eftir Purcell. í passaca-
ille Couperins, fagurri tónsmíð,
sýndi Robyn öryggi sitt í flúruðum
leik sem iðulega er aðalatriði í semb-
cdtónsmíðum. Kannski hefði hún
mátt registrera þynnra í gigue eftir
Froberger til að fá meiri andstæðu
við hina alvarlegu allemande.
Það sem máli skiptir er þó að hér
var á ferðinni listakona með skilning
á stíl og tónmáli þess er hún lék og
hæfileika til að flytja okkur boðskap
sinn.
Robyn hefur dvalið 1 's und-
anfarið og vonandi fá fleiri
tækifæri til að njóta lei. .,ciihar.
Atli Ingólfsson
VÉLSLEÐASÝNING - VÉLSLEÐAMARKAÐUR
nk. laugardag og sunnudaga frá kl. 13-18 í íþróttahöllinni á Akureyn.
Sjáið allar 1989 árgerðirnar frá Ski-Doo, Polaris, Yamaha, Arctic Cat.
Aftanísleðar, vélsleðakerrur,
kuldafatnaður, kuldaskór,
hjálmar og alls konar aukabún-
aður til sýnis og söiu.
★
Bílsímar, lórantæki, varahlutir,
olíur, áttavitar, kuldafatnaóur,
kuldaskór, vélsleóakerrur og
aftanísleðar.
★
Námskeið á staðnum í fjalla-
ferðum og lóranrötun.
★
Munið árshátíðina og skemmti-
kvöldið í Sjallanum á laugar-
dagskvöldið.
LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA VÉLSLEÐAMANNA - AKUREYRARDEILD.
Komiö og ræðió við umboós-
menn og sölumenn, fáið verð
og bæklinga.
Úrval af notuóum sleðum og
hjólum til sýnis og sölu á úti-
svæði.
★
Komiö með gamla sleðann á
markaðinn strax á föstudag og
reyni^ að skipta á nýrri.
★
Björgunarsveitir sýna útbúnað
sinn á útisvæði.
A •
Komið og spaið
Velkomin í íþróttahöllina, efri sal.
Af lífi
Norræna húsið, miðvikudaginn 11. janúar
kl. 20.30:
Uwe Eschner gítarleikari lék verk eftir
Villa-Lobos, Frank Martin, Brouwer, Bach
og Lauro.
Yfirleitt er maöur reiöubúinn aö
fyrirgefa gítarleikurum feilnótur í
upphafsverki tónleika. Þessu veldur
eitthvert dularfullt lögmál um upp-
hitun fingra og snerpu. Eiginlega
hefiast gítartónleikar oftast á öðru
verki efnisskrárinnar.
Hvað feilnótur snertir var þessu
lögmáli næstum hnekkt þegar Uwe
Eschner lék Etýðu númer átta eftir
Villa-Lobos í upphafi tónleika sinna.
Tónninn var þó minni en hann
reyndist síðar og svipur etýðunnar
ekki mjög sannfærandi. Hún er
reyndar eitt af þeim verkum Villa-
Lobos þar sem erfitt er að ná áttum,
einkum í upphafi. Þetta á ekki við
um fiórðu etýðuna sem Escher lék
fyrst eftir hlé. Enda birtist þar öryggi
túlkandans og ágæt tilfinning fyrir
formi.
Svíta Martins hljómaði um margt
ágætlega, einkum Plainte, sem var
mjög sannfærandi. Comme une gigue
var sennilega óþarflega hröð og hefði
kannski mátt vera meira eins og gíga.
Þannig er nefnilega, að yfirvegun
túlkanda dregur ekki úr skynjun
og sál
Tónlist
Atli Ingólfsson
okkar á hraða verksins ef hann vinn-
ur rétt með áherslur.
í suður-amerísku verkunum, eftir
Brouwer og Lauro, sýndi Eschner
sína bestu hlið, mikið öryggi og frá-
bært næmi á latneskt hljóðfall, og lék
hann þessi verk af lífi og sál.
Svíta í e moll eftir Bach^var mjög
áheyrileg og leikin af vissu. Á stöku
stað var eins og áherslur hlíttu ekki
tónlistarlegum rökum, en slíkt virð-
ist lenska meðal gítarleikara. Bo-
urrée kaflinn byijaði heldur hægt og
virtist ekki sitja vel í upphafshraðan-
um og gígan mátti vera danslegri.
Þetta dró þó ekki úr góðum heildar-
svip svítunnar. Og gleymum ekki aö
þrátt fyrir það sem hér hefur verið
nefnt hefur Uwe Eschner stigið yfir
fiölmörg ljón á vegi þess sem stefnir
langt sem gítarleikari. Hann hefur
gott vald á hljóðfæri sínu, rík styrk-
leikablæbrigði og vilja til að tala með
leik sínum.
Atli Ingólfsson